Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2000, Blaðsíða 1
15
Dramatíkin var mikil á lokasek-
úndum fyrsta úrslitaleiks
Grindavíkur og KR um ís-
landsbikarinn í körfubolta.
Aöalstuðningsmaður Grinda-
víkur og Yfir-Grindajáni, Sig-
ríöur Guölaugsdóttir, sýndi
ótal svipbrigöi á lokasekúnd-
um leiksins eins og Einar Óla-
son festi á filmu í Röstinni í
Grindavík í gærkvöld.
Þriöjudagur 18. apríl 2000
dvsport@ff.is
Tækifæri sem gefst
bara einu sinni
- Dagur Sigurösson á leið í japanska handboltann
Dagur Sigurösson spilar i Japan a
næsta tímabili.
Ný knattspyrnulög:
Mega skrefa
**•»
<
J
KSI sendi í gær frá sér
fréttatilkynningu um breytingar
á knattspyrnulögunum fyrir
sumariö og athyglisverðust er
breyting á skrefreglu markvarða
með boltann í vítateignum.
Markverðir mega nú skrefa að
vild en máttu aðeins taka fjögur
skref áður. Eina takmörkunin er
að þeir verða að losa sig við
boltann innan sex sekúndna en
mega á þeim tíma fara eins víða
um vítateiginn með boltann og
þeir ná á þessum tiltekna tíma.
Þá hefur vald aðstoðardómara
verið aukið þegar þeir eru nær
leikbrotum en dómari leiksins
og síðast má nefna þá litlu
breytingu á vítakeppni að liðin
verða að hafa jafnmarga
leikmenn á leikvelli i vítakeppni
sem þýðir að hafi lið misst menn
út af vegna brottvísana eða
meiðsla verða andstæðingar
þeirra einnig að fækka í sínu liði
í vítakeppninni. -ÓÓJ
Dagur Sigurðsson, landsliðsmað-
ur i handknattleik, er á leið í
japanska handboltann eftir að hafa
leikið með þýska liðinu Wupptertal
siðustu fjögur ár. Dagur hefur skrif-
að undir tveggja ára samning við
Wakunaga frá Hiroshima en liðið
er eitt af þremur bestu liðum þar í
landi. Liðið varð meistari fyrir
þremur árum en síöustu tvö árin
hefur Honda verið meistari.
Dagur hafði átt í viðræðum við
japanska liðið sl. 5-6 vikur og skrif-
aði að lokum undir samning um
helgina. Hann fer í stutta heimsókn
til Hiroshima eftir landsleikinn við
Makedóníu 9. júní. Eftir það kemur
hann heim í sumarfri en undirbún-
ingur fyrir tímabilið hefst í byrjun
ágúst. Vegna Ólympíuleikanna
hefst deildarkeppnin ekki fyrr en
24. október.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu
verkefni en tækifæri sem þetta
gefst ekki nema einu sinni i lífínu.
Ég náði góðum samningi við
Wakunaga en inni í honum er m.a,
hús og bíll. Ég var langt kominn að
semja við Frankfurt og eins vildi
Wuppertal gera við mig nýjan
samning. Ég vildi hins vegar prófa
eitthvað nýtt og hlakka mikið til
þess,“ sagði Dagur Sigurðsson í
samtali við DV í gær.
Þjálfari Wakunaga er Japani er
aðstoðarþjálfari er Eisti sem leikið
hefur með liðinu sl. sex ár. Tveir
franskir landsliðsmenn hafa sl. tvö
ár leikið með Honda við góöan orð-
stír og stendur til að þeir framlengi
samninga sína við félagið.
-JKS
0
is
&
'-Ts
Allt í fótboltann Allt í fótboltann Allt í fótboltann Allt í fótboltann
KRINGLUNNI