Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
Skoðun I>V
Á að taka gjald í jarðgöngum
alls staðar á landinu til
að kosta þau?
Anna Káradóttir, heimavinnandi:
Já, það fyndist mér réttast.
Svava Grétarsdóttir, heimavinnandi:
Já, það væri sanngjarnt.
Steinþór Sigurðarson þjónustufulltrúi:
Ekki þar sem ekkert val er, en
mætti láta útlendinga og aðra
ferðamenn borga.
Ársæll Markússon nemi:
Já, auövitað á að rukka alls staðar.
Konungur fiskanna í hættu
Laxinn er jafnt tómstundagaman fjölda manna sem og atvinnugrein. Konungleg, svört skýrsla segir ijóta sögu.
Hrun af manna völdum
Orri Vigfússon,
formaöur NASF,
verndarsjóös villtra
laxastofna, skrifar:
Á aðeins fimmt-
án árum hafa villt-
ir laxastofnar í
Noregi nánast
hrunið. Stjómskip-
uð nefnd skilaði
nýverið af sér kon-
unglegri skýrslu
um málið (NOU
1999:9). I henni eru
taldar upp flestar
ástæður hrunsins
Lýst er þungum áhyggjum
af því að hlutfall stroku-
laxa á hrygningarstöðvum
laxveiðiánna sé allt að
70%-90%.
og þær sagðar að mestu af manna-
völdum. Meðal áhættuþátta eru til-
greindar stíflur, ofveiði, súrt regn
og skaðlegar afleiðingar fiskeldis,
s.s. sjúkdómar, sníkjudýr, þar með
talin laxalús, og flökkufiskar úr
eldi.
Nefndin telur líklegt að eldiskví-
ar og viðvarandi lúsafaraldur sé ein
höfuðástæða hárrar dánartíðni sjó-
gönguseiða. Lýst er þungum áhyggj-
um af því að hlutfall strokulaxa á
hrygningarstöðvum laxveiðiánna sé
allt að 70%- 90%. Það hafi í för með
sér erfðamengun og að ástandið
kunni að versna enn frekar.
í nafni umhverfisverndar:
Rifnir upp klukkan
hálfsex á morgnana
Sigurður V. Magnússon
hringdi:
Við, íbúamir við Grýtubakka,
erum orðnir nokkuð þreyttir á starf-
semi gámaþjónustu sem mætir
klukkan hálfsex á morgnana, lík-
lega vikulega, til aö tæma pappírs-
gám sem er þama í hverfinu. Þeir
koma á urrandi dísilbíl með tilheyr-
andi talíum og jámadóti og skarka í
þessu í morgunkyrrðinni. Með
þessu ræsa þeir án efa stóran hluta
íbúanna í einum 52 íbúðum í næsta
nágrenni við gáminn.
I vetur hringdi ég í gámaþjónust-
una og kvartaði en fékk bara þau
svör að þetta væri nú vaktavinna.
Ég hringdi í talsmann gatnamála-
Maður vaknar í bítið einu
sinni í viku eða svo, á mið-
vikudögum þegar gámur-
inn er tæmdur. Einhverra
hluta vegna hélt ég að fólk
œtti lögum samkvœmt
einhvem svefnfrið en
svo virðist ekki vera.
stjóra, sem þótti þetta afleitasta mál
og sagðist mundu stöðva þetta. Síð-
an gerðist þetta aftur og nú varð
talsmaður gatnamálastjóra undr-
andi.
En ekkert hefur gerst í málinu
síðan. Maður vaknar í bítið einu
sinni i viku eða svo, á miðvikudög-
um þegar gámurinn er tæmdur.
Einhverra hluta vegna hélt ég að
fólk ætti lögum samkvæmt ein-
hvem svefnfrið en svo virðist ekki
vera. Það er sama hvað gert er,
menn undrast þessi vinnubrögð, en
gera ekki nokkurn skapaðan hlut til
að stöðva þetta.
Nú skilst mér að íbúarnir eigi að
fara að taka þátt í tilraunaverkefni
með enn frekari sorpflokkun. Þetta
er nú ekki til að liðka fyrir þeirri
samvinnu. Kannski það boði bara
að þessi morgunvinna gámaþjónust-
unnar færist í aukana.
Dagfari
Okkur vantar alheimsfegurðardrottningu
Samningur ungu skókaupmannanna um
ásetning um sölu í Bandaríkjunum á ís-
lenskum skóm framleiddum í Kína fyrir 7,3
mUljarða er mikið fagnaðarefni. Hingað til
hafa skór verið tengdir hnignun þjóðarinn-
ar fremur en sigmm - allt frá handritunum
sem voru skædd í skó og síðar snædd í
harðindum, gegnum tékkneskar bomsur
skömmtunaráranna og að botnlausum tap-
rekstri Sambandsverksmiðjanna norður á
Akureyri. Þegar ekki var lengur hægt að
halda vélum þeirra gangandi með styrkjum
og stuðningi Framsóknarflokksins rann upp
sá tími að íslendingar vora sér ekki lengur
sjálfbjarga um skó. Allt frá landnámi og
fram að lokun Sambandsverksmiðjanna
höfðu þeir búið til sína skó sjálfir - vonda skó
að vísu en skó engu að síður.
Samkvæmt klassískri íslenskri hagfræði hefði
þá átt að hefjast slæm tíð fyrir íslenska fætur. í
fyrsta lagi var þjóðin berskjölduð fyrir útlendum
skókaupmönnum sem vildu nýta sér bjargarleysi
hennar með því að selja henni rándýra og vonda
skó. í öðru lagi hefði fólkið sem áður saumaði
skó ekkert að gera. 1 þriðja lagi væri enginn
skóframleiðandi í svo nánu samlifi við íslenska
fætur að hætta væri á að hugsanlegum sérþörf-
um íslenskra fóta í íslenskri færð yrði ekki sinnt
„Hann var þar ekki sem fulltrúi stefnu
sins flokks heldur sem lukkutröll en
það er hlutverk sem stjómmálamenn
hafa í œ ríkari mæli tékið sér eftir að
þeir drógu úr afskiptum sínum
af viðskiptalífinu. “
sem skyldi. í fjórða lagi var hætta á að fólk í
tryggu framsóknarkjördæmi fyrir norðan flytti
suöur og yrði íhalds- og vinstrimennsku að bráð.
En ekkert af þessu - nema það síðast-
talda - gekk eftir. Loks þegar Islendingar
hættu að sauma skó blómstraði íslenskur
skóiðnaður. Og það meira að segja undir
vörumerkinu X-18 Reykjavík. Síðasta bjarg-
ráð Sambandsverksmiðjanna á Akureyri
hafði verið að merkja skóna sína Made in
Europe - en það dugði ekki til. Saga ís-
lenskrar skóframleiðslu virðist því stríða
gegn hinni klassísku íslensku hagfræði sem
Framsóknarflokkurinn hefur reynt flokka
mest að sanna upp á þjóðina.
Það var dálítið vel til fundið hjá hinum
ungu skókaupmönnum að fá formann
flokksins, Halldór Ásgrímsson, til að vera
viðstaddan blaðamannafund þar sem þeir
kynntu ásetning sinn um sölu á Bandaríkja-
markaði. Hann var þar ekki sem fulltrúi stefnu
síns flokks heldur sem lukkutröll en það er hlut-
verk sem stjómmálamenn hafa í æ ríkari mæli
tekið sér eftir að þeir drógu úr afskiptum sínum
af viðskiptalífinu. Þar gera þeir minni skaða þótt
því verði ekki neitað að alheimsfegurðardrottn-
ingarnar okkar tóku sig betur út þegar þeirra
naut við. Kannski eignumst við aftur slíka
drottningu. Og þá höfum við ekkert við Halldór
aðgera- Vrfví
Er Hannes
Hólmsteinn
herra Island?
Gunnar Sigurðsson skrifar:
Ég er svo sam-
mála flestum
stjómmálakenn-
ingum Hannesar
Hólmsteins að
það liggur við að
ég gæti verið
hann sjálfur. Nú
ber hins vegar
svo við að ég get
ekki lengur sætt
mig við að Hann-
es komi fram sem
talsmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Hann hefur ein-
faldlega ekki
______ nógu góð áhrif á
fólk því það fælist
frekar frá heldur en að aðhyllast það
sem hann segir. Maðurinn má ekki
halda að hann sé herra ísland þótt
hann sé prófessor í stjórnmálafræði.
Ferma
foreldrarnir
börn sín?
Hannes
Hólmsteinn
Fólk fælist frekar
frá heldur ert að
aðhyllast kenning-
ar hans.
Lilja hringdi:
Maður heyrir núna ítrekað að
fólk talar um að það sé að „fara að
ferma“. Kunningjakona mín sem ég
hitti á fórnum vegi sagði mér þessi
tíðindi og í DV var nýlega talað við
foreldra sem „ferma börnin sín“.
Konan sagðist hafa fermt áður, karl-
inn að hann hefði fermt dóttur sina
í fyrra. Eru fermingar þá að verða
einhvers konar heimilisiðnaður? Ég
hef nefnilega haldið að prestastéttin
hafi séð um að ferma blessuð börn-
in fram undir þetta en ekki foreldr-
arnir. Þeir halda aftur á móti ferm-
ingarveislur.
Fermingin fer fram í kirkjunni
Framkvæmd af prestinum, en veisl-
an í kjölfarið á vegum foreldranna.
Skítmenni og
smásál
Ingvi Eggertsson skrifaði meðal annars:
Ég get ekki annað en sagt frá því
hvers konar skítmenni og smásál ég
er. Ég sé nefnilega eftir nokkur
hundruð milljónum sem fara í hátíð
á Þingvöllum á sama tíma og skorið
er niður hjá sjúkrahúsunum. En ég
kann ekki að skammast mín og sé
eftir fleiru, til dæmis lúxusferðum
ríkisstarfsmanna með risnureikn-
inga. Þetta angrar líka mína litlu
aurasál.
En auðvitað verður fólk í ábyrgð-
arstöðum að geta fengið að leika sér
á kostnað almennings, slíkt er hollt
og gott. Sjálfur er ég félagslega heft-
ur og tregur til kauphækkana
handa okkar góðu þingmönnum.
Það er eins gott að mér var ekki
falið að stjóma landinu.
Ríkisstjórnin á aðeins einn leik í
stöðunni, það er að senda mig,
svona plebba eins og ég sannarlega
er, til fjarlægra staða með farseðil
upp á vasann - aðra leiðina. Þá mun
ég ekki spilla hinni hreinu og rétt-
trúuðu íslensku þjóð með göllum
mínum og illu innræti.
ÍDV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reylgavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.