Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Blaðsíða 25
f
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2000
DV
_______61
Tilvera
Dorrit og fjölskylda
metin á 14 milljarða
- hástökk á lista yfir ríkustu menn Bretlands
Ríkari en Samherjafrændi
Dorrit Moussaieff og fjöiskyida selja mest allra í heiminum á fermetra.
Auður Sams Moussaieffs, fóður
Dorritar Moussaieff, vinkonu Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta ís-
lands, er nú metinn á jafnvirði 14
milljarða króna. Ríkidæmi fjöl-
skyldunnar hefur vaxið gríðarlega á
stuttum tíma því fyrir aðeins einu
ári var áætlað að heildaeignir henn-
ar næmu rúmum 8 milljörðum
króna. Þetta kemur fram í Sunday
Times sem nýlega birti lista yfir rík-
asta fólk Bretlands. Moussaieff-fjöl-
skyldan er í 251. sæti á þeim lista og
hefur hækkað um 78 sæti á listan-
um frá því fyrir einu ári þegar hún
var í 328. sæti.
Sam Moussaieff rekur gimsteina-
verslun á Hiltonhótelinu í London
og sagt er að veltan þar sé ein sú
allra hæsta á hvem fermetra í
heiminum. Fjölskyldan rekur einn-
ig verslunina Kutchinsky í Knights-
bridge og útibú í Genf í Sviss og
mun vera stærsti einstaki umboðs-
aðili fyrir Rolex-úraframleiðandann
í heiminum.
Árin 1997-1998 nam hagnaður
Moussaieff-fjölskyldunnar af skart-
gripaviðskiptum nærri 800 milljónum
króna en í heild nam veltan það tima-
bili 5,5 milljörðum króna.
Talið er að varlega áætlað megi
meta skartgripa- og úraviðskipti
Moussaieff á ríflega 8 milijarða en af-
gang veldisins má rekja tO Canary
Wharf-bygginganna í London en Dor-
rit komst einmitt í fréttirnar í októ-
ber þegar hún seldi hlutabréf í því
fyrirtæki fyrir 5,2 milljarða króna.
Sam Moussaieff á þrjár dætur og sé
mm
auði hans skipt jafnt á alla fjóra fjöl-
skyldumeðlimina koma um 3,5 millj-
arðar króna í hlut hvers. Til saman-
burðar gæti hlutur Dorritar í dag
þannig numið ríflega þeirri upphæð
sem Samherjinn Þorsteinn Vilhelms-
son fékk fyrir söluna á sínum hlut í
Samherja hf. á dögunum.
Kate Moss
heim af
spítala
Breska ofurfyrirsætan Kate Moss
er nú komin til sins heima eftir^.-
stutta legu á sjúkrahúsi vegna sýk-
ingar í nýrum, að því er breska
blaðið MaU greindi frá á sunnudag.
Kate var flutt meðhraði á fínt
einkasjúkrahús á miðvikudag
vegna mikiila verkja í kviðarholi.
Hún hafði þá ekki farið að ráðum
lækna og klárað fúkalyfjakúr sem
hún var á vegna nýrnavandræða.
Stúlkunni líður þó vel núna, að
hennar eigin sögn.
Kate er þekkt partídama og núna
er hún með Jesse nokkrum Wood,
syni Rons Woods í rokksveitinni^f
Rolling Stones.
Happy Hour 2000 hjá myndlistarmanni:
Gefur fimm ráð-
herraskrokka
- til Karolinslca sjúkrahússins í Stokkhólmi
Daníel Magnússon
myndlistarmaöur hefur
gefið Karolinska sjúkra-
húsinu í Stokkhólmi
skrokka af fimm ís-
lenskum ráðherrum að
þeim látnum án vit-
neskju þeirra. Gerir
myndlistarmaðurinn
þetta í anda ríkjandi
hugsunarháttar í þjóðfé-
laginu „...þegar allir eru
að gefa allt, frá lífsýnum
til ríkisfyrirtækja," eins
og Daníel orðar það
sjálfur. Á Karolinska
sjúkrahúsinu geyma
læknar lík manna í
formalíni í tilrauna-
skyni ef einhvem tíma
kæmi sú stund að hægt
yrði að lífga þá við.
„Ég kalla þetta Happy
Hour 2000 en í raun er
verkinu ekki aiveg lok-
ið. Ég hef móttekið
þakkarbréf frá Karo-
linska sjúkrahúsinu þar
sem þeir viðurkenna
móttöku gjafarinnar en
láta ekkert uppi um þaö
Daníel Magnússon
Gaf skrokkana af Daviö, Siv, Halldóri, Árna og Finni.
hvort þeir vilji þiggja
hana. Ég gaf skrokka
af Davíð Oddssyni,
Finni Ingólfssyni (þó
hann sé hættur), Siv
Friðleifsdóttur, Árna
Mathiesen og Hall-
dóri Ásgrímssyni. í
bréfinu til Karo-
linska sjúkrahússins
lýsti ég helstu eigin-
leikum, kostum og
göllum þeirra sem ég
gaf, svo og útliti og
atgervi. Nú stendur
upp á mig að skrifa
þessu fólki bréf og
tilkynna því um gjöf-
ina. Ég ætla að vera
búinn aö því fyrir
mánaðamót," sagði
Daníel Magnússon
sem er tilbúinn til aö
taka ófyrirséðum
viðbrögðum ráðherr-
anna, hver sem þau
verða. Vonast Daníel
til að ráðherrarnir
hafi skilning á
„projectinu" Happy
Hour 2000. -EIR
Sv iösljos
Réttarhöldum um
arf frestaö
Það verður ekki fyrr en í septem-
ber sem Anna Nicole Smith þarf aö
mæta sonum fyrrverandi eigin-
manns síns, olíumilijarðamærings-
ins J. Howards Marshalls, ríkasta
manns Houstons, í dómsal. Mars-
hall lét eftir sig 180 milljarða is-
lenskra króna og krefst Anna, sem
var gift honum síðasta árið sem
hann lifði, tæpra 70 mUljarða.
notaðirbílar ww”b,imi,o™is «a»brimborgar
*
Volvo S40 2,0 07/98 ssk., 4 d., rauður, ek. 22 þús. km.framdrif. Verð 1.960.000. Ford Mondeo 1,8 03/98 ssk., 4 d., vínrauður, ek. 25 þús. km, framdr. Verð 1.480.000.
VW Passat 1,8 04/98 5 g., 4 d., svartur, ek. 30 þús. km, framdr. Verð 1.750.000. Toyota Corolla 1,6 01/97 5 g., 4 d., silfur, ek. 12 þús. km, framdr. Verð 1.080.000.
Daihatsu Move 85010/98 ssk., 5 d., vínrauður, ek. 20 þús. km, framdr. Verð 730.000. Ford Explorer 4,012/91 5 g., 5 d., Ijósblár, ek. 120 þús. km, 4x4. Verð 980.000. Tilboð 880.000.
Daihatsu Charade 1,3 05/97
ssk., 5 d., Ijósblár, ek. 26 þús. km, framdr.
Verð 940.000.
Ford Bronco 5,0 02/97
ssk., 3 d., hvítur, ek. 72 þús. km, 4x4.
Verð 1.790.000.
<Sr
brimborg
Opið laugardaga 11-16
eykjavik • Akureyri
Brimborg Reykjavík, Bíldshöföa 6, slmi: 515 7000
Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, sími. 462 2700