Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
DV
Fréttir
Hjónaleysin til borðs með kóngum og prinsum í Hvíta húsinu:
Dorrit og forsetinn
ferðast sem hjón
- ástarævintýrið á Bessastöðum springur út í Washington
Dorrit Moussaieff, ástkona for-
seta íslands, er á gestalista Clintons
Bandaríkjaforseta vegna hádegis-
verðarboðs sem haldið verður í
borðstofu Hvíta hússins í Was-
hington á morgun. Þar mun Dorrit
sitja til borðs með Noregskonungi
og Danaprinsi, svo einhverjir séu
nefndir, auk Bandaríkjaforseta og
Hillary eiginkonu hans í sinni
fyrstu opinberu ferð við hlið Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta ís-
lands. Hádegisverðarboð Clintons
er haldið í tengslum við opnun vík-
ingasýningar í Smithsonian-safninu
í Washington í dag að viðstöddum
öllum þjóðhöfðingum Norðurlanda.
Sendiráð landanna í Bandaríkjun-
um höfðu lagt mikla áherslu á að
hádegisverðarboðið yrði haldið í
dag, á opnunardegi sýningarinnar í
Smithsonian, en vegna anna Clint-
ons Bandaríkjaforseta reyndist ekki
unnt að verða við þeim óskum. Há-
degisverðurinn í Hvíta húsinu verð-
ur því á morgun.
Vissu ekki um Dorrit
Undirbúningur hádegisverðarins
hefur tekið marga mánuði og þegar
hann stóð sem hæst og verið var að
útbúa gestalista var sendiráðstarfs-
mönnum alls ókunnugt um sam-
band forseta íslands við Dorrit
Moussaieff. Þurfti því ýmsu að
hnika tU og vinna málið upp á nýtt
þegar ljóst varð að forseti Islands
yrði ekki einn á ferð í hádegisverð-
arboði Clintons. Samkvæmt heim-
Udum DV hafa starfsmenn Hvíta
hússins svarað seint og treglega
óskum manna um breytingar vegna
nýrrar stöðu málsins og þegar sið-
ast fréttist í gærkvöldi voru
boðskortin í veislu Clintons ókomin
í hendur gesta.
DV-MYND GUÐLAUGUR TRYGGVI
I heimsókn til Clintons
• Forseti íslands og fylgdarliö hans héldu í gær vestur um haf. Þar mun Ólafur Ragnar Grímsson ásamt fylgdarkonu
sinni Dorrit Moussaieff væntanlega eiga stund meö Bill Clinton, forseta Bandaríkjannna.
Elns og hjón
Forseti íslands og Dorrit
Moussaieff voru væntanleg tU Was-
hington í gærkvöldi að staðartíma
og ferðast um sem hjón væru. Sam-
kvæmt ströngustu siðareglum
stjómvalda víðast hvar í hinum
vestræna heimi þykir ekki við hæfi
að bjóða ógiftu sambýlisfólki f þjóð-
höfðingjaveislur og eru fordæmi
fyrir því i íslenska stjórnkerfmu að
makar boðsgesta hafl þurft að sitja
heima vegna hjúskaparstöðu sinn-
ar. Ef íslenskum prótókoUsreglum
hefði verið beitt við hádegisverðar-
boð Clintons á morgun hefði Dorrit
ekki verið boðið vegna eðlis sam-
bands hennar við félaga sinn og vin,
forseta íslands. En eins og reyndur
sendiráðsmaður orðaði það í sam-
tali við DV: „Engar reglur eru án
undantekninga og það á einnig við
um prótókoUsreglur utanríkisráðu-
neytisins. Svo er alkunna að Clint-
on Bandaríkjaforseti mngengst op-
inberar siðareglur með frjálslegri
hætti en margir aðrir á æðstu stöð-
um.“
Sex sæti
Þar sem hádegisverðarboð Clint-
ons er haldið öUum þjóðhöfðingjum
Norðurlanda tU heiðurs þurfti að tak-
marka mjög gestafjölda hverrar þjóð-
ar vegna stærðar borðstofuborðsins í
Hvíta húsinu. í hlut íslands komu sex
sæti við borð Clintons og þau munu
skipa: Jón Baldvin Hannibalsson
sendiherra og frú Bryndís Schram,
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra og frú Rut Ingólfsdóttir og Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti íslands,
- og Dorrit Moussaieff. -EIR
Lokslns út
Sakborningar í stóra fikniefnamálinu mættu í héraösdóm
í gærmorgun.
DV-MYND S.
Ákærur í stóra fíkniefnamálinu:
Svipbrigðalausir
sakborningar
Níu sakborningar í stóra flkni-
efnamálinu sýndu engin svipbrigði
þegar þeim voru birtar ákærur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær-
morgun. Þrír þeirra tóku þó tU
máls og kærðu framlengdan gælsu-
varðhaldsúrskurð tU Hæstaréttar.
„Ef Hæstiréttur staðfestir úr-
skurð dómara þá verða mennimir
í gæsluvarðhaldi áfram tU 28. júní
en sjálft málið verður þingfest 9.
maí,“ sagði Kolbrún Sævarsdóttir,
settur saksóknari í stóra fíkniefna-
málinu. „Þá hefur lögreglunni í
Reykjavík verið falið að birta þrjár
aðrar ákærur og svo á ríkislög-
reglustjóri eftir að birta sínar,“
sagði Kolbrún.
Nimenningarnir sem færðir
vora í héraðsdóm í gærmorgun
hafa flestir setið inni frá því I sept-
ember í fyrra. Sjö þeirra sitja á
Litla-Hrauni en tveir í fangelsinu í
Kópavogi. -EIR
Frumvarp um vitnavernd og refsingar:
Vitni varin
gegn hótunum
og ofbeldi
„Megináherslaní þessu er
lögð á vitnavemdina og það
er verið að herða
refsirammann, refsingar
verða þyngdar við því að
áreita vitni, hóta því og
beita það ofbeldi. Síðan er
lika verið að verja vini og
vandamenn vitnisins sem
geta haft áhrif á það við
skýrslugerð. Þannig að ef
einhver hótar eða beitir þá
ofbeldi þannig að þeir geti
haft áhrif á vitnið þá er það
ólögmætt. Verknaðurinn er
auk þess refsiverður, hvort
sem brotið er framið fyrir
eða eftir skýrslugerð vitn-
is,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, formaður
aUsheijamefndar Alþingis,
um framvarp um breytingu
á lögum um meðferð opin-
berra mála sem samþykkt verður á
Alþingi í dag. Þetta kemur í beinu
framhaldi af morðmálinu í Keflavík
þar sem fómarlambið hafði verið
áreitt um skeið. Frumvarpið felur
annars vegar í sér miklar breytingar
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
„Þaö er ekki ver-
iö aö skylda fólk
til aö bera vitni
en þaö er veriö
aö verja fólkiö,
verja þá al-
mannahagsmuni
aö fólk beri vitni
og þori aö gera
þaö."
á lögum um vitnavemd og
bendir Þorgerður á að lögin
nái einnig tU almennra borg-
ara sem bera þurfi vitni í
mikUvægum málum. „Það er
ekki verið að skylda fólk tU
að bera vitni en það er verið
að verja fólkið, verja þá al-
mannahagsmuni að fólk beri
vitni og þori að gera það.“
Hitt meginefni frumvarps-
ins eru hertar refsingar við
að framleiða, selja, dreifa og
hafa í vörslu sinni
bamaklám. Þar er refsiramm-
inn ekki einungis hertur
heldur einnig víkkaður tU
muna. „Frumvarpið gengur
enn lengra að því leyti að þó
fólk hafi ekki endUega
bamaklám í fóram þínum,
heldur hafi t.d. pantað það að
utan og það sé sannanlega
hægt að rekja það tU þess, þá er það
líka refsivert," segir Þorgerður
Katrin Gunnarsdóttir. Þá verður fyr-
ir þinglok einnig afgreitt framvarp
um nálgunarbann sem margir telja
mjög tímabært. -hdm
Þrumar úr salnum
Sá fágæti atburður
gerðist á Alþingi í
gær að ræða var Uutt
úr sæti úti í þingsaln-
um. Þar var Stein-
grímur J. Sigfússon á
ferðinni en hann
sleit hásin á fótbolta-
æfingu. Verið var að
rseða kvótakeríið og framtíð þess eftir
Vatneyrardóminn.
Ársverkum fjölgar
Ársverkum iðnaðarmanna hefúr
Qölgað mikið og era nú 12.000 verk á ári.
Þetta er mikU fjölgun ársverka frá síð-
asta áratug en þá var deyfð í greinum
iðnaðar i heU tíu ár. Stöð 2 sagði frá.
Áhrif í ferðaþjónustu
Gengi evrunnar hefur faUið um 5%
miðað við gengi íslensku krónunnar
frá áramótum. Þetta hefúr áhrif á Is-
landi, ekki síst í ferðaþjónustu.
Engin umframáhrif
Nú er lokið athugun Skipulagsstofn-
unar á mati á umhveríisáhrifúm fyrir-
hugaðra framkvæmda við dýpkun
Sundahafnar í Reykjavik. Helsta nið-
urstaða málsins er sú að mati skipu-
lagsstjóra að dýpkunarframkvæmdim-
ar muni hvorki hafa áhrif á fúglalíf né
hugsanlegar hrygningarstöðvar um-
fram það sem núverandi haftiarstarf-
semi og byggð í Reykjavík hefúr haft
fram að þessu.
Orðusóun
Ástþór Magnússon
hjá Friði 2000 hefur
sent Ólafl Ragnari
Grímssyni, forseta ís-
lands, bréf þar sem
forsetaframbjóðand-
inn fyrrverandi ósk-
ar eftir ferðaaáætlun
forseta um Bandarík-
in svo „heiðra megi hinn fyrrverandi
friðarsinna með viðeigandi hætti.“ Á
það erminnt í bréfi Ástþórs að foret-
inn hafi veitt um 30 hershöfðingjum
orður.
Sameining könnuð
Eins og DV greindi frá fyrr í vetur þá
fór hreppsnefnd Saurbæjarhrepps fram
á viðræður um hugsanlega sameiningu
Saurbæjarhrepps, Dalabyggðar og Reyk-
hólahrepps en Reykhólahreppur taldi
það ekki tímabært. Nú hefúr málið ver-
ið tekið upp að nýju og samþykkti
Hreppsnefnd Dalabyggðar að fela odd-
vita og sveitarstjóra að kanna mögu-
leika þess að ganga til sameiningarvið-
ræðna við Saurbæjarhrepp.
Merkasta flaskan
Merkasta viskíflaska sem komið
hefur tfl íslands var opnuð á Hótel
Holti í gær. Um var að ræða 50 ára
gamalt vískí af tegundinni Glenfiddich
en ein slik flaska berst til Norðurland-
anna á ári hverju. Stöð 2 greindi frá.
ísland í tísku
Jón Baldvin
Hannibalsson, sendi-
herra íslands í
Bandaríkjunum, seg-
ir ísland vera í tisku
í Bandaríkjunum og
að önnur af Norður- <
löndunum fái ekki
jafh mikla umfjöllun.
ísland fái meiri umfjöllun en þau öll til
samans. Sjónvarpið greindi frá.
Dæmd í sektir
Fjögur ungmenni á Akureyri á aldrin-
um 20 til 22 ára hafa í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra verið dæmd til að greiða
sektir vegna fikniefnabrota. Einn fjór-
menninganna er dæmdur til að greiða 100
þúsund krónur, einn 40 þúsund og tvö
ungmennanna eiga að greiða 31 þúsund
krónur hvort. Upptæk eru gerð tæp 16
grömm af hassi og 2,25 grömm af am-
fetamíni. Dagur greindi frá. -hdm