Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2000, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 5. apríl 2000
dvsport@ff.is
Guðjón á batavegi
Það ræðst i læknisskoðun í dag hvort homamaður-
innn snjalli hjá KA, Guðjón Valur Sigurðsson, getur
verið með KA í undanúrslitaeinviginu gegn Fram sem
hefst á laugardag. Guðjón Valur er laus við höfuðverk
þann sem hefur angrað hann eftir högg sem hann fékk
í öðrum leiknum gegn FH. Guðjón hefur spilað glimr-
andi vel í vetur, gerði 101 mark í deildarkeppninni og
hafði gert 21 mark í tveimur leikjum í úrslitakeppninni
áður en hann meiddist.
Það er aftur á móti talið útilokað að Lars Walther
verði með gegn Fram þar sem axlarmeiðsli hans eru
það alvarleg. -ÓÓJ
- valið stendur á milli Vals og Hauka
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum DV-Sport eru
miklar líkur á því að Valdi-
mar Grímsson, homamaður-
imn snjalli og markahæsti
leikmaður sögimnar í efstu
deild, gerngi til liðs við sitt
gamla félag, Val, fyrir næsta
tímabil í handboltanum.
Valdimar hefur leikið með
Wuppertal í Þýskalandi sið-
ustu tvö árin en hafði leikið
með KA, Selfossi og Stjörn-
unni eftir að hann yfirgaf Val
1993 og áöur en hann fór út i
atvinnumennskuna.
Valdimar hefur skorað 1769
mörk í efstu deild og var sá
fyrsti til að skora 1000 mörk í
deildinni vorið 1993. Valdimar
hefur skorað 315 mörkum
fleiri en næsti maður, Sigurð-
ur Valur Sveinsson, sem hef-
ur gert 1454 mörk en Bjarki
Sigurðsson er þriðji með 1345
mörk i efstu deild.
Það er reyndar einnig inni í
myndinni hjá Valdimar að
spila fyrir sinn gamla þjálfara
hjá Wuppertal, Viggó Sigurðs-
son, sem tekur við Haukum á
næsta tímabili. -SS/ÓÓJ
Þaö verða Grindavik og KR sem leika til úrslita um
íslandsmeistarabikar karla í körfubolta eftir aö þau
tryggöu sér bæöi sigur í oddaleik á útivelli i gær.
Á myndum Einars Ólasonar hér aö ofan fagna KR-ingar
gríöarlega sigri sínum á deildarmeisturum Njarövíkur í
Ljónagryfjunni i Njarövík á meöan Njarðvíkurljóniö
grætur úrslitin efst á síðunni.
Á mynd Hilmars Þórs til vinstri ræöur Grindvíkingurinn
Sævar Garöarsson sér ekki fyrir gleöi í leikslok í
Strandgötu þar sem Grindavík sló út heimamenn í
Haukum.
CÍ6og2T.
SDort
Hugsanlegur liðsstyrkur á Hlíðarenda í handboltanum næsta vetur:
Valdi í Val?