Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 Fréttir Umhverfisráðherra um Vatnsendaland: Milljón í menninguna DV, DALVÍK: Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar fékk nýverið til ráðstöfunar eina millj- ón króna frá Byggðastofnun og er þetta framlag hluti af fjármunum sem stofn- unin ver til uppbyggingar menningar- starfsemi á landsbyggðinni og atvinnu- þróunarfélögin á landinu sjá um að út- hluta. Söfnin á Eyjafjaröarsvæðinu fá um 400 þúsund af þessari miiljón, en ætl- unin er að koma upp safnakorti sem veitir fólki aðgang að öllum söfnum á svæðinu, auk þess sem gefa á út bæk- ling með stuttri kynningu á starfsemi safnanna og staðsetningu þeirra. Gert er ráð fyrir að eitthvert mótframlag komi frá söfhunum til verksins. Þá fékk hljómsveitin Toy Machine 150 þúsund krónur vegna ferðar til Bandaríkjanna á síðasta hausti og af- gangurinn fer til undirbúnings rann- sókna og kynningar á Gáseyri. -hiá Fíkniefni í sund- laugarklefa DV. AKUREYRI: Sundlaugarvörður í Sundlaug Akur- eyrcir fann flkniefni í búningsklefa eft- ir lokun sundlaugarinnar um helgina. Um var að ræða smávegis af hassi og amfetamíni. Efnin fundust í skáp í karlaklefa. -gk Sprengjugabb í Ráðhúsinu Ókunnur karlmaður hringdi í neyðarlínuna rétt eftir klukkan 16 í gær og tilkynnti um sprengju i Ráð- húsinu. Var húsið tæmt og leituðu sprengjusérfræðingar að sprengjunni án árangurs. Maðurinn hafði ekkert sagt um það hvenær sprengjan skyldi springa, hvers konar sprengja þetta átti að vera eða hver hann var. -smk DV-MYNDIR S Draumahúsin mótuð í sand Nú standa yfir þemadagar í Lækjar- skóla en þá bregöa nemendur og kennarar út af heföbundnu skóla- starfi og lyfta sér upp. í gær nutu nokkrir þeirra veöurblíöunnar í Naut- hólsvík. Þær Katrín Ella Jónsdóttir og Kristína Tropimova voru önnum kafnar viö aö byggja sandkastala í fjörunni í Nauthólsvík í gær. Fjörulall í Nauthólsvík Smávegis hressing í kalsanum Úlfar Daníelsson kennari hellir kakói í bolla Hrannar Róbertsdóttur af stakri vandvirkni. nær frá Elliðavatni í átt til Garðabæjar og er að stærstum hluta nýtanlegt til byggingar. Eigendur landsins eru ekkja og börn Magnúsar Hjaltested, sem lést fyrr á þessu ári, en Magnús gerði áðurnefnt samkomulag við bæjarstjórn Kópavogs. Þau búa enn á landinu og munu halda húsum sínum þar og einhverjum land- skika umhverfís þau. Flosi sagði engar hugmyndir hafa Vatnsendaland. verið nefndar um verð fyrir umrætt land enda hafi engar viðræður farið fram miili aðila um þann þátt. Hann taldi þó ólíklegt að verðið yrði á svipuöum nótum og Jón Ólafsson greiddi fyrir Arnarneslandið á sín- um tíma en Jón keypti þar 44 hekt- ara á um 700 milljónir króna. „Það sem Jón borgaði fyrir land- ið var um helmingi hærra en sveit- arfélög hafa verið að borga fyrir land,“ segir Flosi. Sé þetta rétt verð- mat hjá Flosa myndi umrætt Vatns- endaland vera 700 milljóna króna virði miðað við að það er tvöfalt stærra en Arnarneslandið. -GAR Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra hefur gefið Kópavogsbæ heimild til að taka 90 hektara lands úr Vatnsendalandi eignarnámi en samkvæmt skipulagi bæjarins á að rísa þar 3500 manna byggð þegar fram líða stundir. Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi minnihlutans í Kópavogi, segir eignamámsleiðina vera farna í sam- ráði við eigendur Vatnsendalands í því skyni að fá verðmat á landið sem er síðasti hluti Vatnsendajarð- arinnar sem ekki er í eigu Kópa- vogsbæjar. Landið sem um ræðir Heimild til eignarnáms - samkomulag við eigandann til aö fá fram verð, segir bæjarfulltrúi Skjár einn lætur ekki deigan síga: 100 milljóna skjár á Kringluna - magnað fyrir litla þjóð, segir sjónvarpsstjórinn „Þetta er ansi magnað fyrirbæri fyrir svona litla þjóð,“ segir Árni Þór Vigfússon, sjónvarpsstjóri á Skjá einum, um nýjustu fjárfestingu sjónvarpsstöðvarinnar sem er risa- stór skjár sem settur verður upp á gafli Kringlunnar innan skamms ef samningar nást þar um. Skjárinn er frá Sony og sá fyrsti sinnar tegund- ar sem settur er upp í heiminum og kostar um 100 milljónir í innkaup- um. „Þetta er framtiðarmúsík okkar sem vonandi verður að veruleika," segir Ámi Þór. Skjárinn sem hér um ræðir verð- ur um 60 fermetrar að grunnfleti og mun blasa við vegfarendum sem staddir eru á horni Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar. Þá mun hann gnæfa yfir bílastæðum Kringl- unnar en forsvarsmenn Skjás eins sjá þarna möguleika á að halda risatónleika á skjánum, svo og að nota hann til auglýsinga á eigin sjónvarpsdagskrá. Skjárinn er þeirrar gerðar að hægt verður að snúa honum í allar áttir og að líkindum verður engum vandkvæðum bundið að fá leyfi til uppsetningar hans á gafli Kringl- unnar þar sem eitt af fjárfestingar- félögum Hagkaupserfmgjanna, Sig- urðar Gísla og Jóns, er einmitt mik- ilvægasti bakhjarl sjónvarpsstöðv- arinnar. -EIR Framtíðarhugmynd að risaskjá Framtíöarmúsík sem vonandi veröur aö veruleika, segir Árni Þór Vigfússon. Áhrif á endurupptöku Ragnar Aðal- steinsson hæsta- réttarlögmaður seg- ir að nýfundin skjöl er varða frumrann- sókn Geirfinns- málsins breyti miklu og geti haft áhrif á skilyrði til endurupptöku. RÚV greindi frá Nýr forsetaritari Stefán Lárus Stefánsson, aðalræð- ismaður íslands í New York og varafastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur verið ráðinn i embætti forsetaritara frá og með 11. apríl í stað Róberts Trausta Árna- sonar. 8 milljarða aðild Líklegt þykir að aðild fslands að Evrópusambandinu geti kostað rík- issjóð 8 milljarða. Hins vegar þykir óvíst hversu stór hluti framlagsins kemur til baka. Bylgjan greindi frá. Skoða togvíraklippur Bandaríska strandgæslan er nú að kynna sér íslenskar togvíraklipp- ur sem notaðar voru í tveimur síð- ustu þorskastríðum. Ekki fylgir sög- unni aftan úr hverju Bandaríkja- menn hyggjast klippa. Bylgjan greindi frá. Samiö um fjarskiptaþjónustu Stoðtækja- og hátæknifyrirtækið Össur hf. hefur samið við Islands- síma um yfirtöku allrar fjarskipta- þjónustu Össurar hf. 28 offituaðgerðir 28 offituaðgerðir hafa verið gerð- ar hér á landi á síðustu 10 árum. Ár- angurinn er sagður góður en slíkt er aðeins gert í neyðartilvikum. Stöð 2 greindi frá. Tal hf. hefur, fyrst íslenskra far- símafyrirtækja, gert reikisamning í Kína. Gengið var frá samningi við China Telecom fyr- ir skömmu og geta GSM-notendur hjá Tali nú notað síma sína i stórum hluta Kina. Kina er 44. landið þar sem hægt er að nota Tal GSM- síma. Tal í Kína Tímamót í fjarskiptaþjónustu Síminn og íslandsbanki hafa gert með sér samning um kaup bankans á flarskiptaþjónustu af Símanum. Samningurinn markar timamót í fjarskiptaþjónustu á íslandi þar sem um er að ræða stærsta einstaka víð- netsþjónustusamning sem gerður hefur verið. 10 milljónir gegn dópi Samskip hafa ákveðið að veita að minnsta kosti 10 milljónir króna til baráttu gegn fíkniefnavandanum á íslandi. Afnotagjöld í bílum RÚV hefur tekið upp á því að inn- heimta afnotagjald af öllum útvarps- tækjum í bílum sem notaðir eru í atvinnuskyni. Sýknuð af vanrækslukröfu Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn- aði í gær Hafstein Hafsteinsson, for- stjóra Landhelgis- gæslunnar, og Hrund dóttur hans af skaðabótakröfum vegna meintrar vanrækslu í starfi. -hdm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.