Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Qupperneq 28
28
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 JLj’V
Ertu sonur mömmu þinnar?
- hvers vegna kennir fólk sig við móður frekar en föður?
Siguröur A. Magnússon fór aö kenna sig við móöur sína .Aöalheiöi, áriö
1952.
Davíö Oddsson væri Ingibjargarson ef hann kenndi sig viö móöur sína.
Þegar nafn Heiöars Helgusonar
fór að hljóma á öldum ljósvakans og
birtast á síðum dagblaða hváðu
margir og töldu að um meinlega
prentvillu væri að ræða í nafni
manns sem hlyti að heita Heiðar
Helgason. Svo er ekki. Heiðar sem,
eins og e.t.v. margir vita, leikur
knattspyrnu með enska knatt-
spymuliðinu Watford á Bretlandi
og er metinn á hærri upphæðir en
flestir íslenskir knattspymumenn.
Heiðar er einn fjölmargra sem
hafa látið breyta kenninafni sínu og
kennir sig við móður sína í stað föð-
ur sins áður þegar hann hét Heiðar
Sigurjónsson. Heiðar á þetta sam-
eiginlegt með fjölmörgum íslending-
um sem hafa kosið að leggja niður
þá aldagömlu hefð að hver maður
eða kona skuli kennd við foður sinn
en þessi nafnahefð er eitt þeirra sér-
kenna íslensks þjóðfélags sem enn
hefur ekki verið lagað að alþjóðleg-
um fyrirmyndum. Á Spáni t.d. eru
allir með tvö ættamöfn og er hið
fyrra ættarnafn móður en hið síð-
ara ættamafn foður.
Nokkrir þekktir íslendingar
kenna sig við mæður sínar en sum-
ir kenna sig við báða foreldra sína.
Þannig er um þá bræður Gauta og
Dag Bergþórusyni Eggertssyni en
Dagur er þekktur sem ævisöguritari
Steingríms Hermannssonar. Þama
mætti einnig nefna Sigurð A. Magn-
ússon, rithöfund og menningarvita,
en A-ið í nafni hans mun standa fyr-
ir Aðalheiðarson.
Ingunn Ásdísardóttir er þekkt
fyrir störf sín í leikhúsheiminum og
víðar á sviði menningarmála. Sif
Ragnhildardóttir söng sig inn í
hjörtu landsmanna i kvikmyndinni
Með allt á hreinu. Jón Sæmundur
Auðarson hefur getið sér gott orð
meðal yngri kynslóðar listamanna
þrátt fyrir ungan aldur. Lóa Aldís-
ardóttir er þekktur blaðamaður.
Meðal ungs fólks sem ber kenninafn
móður má einnig nefna Líf Magneu-
dóttur, dóttur Magneu J. Matthías-
dóttur rithöfundar og Þórhildi El-
ínu Elínardóttur, eiginkonu Helga
Hjörvar borgarfulltrúa.
Hvernig á að fara að?
Samkvæmt upplýsingum starfs-
fólks Hagstofunnar er algengt að
fólk breyti nafnskráningu sinni með
þessum hætti og fer frekar í vöxt.
Sérstök eyðublöð fást til þessara
hluta á Hagstofunni og getur fólk
ráðið því hvort það lætur kenna sig
einungis við móður eða við bæði
móður og föður.
Hvað varðar nýja þjóðfélagsþegna
þá er fyrirkomulagið þannig að fæð-
ist barn í hjónabandi er það kennt
við foður sinn, eiginmann eða
skráðan sambýlismann móðurinnar
nema sérstaklega sé beðið um ann-
að. Þegar einstæðar mæður eignast
börn, þ.e. konur sem ekki eru skráð-
ar í sambúð eða hjónabandi, er
bamið kennt við móður sína. Síðan
er fyllt út sérstök faðemisviður-
kenning hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti og send til Hagstof-
unnar. Þrátt fyrir vottorðið er
skráningu viðkomandi barns ekki
breytt nema sérstaklega sé beðið
um það. Að sögn starfsfólks Hagstof-
unnar og starfsmanns Sýslumanns-
embættisins í Reykjavík fer í vöxt
aö mæður vilji láta kenna böm sín
við sig þó þau séu rétt feðruð eftir
kúnstarinnar reglum og réttum
pappírum um það skilað. Það er
hins vegar ekki svo í öllum tilvik-
um og ekki lagaskylda að feðra öll
börn. Við fæðingu er fyllt út
svokölluð fæðingarskýrsla og þar er
ljósmóður eða lækni gert að inna
móður eftir faðerni. Kjósi hún að
gefa það ekki upp er látið þar við
sitja, þótt flestir séu sammála um að
móður sé siðferðilega skylt að feðra
bam sitt.
Þekktist fyrir rúmum
þúsund árum
Skylt er að geta að þótt það sýn-
ist meðvitað og nútímalegt að kenna
sig við móður sína þá er það alls
ekki nýtt fyrirbæri. í Egils sögu
Skallagrímssonar er sagt frá Háreki
og Hræreki Hildiríðarsonum sem
voru talsverðir kappar og sóttu rétt
sinni af mikilli hörku á hendur
Þórólfi Kveldúlfssyni. Þeim er lýst
svo að þeir hafl verið smáir vexti en
vel viti bomir og beittu fremur
klókindum en aflsmun. Einnig
mætti nefna Droplaugarsona sögu
sem segir frá Helga og Grími Drop-
laugarsonum sem ólust upp á Fljóts-
dalshéraði. Þeir voru engir aukvis-
ar sem sést best á því að þeir fóru
tveir saman, 12 og 13 ára gamlir, að
Þorgrími tordýfli og drápu hann
vegna þess að hann hafði sagt eitt-
hvað óviðurkvæmilegt um móður
þeirra. Þannig má segja að það hafi
tíðkast allt frá söguöld að menn
væru kenndir við mæður sínar og
sé það samkvæmt því að komast aft-
ur í móð eftir tæplega 1000 ára hlé.
Davíð Ingibjargarson?
Það er skemmtilegt að velta því
fyrir sér hvemig nöfn þekkta ís-
lendinga myndu hljóma ef þeir færu
að dæmi samferðamanna sinna og
kenndu sig við móður sína í stað
föður. Þar er efstur á blaði Davíð
Ingibjargarson forsætisráðherra en
formaður Framsóknarflokksins
Halldór Guðrúnarson veitir honum
styrk. Aðrir ráðherrar i rikisstjóm
þeirra eru t.d. Valgerður Jórlaugar-
dóttir iðnaðarráðherra, Páll Huldu-
son félagsmálaráðherra, Geir H.
Önnuson fjármálaráðherra, Ámi
Sigrúnarson sjávarútvegsráðherra
og Björn Sigriðarson menntamála-
ráðherra.
Af öðrum valdamönnum í ís-
lensku þjóðfélagi mætti nefna herra
Karl Magneuson biskup, Ólaf Ragn-
ar Svanhildarson, forseta Islands,
Garðar Ingunnarson, forseta Hæsta-
réttar og Halldór Kristjönuson, for-
seta Alþingis.
Af frægum listamönnum mætti
nefna Hjálmar Sigríðarson, rektor
Listaháskólans, Atla Heimi Kristín-
arson tónskáld, Kristján Fanneyjar-
son stórsöngvara, Ólaf Jóhann
Önnuson, rithöfimd og Egil Mar-
grétarson, söngvara og Stuðmann.
Af þekktum athafnamönnum
mætti hugsa sér Sigurð Gísla Jón-
ínuson, eiganda Hofs, Eyjólf Auðar-
son, forstjóra Frjálsrar fjölmiðlunar
og Kára Sólveigarson, forstjóra ís-
lenskrar erfðagreiningar, og Krist-
inn Emilíuson, forstjóra Skeljungs
,svo fáeinir séu nefndir.
Vildi merkja mig móður
minni
Sigurður Aðalheiðarson Magnús-
son rithöfundur mun vera með
þeim allra fyrstu sem lét breyta
nafninu sínu á þann veg að hann
kenndi sig við móður sína.
„Forsagan er sú að ég var ungur
maður suður á Grikklandi árið 1952
og skrifaði greinar um ferðalög,
land og þjóð í Morgunblaðið. Al-
nafni minn Sigurður Magnússon,
síðar blaðafulltrúi Flugleiða, fékkst
við svipuð skrif og fólk var alltaf að
rugla okkur saman. Sigurður nafni
minn taldi að mér bæri að breyta
mínu nafni þar sem hann væri
eldri. Þetta var alveg rétt og þegar
ég fór að hugsa máliö og mundi að
faðir minn hafði átt böm með sjö
konum þá fannst mér eðlilegast að
merkja mig henni móður minni. Ég
held að þetta sé ekki skráð svona í
þjóðskrá en þetta er löngu orðin
órjúfanlegur hluti af nafninu
minu,“ sagði Sigurður þegar DV
bað hann að útskýra tilurð nafns-
ins.
Ahrif kvennabaráttunnar
„Ég ólst upp hjá móður minni og
þekkti föður minn ekki þó ég væri
kennd við hann,“ sagði Ingunn Ás-
dísardóttir í samtali við DV.
„Þegar ég kynntist hugmyndum
kvennabaráttu 19 ára gömul árið
1971 þá fannst mér tilvalið að sýna
jafnréttishugsjónina í verki og lét
breyta nafninu mínu til móður
minnar. Það var í þann tíð ekki auð-
velt fyrirtæki og ég man að það tók
þrjá mánuði að fá nýja skráningu
hjá Hagstofunni. Ég held að þá haíl
þetta verið afar fátítt og gæti trúað
að ég og Sif Ragnhildardóttir söng-
kona hefðum verið með þeim allra
fyrstu sem þetta gerðu.“
Sif Ragnhildardóttir söngkona sló í
gegn í kvikmyndinni Meö allt á
hreinu.
Kári Stefánsson væri Sólveigarson
ef hann hefði áhuga á því.
Halldór Ásgrímsson gæti látiö kalla
sig Guörúnarson.
-PÁÁ
Ingunn Ásdísardóttir breytti nafninu sínu í nafni kvennabaráttu áriö 1971.