Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2000, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2000, Síða 26
50 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 Afmæli Sigurður Helgason Sigurður Helgason, fyrrv. deildar- stjóri grunnskóladeildar í mennta- málaráðuneytinu, Hrafnhólum 2, Reykjavík, verður sjötugur á morg- un, fimmtudaginn 2. mars. Starfsferill Sigurður fæddist á Kletti í Reyk- holtsdal í Borgarfirði en ólst upp á Heggstöðum í Andakíl. Hann lauk kennaraprófl 1949, íþróttakennara- prófi 1951, var í framhaldsnámi við Statens Gymnastikkskole í Ósló 1956 og viö Óslóarháskóla og síðar við Háskólann í Minnesota í Banda- ríkjunum 1963. Sigurður var kennari við Bama- og miðskólann í Stykkishólmi 1951-59 og skólastjóri þar 1959-65. Hann var skólastjóri við Laugagerð- isskóla í Eyjahreppi á Snæfellsnesi frá stofnun hans 1965 til 1970. Sig- urður var deildarstjóri í fræðslu- málaskrifstofu frá 1970-71 og síðan deildarstjóri grunnskóladeildar i menntamálaráðuneytinu frá 1971-1999. Hefur síðan starfað við ýmis verkefni í menntamálaráðu- neytinu. Hann var forstöðumaður sumar- búða fyrir börn á vegum íþrótta- hreyfingarinnar sumrin 1962, 1964, og 1965, var formaöur Ungmennafé- lags Snæfells 1952-54 og 1956-61, for- maður barnaverndarfélags Stykkis- hólms 1956-58, formaður Héraðs- sambands Snæfellsnes og Hnappa- dalssýslu 1954-55, íþróttaráðunaut- ur þess 1956-70 og sat í stjórn Frjáls- íþróttasambands íslands 1965-84. Sigurður er heiðursfélagi Ung- mennafélagsins Snæfells í Stykkis- hólmi, Ungmennafélagsins íslend- ings i Andakíl og Frjálsíþróttasam- bands íslands. Hann var sæmdur gullmerki ÍSÍ 1980, auk þess sem hann hefur verið sæmdur ýnis- um öðrum heiðursmerkj- um íþróttahreyfíngarinn- ar, innlendum og erlend- um. Sigurður hefur starfað í ýmsum ráðum og nefnd- um í stjómarráði íslands, sat í samninganefnd rík- isins frá 1977-89 og aftur frá 1990. Á síðari árum hefur Sigurður unnið mikið að nemendaskipt- um milli íslands og annarra Norð- urlanda auk þess sem hann er upp- hafsmaður að fyrstu skólabúðum á íslandi í Reykjaskóla við Hrúta- fjörð. Fjölskylda Fyrri kona Sigurðar var Ólöf Lára Ágústsdóttir, starfsmaður rík- isskattstjóra, en þau Sigurður slitu samvistum 1980. Sonur þeirra er Ágúst Heiðar, f. 27.6. 1954, rafvirki í Reykjavík, kvæntur Margréti Har- aldsdóttur og eiga þau þrjú böm. Sigurður kvæntist 31.12.1985 Soff- íu Kristjánsdóttur, f. 4.7. 1952, dótt- ur Kristjáns Kristjánssonar húsa- smíðameistara, sem lést 1958, og konu hans, Sigríðar Sigurðardóttur, d. 1995, starfaði við Elliheimilið Grund. Börn Sigurðar og Sofíiu eru Álf- heiður, f. 19.8. 1982, og Helga Guð- rún, f. 21.2. 1984. Sigurður átti þrjú systkini en á nú eina systur á lifi. Systkini hans: Guðrún Helgadóttir, f. 1922, d. 1983, húsmóðir í Kópavogi: Guðný Helga- dóttir, f. 1924, kennari, og Kristófer Helgason, f. 1926, d. 1959, b. á Hegg- stöðum. Foreldrar Sigurðar voru Helgi Sigurðsson, f. 23.12. 1893, d. 2.7. 1983, b. á Heggstöðum, og kona hans, Ástríður Guðrún Halldórsdóttir, f. 23.12. 1901, d. 30.5. 1981, hús- móðir. Ætt Helgi var sonur Sigurð- ar, b. á Hömrum í Reykholtsdal, Helgasonar, b. á Hrafnkelsstöðum, Jóhannessonar. Móðir Sigurðar var Sesselja, dóttir Björns Björnssonar frá Mánaskál í Áustur-Húnavatns- sýslu og Elinar Guðmundsdóttur frá Syðra-Hóli á Skagaströnd, syst- ur Sigurðar, b. á Heiði í Göngu- skörðum, langafa Huldu Stefáns- dóttur skólastjóra, móður Guðrún- ar Jónsdóttur arkitekts. Móðir Helga á Heggstöðum var Guðrún, systir Jóns í Fljótstungu, foðureifa Páls Bergþórssonar veður- stofustjóra, en Jón var móðurafi Páls, fóður Kolbeins, fyrrv. for- manns KKÍ. Guðrún var dóttir Páls, smiðs á Þorvaldsstöðum, bróður Herdísar, langömmu Jóns Helga- sonar rithöfundar, Péturs Ottesen alþingismanns, Magnúsar skálds og Leifs prófessors Ásgeirssona og Ástu, móður Björns Kristinssonar prófessors. Páll var sonur Jóns, b. á Þorvaldsstöðum, Auðunssonar. Móðir Jóns var Margrét, systir Jóns Þorvaldssonar, ættfóður Deild- artunguættarinnar. Móðir Páls var Þórunn, dóttir Jóns Guðmundsson- ar, b. á Svarfhóli, og Margrétar Þor- steinsdóttur. Móðir Guðrúnar Páls- dóttur var Guðrún, systir Halldóra, ömmu Guðmundar Böðvarssonar skálds. Guðrún var dóttir Bjama Sumarliðasonar á Varmalæk og Guðrúnar Jónsdóttur. Bræður Helga voru Georg, bóndi í Skjálg, faðir Ragnars, skólafull- trúa Reykjavíkurborgar, og Jakob, faðir Magnúsar, formanns Frjálsí- þróttasambands íslands. Systir Ástríðar Guðrúnar var Helga Ingibjörg, móðuramma Svav- ars Gestssonar sendiherra og fyrrv. ráðherra og alþingismanns. Bróðir Ástríðar var Helgi J. Halldórsson íslenskufræðingur. Ástríður var dóttir Halldórs, b. á Kjalvararstöð- um í Reykholtsdal, Þórðarsonar, b. í Skáneyjarkoti í Reykholtsdal, bróður Ástríðar, ömmu Guðjóns Baldvinssonar, formanns BSRB. Þórður var sonur Halldórs, b. í Skáneyjarkoti, Þórðarsonar og Ingi- bjargar Samsonardóttur, b. á Rauðsgili, Jónssonar. Móðir Ingi- bjargar var Helga Tómasdóttir. frá Ásgeirsá í Víðidal. Móðir Halldórs á Kjalvararstöðum var Helga Sig- hvatsdóttir, b. á Úlfsstöðum, Þórð- arsonar. Móðir Helgu var Þorgerð- ur Jónsdóttir, b. á Úlfsstöðum, Grímssonar og konu hans, Valgerð- ar, systur Sigurðar, b. í Sanddals- tungu, langafa Ásmundar rafvirkja, afa Ásmundar Stefánssonar, fyrrv. forseta ASÍ. Valgerður var dóttir Jóns, b. og dbrm. i Deildartungu, ættfoður Deildartunguættarinnar, Þorvaldssonar. Móðir Ástríðar, Guðný, var dóttir Þorsteins, b. á Gróf í Reykholtsdal, Sigmundsson- ar og konu hans, Guðríðar Jóns- dóttur. Sigurður Helgason. Einar Gunnar Jónsson Einar Gunnar Jónsson verkstjóri, Víðilundi 20, Akureyri, er sjötugur í dag. Starfsferill Einar fæddist á Akureyri og gekk í barnaskóla en fór snemma að vinna við ýmis störf tfi sjós og lands. Árið 1946 starfaði hann á Hótel Norðurlandi sem næturvörð- ur og einnig i fatageymslu hótels- ins. Þá vaknaði áhugi hans á tón- list sem hefur verið hans aðal- áhugamál síðan. Árið 1949 fluttist Einar til Reykjavíkur og spilaði þar með KK sextettinum, síðan með Jose Riba í Silfur- tunglinu og nokkur ár með Rondotríó. Um tíma gerði Einar Gunnar hlé á spilamennsku sinni og gerðist þá kokkur, m.a. á Fjallfossi. í Reykjavík starfaði hann á sendibíla- stöð og fasteignasölu. Einar fluttist ásamt konu og börnum til Akur- eyrar árið 1969 og starfaði Einar fyrst um sinn hjá Sláturhúsi KEA. Eftir það starfaði hann hjá Olíu- verslun íslands sem umsjónarmað- Flúðum og Einar Gunnar Jónsson. ur við nýbyggingu fé- lagsins við Tryggva- braut. Síðar varð hann verkstjóri hjá Olíuversluninni og hefur gegnt því starfi síðan. Einar hefur ætíð tekið virkan þátt í félags- málum. Hann hefur verið virkur í Verk- stjórafélagi Akureyrar og nágrennis, Leikfé- lagi Akureyrar, Lions- klúbbi Akureyrar, Stangveiðifélaginu Lúörasveit Akureyrar þar sem hann hefur verið formað- ur 1 mörg ár. Fjölskylda Einar Gunnar kvæntist árið 1956 Erlu Sigurðardóttur, en hún lést 10. febrúar síðastliðinn. Börn Einars og Erlu eru Ólafur, Hafdís, Emilia, Einar og Sigurður. Einar eignaðist þrjú systkini; Halldóru Elínu, búsett á Akureyri; Bjama Pál, búsettur í Reykjavík; og Emu Heiðrúnu, sem er látin. Foreldrar Einars Gunnars voru Jón Almar Eðvaldsson og Jakobína Guðbjartsdóttir. Jón Ingvi Sveinsson Jón Ingvi Sveinsson húsasmíða- meistari, Skarðshlíð 17, Akureyri, er sextugur í dag. Starfsferill Jón fæddist í Glerárþorpi viö Ak- ureyri og ólst þar upp í foreldrahús- um. Hann starfaði sem unglingur hjá Gefjun á Akureyri til tuttugu og eins árs aldurs en flutti þá til Húsa- víkur þar sem hann lærði húsasmíði hjá Trésmiðjunni Borg en á Húsavík bjó hann i átján ár. Jón hefur stund- að iðngrein sína frá því hann lauk sveinsprófi. Hann hefur búið á ýms- um stöðum, m.a. í Vestmannaeyjum. Jón gaf út hljómplötu með eigin lög- um og textum árið 1984. Fjölskylda Jón kvæntist 31.12. 1958 Kristjönu Björgu Pétursdóttur, f. 20.9. 1940, d. 6.2.1991, húsmóður, en hún var dótt- ir Péturs Sigurgeirssonar, bifreiða- stjóra á Húsavík, sem lést 1944, og Sigríðar Jónasdóttur. Seinni maður Sigríðar var Aðalgeir Friðbjömsson húsasmiður sem einnig er látinn. Jón og Kristjana eignuðust fjögur börn. Þau eru: Pétur Ármann Jóns- son, f. 5.11.1958, sjómaður á ísafirði, kvæntur Guðrúnu Kristjánsdóttur bankastarfsmanni og á Pétur tvö böm frá því fyrir hjónaband, Ingólf Elvar, með Hörpu Fold Ingólfsdótt- ur, og Ingva, með Emu Finnboga- dóttur; Margrét Sigríður Jónsdóttir, f. 5.3. 1961, húsmóðir í Grindavík, gift Amari Þorbjömssyni bifreiða- stjóra og eiga þau þrjú böm, Helgu Björg, Kristjönu og Jónu Birnu; Sveinn Kristján, f. 31.5.1964, sjómað- ur í Vestmannaeyjum; og Aðalgeir Amar, f. 25.4. 1975. Barnabam fædd- ist svo á dögunum, Sigurjón Ágúst Sveinsson, f. 8.6. 1999. Síðari kona Jóns er Jarþrúður Sveinsdóttir, f. 25.5. 1939. Jón á tvo bræður. Þeir eru Friðrik Ármann Sveinsson, f. 17.8. 1935, bóndi í Steindyrum í Svarfaðardal, kvæntur Emu Sveinsson frá Lúbeck í Þýskalandi, og Kristján Helgi Sveinsson, f. 9.5. 1937, kennari og bóndi á Blómsturvöllum í Glæsibæj- arhreppi, kvæntur Gígju Friðgeirs- dóttur bankastarfsmanni og eiga þau Qögur böm. Foreldrar Jóns: Sveinn Sigurjón Kristjánsson, f. 23.7. 1905, d. 28.9. 1974, bóndi og verkamaður á Uppsöl- um í Glerárþorpi, og kona hans, Margrét Sigurlaug Jónsdóttir, f. 30.7. 1901, d. 6.2. 1995, húsfreyja á Uppsöl- um. Ætt Sveinn var sonur Kristjáns Lofts Jónssonar, b. að Uppsölum í Svarfað- ardal, og Heigu Guðjónsdóttur. Kristján Loftur var sonur Jóns, b. í Sauðanesi, Jónssonar. Móðir Jóns á Sauðanesi var Guðlaug Alexanders- dóttir, b. á Völlum, Kristjánssonar, b. á Steðja, Sigurðssonar, b. á Ytra-Dals- gerði, Magnússonar, b. á Grísá, Tóm- assonar, bróður Tómasar, ættfóður Hvassafellsættarinnar, og Sölva, föður Sveins lögmanns. Móðir Guðlaugar var Guðlaug Jónsdóttir, b. á Hamri á Þelamörk, Gunnlaugssonar, og konu hans, Guðrúnar Sigurðardóttur, b. á Stóra-Rauðalæk, Bjarnasonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Vigfúsdóttir, lögréttumanns á Herjólfsstöðum í Álftaveri, Jónssonar. Margrét var dótt- ir Jóns Gunnlaugssonar, verkamanns í Ási í Glerárþorpi, og Þórunnar Ingi- bjargar, systur Kristjáns Tryggva, fóð- ur Sigurðar, skólastjóra á Laugum, og Hugrúnar skáldkonu, móður Helga Valdimarssonar, læknis og prófessors. Systir Þórunnar var Guðrún, móðir Jóns Jónssonar, skólastjóra á Dalvík. Þórann var dóttir Sigurjóns, b. á Gröf í Svarfaðardal, bróður Guðlaugar í Sauðanesi. Móðir Þórunnar var Sigurlaug Jónsdóttir, b. á Hnjúki, bróður Páls, langafa Hermanns Jónassonar forsæt- isráðherra, föður Steingríms forsætis- ráðherra. Annar bróðir Jóns var Jón yngri, langalangafi Guðjóns B. Ólafs- sonar, forstjóra SÍS. Jón var sonur Þórðar, b. á Hnjúki, Jónssonar, og konu hans, Sigríðar Guðmundsdóttur, b. á Hnjúki, Ingimundarsonar. Móðir Sigríðar var Hólmfríður Jónsdóttir, systir Þórðar, foður Páls Melsteð amt- manns, ættfóður Melsteðættarinnar. Þau Jón og Jarþrúður verða með op- ið hús eftir kl. 15 á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 1. mars 85 ára Hulda Emilia Emilsdóttir, Birkihlíð, EgOsstöðum. Jón Guðnason, Hamraborg 14, Kópavogi. 80 ára Una Nikulásdóttir, Kirkjuvegi 6, Hafnarfirði. 75 ára Dagbjört Guðmundsdóttir, Hólmgarði 25, Reykjavík. Einar Leifur Pétursson, Reykjavík. Kristín Kristjánsdóttir, Strandaseli 8, Reykjavík. Sigríður Steinsdóttir, Hvítingavegi 10, Vestmeyjum. 70 ára Cheg Wushueng Ywrée, Laugavegi 147, Reykjavík. Einar Gunnar Jónsson, Víðilundi 20, Akureyri. Guðni Jóhannes Ásgeirsson, Kirkjubraut 35, Akranesi. Hannibal Helgason, Melgerði 20, Kópavogi. Jakob Helgason, Gufuhlíð, Selfossi. Jón Einarsson, Bakka, Hvolsvelli. Sigríður Márusdóttir, Hjaltastaðahvammi, Varmahlíð. 60 ára Guðni Steinar Gústafsson, lög- giltur endurskoð- andi, Arnartanga 36, Mosfellsbæ. Guðni og eigin- kona hans, Guð- rún Snæbjörnsdóttir, taka á móti gestum í Akógessalnum, Sóltúni 3, á afmælisdaginn kl. 17-20. Hallgrímur Bergsson, Bláskógum 4, Egilsstöðum. Hilmar Haraldsson, Engihjalla 11, Kópavogi. Hólmfríður Kristmannsdóttir, Fremri-Nýpum, Vopnafirði. Jón Ingvi Sveinsson, Skarðshlíð 17, Akureyri. Jón Ólafsson, Helfisgötu 34, Hafnarfirði. Jónína M. Sigtryggsdóttir, Sólbrekku 15, Húsavík. 50 ára Arnar Kristjánsson, Góuholti 8, ísafirði. Guðrún R. Guðmundsdóttir, Vesturgötu 15, Keflavík. Gunnar Snæland, Fálkagötu 20, Reykjavík. Ingimar Birgir Bjömsson, Lerkihlíð 2, Sauðárkróki. Lára Kristinsdóttir, Dalatanga 4, Mosfellsbæ. Þorsteinn Loftsson, Sörlaskjóli 44, Reykjavík. 40 ára Birgir Vilhjálmsson, Reynivöllum 12, Egilsstöðum. Eydís Ýr Guðmundsdóttir, Mávahlíð 29, Reykjavík. Guðbjöm Ámason, Granaskjóli 5, Reykjavík. Guðmundur Helgi Valtýsson, Hamrabergi 38, Reykjavík. Jónas Kristinsson, Ránargötu 46, Reykjavík. Katrín Gísladóttir, Asparfelli 12, Reykjavík. Oddur Gunnarsson, Laxakvísl 35, Reykjavík. Páll Theódórsson, Kambaseli 79, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.