Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2000, Blaðsíða 59
71
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
DV Afmæli
2________Stórafmæli
föstudaginn ianga
85 ára________________________
Benedikt Jónasson,
Grandavegi 47, Reykjavík.
Lilja Ólafsdóttir,
Stóru-Mörk 3, Rangárvallas.
80 ára________________________
Kristján Valdimarsson,
Böövarsnesi, Hálshr., S-Þing.
70 ára________________________
Sigurjón Valberg Jónsson,
Stafnesvegi 10, Sandgeröi.
60 ára________________________
Jóhanna Þorbergsdóttir,
Haukshólum 4, Reykjavík.
Ragnar Christiansen,
Þórsmörk 3, Hverageröi.
50 ára________________________
Barbara Lee,
Gnoöarvogi 64, Reykjavlk.
Hólmfríöur Guöjónsdóttir,
Holtabrún 17, Bolungarvík.
Jóna Magnúsdóttir,
Haukanesi 1, Garðabæ.
Ólafur Örn Thoroddsen,
Bjargarstlg 15, Reykjavlk.
Ólöf María Olsen,
Smárabarði 2d, Hafnarfirði.
Sigrún Hannibalsdóttir,
Kópavogsbraut 45, Kópavogi.
40 ára________________________
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir,
Eskihlíö 22, Reykjavík.
Fjóla Birkisdóttir,
Huldugili 42, Akureyri.
Guörún Margrét Ólafsdóttir,
Hamarsbraut 4, Hafnarfiröi.
Hafdís Snót Vaidimarsdóttir,
Sörlaskjóli 26, Reykjavlk.
Jónína Þóra Sigurjónsdóttir,
Hlíöarvegi 18, Njarövík.
Magnús Hilmarsson,
Lyngbergi 23, Þorlákshöfn.
Ólafur Kristófer Guömundsson,
Lækjasmára 70, Kópavogi.
Pétur Seastrand,
Engjaseli 35, Reykjavík.
Siguröur Sveinbjörnsson,
Hverfisgötu 39, Hafnarfiröi.
Sólveig Óladóttir,
Blómsturvöllum 9, Grindavík.
Þórarinn Hólm Andrésson,
Hraunbæ 138, Reykjavlk.
Jarðarfarir
Sigríður Kristjánsdóttir, Ytra-Seljalandi,
Vestur-Eyjafjöllum, sem andaðist á líkn-
ardeild Landspltalans miövikudaginn
12.4., verður jarösungin frá Stóradals-
kirkju laugardaginn 22.4. kl. 15.00.
Ólöf Kristinsdóttir frá Núpi, Dýrafirði,
Reynimel 63, lést á Landspltalanum,
Fossvogi, mánudaginn 17.4.
Jaröarförin fer fram frá Neskirkju miö-
vikudaginn 26.4. kl. 13.30.
Grímur Eysturoy Gottormsson, skipa-
smiöur og kafari, lést á heimili sínu,
Hrafnistu I Reykjavík, mánudaginn 17.4.
Hann verður borinn til grafar frá kapell-
unni I Fossvogi þriöjudaginn 25.4. kl.
13.30.
Frímann Guðmundsson, fyrrum deildar-
stjóri hjá KEA, Eyrarvegi 27, Akureyri,
veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju
þriöjudaginn 25.4. kl. 13.30.
FiÝpóstur
veitír
þér aukið
frelsi!
Þórunn Sigurðardóttir
fatatæknir og kjólameistari
Þórunn Sigurðardóttir, fatatækn-
ir og kjólameistari, Möðrusíðu 10,
Akureyri, er fertug í dag.
Starfsferill
Þórunn fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún útskrifaðist í fata-
tækni og kjólasaumi frá Iðnskólan-
um í Reykjavík 1981.
Þórunn flutti til Akureyrar 1981.
Hún hóf störf hjá iðnaðardeild SÍS
og var þar yfirmaður á hönnunar-
deild 1981-85. Þá hóf hún sjálfstæð-
an rekstur sem hún stundaði á ár-
unum 1985-94, auk þess sem hún
var jafnframt verktaki hjá ullarfyr-
irtækjunum, Álafossi og
Foldu.
Þórunn starfrækti eig-
in saumastofu á árunum
1994-96. Hún hóf síðan
störf hjá Foldu og hefur
starfað þar við sniðagerð
fyrir Cintamani-fatalín-
una.
Fjölskylda
Maður Þórunnar er Hreinn
Pálmason, f. 29.6. 1959.
Börn Þórunnar og Hreins eru
Brynjar Þór Hreinsson, f. 1.7. 1982;
Elvar Orri Hreinsson, f. 10.11. 1987;
íris Hrönn Hreinsdóttir,
f. 17.12. 1991.
Systkini Þórunnar eru
Kristján Sigurðsson, f.
11.4. 1958, en synir hans
eru Sigurður Hrafn Krist-
jánsson, f. 25.6. 1978, og
Daníel Ægir Krist-
jánssson, f. 1.1.1990.
Foreldrar Þórunnar
eru Sigurður Ásbjörns-
son, f. 12.4.1923, fyrrv. leigubifreiða-
stjóri, búsettur í Mosfellsbæ, og
Hrefna Kristjánsdóttir, f. 7.12. 1930,
aðstoðarhjúkrunarkona.
Þórunn verður að heiman.
Fimmtug
Eva Sigurbjörnsdóttir
hótelstýra á Hótel Djúpuvík
Eva Sigurbjörnsdóttir, hótel-
stýra á Hótel Djúpuvík í Ámes-
hreppi á Ströndum, verður fimm-
tug annan í páskum.
Starfsferill
Eva fæddist á Akureyri og ólst
þar upp og í Garðabæ. Hún lauk
bamaskólanámi í Garðabæ, lauk
gagnfræðaprófi frá Flensborg í
Hafnarfirði, stundaöi nám við Nor-
diska Folkhögskolen í Kungalv í
Svíþjóð 1968-69, stundaði nám við
Fósturskóla Islands og lauk þaðan
prófum 1974 og sótti námskeið í
stjórnun fyrir forstöðumenn
bamaheimila og í skyndihjálp í
Ósló í Noregi 1977 og 1978. Þá sótti
hún tveggja ára námskeið um vist-
væna og menningartengda ferða-
þjónustu á vegum Iðntæknistofun-
ar 1997-99.
Eva var leikskólakennari í
Reykjavík 1974-76, í Ósló 1976-77,
forstöðumaöur leikskóla í Ósló
1977-79, forstöðumaður leikskóla í
Reykjavík og Kópavogi 1979-86 og
með hléum á árunum 1980-81 og
var þá jafnframt aðstoðarmaður
kennara í Öskjuhlíðarskóla og
vann í sumarafleysingum við
Barnaspítala Hringsins.
Eva hefur verið leiðbeinandi við
Finnbogastaðaskóla í Ámeshreppi
1989-90 og 1995-96, við Reykhóla-
skóla á Barðaströnd 1997-98 og við
Grunnskólann á Hólmavik 1999
-2000.
Áriö 1985 opnuðu Eva og maður
hennar, Ásbjöm, og fleiri, Hótel
Djúpavík í Árneshreppi í Stranda-
sýslu og hafa þau hjónin bæði
starfað þar síðan við stjórnun, við-
hald og vöxt. Hótelið hefur á þess-
um ámm vaxið úr sextán gistirým-
um í þrjátíu og tvö.
Eva og maður hennar fluttu úr
Kópavogi og í Djúpuvík vorið 1986
og hafa þau búið þar síðan.
Eva sat í stjórn Ferðamálafélags
Strandasýslu 1995-97 og situr I
stjórninni nú frá 1998. Hún hefur
skipulagt Djúpavíkurhátíð á
hverju sumri sl. fimm sumur og er
meðlimur í Lionsklúbbi Hólmavik-
ur frá því á þessu ári.
Fjölskylda
Eva giftist 26.2. 1972 Ásbirni Þor-
gilssyni, f. 31.12. 1944, staðarhald-
ara á Djúpuvík. Hann er sonur
Þorgils Ámasonar sem nú er lát-
inn, verkamanns, sjómanns og bíl-
stjóra á ísafirði, og k.h., Láru
Magnúsdóttur húsmóður.
Börn Evu og Ásbjöms eru Amar
Logi Ásbjömsson, f. 18.8. 1972, að-
stoðarmaður rafvirkja, búsettur í
Reykjavik, en kona hans er Svava
Kristín Sveinbjörnsdóttir og er
dóttir þeirra Sunneva María, f.
17.6. 1999; Héðinn Birnir Ásbjörns-
son, f. 4.2. 1980, nemi; Kristjana
María Ásbjömsdóttir, f. 24.11. 1981,
nemi.
Sonur Ásbjöms frá fyrra hjóna-
bandi er Steinþór Bjarni Ásbjörns-
son, f. 4.2. 1966, starfsmaður hjá
Reykjavíkurborg.
Hálfbróðir Evu, samfeðra, var
Guðmundur Sigurbjörnsson, f.
22.5. 1949, d. 7.7. 1998.
Alsystkini Evu eru Árni Sigur-
bjömsson, f. 10.11.1951, stýrimaður
í Hafnarfirði; Jón Ingi Sigurbjöms-
son, f. 8.9. 1953, menntaskólakenn-
ari á Egilsstöðum; Kristján Sigur-
bjömsson, f. 11.9. 1955, kokkur í
Garðabæ; Margrét B. Sigurbjöms-
dóttir, f. 19.12. 1965, tónlistarkenn-
ari i Reykjavík; Anna Sigurbjörns-
dóttir, f. 20.10. 1968, hornleikari og
tónlistarkennari í Garðabæ.
Foreldrar Evu eru Sigurbjöm
Árnason, f. 18.9. 1927, skipstjóri og
stýrimaður í Garðabæ, og Krist-
jana Kristjánsdóttir, f. 13.12. 1929,
sjúkraliði.
Ætt
Sigurbjöm er sonur Áma Stef-
ánssonar frá Fáskrúðsfirði og Jón-
ínu Gunnhildar Friðfinnsdóttur úr
Svarfaðardal en þau bjuggu á Ak-
ureyri.
Kristjana er dóttir Kristjáns
Halldórssonar og Margrétar Árna-
dóttur sem bjuggu á Klængshóli í
Skíðadal.
Eva tekur á móti gestum á
afmælisdaginn frá kl. 16.00.
Sextug
Þórunn Nanna Ragnarsdóttir
húsfreyja að Vogi við Raufarhöfn
Þórunn Nanna Ragnarsdóttir
húsmóðir, Vogi við Raufarhöfn,
varð sextug á fimmtudaginn var.
Starfsferill
Þórunn fæddist í Grænumýrar-
tungu í Hrútafirði og ólst þar upp.
Hún var einn vetur í kvennaskólan-
um á Blönduósi 1957-58.
Þórunn var talsímakona á Brú í
Hrútafirði 1958-62. Hún hefur verið
húsmóöir í Vogi við Raufarhöfn frá
1962.
Fjölskylda
Þórunn giftist 25.12. 1962 Jóhanni
Óskari Hólmgrímssyni, f. 16.10.1938
á Skeggjastööum í Norður-Múla-
sýslu. Foreldrar hans voru Hólm-
grímur Jósefsson, f. 12.4. 1906, d.
10.6. 1946, prestur á Skeggjastöðum
og síðar á Raufarhöfn, og Svanhvít
Pétursdóttir, f. 21.12. 1911, d. 22.9.
1981, húsfreyja.
Börn Þórunnar og Jóhanns eru
Sigríður, f. 28.10. 1963, tónmennta-
kennari í Reykjavik, en maður
hennar er Jón Skúli Indriðason, f.
6.6. 1963, verkfræðingur, og eru
börn þeirra Jóhann Skúli, f. 20.6.
1991, og Kristín Ýr, f. 26.7. 1998;
Hólmgrímur, f. 13.11.1964, sjómaður
og ökukennari á Raufarhöfn, en
kona hans er Ingibjörg María Gylfa-
dóttir, f. 5.10. 1969, gjaldkeri á Rauf-
arhöfn, og eru börn þeirra María, f.
11.11. 1990, og Jóhann Þór, f. 21.1.
1993; Svanhvít, f. 30.5. 1966, skrif-
stofumaður í Ósló en maður hennar
er Djamel Seba, f. 22.9. 1964, mót-
tökustjóri í Ósló og eru böm þeirra
Sonja, f. 14.2. 1989, d. sama dag, Elí-
as Samywalid, f. 1.2. 1990, og Lydia,
f. 25.4. 1995; Ragnar Axel, f. 20.6.
1969, sjómaður á Raufarhöfn, en
kona hans er Olga Friðriksdóttir, f.
4.10. 1969, leikskólakennari á Rauf-
arhöfn, og eru börn þeirra Þórunn
Nanna Ragnarsdóttir, f. 25.9. 1995,
og Friðrik Þór, f. 11.9. 1998; Ingvald-
ur, f. 17.8 1974, rafvirki í Reykjavík.
Systkini Þórunnar: Gunnar Ingi,
f. 26.7. 1942, d. 8.8. 1942; Ingunn, f.
27.4. 1944, aðalbókari hjá Heilsu-
gæslunni í Reykjavík; Gunnar, f.
4.11. 1949, lagerstjóri mjólkurbúsins
í Búðardal; Heiðar, f. 31.1. 1956, vél-
smiður hjá Reykjavíkurborg.
Foreldrar Þórunnar: Ragnar Axel
Guðmundsson, f. 17.7. 1911, bóndi
og búfræðingur í Grænumýrar-
tungu í Hrútafirði, síðar starfsmað-
ur hjá SÍS á Kirkjusandi í Reykja-
vík, og Sigríður Gunnarsdóttir, f.
21.8. 1916, húsfreyja í Grænumýrar-
tungu í Hrútafirði, síðar starfsmað-
ur hjá SÍS á Kirkjusandi í Reykja-
vík. Þau búa í Reykjavík.
Ætt
Ragnar er sonur Guðmundar
Þórðarsonar, b. og smiðs á Borðeyri
við Hrútafjörð, og Ragnheiðar Sig-
urðardóttur húsmóður.
90 ára_______________________
Margrét Skúladóttir,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
85 ára_______________________
Sesselja Siguröardóttir,
Smáratúni 20, Selfossi.
70 ára_______________________
Magnús Gunnarsson,
Frakkastlg 14, Reykjavík.
Þorbjörg Eiíasdóttir,
Huldugili 6, Akureyri.
60 ára_______________________
Anna Fornadóttir,
Höföahlíö 11, Akureyri.
Baldvin Bjarnason,
Hrafnagilsstræti 8, Akureyri.
Hermann Guðmundsson,
Aöalbraut 3, Dalvík.
Jóhanna G. Halldórsdóttir,
Háahvammi 11, Hafnarfiröi.
Kolbrún Jóhannesdóttir,
Völvufelli 20, Reykjavík.
Signý Einarsdóttir,
Nónási 5, Raufarhöfn.
50 ára_______________________
Ásvaldur Sigurösson,
Melagötu 4, Neskaupstað.
Edda Hjörieifsdóttir,
Jörvabyggð 5, Akureyri.
Helga Högnadóttir,
Hjaltabakka 10, Reykjavík.
Siguröur Bessason,
Reynimel 43, Reykjavík.
Siguröur Ingvi Snorrason,
Leirutanga 49, Mosfellsbæ.
Siguröur Leifsson,
Hfuseli 32, Reykjavík.
Steindór Hall,
Laugavegi 147a, Reykjavík.
40 ára_______________________
Elín Hildur Siguröardóttir,
Salthömrum 14, Reykjavik.
Gunnar Vigfússon,
Vestursíöu la, Akureyri.
Gunnhildur Kr. Þórarinsdóttir,
Hlíöarhjalla 51, Kópavogi.
Hallbera Bjarnadóttir,
Rúöaseli 95, Reykjavík.
Rán Sævarsdóttir,
Þingási 45, Reykjavík.
Sigríður Loftsdóttir,
Heiöarhrauni 24, Grindavík.
Sigrún Siguröardóttir,
Löngumýri 26, Garöabæ.
Sólveig Gunnarsdóttir,
Hvassaleiti 30, Reykjavík.
Wojciech Podiewski,
Bárugötu 15, Akranesi.
--------7777773
Smóauglýsinga
deild DV
er opin:
• virka daga kl, 9-22"!
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Skilafrestur smáauglýsinga
er fyrir kl. 22 kvölaiö fyrir
birtingu,
Alh. Smáauglýsing í
Helgarblað DV verður þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
föstudag.
Smáauglýsingar
550 5000