Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2000, Blaðsíða 2
16
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000
25
Sport
DV DV
Sport
Bland í poka
Dregiö var til undanúrslita í
skosku bikarkeppninni i knatt-
spyrnu í gær. Hibernian leikur á
móti Aberdeen og Rangers gegn Ayr
United sem leikur í B-deildinni.
Hibernain komst síðast í undanúr-
slit fyrir fimm árum. Hins vegar er
21 ár síðan liðið varð síðasta bikar-
meistari.
Arnar Grétarsson hefur ekkert
leikið með AEK síðan hann fór til
Belgíu fyrir röskum mánuði til að
líta á aðstæður. Samningur hans
við AEK rennur út í vor.
OB Odense, lið Guðmundar E.
Stephensen, hafnaði i þriðja sæti í
dönsku úrvalsdeildinni i borðtennis
sem lauk um helgina. Guðmundur
stóð sig vel í tveimur leikjum OB
um helgina. OB gerði 5-5 jafntefli
gegn Virum þar sem Guðmundur
vann sina leiki og sama niðurstaða
var í leik OB og Brönderslev þar
sem Guðmundur sigraði í einum
einliðaleik og tviliðaleik en tapaði
öðrum einliðaleiknum.
Nígeríski landsliðsmaðurinn Kanu
skrifar undir nýjan samning við
Arsenal í vikunni en hann hefur átt
í samningaviðræðum við forráða-
menn félagsins síðustu vikumar.
Nýi samningurinn tryggir Kanu 3
milljónir króna í vikulaun og gerir
hann að einum launahæsta leik-
manni félagsins.
Mark Hughes er sterklega orðaöur
við Everton en Walter Smith, stjóri
Everton, hefur mikinn áhuga á að fá
þennan 36 ára gamla leikmann frá
Southampton til liðs við sig. Hann
gæti gengið frá samningi í dag og
yrði þá í leikmannahópi Everton sem
mætir Coventry annað kvöld.
Tveir leikir voru í deildarbikar-
keppni KSl í knattspymu í gær. Víð-
ir burstaði Létti, 5-0, og Grindavík
og Víkingur skildu jöfn, 2-2. Sverrir
Sverrisson skoraði bæði mörk
Grindavíkur en Daníel Hjaltason
skoraði bæði mörk Víkinga úr
vítaspymum. -JKS/GH
Keflavík hefur styrkt lið sitt í körfunni bæði í karla- og
kvennaflokki. Karlaliðið hefur fengið fjórða bandaríska
leikmanninn til liðs við sig í vetur en kvennaliðið þann fyrsta.
Quincy Gause er 24 ára framherji, 1,98 á hæð og lék síðast í
Chile en kemur frá Georgia State-háskólanum þar sem hann
útskrifaðist 1998. Gause er sterkur skorari og frákastEU’i og hefur
spilað sem miðherji þrátt fyrir að ná ekki að fylla 2 metrana. Á
síðasta ári sínu með Georgia State var hann hæstur í skotnýtingu
(66%) og stolnum boltum auk þess að vera þriðji í fráköstum og
fjórði í stigaskotun. Hann nýtti auk þess vítin sín 82% sem er
mjög gott.
Keflvíkinga hefur vantaö mikið sterkan skorara undir körfuna
og nú er bara að sjá hvemig kappinn fellur inn í liðið en Keflavík
Keflavík
mætir Grindavík í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar sem hefst
á fimmtudag. Það kom fáum á óvart að Keflavíkurliðið lét Glover
Jackson fara en þessi 2,06 metra miðherji sýndi fátt og lítið
merkilegt í þeim þremur íeikjum sem hann spilaði. Gause verður
27. bandaríski leikmaðurinn sem kemur í deUdina í vetur.
Kvennalið Keflavíkur hefur í kjölfar ákvörðunar KR um að fá
sér erlendan leikmann fengið sér útlending fyrir úrslitakeppnina.
Sú heitir Christy Cogley, 24 ára, útskrifuð út úr Mercer-
háskólanum árið 1998 en hefur verið að spila með
hálfatvinumannaliði undanfarið ár. Cogley er 175 cm á hæð, mjög
fjölhæf, sterkur skorari en á síðasta ári sínu í háskóla var hún á
topp 8 í fimm tölfræðiþáttum og efst í skotnýtingu (70,7%).
-ÓÓJ
Grótta/KR 19 (12) - Stjarnan 18 (12)
1-0, 1-3, 3-4, 5-5, 8-5, 9-9, 10-11, (12-12), 13-12, 14-14,
16-14, 17-17, 18-18, 19-18.
2-1
Alla Gorgorian 7/3, Ágústa Edda Bjömsdóttir 5, Kristín
) Þórðardóttir 3, Edda Hrönn Kristinsdóttir 2, Ragna K.
Sigurðardóttir 1, Brynja Jónsdóttir 1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 14.
Brottvísanir: 10 mínútur. Rauö spjöld: Engin.
Vítanýting: Skorað úr 3 af 4.
Áhorfendur: 550.
Gœði leiks (1-10): 7.
Dómarar (1-10): Gísli Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson (9).
Ragnheiður Stephensen 8/3, Sigrún Másdóttir 4, Guðný
Gunnsteinsdóttir 3, Rut Steinsen 2, Þóra Helgadóttir 1.
Varin skot: Sóley Halldórsdóttir 15.
Brottvísanir: 6 mínútur. Rauó spjöld: Engin.
Vitanýting: Skorað úr 4 af 5.
$
Maöur leiksins: Alla Gorgorian, Gróttu/KR.
Nýir íslandsmeistarar verða
krýndir í 1. deild kvenna í hand-
knattleik í vor eftir að meistarar
Stjörnunnar voru slegnir út af
Gróttu/KR í oddaleik liðanna í 8-
liða úrslitunum á Seltjarnarnesi
í gærkvöldi. Þetta var leikur
sem bauð upp á allt sem prýða á
góðan handboltaleik. Griðarleg
spenna, góður varnarleikur,
snjöll markvarsla og mistök á
báða bóga og 550 áhorfendur
fengu svo sannarlega mikið fyrir
aurana.
Það var Alla Gorgorian sem
tryggði Gróttu/KR sigurinn þeg-
ar hún skoraði sigurmarkið
rúmri minútu fyrir leikslok og
lokamínútan var vægast sagt
spennandi. Stjaman missti bolt-
ann þegar 40 sekúndur voru eft-
ir en vann hann aftur þegar 20
sek. voru til leiksloka en á
klaufaiegan hátt glutruðu
Stjömustúlkur boltanum á ný og
þar með möguleikanum á að
verja titilinn.
„Þetta var vinnusigur en sig-
urinn hefði hæglega getað lent
hjá Stjömunni. Við vorum auð-
vitað hungraðar í að komast
áfram og baráttan hjá okkur var
svakalega góð. Við höfum aldrei
áður náð svona langt og það
væri gaman að fara alla leið og
bæta fyrir tapið í bikarúrslitun-
um. Það er hins vegar löng leið í
átt að titlinum. Við eigum Vík-
ing næst og það verða erfiðir
leikir enda hafa Víkingar spilað
liða best í vetur,“ sagði Fanney
Rúnarsdóttir, markvörður
Gróttu/KR, við DV eftir leikinn
en hún stóð sig vel á milli stang-
anna og lokaði markinu á löng-
um köflum í seinni hálfleik. Alla
Gorgorian og Ágústa Edda léku
einnig vel og þá kom Edda
Hrönn sterk inn á lokakaflanum.
„Við getum engum nema sjálf-
um okkur um kennt hvemig fór.
Við vorum að misnota mörg góð
færi og meðan svo er getur mað-
ur ekki vænst þess að vinna. Það
er auðvitað súrt að missa titil-
inn úr höndunum en svona er
þetta bara. Það er alveg ómögu-
legt að spá fyrir um hvaða lið
verður meistari. Þetta er svo
jafnt,“ sagði Guðný Gunnsteins-
dóttir úr Stjömunni við DV eftir
leikinn. Sóley Halldórsdóttir
markvörður lék best í liði
Stjörnunnar og þær Ragnheið-
ur, Sigrún og Guðný áttu
ágæta kafla. -GH
Martha sigraði á Flórída
Martha Ernstsdóttir, ÍR, sigraði í 10 km hlaupi sem fram fór í
Naples í Florída á sunnudag. Martha kom fyrst í mark á tímanum
35:03 mín. en í öðru sæti varð rússneska maraþonhlaupakonan
Tatiana Titova á 36:04 min., en hún á um 4 mín. betri tíma en Martha
í maraþonhlaupi. Þær fylgdust að fyrri hluta hlaupsins en Martha
var sterkari á síðustu kílómetrunum. Martha æfir nú af fullum krafti
fyrir maraþonhlaupið í Hamborg 16. apríl þar sem hún stefnir á að
ná lágmarki á Ólympíuleikana.
Stuðningsmenn Gróttu/KR trylltust af fögnuði skömmu fyrir leikslok er Grótta/KR skoraði sigurmarkið gegn Stjörnunni. Grótta/KR sigrað’i og komst í fyrsta
skipti í undanúrslit í Nissandeild kvenna. DV-mynd E.ÓI.
Sport unglinga
Að ofan eru sigurvegarar í flokkakeppni stúlkna 16 til 18 ára. Frá vinstri
Kristín Ásta Hjálmarsdóttir og
Sport unglinga
Aldís Lárusdóttir.
Úrslitin:
Liðakeppnt
Flokkakeppni drengja
1. A-lið Víkings (Magnús F.
Magnússon og Tryggvi Áki Pétursson).
2. C-lið Víkings. 3. B-liö Vikings.
Flokkakeppni stúlkna
1. A-liö KR (Aldís Lárusdóttir og
Kristín Hjálmarsdóttir). 2. B-lið KR. 3.
A-lið Aspar.
Flokkakeppni pilta 15 ára og
yngri
1. A-lið Víkings (Matthías Stephensen
og ÓU Pátl Geirsson). 2. D-lið Víkings.
3. B-lið Vikings.
Flokkakeppni stúlkna 15 ára og
yngri
1. A-liö Víkings (Thelma Lind
Steingrimsdóttir og Hidur B. Jónsdóttir).
2. B-lið Víkings. 3. C-lið Víkings.
Einstaklineskeppni
16 til 17 ára drengir
1. Magnús F. Magnúsosn, Víkingi.
16 til 17 ára stúlkur
1. Aldís Rún Lárusdóttir, KR.
14 til 15 ára piltar
1. Matthías Stephensen, Vikingi.
14 til 15 ára stúlkur
1. Kristín A. Hjálmarsdóttir, KR.
12 til 13 ára piltar
1. Magnús K. Magnússon, Víkingi.
12 til 13 ára stúlkur
1. Magnús K. Magnússon, Víkingi.
11 ára og yngri, piltar
1. Ágúst Jónsson, Stjörnunni.
11 ára og yngri, stúlkur
1. Hildur B. Jónsdóttir, Víkingi.
Tvíliðaleikur
16 til 17 ára drengir
1. Magnús F. Magnússon og Tryggvi
Áki Pétursson, Víkingi.
15 ára og yngri, drengir
1. Óli Páll Geirsson og Matthías
Stephensen.
17 ára og yngri, stúlkur
1. Aldís Lárusdóttir og Kristín A.
Hjálmarsdóttir, KR.
Tvenndarleikur unelinga
1. Tryggvi Áki Pétursson og
HaUdóra Ólafsdóttir úr Vikingi.
Verðlaunahafar í piltaflokki 15 ára og yngri.
KA-stúlkur hafa leikið mjög vel í 3. flokki kvenna í handbotta og tryggðu sér deildarmeistaratitilinn á dögunum og fögnuðu þeim
glæsilega árangrí vel. KA var búið að vinna fyrír síðustu umferð en þjátfarí liðsins er Hlynur Jóhannsson.
Hér að ofan eru verðlaunahafar í stúlknaflokki 11 ára og yngri. Frá vinstri Magnea
ólafsdóttir, Thelma Lind Steingrímsdóttir og Hildur B. Jónsdóttir.
Að ofan eru verðlaunahafar í piltaflokki 12 til 13 ára. Talið frá vinstri,
Styrmir Stefnisson og Ragnar Einarsson sem lentu í 3. til 4. sæti, þá
Sölvi R. Pétursson sem varð annar og loks sigurvegarinn, Magnús F.
Magnússon. Allir eru þeir í Víkingi.
Víkingar voru sigursælir að venju á íslandsmóti unglinga í
borðtennis sem haldið var í íþróttahúsi KR á dögunum. Víkingar
unnu alls 37 verðlaun á mótinu, þar af 10 gull, en keppt var í 16
flokkum. Áhugi á borðtennis er alltaf að aukast og það sést vel á
góðri þátttöku á þessu móti og þeim miklu framfórum sem
krakkamir hafa tekið.
Heimafólk úr KR stóð sig einnig mjög vel og hlaut 13 verðlaun, þar
af 4 gull, en gull vann einnig Stjömufólk. Þau Matthias Stephensen,
Tryggvi Áki Pétursson, Magnús F. Magnússon, Aldsí Rún
Lárusdóttir og Kristín Hjálmarsdóttir urðu öll þrefaldir
íslandsmeistarar.
-ÓÓJ
Hér að ofan eru verðlaunalið í flokkakeppni í stúlkna 15 ára og yngri. Allt eru
þetta stelpur úr Víkingi, B-, A- og C-liði.
Verðlaunahafar í tvenndarkeppni unglinga, Kristín Á Hjálmarsdóttir, Óli Páll Geirsson,
Halldóra Ólafsdóttir og Tryggvi Áki Pétursson.
Víkingarnir Magnús F. Magnússon og Tryggvi Áki Pétursson fögnuðu
íslandsmeistaratitli í flokkakeppni 16 til 18 ára með A-liði Víkings.
Víkingar sigursælir á íslandsmóti unglinga í borðtennis: I
37 verðlaun