Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
DV
€_______
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ára_________________________________
Vilhelmína Sigurjónsdóttir,
Gagnvegi, Hjúkrh. Eir, Reykjavlk.
*75_ára________________________________
Jón Þórarinn Sveinsson,
Smáraflöt 8, Garöabæ.
Kristrún Bjarnadóttir,
Skúlagötu 20, Reykjavlk.
Vaidemar Nielsen,
Sogavegi 54, Reykjavík.
70,ára_________________________________
Helga Þorgrímsdóttir,
Karfavogi 37, Reykjavík.
Sigurdís Alda Jónsdóttir,
Stóragerði 28, Reykjavlk.
Sigurður K. Benediktsson,
Sólheimum 23, Reykjavík.
60 ára_________________________________
Hannes Lárusson,
Óspaksstööum, Staðarhr., V-Hún.
Haukur Aóalsteinsson,
Krosshömrum 8, Reykjavík.
Jón Reynir Einarsson,
Efri-Steinsmýri, Kirkjubæjarklaustri.
Sveinbjörn Hallsson,
Hallkelsstaöahllö, Borgarnesi.
50 ára_________________________________
Björk Bjarkadóttir,
Brekkutanga 31, Mosfellsbæ.
Brynja Hannesdóttir,
Grænahrauni 2, Höfn.
Sesselja Jóhannsdóttir,
Suðurgötu 23a, Keflavík.
Siguröur Jónsson,
Skipholti 8, Ólafsvík.
40 ára_________________________________
Ásta Björg Tómasdóttir,
Reynihvammi 24, Kópavogi.
Einar Guömundsson,
Unufelli 20, Reykjavlk.
Hermann Eyjólfsson,
Brautarlandi 16, Reykjavík.
Hjalti Egilsson,
Seljavöllum, Höfn.
Jónas Magnús Andrésson,
Aðaltjörn 7, Selfossi.
Kristinn Örn Torfason,
Iðufelli 6, Reykjavík.
Magnús Ingi Óskarsson,
_ Blómvangi 20, Hafnarfirði.
' Marteinn Steinar Jónsson,
Kópalind 8, Kópavogi.
Sigfríöur Hallgrímsdóttir,
Skipagötu 15, ísafirði.
Sigurður Stefánsson,
Nesvegi 117, Seltjarnarnesi.
Sóldís Stefánsdóttir,
Spítalavegi 15, Akureyri.
Þorsteinn Sæberg Sigurösson,
Álfaheiði 15, Kópavogi.
s
IJrval
- 960 síður á ári -
íróðleikur og skemmtun
sem lifir mánuðum og
árumsaman
8
Smáauglýsinga
deild DV
er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Skilafrestur smáauglýsinga
er fyrir kl. 22 kvölaiö fyrir
birtingu.
Attl. Smáauglýsing í
Helgarblaö DV verður þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
föstudag.
o\\t mllll hlmins^
QJ'c
%
Smáauglýsingar
550 5000
mnmmsL
Flosi Ólafsson
leikari, rithöfundur og hrossabóndi
Rosi Olafsson, leikari, leikstjóri, rithöfundur og hrossabóndi.
Þaö væri hægt aö segja margt skemmtilegt um Flosa. En þaö er óþarfi.
Hann er svo sjálfsagöur partur mannlífsins aö hann segir sig sjálfur.
Flosi Gunnlaugur Ólafsson, leik-
ari, rithöfundur og hrossabóndi að
Bergi, Reykholtsdal, leikstýrir
Galdra-Lofti sem frumsýndur verð-
ur hjá Ungmennafélagi Reykdæla í
Logalandi á morgun. Auk þess er
Flosi pistlahöfundur helgarblaðs
DV.
Starfsferill
Flosi fæddist í Reykjavík 27.10.
1929 og ólst upp í og við Kvosina.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1953, prófi í leiklist frá Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins 1958, og
stundaði nám í leikstjórn og þátta-
gerð hjá BBC í Lundúnum 1960-62.
Flosi var leikari og leikstjóri hjá
Þjóðleikhúsinu frá 1958, stofnaði
Nýtt leikhús 1959 og starfrækti það,
var fastráðinn leikari hjá Þjóðleik-
húsinu 1960-98 en hlutverk hans
þar eru orðin talsvert á annað
hundrað.
Flosi samdi, stjórnaði og leik-
stýrði fjölda þátta í revíuformi fyrir
útvarp og síðar sjónvarp, m.a. fimm
áramótaskaupum og fjölmörgum
öðrum þáttum 1962-70. Þá hefur
hann leikið í fjölda kvikmynda.
Flosi flutti að Bergi í Reykholts-
dal 1989 og hefur búið þar síöan.
Bækur eftir Flosa: Slett úr klauf-
unum, 1973; Hneggjað á bókfell,
1974; Leikið lausum hala, 1974, og í
Kvosinni, 1982.
Leikrit eftir Flosa: Bakkabræður,
bamaleikrit í útvarpi 1957; Prívat-
auga, sakamálaleikrit í útvarpi,
ílutt 1958; Þorskhallarundrin, gam-
anópera í útvarpi 1959; Ringulreið,
gamanóperetta í Þjóðleikhúsinu
1957, sýnd í sjónvarpi 1976; Örlaga-
hárið, í sjónvarpi 1967; Slúðrið, hjá
Leiklistarskóla ríkisins 1978.
Hann skrifaði vikulega pistla í
helgarblað Þjóðviljans, í Helgarpóst-
inn og Alþýðublaðið, í Pressuna, í
Skessuhorn og nú í DV og strik.is.
Flosi þýddi skáldsöguna Bjarg-
vætturinn í grasinu eftir J.D. Salin-
ger, 1975. Fyrir Þjóðleikhúsið hefur
hann þýtt söngleikina Prinsessan á
bauninni; Gæjar og píur; Chicago;
Oliver Twist, og Söngvaseið, og leik-
ritin Hallæristenór; Verið ekki
nakin á vappi, og Himneskt er að
lifa. Þá þýddi hann Sardasfurstaynj-
una og Kátu ekkjuna fyrir íslensku
óperuna og auk þess talsvert af
sönglagatextum og líbrettóum og
einnig fjölda útvarpsleikrita.
Flosi var formaður Leikarafélags
Þjóðleikhússins og sat í stjórn Fé-
lags íslenskra leikara.
Fjölskylda
Kona Flosa er Lilja Margeirsdótt-
ir, f. 5.5. 1936, fulltrúi og húsfreyja.
Hún er dóttir Margeirs Sigurjóns-
sonar, f. 22.11. 1907, d. 1.11.1988, for-
stjóra í Reykjavík, og k.h., Kristínar
Laufeyjar Ingólfsdóttur, f. 2.7. 1910,
húsfreyju.
Sonur Flosa og Lilju er Ólafur
Flosason, f. 13.10. 1956, hljóðfæra-
leikari og tónlistarkennari, kvænt-
ur Elisabetu Halldórsdóttur kenn-
ara en börn þeirra Anna og Flosi.
Dóttir Flosa og Veru Fannberg
Kristjánsdóttur er Anna, f. 21.12.
1951, handmenntakennari, gift
Bjarna Hjartarsyni landslagsarki-
tekt og eru börn þeirra Flosi, Hjört-
ur, Ólöf Halla og Ævar.
Hálfsystkini Flosa, samfeðra:
Guðmundur, f. 1933, fyrrv. sóknar-
prestur i Neskirkju; Sverrir Ólafs-
son, f. 1938, fyrrv. framkvæmda-
stjóri; Sigríður J. Ólafsdóttir, f. 1943,
nú í Ástralíu.
Hálfsystkini Flosa, sammæðra:
Þuríður Friðjónsdóttir Stephensen,
f. 1946, leikskólakennari; Ólafur
Stephensen, kennari i Svíþjóð; Guð-
laug Stephensen, hjúkrunarfræðing-
ur í Danmörku.
Foreldrar Flosa: Ólafur Jónsson,
f. 31.1. 1905, d. 10.1. 1989, verslunar-
maður í Reykjavík, og Anna Odds-
dóttir, síðar Stephensen, f. 20.10.
1908, d. 19.6. 1980, kaupkona i
Reykjavík.
Ætt
Kjörforeldrar Ólafs voru Flosi for-
stjóri í Reykjavík, og Jónína verka-
kvennaforingja. Systir Ólafs var
Margrét, móðir Jónasar Gislasonar
prófessors. Faðir Ólafs var Jón tré-
smíðameistari, bróðir Jónínu. Jón
var sonur Jónatans, b. í Miðengi,
bróður Guðrúnar, langömmu
Sveins R. Eyjólfssonar, stjórnarfor-
manns Frjálsrar fjölmiðlunar, fóður
Eyjólfs, framkvæmdastjóra þar.
Jónatan var sonur Gísla, b. á Norð-
ur-Reykjum Helgasonar, og Arndís-
ar Jónsdóttir. Móðir Arndísar var
Katrín Pétursdóttur, systir Sigurð-
ar, föður Bjama riddara.
Móðursystir Flosa var Ingibjörg,
móðir Þórðar Harðarsonar prófess-
ors. Anna var dóttir Odds, skósmiðs
Bjamasonar. Móðir Odds var Ingi-
björg Oddsdóttir, b. á Brennistöðum
Bjamasonar, b. í Vatnshorni Her-
mannssonar. Móðir Odds var Ingi-
björg Jónsdóttir. Móðir Ingibjargar
var Guðrún Sigurðardóttur, systir
Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Ingi-
bjargar var Helga Böðvarsdóttir, b.
í Skáney Sigurðssonar, af Deild-
artunguætt.
Móðir Önnu var Guðlaug Krist-
jánsdóttir, trésmiðs á Eyrarbakka
Teissonar, b. í Vatnahjáleigu Jóns-
sonar, b. á Hamri, bróður Guðríðar,
langömmu Eyjólfs, langafa Guð-
laugs Tryggva. Jón var sonur Árna,
pr. í Steinsholti, bróður Ögmundar,
afa Tómasar Fjölnismanns. Bróðir
Árna var Böðvar, afi Þuríðar,
langömmu Vigdísar Finnbogadótt-
ur, en systir Þuríðar var Sigríður,
langamma Önnu, móður Matthíasar
Johannessen. Árni var sonur Högna
prestafóður Sigurðssonar.
Helga Björnsdóttir
fyrrv. húsfreyja á Brunnavöllum
Helga Björnsdóttir, fyrrv. hús-
freyja að Brunnavöllum í Suður-
sveit, er níræð í dag.
Starfsferill
Helga fæddist að Brunnum og hef-
ur átt þar heima og á Brunnavöll-
um, alla tíð. Hún lauk bamaskóla-
námi í farskóla og prófi frá Ljós-
mæðraskóla íslands 1929.
Helga stundaði ljósmóðurstörf frá
1929-70 en síðast tók hún á móti
bami 1974. Auk þess sinnti hún oft
sjúklingum í heimahúsum.
Helga var heiðmð af sveitungum
sínum á fimmtugsafmælinu og aftur
er hún varð sjötug. Hún er heilsu-
góð og mjög ern og sinnir enn heim-
ilisstörfum af fullum krafti.
Fjölskylda
Helga giftist 14.6. 1943 Sigfúsi
Jónssyni, f. 9.1. 1904, d. 19.1. 1970,
bónda. Foreldrar hans voru Jón Sig-
fússon, bóndi í Snjóholti, og Þor-
gerður Einarsdóttir húsfreyja.
Böm Helgu og Sigfúsar eru Bjöm,
f. 2.10. 1943, vörubílstjóri á Brunna-
völlum en sonur Bjöms og Sigríðar
Magnúsdóttur frá Svínafelli í Öræf-
um er Ásgeir, búsettur á Höfn,
kvæntur
Kristbjörgu
Eiríksdóttur
og eru synir
þeirra Sævar
Ingi og Tómas Leó; Sigríður Jó-
hanna, f. 30.1. 1945, deildarstjóri við
tannlæknadeild HÍ; Jón, f. 22.5.1946,
bóndi á Brunnavöllum en sambýlis-
kona hans er Linda María Fredrik-
sen og eru böm þeirra Helga, búsett
í Noregi, í sambúð með Borgari
Baldurssyni, Sigfús, og Emil en
dóttir Lindu er Inga Helga Baldurs
dóttir, í sambúð með Róbert Elvars
syni og eru böm þeirra Kristján Sól
vin og Linda Margrét.
Systkini Helgu: Björg Björnsdótt
ir, f. 13.11. 1896, d. 18.1. 1983; Sigríð
ur Bjömsdóttir, f. 1.8. 1898, d. 25.8.
1946, húsfreyja í Hestgerði; Jóhann
Klemens Bjömsson, f. 29.8. 1900, d
4.1. 1996, bóndi á Brunnum; Jó
hanna Dagmar Bjömsdóttir, f. 25.11
1906, saumakona i Reykjavik.
Foreldrar Helgu voru Björn
Klemensson, f. 27.11. 1869, d. 19.11.
1911, oddviti og bóndi að Bmnnum,
og k.h., Jóhanna Jóhannsdóttir, f.
23.11. 1863, d. 14.4.1955, húsfreyja að
Brunnum.
Magnús Kolbeinsson
fyrrv. vörubílstjóri í Keflavík
Magnús Kolbeinsson, Eyjavöllum
13, Keflavík, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Magnús fæddist á Auðnum á
Vatnsleysuströnd. Hann vann við
landbúnað, jarðvinnu, vörubílakst-
ur og útgerð fram yfir tvítugt og
fiskvinnslu og beitningu hjá Vogum
hf. Þá ók hann vörubíl hjá Sjöstjörn-
unni í Keflavík 1971 og 1972 og ók
hópferðabílum fyrir Steindór Sig-
urðsson, 1973 og 1978.
Magnús ók eigin vörubíl á Vöru-
bílstöð Keílavíkur 1973-93 en hefur
síðan verið símavaktmaður, fyrst
hjá Húsun sf. og síðar Keflavíkur-
verktökum hf., og jafnframt sinnt
viðhaldsverkefnum.
Magnús var ritari stjómar VBK
1979-93, fulltrúi VBK í stjóm Flutn-
ingafélagsins Suðurleið sf. og ritari
1988-93, hefur félagi í Karlakór
Keflavíkur frá 1991 og var ritari í
stjóm kórsins í eitt ár.
Fjölskylda
Kona Magnúsar frá 1972 var Hall-
fríður Maggý Júlíusdóttir, f. 4.10.
1947, d. 27.9. 1977.
Dóttir Magnúsar og Hallfríðar er
Gréta, f. 27.8.
1974 en mað-
ur hennar er
Lárus Fjeld-
sted og börn þeirra Hjörtur Steinn,
f. 9.5. 1991, Lárus Hafsteinn, f. 26.7.
1992, Kristbjörg Maggý, f. 25.4. 1994,
Róbert Magnús, f. 27.11. 1996. Áður
átti Hallfríður börnin Guðfinnu
Björg, Ragnar Kristin, Júlíus Sig-
mar, og Jóhönnu Kristínu Jóhanns-
börn Berthelsen.
Kona Magnúsar frá 1979 var Mar-
grét Haraldsdóttir, f. 28.2. 1944, d.
31.12. 1996.
Dóttir Magnúsar og Margrétar er
Magnea Brynja, f. 12.9.1980, en áður
átti Margrét tvær dætur, Kristínu
Viktoríu Sigurðardóttur Rose og
Kolbrúnu Hildi Sigurðardóttur.
Systkini Magnúsar: Árný, f. 8.9.
1930; Rósa, f. 3.4. 1932, d. 11.3. 1989;
Engilbert, f. 7.9. 1938, d. 11.2. 1973.
Foreldrar Magnúsar voru Kol-
beinn Guðmundsson, f. 2.6. 1906, d.
8.12. 1989, útvegsbóndi á Auðnum,
og Kapitola Sigurjónsdóttir, f. 21.10.
1909, d. 16.2. 1984, húsfreyja.
Magnús tekur á móti gestum í Fé-
lagsh. Karlakórs Keflavíkur, Vest-
urbraut 17, föstud. 14.4. frá kl. 20.00.
Merkir Islendingar
Erlingur Davíðsson, ritstjóri Dags og rit-
höfundur á Akureyri, fæddist á Há-
mundarstöðum á Árskógsströnd þennan
dag árið 1912. Hann var sonur Davíðs
Sigurðssonar, hreppstjóra þar, og k.h.,
Maríu Jónsdóttur. Davíð var af Hvassa-
fellsætt, þeirra skáldanna Jónasar
Hallgrímssonar, Jóhanns Sigurjóns-
sonar og Káins. María var dóttir Jóns
Ólafssonar á Hallgilsstööum, bróður
önnu, ömmu Hermanns Jónassonar
forsætisráðherra, fóður Steingrims,
fyrrv. forsætisráðherra.
Erlingur stundaði nám við Laugaskóla
1931-33, lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri
1935 og stundaði nám við Garðyrkjuskólann
að Reykjum.
Erlingur Davíðsson
Erlingur hóf störf hjá Degi á Akureyri 1950
og var ritstjóri blaðsins 1956-79. Hann var
ritstjóri og höfundur bókaflokksins Aldn-
ir hafa orðið á árunum 1972-79. Þá sendi
hann frá sér bækurnar Jói norski, 1972;
Konan frá Vínarborg, 1975; Nói báta-
smiður, 1978; Mióilshendur Einars á
Einarsstöðum, 1979. Auk þess kom
hann að útgáfu tímaritsins Súlna og
flutti fjölda útvarpserinda.
Erlingur var bróðir Haralds, bónda
á Stóru-Hámundarstöðum, og bróðir
hins merka grasafræðings Ingólfs Dav-
íðssonar sem var kennari og sérfræðing-
ur við Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Erlingur lést 17. júlí 1990.
Jarðarfarir
Útför Önnu Sigrúnar Wiium
Kjartansdóttur, Övre Holmegade 9a,
Stavanger I Noregi, fer fram frá
Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 12.4.
kl. 13.30.
Bjarni Guðmundsson, bifreiðastjóri frá
Túni, Skarphéðinsgötu 20, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 12.4. kl. 15.
Ingimundur Kristjánsson frá
Svignaskaröi lést föstudaginn 7.4. á
Sjúkrahúsi Akraness.
Ámi Hjörtur Rósason andaðist að
heimili slnu Lindargötu 62, aðfaranótt
fimmtudagins 6.4.