Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
Fréttir
I>V
Undirskriftir á Húsavík til styrktar nauðgara:
Fórnarlamb nauðgunar
hraktist úr bænum
- Hæstiréttur hækkaði bætur vegna undirskriftanna
í dag birtist í bæjarblaöinu
Skránni á Húsavík opið bréf til
bæjarbúa frá foreldrum ungrar
stúlku sem var nauðgað í
samkvæmi í kaupstaðnum síðast
liðið vor.
Eins og sjá má af bréfinu sem
birt er hér til hliðar í heild, ólgar
mikil reiði og beiskja undir lygnu
yfirborði hins kyrrláta samfélags
við Skjálfanda.
í kjölfar þess að 113 Húsvíkingar
skrifuðu undir
stuðningsyfirlýsingu við
nauðgarann eftir að hérðasdómur
dæmdi hann sekan í lok desember,
hraktist fórnarlambið úr bænum
og foreldramir íhuga hið sama.
Hæstiréttur hefur nú fellt sinn
dóm.
Með þessu bréfl sem rætt er um
er vísað tU dóms Hæstaréttar sem
13. aprU sl dæmdi Ævar Þór Æv-
arsson, 18 ára Húsvíking, í 15 mán-
aða fangelsi fyrir nauðgun en
frestaði fullnustu dómsins um 3 ár
enda haldi ákærði almennt skil-
orð. Hæstiréttur staðfestir dóm
Héraðsdóms en bætir skUorði við.
Tveir dómarar Hæstaréttar skU-
uðu sératkvæði og vUdu að ákærði
afplánaði þriggja mánaða fangelsi
af fimmtán. í undirrétti voru fóm-
arlambinu dæmdar 400 þús. krón-
ur í miskabætur en Hæstiréttur
hækkar þá upphæð í 500 þús. með
hliðsjón af því að „framangreint
brot hefur valdið henni óvenju-
mikUli félagslegri röskun."
„Við höfum orðið fyrir miklu
óréttlæti og það er búið að eyði-
leggja mannorð dóttur okkar,“
sagði Soffia G. Guðmundsdóttir,
móðir fórnarlambsins, í samtali
við DV.
„Á þessum lista má sjá nöfn
frænda okkar, fyrrverandi vinnu-
veitanda, kaupmannsins á hom-
inu og vinnufélaga. Þessi listi varð
til í múgæsingi og lygum og var
eins og hnifsstungá í bakið á okk-
ur.“
Mæöur eiga líka syni
Aðdragandi málsins er sá að
þegar Ævar Þór var dæmdur í
Héraðsdómi rétt um síðustu ára-
mót var farið af stað meö undir-
skriftalista honum tU stuðnings á
Húsavík undir fyrirsögninni: Trú-
um og treystum því að réttlætið
sigri að lokum og undir voru nöfn
Sinueldar:
Tré skemm-
ast og hest-
ar í hættu
Lögregla og slökkvUið í Ólafs-
vík börðust við nokkra ólöglega
sinuelda frá klukkan 14 á þriðju-
dag til klukkan 23.30.
Eldur hafði kviknað í skóg-
ræktinni í Ólafsvík og drápust
þar 50 tU 100 tveggja ára gamlar
birkiplöntur vegna eldanna.
Einnig var kveikt í sinu fyrir
ofan gömlu ruslahaugana í
Ólafsvík. Mikinn reyk lagði nið-
ur í hesthúsin svo fjarlægja
þurfti hestana. Tókst að slökkva
eldana áður en skemmdir urðu
á hesthúsunum.
Lögreglan og slökkvUiðið á
Hvolsvelli voru lika köUuð út að
þremur sinueldum á þriðjudag.
Mikinn reyk lagði frá eldum við
Suðurlandsveg þar sem kveikt
hafði verið í án leyfls. -SMK
Húsavík við Skjálfanda
Á Húsavík búa 2.429 manns. 113 nöfn voru birt í Skránni á Húsavík íjanúar til stuönings dæmdum nauögara. Fórn-
arlambið hefur flutt úr bænum vegna aökasts.
113 Húsvíkinga og undir skjalinu
stóð: Mæður eiga líka syni. Það er
til þess sem vísað er í eftirskrift
bréfs foreldra fórnarlambsins hér
að ofan.
DV hefur traustar
heimildir fyrir þvi að ít-
rekað var reynt að koma
í veg fyrir aö listinn
birtist og var einkum
höfðað til þess að á hon-
um birtist nafn hins
ákærða fyrst opinber-
lega en það var hvergi
birt í málsskjölum.
Skráin á Húsavík er
blað með sjónvarps-
dagskrá og auglýsing-
um og liggur frammi
á vinnustööum og
verslunum í nær aUri
sýslunni. Útgefendur
Skrárinnar vildu
ekki gefa upp við DV
hver hefði greitt fyr-
ir birtingu listans en
hann olli miklu
fjaðrafoki og flokka-
dráttum á Húsavík.
Nauðgunin sem
málið snýst um átti
sér stað á Húsavík
16. maí 1999 eftir
veislu i kjölfar pró-
floka í Framhalds-
skólanum á Húsa-
vík en árásarmað-
urinn og fómar-
lambið voru
bekkjarsystkin í
skólanum.
í kjölfar þessa
máls hefur stúlk-
an flutt frá Húsa-
vík en hún varö
fyrir verulegu
aðkasti vegna
þessa máls.
Hún stundar
nám við fram-
haldsskóla í
Reykjavík en
að sögn kunnugra
var veist að
henni á dansleik
á Húsavik um
jólin vegna
þessa máls.
Foreldrar hennar segjast í sam-
tali við DV ekki hyggja á brott-
flutning frá Húsavík að svo stöddu
en þau eru bæði innfæddir Hús-
víkingar.
m msmsuwu
*•»» _____
Kí »• -
vm nsi ^ •*.
;ariBní nnuðgara
tis!dui' víijuifis
wndirajjrift
5
sssr
noggorms ungum verri.
PS
ar
VirðingarfyJist
Lii,! og Soffia.
E anð mem «* w r,ð“ía
Bréf foreldranna
Lygavegur spunninn um fórnarlamb nauögara og
ekkert dæmi til um aöra eins framkomu.
Dómstóll götunnar undir
nafni
Þegar listinn með nöfnun 113
Húsvíkinga er skoðaður kemur í
Ijós að umtalsverð fjölskyldutengsl
eru milli margra smáhópa á listan-
um. Á hann skrifa heilar
fjölskyldur sem
tengjast meö
ýmsum hætti,
bæði gegnum at-
vinnu og ættar-
tengsl. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraun-
ir hefur enginn
þeirra sem ritaði
nafn sitt á listann
viljað tjá sig um
ástæður þess að
málið fór í þennan
farveg. DV ræddi
við Sigurð Olgeirs-
son, skipstjóra og
útgerðarmann á
Húsavík, sem ritaði
nafn sitt á listann
ásamt fóður sínum,
bróður og syni, en
hann vildi ekki segja
neitt um ástæðurnar
annað en að hann sæi
ekki eftir neinu.
Heimildarmenn DV
á Húsavik fullyrða að
margir sem rituðu
nöfn sin á listann sjái
mjög eftir því og finn-
ist að múgæsing hafl
gripið um sig. Mörgmn
fmnst sem ímynd bæj-
arins hafl beðið hnekki
viö það að málið komst
í hámæli og þess vegna
ólgi mjög undir ennþá
þó dómur Hæstaréttar
hafi fallið.
„Þetta er í fyrsta sinn
sem dómstóll götunnar
kemur fram undir nafni,“
sagði Húsvíkingur í sam-
tali við DV.
„Mörgum finnst miður
að það skyldi gerast hér.“-
PÁÁ
til
Umsjón:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.is
Igi á pólnum
Umfjallaðasti
göngutúr ís-
landssögunnar
heldur áfram og
hættir væntan-
lega ekki fyrr en
pólnum verður
náð. Margir hafa
velt fyrir sér
hvað dregur
menn út í slikar
gönguferðir þegar mun þægilegra
er að ferðast þetta með flugvélum.
Sumir vilja tala um ævintýraþrá
og þess háttar en aðrir eru efms
um hvað það var sem dró Harald
örn Ólafsson á snjóþotuna.
Tvennt segja menn koma til greina,
annars vegar að hann leiti að fylgi
Framsóknarflokks foður sins úti á
ísbreiðunni og hins vegar að það sé
óbilandi trú hans á jólasveininn...
Versta veöur
Það vakti at-
hygli lands-
manna er
Trausti Jóns-
son veðurfræð-
ingur birtist á
sjónvarpsskján-
um í fyrrakvöld
i glampandi sól-
skini, að hann
var með hettu
yfír hausnum. Dúðaður þykkri
vetrarúlpu lýsti hann sólarmeti í
Reykjavík sem var um þaö bil að
falla. Enn meiri athygli vakti er
fréttamaður impraði á klæðnaði
Trausta í blíðúnni, þá sagði hann
að lengsta samfellda sólskinstíma-
bil í sögu mælinga væri bara hið
versta veður. Gárungarnir velta
því vöngum yfir því hvað þurfi til
að Trausti telji veðrið gott og fari
úr úlpunni...
Vígt piss
Ásatrúarmenn
i íslandi hugðust
lialda sína árlegu
hátið í sumar og
var stefnan sett á
Þingvelli. Ætlun-
in var að halda
hátíðina 8 dögum
fyrir kristnitöku-
hátíð sem þar
verður haldin
um mánaðamótin júní/júlí. Þótti
mönnum þetta vel til fundið, þar
sem Þingvellir eru ekki síður
„Mekka“ ásatrúarmanna en krist-
inna.
Jörmundi Inga allsherjargoða
varð hins vegar ekki skemmt þegar
söfnuður hans var krafmn um eina
og hálfa milljón króna fyrir afnot
af klósettum og tjaldstæöum sem
ríkið mun alfarið greiða fyrir hina
kristnu. Heimildarmenn telja víst
að ástæðan hljóti aö vera sú að kló-
settin geti afhelgast af notkun heið-
inna manna. Varla dugi minna en
vígt piss til að bæta þar úr...
Gaflarar í víking
Magnús
Gunnarsson
bæjarstjóri 1
Hafnarfirði,
greip á lofti hug-
mynd Garðbæ-
inga og Bessa-
staðahreppsbúa
að sameinast í
eitt sveitarfélag.
Býður Magnús
nú upp á þau einstæðu kjör að
nærsveitungar stofni næststærstu
borg á íslandi og gerist Gaflarar.
íbúatalan yrði um 40 þúsund
manns og með innlimun Kópavogs
yrði íbúafjöldi hins nýja Gaflara-
bæjar yfir 55 þúsund sálir. Ekki er
talið ólíklegt að í herbragði Magn-
úsar felist lika hemám Seltjarnar-
ness og Mosfellsbæjar. Þar með
yrði búið að umkringja gömlu höf-
uðborgina. Spumingin er því
hversu lengi Ingibjörg Sólrún
þyldi slíkt umsátur áður en hún
gæfist upp fyrir Göflurum...