Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Page 7
7
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
DV Fréttir
Piltur ákærður fyrir skyndilega en stórfellda líkamsárás á brú í Mosfellsbæ:
Gapandi sár eftir að
flösku var barið í höfuð
- þolandinn fer fram á rúmlega einnar milljónar króna skaðabætur
SúuuMr
Ert þú ab leita ab ódýrum, vel búnum og sérlega sparneytnum bíl?
Ólafur J. Kolbeins
Sölufulltrúi
Þú færb þriggja dyra
SUZUKI Swift á aáeins
980.000 kr.
Swift er fyrir þá sem eru að leita sér að
liprum, ódýrum og áreiðanlegum bíl. Hann
er með gott innanrými og er vel búinn
með vökvastýri, rafmagn í rúðum og
speglum, hita í sætum, samlæsingar og
margt fleira. Swift er ekki hvað síst þekktur
fyrir sparneytni og hagkvæmni í rekstri
og kemur jafnan út með eina lægstu
bilanatíðni allra bíla í könnunum.
Það er því engin furða að hann sé afar
góður í endursölu, hann bara einfaldlega
endist og endist!
$ SUZUKI
//■
Swift - Spameytni bíllinn
TEGUND: VERÐ:
SWIFT GLS 3-d 980.000 KR.
SWIFT GLX 5-d 1.020.000 KR.
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson,
Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Hvammstangi: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 26 17. Isafjörður: Bflagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95.
Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, slmi 482 37 00.
18 ára piltur úr Mosfellsbæ hef-
ur verið ákærður fyrir stórfellda
líkamsárás þar sem fómarlambið
krefst rúmlega einnar milljónar
króna í skaðabætur. Atburðurinn
átti sér stað nálægt göngubrú yfir
Vesturlandsveg skammt frá
Reykjavegi í Mosfellsbæ.
Piltinum er gefið að sök að hafa
fyrst slegið þolandann, 16 ára pilt,
með krepptum hnefa í höfuðið
þannig að hann féll á jörðina.
Hann er jafnframt ákærður fyrir
að hafa stuttu siðar slegið piltinn
með tómri bjórflösku í höfuðið sem
brotnaði við höggið. Við þetta
hlaut yngri pilturinn djúpan skurð
sem náði frá kinn fyrir framan
annað eyrað og niður fyrir eyra.
Þannig gapti sárið mjög og þurfti
að sauma það saman í tveimur lög-
um. Aðrar afleiðingar þessarar
árásar, sem ríkissaksóknari heim-
færir til lagaákvæðis sem þýðir
stórfellt brot, urðu m.a. blæðing í
heilaberki, minnkaður máttur í
andlitsvöðvum öðru megin og
minnkaður máttur í hægri hand-
legg.
Sá sem varð fyrir árásinni krefst
ekki einungis rúmlega einnar
milljónar króna í skaðabætur auk
vaxta heldur fer hann einnig fram
á 98 þúsund krónur vegna lög-
mannsþóknunar í málinu. Málið
verður tekið fyrir á næstunni hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur. Hinn að baki, samkvæmt upplýsingum
ákærði í málinu á ekki sakarferil DV. -Ótt
Hornfirðingar kaupa fleiri fiskiskip
- fjölgað hefur um fjögur ný skip á stuttum tíma
Frá slysstaðnum
Unga konan hefur nú veriö í öndun-
arvét hátt á aöra viku.
Enn á gjörgæslu:
Líðan konunnar
óbreytt
Líðan konunnar sem lá við
drukknun í Hólmsá þann 16. april
er óbreytt. Konan, sem er 24 ára,
liggur á gjörgæsludeild og er henni
enn haldið sofandi i öndunarvél.
Konan var farþegi í bifreið sem
lenti á hvolfi úti í Hólmsá við Suð-
urlandsveg á sunnudagsmorguninn.
Talið er að ökumaðurinn hafi sofn-
að. Hann komst út úr bifreiðinni að
mestu ómeiddur en stúlkan var fost
í bílnum í nærri 25 mínútur. Hún
var meðvitundarlaus og nærri
drukknuð þegar björgunarmenn
náðu henni úr ánni.
Mikill ís var í ánni og lá hluti af
brúarhandriðinu í gegnum bílinn
sem gerði björgunarstarfið erfiðara.
-SMK
DV, HQFN I HORNAFIRDI:
Nýlega voru keypt þrjú fiskiskip
til Hornafjarðar. Útgerðarfélagið
Stapaklettur keypti Dagfara GK-70,
útgerð Eskeyjar keypti Hafóm EA-
955 og útgerð Jóa Bjama hefur,
ásamt Esjari Stefánssyni og Reyni
Guðbergssyni í Garði, keypt Valdi-
mar Sveinsson VE sem hlotið hefur
nafnið Beggi í Tóftum. Stutt er síð-
an útgerðarfélagið Þingey keypti
skoskt veiðiskip sem nú ber nafniö
Ásgrímur Halldórsson SF.
Nýtt útgerðarfélag á staðnum,
Sólhóll ehf., hefur keypt Erling SF
af útgerð Eskeyjar ehf. og um næstu
mánaðamót fær útgerðin Gústi í
Papey 70 tonna fiskibát.
Góð atvinna hefur veriö í fisk-
vinnsluhúsum á staðnum í vetur
þrátt fyrir umhleypingasamt tíðar-
far sem oft hefur hamlað veiöum.
Ekki er annað að sjá og heyra en
homfirskir útgerðarmenn séu fullir
bjartsýni.
-JI
Hrein viðbót við skipaflotann
Það vekur óneitanlega gteöi og ánægju bæjarbúa þegar nýtt skip kemur -
og enn meiri er ánægjan þegar ekki fara skip af staönum í stað þeirra nýju.
Hér er eitt nýju skipanna við bryggju í nýrri heimahöfn.
o\U mllli' hirr,jnx
Smáauglýsingar
550 5000