Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Page 1
15
Biðstaða
hjá Sigþóri
Sigþór Júlíusson, knattspyrnumaður úr KR, kom heim um helg-
ina eftir vikudvöl hjá hollenska A-deildarliðjnu Nijmegen. Sigþór
lék einn leik með varaliði félagsins og ekki er hægt að segja ann-
að en hann hafi látið að sér kveða.
Sigþór og félagar sigruðu í leiknum, 3-2, þar sem
Sigþór lagði upp eitt mark, fiskaði vítaspymu og
skoraði þriðja markið.
„Þeir voru ánægðir með það sem þeir sáu til mín
en eins og staðan er í dag gerist ekkert meira 1
þessu fyrr en eftir tímabilið hér heima í sumar. Ég
reikna með að heyra frá þeim í sumar og þá munu þeir koma og
kíkja á mig þegar við KR-ingar förum í keppnisferð til Hollands í
apríl,“ sagði Sigþór í samtali við DV í gær, en hann á tvö ár eftir
af samningi sínum við vesturbæjarliðið.
-GH
Ríkharður farinn
að lyfta og skokka
Rikharður Daðason, landsliðsmaður í knattspymu og leikmaður
hjá Viking i Noregi, er að ná sér eftir speglunina á hné sem hann
gekkst undir í Noregi fyrir tveimur vikum síðan. Rikharður fór
með félögum sínum í liðinu I tveggja vikna æfinga- og keppnisferð
til La Manga á Spáni og sigraði liðið danska liðið
AGF, 2-1, í fyrsta leik i gær. Auðun Helgason lék
allan tímann með Viking. Hjá AGF lék Ólafur Krist-
jánson síðari hálfleikinn en Tómas Ingi Tómasson
var á varamannabekknum.
„Ég stefni að því að byggja mig upp á næstunni
en ég er farinn að lyfta og skokka svolítið. Eins og
málin líta út í dag á ég ekki von á öðru en að leika meö Viking í
sumar. í október þegar samningur minn við félagið rennur út ætla
ég að skoða mín mál,“ sagði Ríkharður Daðason við DV í gær-
kvöld.
-JKS
Stoke City í vanda
Enska knattspymusambandið vmnur við rannsókn á uppþotum
sem uröu á áhorfendapöllunum þegar Wigan og Stoke City áttust
við i ensku C-deildinni á laugardaginn en leiknum lauk með sigri
Stoke, 2-1.
Slagsmál brutust út á milli stuðningsmanna liðanna og fyrstu
fregnir herma að stuðningsmenn Stoke hafi átt upptökin. Svo mik-
ið gekk á að dómari leiksins ákvað að gera hlé á leiknum og kalla
leikmenn inn til búningsherbergja í 10 mínútur.
Stoke á yfir höfði sér stranga refsinu frá enska knattspymu-
sambandinu vegna þessa atviks. Refsingin gæti orðið á þá leið að
dregin verði stig af félaginu, að leikurinn verði jafnvel endurtek-
inn eða að Stoke þurfti að spila fyrir luktum dyrum.
„Við verðum að kunna að haga okkur vel jafnt utan sem innan
vallar og ég vona aö ég eigi ekki eftir að verða vitni að svona lög-
uðu aftur," sagði Guðjón Þórðarson, knattspymustjóri Stoke, í
samtali við The Sentinel eftir að hafa fengið að kynnast breskum
fótboltabullum í fyrsta sinn.
-GH
Bjarki að koma til
Handknattleikslið Aftureldingar hefur sárt saknað Bjarka Sig-
urðssonar, en hann hefur ekkert leikið með liðinu í síðustu leikj-
um vegna meiðsla í hné. Bjarki fór í speglun fyrir
tveimur vikum og sagðist í samtali við DV vera að
koma til en ljóst væri að þetta tæki tíma.
Afturelding hefur tapað þremur af síðustu fjórum
leikjum sínum í deildinni.
„Ég ætla ekki af stað fyrr en ég hef náð mér
100%. Hvenær það verður verður tíminn einn að
leiða í ljós. Ég ætla ekki að falla í þá gryfju að fara of fljótt af stað.
Læknirinn segir að þetta líti vel út og við verðum að sjá hvað set-
ur,“ sagði Bjarki Sigurðsson. -JKS
Rússinn Eduard Moska-
íenko brýst hér í gegnum
vörn KA og skorar eítt
fimm marka sinna í
leiknum. Tíí varnar er
Porvaldur Porvaldsson
en Heimir Arnason
fylgist álengdar meö
Kvennaknattspyrna:
Tvær frá Júgóslavíu til FH
Kvennalið FH sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni í
knattspymu á komandi tímabili mun tefla fram tveimur
leikmönnum frá Júgóslavíu í sumar.
Önnur er komin en það er Svetlana Ristic. Hún er 32 ára
gamall vamarmaður og fyrrum landsliðskona Júgóslavíu.
Hún þekkir aðeins til knattspyrnunnar hér á landi en hún
lék með liði ÍBV árið 1995.
Þá er væntanleg í maí annar leikmaður frá Júgóslavíu
til FH. Sá leikmaður er í landsliði Júgóslavíu í dag og leik-
ur i stööu vamarmanns.
Þessar júgóslavnesku knattspymukonur ættu að styrkja
nýliða FH verulega fyrir sumarið en þær koma í stað Ömu
Steinsen, sem hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, og
Sirrýjar Hrönn Haraldsdóttur, sem er i bameignarfríi.
-GH