Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
Fréttir I>V
Sjómannaforustan og LÍÚ hafa haldið ótal samningafundi án árangurs:
Ekki samið við sjó-
menn á næstunni
lönskólinn í Reykjavík.
Þrátt fyrir fjölmarga viðræðufundi
forustumanna Sjómannasambandsins
og Landssambands islenskra útgerð-
armanna undanfamar vikur og mán-
uði, bæði formlega og óformlega,
virðist sáralítil eða nákvæmlega eng-
in hreyfing komin á samningamál
þeirra. Menn hafa talað og talað og
viðrað ýmsar hugmyndir en svo virð-
ist sem þvílik stífni sé milli aðila sem
fyrr að þeir geti ekki komið sér í „al-
vöm viðræður" um eitt né neitt.
Virðist því sem þessir aðilar ætli ekki
að ná samkomulagi um grundvallar-
mál frekar en tyrri daginn, en hvergi
hefur „harka og stífni" í samninga-
viðræðum verið meiri en milli þess-
ara aðila í undangengnum samninga-
lotum. Mál þessara aðila er ekki kom-
iö til embættis ríkissáttasemjara þótt
aðilar hafi haft aðstöðu til fundar-
halda í húsakynnum hans að undan-
fómu.
Lengi vel hafa menn talað um að
perónulegt ósætti Kristjáns Ragn-
arssonar, formanns LÍÚ og fyrrver-
andi framkvæmdastjóra útvegs-
manna, annars vegar og Sævars
Gunnarssonar, formanns Sjómanna-
sambandsins, hins vegar stæði í
vegi fyrir að samskipti samtaka
þeirra í samningamálum gætu verið
með eðlilegum hætti, og sjálfur
„impraði" Kristján á þessu þegar
hann tikynnti á sínum tíma að
hann hygðist hætta sem fram-
kvæmdastjóri LÍÚ og láta hitann og
þungann í samningamálunum yflr á
DV-MYND S
Styrkur tll krabbamelnssjúkra barna
Fyrirlesarinn Brian Tracy, til hægri, færöi Þorsteini Ólafssyni, formanni Styrkt-
arfélags krabbameinssjúkra barna, 650 þúsund króna styrk fyrir hönd Vegs-
auka og Hard Rock Café í Borgarleikhúsinu í gær. Peningarnir voru afrakstur
tveggia hádegisveröa á Hard Rock þar sem fólki gafst kostur á aö boröa
meö fyrirlesaranum fyrir 10.000 krónur.
axlir annarra for-
ustumanna LÍÚ.
Vera kann að and-
rúmsloftið á fund-
um sjómannafor-
ustunnar og LÍÚ
hafi eitthvað
breyst við brott-
hvarf Kristjáns úr
átakalínunni, en
það hefur þá ekki
skilað sér í meiri
árangri á samn-
ingafundunum.
Engin sátt um verðmyndun
Um árabil hefur verið tekist á um
þá meginkröfu sjómannaforustunnar
að allur fiskur skuli fara á markaði
til verðmyndunar, en útvegsmenn
hafa jafnan hafnað þeirri kröfu alfar-
ið og ekki verið til viðræðu um eitt
né neitt í þá veruna og eru ekki enn.
Virðist nokkuð ljóst að aðilar muni
engu samkomulagi ná um þetta atriði
frekar en fyrri daginn, og breytingar
verði ekki á verðmyndunarkerfinu
nema til komi bein opinber afskipti af
því máli.
Konráð Alfreðsson, varaformaður
Sjómannasambands íslands, segir að
hann hafi ekki tölu á þeim fundum
sem haldnir hafi verið að undan-
fömu, en árangur þeirra funda sé ná-
kvæmlega enginn. Varðandi megin-
kröfuna um allan fisk á markað, seg-
ir Konráð að sú krafa sé ekki endi-
lega á oddinum í dag frekar en annað,
í rauninni séu öll mál sjómanna á
oddinum, enda hafi sjómenn dregist
verulega aftur úr öðrum stéttum hvað
varðar ýmis kjara- og hagsmunamál.
„Við erum orðnir svo langt á eftir
öðmm að við það verður ekki unað,
og við glimum við uppsafnaðan
vanda margra ára. Það er sama hvort
horft er á starfsaldursmál, orlofsmál,
uppsagnarmál eða nánast hvaða mál
sem er, sjómenn hafa engar leiðrétt-
ingar fengið um árabil þótt aðrir hafi
sífellt sótt einhveijar lagfæringar. Þá
emm við sífellt að beijast við að
reyna aö tryggja að farið verði að
þeim samningum sem í gildi eru
hveiju sinni en á því hefur verið mik-
ill misbrestur. Það er alveg óhætt að
segja að sjómenn séu orðnir mjög
Konráð Alfreðs-
son:
„Sjómenn orönir
langeygöir eftir
kjarasamningi“
langeygðir eftir
kjarasamningi,"
segir Konráð Al-
freðsson.
Engir samn-
fngar á næst-
unni?
Annar viðmæl-
andi, úr röðum
talsmanna útgerð-
armanna, sagði
við DV að svo
gæti allt eins farið
að sjómenn fengju
engan samning á
næstunni, enda
væri staða þeirra
erfið. Sjómenn
séu í rauninni hópur manna með
mjög misvísandi hagsmunamál og
mjög mismiklar tekjur eftir því hvers
konar veiðimennsku þeir stunda.
Þessi aðili sagði sjómenn ekki hafa
neina stöðu til að fara í verkfallsað-
gerðir á næstunni, bæði vegna þess
Gylfi
Kristjánsson
blaðamaður
Fréttaljós
Kristján Ragn-
arsson, formað-
ur LÍÚ.
Brotthvarf hans
úr átakalínu
samnlngamál-
anna virðist lítiö
hafa liökaö fyrir
málum.
að alls ekki væri um neina samstöðu
meðal sjómanna um slíkt að ræða. í
rauninni væru tveir fyrstu mánuðir
hvers árs einu mánuðir ársins sem
sjómenn hefðu sterka stöðu til verk-
fallsaðgerða, þeir gætu þá lamað
loðnuveiðar með slíkum aðgerðum en
á öðrum árstíma væri verkfallsvopn
sjómanna langt frá því að vera beitt
vopn, enda gætu útgerðirnar tekið
kvóta sinn í öðrum tegundum á
styttri tíma þótt til sjómannaverkfalls
kæmi t.d. á næstu mánuðum.
Eins og staðan er í dag bendir því
fátt til að til tíðinda dragi á næstunni.
Útvegsmenn ætla að funda í næstu
viku og ráða ráðum sínum og eftir
það munu þeir hitta talsmenn sjó-
manna að nýju. Hvort eitthvað nýtt
kemur þá upp á borðið er ekki talið
líklegt, þótt menn munu e.t.v. ræða
málin eitthvað áfram eins og þeir
hafa verið að gera að undanfömu án
nokkurs árangurs. -gk
Skólameistari IR:
Sjö hafa
sótt um
Sjö umsóknir höfðu borist um
stöðu skólameistara Iðnskólans í
Reykjavík síðdegis i gær. Vera má
að einhverjar umsóknir hafi átt
eftir að berast með pósti. Þeir sem
hafa sótt um eru: Ágúst Birgir
Karlsson, aöstoðarskólameistari
Iðnskólans í Reykjavik, Baldur
Gíslason, verkefnastjóri hjá Prent-
tæknistofnun m.fl. , Helga Bjöms-
dóttir, framhaldsskólakennari í
Iðnskólanum í Reykjavík, Ingi
Bogi Bogason, upplýsinga- og
menntafulltrúi hjá Samtökum iön-
aðarins, Ingibergur Elíasson,
kennari við Borgarholtsskóla,
Ólafur Grétar Kristjánsson, deild-
arsérfraeðingur í menntamálaráðu-
neytinu, og Sigurður Öm Krist-
jánsson, rafmagnstæknifræðingur
og kennari við Iðnskólann í
Reykjavík.
Starfsumsóknimar verða sendar
skólanefnd Iðnskólans á næstu
dögum til umsagnar. Menntamála-
ráðherra mun síðan skipa í stöð-
una. Skipað verður í hana frá og
með 1. júní nk. -JSS
Tilboði BM
Vallár tekið
Á fundi Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar á dögunum var
ákveðið að taka tilboði BM Vallár
ehf. varðandi kaup á hellum og
steinum til viðhalds. Tilboð BM
Vallár hljóðaði upp á rúmlega 14,5
milljónir króna sem var 83,72% af
kostnaðaráætlun. Tilboð Steypu-
stöðvarinnar ehf. hljóðaði upp á
75,58% en var frávikstilboð þar sem
stærð hellusteina var ekki sú sama
og útboðslýsing hljóðaði upp á og
var því ekki lægsta boð. í frétt DV á
þriðjudag var sagt að tilboð Steypu-
stöðvarinnar hefði verið lægst og er
beðist velvirðingar á þeirri
ónákvæmni. -hdm
Veðriö í kvöld
Væta fyrir vestan
Gert er ráö fyrir suðaustanátt 5-8 m/s, en 8-
13 m/s vestantil. Vestanlands veröur rigning
meö köflum fram eftir morgni, en síðan
úrkomulítið, en léttskýjaö noröaustan- og
austanlands.
Sólarlag i kvöld
Sólarupprás á morgun
Síódegisflóö
Árdegisflóö á morgun
21.40
05.09
12.53
01.35
20.04
04.42
17.26
06.08
Skýrlngar á veöurtáknum
^VINDÁTT 10°—HITI VV
.10° V-
'^VINDSTYRKUR \rancT HEIÐSKÍRT
S metrum á sekúndu *'KUbI
o O
LÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
%%.. W Ö
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
'Q' P ■ú sss
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF* RENNINGUR ÞOKA
Enn hálkublettir á fjallvegum
Góö færö er á öllum helstu þjóðvegum
landsins, þó eru hálkublettir víöa á
fjallvegum á Vestfjöröum, Noröaustur-
og Austurlandi. Fært er oröið um
Hellisheiöi eystri.
Veðrið á morgun
Víða bjart veður
Á morgun verða austan 8-13 m/s meö suöurströndinni en hægari annars
staöar. Smáskúrir verða SA-lands en víöa bjart veður noröan og vestan til.
Hiti 2 til 8 stig að deginum en vægt næturfrost norðan- og austanlands.
Laugarda)
Vindun vL—
Hiti 2° til 8° '
Hæg A- eöa NA-átt. Dálítll
rigning eöa súld á
austanveröu landinu en
nokkuö bjart veöur
vestanlands. Hitl 2 til 8
stlg, hlýjast suövestan til.
Gert er ráö fyrir fremur
hægum sublægum áttum
og votvlörl, elnkum sunnan
tll. Milt veröur i vebri.
BBnnrfBTO-
J 'W/
Hiti 4° til 8° 4 ó 4
Enn er spáö fremur
hægum suölægum áttum
og votvlörl, elnkum sunnan
til. Áfram veröur nokkuö
mllt í veöri.
AKUREYRI léttskýjaö -5
BERGSTAÐIR léttskýjaö -4
BOLUNGARVÍK skýjaö 0
EGILSSTAÐIR -7
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -2
KEFLAVÍK hálfskýjaö -3
RAUFARHÖFN skýjað -9
REYKJAVÍK léttskýjaö —3
STÓRHÖFÐI hálfskýjaö i
BERGEN skýjaö 6
HELSINKI léttskýjaö 6
KAUPMANNAHÖFN þokuruöningur 10
OSLÓ skýjaö 8
STOKKHÓLMUR 8
ÞÓRSHÖFN alskýjað 1
ÞRÁNDHEIMUR slydduél 4
ALGARVE léttskýjaö 10
AMSTERDAM léttskýjaö 13
BARCELONA skýjaö 12
BERLÍN skýjaö 11
CHICAGO hálfskýjaö 7
DUBLIN súld 8
HALIFAX alskýjaö 0
FRANKFURT léttskýjaö 11
HAMBORG skýjaö 9
JAN MAYEN léttskýjaö -5
LONDON rigning 10
LÚXEMBORG heiöskírt 13
MALLORCA hálfskýjaö 10
MONTREAL léttskýjaö 2
NARSSARSSUAQ rigning 2
NEW YORK skýjaö 8
ORLANDO heiöskírt 17
PARÍS skýjaö 13
VÍN léttskýjaö 13
WASHINGTON skýjaö 7
WINNIPEG heiöskírt 11