Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Qupperneq 26
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
I>V
^ 30_______
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90ára____________________________
Guðrún Zakaríasdóttir,
■a Digranesvegi 44, Kópavogi.
' 85 ára___________________________
Kolbeinn Bjarnason,
Stóru-Mástungu la, Selfossi.
80 ára__________________________
Jónína Sigtryggsdóttir,
Seljavegi 3a, Reykjavík.
75 ára__________________________
Guörún Siguröardóttir,
Vesturvangi 10, Hafnarfiröi.
Kristín Önundardóttir,
Hamraborg 24, Kópavogi.
Svanbjörg Jósefsson,
Rétturirna 13, Reykjavík.
Sveinn Ólafsson,
Skeggjagötu 19, Reykjavík.
70_ára_,________________________
Árni Þórir Árnason,
Akraseli 13, Reykjavík.
Bragi Einarsson,
Óöinsgötu 20b, Reykjavík.
Jóhanna Pálsdóttir,
Miögarði 14, Keflavík.
Ragnheiöur Stefánsdóttir,
Hjallabrekku 20, Kópavogi.
60 ára__________________________
Ámi Kristinn Þorgilsson,
Aöalgötu 10, Blönduósi.
Ásta Einarsdóttir,
Mímisvegi 16, Dalvik.
Bjargey Júlíusdóttir,
Eyjabakka 4, Reykjavík.
Eiríkur Gunnþórsson,
"'P Hafbliki, Borgarfiröi eystri.
Sigurjón Gíslason,
Ekkjufelli, Egilsstööum.
Sævar Þórjónsson,
Ennishlíð 2, Ólafsvík.
50 ára__________________________
Auöur Jónsdóttir,
Sunnubraut 12, Dalvík.
Eygló Óskarsdóttir,
Granaskjóli 90, Reykjavík.
Guöjón Smári Valgeirsson,
Kleppsvegi 134, Reykjavík.
Kristján Arnason,
Heiðarlundi 6h, Akureyri.
40 ára__________________________
Eyrún Jónsdóttir,
Reyrengi 45, Reykjavík.
Guöbrandur Sverrir Gíslason,
Háaleitisbraut 52, Reykjavík.
Guöjón Guömundsson,
Smáratúni 30, Keflavík.
Guöný Sigurgeirsdóttir,
Skúlagötu 58, Reykjavík.
Kristján Þ Björgvinsson,
Miðgaröi 7a, Egilsstööum.
Margrét Kjartansdóttir,
Hálsaseli 33, Reykjavík.
Milan Stefán Jankovic,
Heiðarhrauni 32a, Grindavík.
Nanna Áslaug Jónsdóttir,
Efri-Rauösdal, Patreksfiröi.
Róbert M Vilhjálmsson,
Ránargötu 10, Reykjavík.
Rósa Arnheiöur Reynisdóttir,
Austurgötu 21, Keflavík.
Sigurgeir Baldursson,
Ullartanga 5, Egilsstööum.
Svana Guðmundsdóttir,
Reykjavegi 63, Mosfellsbæ.
Svavar Magnússon,
Klapparstíg 14, Dalvík.
Þorgeir Ingi Njálsson,
Klettahrauni 4, Hafnarfiröi.
---------7---------------------
jjrval
-Gottíflugið
msmssmm
Guðmundur Magnússon
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
Þjóðmenningarhúsið var vígt við
hátíðlega athöfn fimmtudaginn 20.
april siðastliðinn eftir gagngera
endumýjun. Húsið mun hýsa ýmiss
konar menningarstarfsemi í fram-
tíðinni. Forstöðumaður þess er Guð-
mundur Magnússon
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík.
17.4 1956. Hann lauk stúdentsprófi
frá MH1976, BA-prófi í sagnfræði og
heimspeki við HÍ 1980 og M.Sc.-prófi
í rökfræði og vísindalegri
aðferðafræði við London School of
Economics 1982.
Guðmundur var ritstjóri Stúd-
entablaðs HÍ 1977-78, blaðamaður á
Dagblaðinu sumrin 1978-80, á
Sunnudagsblaði Tímans 1982-83, við
Morgunblaðið 1983-87, stundakenn-
ari við HÍ 1984-85, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra 1987-88, deild-
arstjóri á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík 1988-91, settur
þjóðminjavöröur 1992-94, frétta-
stjóri á DV 1994-95, skipaður skjala-
vörður í Þjóðskjalasafni íslands í
júní 1996 og gegndi samtímis starfi
forstöðumanns Safnahússins við
Hverfisgötu, nú Þjóðmenningar-
hússins, skipaður forstöðumaður
Þjóðmenningarhússins 14. febrúar
sl. Samhliða störfum hefur Guð-
mundur unnið að fræðistörfum á
sviði sagnfræði, ritað greinar um
menningarsöguleg efni og flutt fyr-
irlestra innanlands og utan. Hann
er m.a. höfundur ritanna Leiðtoga-
fundurinn í Reykjavík (1986) og
Eimskip frá upphafi til nútíma
(1998), og var ritstjóri tímaritsins
Frelsið 1986-90.
Guðmundur hefur setið í fjöl-
mörgum opinberum nefndum, svo
sem húsafriðunarnefnd ríkisins,
fornleifanefnd og skipulagsnefnd
kirkjugarða og gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir Sjáifstæðisflokk-
inn.
Fjölskylda
Kona Guðmundar er Vaka Hrund
Hjaltalín, f. 7.9. 1956, húsmóðir. For-
eldrar Vöku eru Rafn Hjaltalín, bæj-
argjaldkeri á Akureyri, og k.h., Sig-
rún Ágústsdóttir húsmóðir.
Börn Guðmundar og Vöku eru
Salóme, f. 21.10. 1983, verslunar-
skólanemi; Sigrún, f. 2.10.1987; Unn-
ur, f. 25.6. 1990, og Katrín, f. 11.6.
1993. Sonur Vöku er Ingvar Rafn, f.
15. 2.1979, nemi.
Systkin Guðmundar eru Þor-
steinn, f. 8.12. 1952, deildarstjóri á
Alþingi; Salóme Guðrún, f. 30.9.
1954, búsett í Bandaríkjunum;
Gunnar, f. 5.11.1965, nemi.
Foreldrar Guðmundar eru Magn-
ús Þorsteinsson, f. 10.3. 1926, bama-
læknir í Reykjavík, og k.h., Guðrún
Salóme Guðmundsdóttir, f. 18.7.
1929, húsmóðir.
Ætt
Magnús er sonur Þorsteins, skrif-
stofustjóra i Reykjavik, bróður,
samfeðra, Jóhanns skálds. Þor-
steinn var sonur Jóns, sjómanns í
Ólafsvík, bróður Guðríðar, ömmu
Ingólfs Kristjánssonar rithöfundar
og langömmu Danfríðar Skarphéð-
insdóttur, fyrrv. alþk. Jón var sonur
Þorsteins, b. í Garðakoti, Jónsson-
ar. Móðir Þorsteins var Guðríður
Steindórsdóttir, prests í Hvammi,
Jónssonar og Hólmfríðar Þorláks-
dóttur, systur Jóns, skálds á Bæg-
isá.
Móðir Magnúsar læknis var
Katrín Jóhannsdóttir, b. i Lækjar-
botnum, bróður Sæmundar, afa
Guðrúnar hæstaréttardómara og
Sigríðar sagnfræðings Erlends-
dætra. Annar bróðir Jóhanns var
Guðbrandur, afi Hauks Morthens og
Kristins, föður Bubba Morthens. Jó-
hann var sonur Sæmundar, b. í
Lækjarbotnum, Guðbrandssonar,
ættfoður Lækjarbotnaættar, bróður
Sigurðar, langafa Guðmundar Daní-
elssonar rithöfundar. Guðrún er
dóttir Guðmundar, prentara í ísa-
fold, Guðmundssonar, stofnanda
HÍP og Gutenbergs, Þorsteinssonar.
Móðir Guðmundar i ísafold var Sig-
ríður, systir Hallgríms, prent-
smiðjustjóra í Gutenberg. Bróðir
Sigríðar, samfeðra, var Gunnar, fað-
ir Birgis ísleifs seðlabankastjóra.
Sigríður var dóttir Benedikts, gull-
smiðs í Laxnesi, Ásgrímssonar.
Móðir Benedikts var Sigríður, syst-
ir Jóhanns, föður Ólafiu rithöfund-
ar. Sigríður var dóttir Benedikts,
prests á Mosfelli, bróður Þórdísar,
langömmu Áma, afa Áma Johnsens
alþm. Móðir Sigríðar var Margrét
Gestsdóttir, b. í Útskálahamri, bróð-
ur Áma, afa Áma, afa Styrmis
Gunnarssonar ritstjóra. Gestur var
sonur Magnúsar í Útskálahamri, af
ætt Hallgríms Péturssonar skálds.
Móðir Margrétar var Ingigerður
Guðmundsdóttir af Fremra-Hálsætt.
Móðir Guðrúnar var Salóme,
hálfsystir Sólrúnar, barnsmóður
Þórbergs Þórðarsonar. Salóme var
dóttir Jóns, málarameistara í
Reykjavík, Brynjólfssonar, og Guð-
bjargar, systur Guðmundar refa-
skyttu. Guðbjörg var dóttir Einars,
á Heggstöðum, Guðmundssonar.
Móðir Einars var Helga Horna-
Salómonsdóttir, systir Sigurðar, afa
Helga Hjörvars útvarpsmanns.
Móðir Guðbjargar var Steinþóra
Einarsdóttir, í Tjamarhúsum,
Kortssonar, bróður Sólveigar,
ömmu Péturs, afa Bjama Benedikts-
sonar forsætisráðherra, föður
Bjöms menntamálaráðherra.
Fertug____________________________■
Anton Benedikt Kröyer
verslunarmaöur
Anton Benedikt Kröyer verslun-
armaður, Arahólum 2, Reykjavík,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Anton fæddist i Reykjavík. Hann
lauk kennaraprófi frá Kennara-
skóla Islands 1972 og síðan stúd-
entsprófi frá sama skóla. Anton
hefur kennt við Álftamýrarskóla,
Héraðsskólann í Reykjanesi, Breið-
holtsskóla og Fossvogsskóla en þó
lengst af við Vogaskólann í Reykja-
vík. Hann stundaði verslunarstörf
á árunum 1976_82 og rekur nú
hljóðfæraverslunina Gítarinn hf. á
Laugavegi. Þá hefur Anton Bene-
dikt spilað með danshljómsveitum
um árabil.
Fjölskylda
Börn Antons Benedikts eru Ás-
geir Kröyer, f. 17.1. 1972, Heiðdís
Helga Antonsdóttir, f. 14.4. 1980, og
óskírður sonur, fæddur 24.3. 2000.
Foreldrar Antons Benedikts: Ás-
geir Kröyer, f. 24.2. 1914, fyrrv.
póstfulltrúi, og Helga Þorgeirsdótt-
ir Kröyer, f. 21.5. 1917, d. 31.7. 1985.
Ásgeir var sonur Benedikts
Kröyers, b. og smiðs á Stórabakka
á Fljótsdalshéraði, Kristjánssonar
Kröyers, b. á Hvanná, Jóhannsson-
ar.
Móðir Benedikts var Elín Mar-
grét Þorgrímsdóttir, prests í Þing-
múla og í Hofteigi, Amórssonar,
prests á Bergsstöðirm, Ámasonar,
biskups á Hólum, Þórarinssonar,
prófasts í Hjarðarholti í Dölum,
Jónssonar.
Ætt
Móðir Áma biskups var Ástríð-
ur Magnúsdóttir, prófasts í
Hvammi í Hvammssveit, bróður
Áma, prófessors og handritasafn-
ara. Magnús var sonur Magnúsar,
sýslumanns í Dalasýslu, Jónssonar
og Guðrúnar Ketilsdóttur. Móðir
Ástríðar var Sigríður, systir Páls
Vídalíns lögmanns. Móðir Amórs
á Bergsstöðum var Steinunn Am-
órsdóttir sýslumanns Jónssonar,
en hún og Ámi biskup, maður
hennar, voru systkinabörn. Móðir
Þorgríms var Margrét Bjömsdótt-
ir, prests í Bólstaðarhlíð, Jónsson-
ar, ættfoður Bólstaðarhliðarættar-
innar, langafa Þorvalds, afa Vigdís-
ar Finnbogadóttur forseta. Móðir
Elinar Margrétar var Guðrún Pét-
ursdóttur, systir Guðrúnar yngri,
langömmu
Bjama
Benedikts-
sonar for-
sætisráð-
herra.
Önnur
systir Guðrúnar var Guðfmna,
amma Bjarna Jónssonar vigslu-
biskups.
Móðir Ásgeirs Kröyers var Ant-
onína, dóttir Jóns, b. á Svínabökk-
um í Vopnafirði, Jónssonar. Móðir
Jóns var Vilborg Pálsdóttir, b. í
Vatnsdalsgerði í Vopnafirði,
Bjömssonar. Móðir Páls var Guð-
rún Sigurðardóttir „tuggu“, b. á
Fossi, Sveinssonar, langafa
Metúsalems, langafa Ragnars Hall-
dórssonar, stjórnarformanns ísals.
Jarðarfarir
Sálumessa Nínu Bjarkar Árnadóttur
skálds fer fram í Landakotskirkju á
morgun, fimmtudaginn 27.4., kl. 13.30.
Kristín Þorsteinsdóttir Viöarrima 44,
Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigs-
kirkju föstudaginn 28.4. kl. 13.30.
Steinunn Hall, Vesturgötu 52, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
á morgun, fimmtudaginn 27.4., kl.
— 15.00.
* Útför Guörúnar Pétursdóttur, Nausta
hlein 30, Garðabæ, fer fram frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 28.4. kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Krabbameinsfélagið.
Jarðarför Þóröar Jónssonar, Sölvholti,
Hraungeröishreppi, Flóa, fer fram frá
Selfosskirkju föstudaginn 28.4. kl.
13.30. Jarðsett veröur í Laugardæla-
& kirkjugarði.
Merkir Islendingar
T heódór Friðriksson, rithöfundur,
verkamaður og þingvörðiu-, var
fæddur 27. apríl 1876 í Nýjabæ i
Flatey á Skjáífanda í S-Þingeyjar-
sýslu. Hann ólst upp á Flateyjar-
dal og í Flatey og Fjörðum. All-
ar þessar byggðir eru nú
komnar í eyði. Foreldrar hans
vom Friðrik Jónsson og Sess-
elja Elíasdóttir. Theódór bjó og
starfaði víða norðanlands við
landbúnað, sjómennsku og
verkamannavinnu. Einnig var
hann margar vertíðir í verstöðv-
um nyrðra, í Bolungarvík, á Suður-
nesjum og í Vestmannaeyjum. Árið
1932 fluttist hann til Reykjavíkur. í höf-
Theódór Friðriksson
uðstaðnum vann hann ýmis störf var
m.a. pallavörður á Alþingi og naut
hann einnig nokkurs ritstyrks frá
þinginu. Á þessum árum skrifaði
hann sitt kunnasta verk,
sjálfsævisöguna í Verum, sem
kom fyrst út 1941. Theódór var
annálaður sögumaður, og fróð-
leg, gamansöm og opinská frá-
sögn em aðalsmerki hans sem
rithöfundar. Theódór var
kvæntur Sigurlaugu Jónasdótt-
ur og áttu þau nokkur böm. Þau
skildu. Theódór lést árið 1948.
Andlát
Njáll Ingjaldsson, Hagamel 33, Reykja-
vík, lést á Landspítalanum miðvikudag-
inn 19.4. Útförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 3.5. kl. 13.30
Sverrir Björnsson frá Viðvík, til heimilis
á Sauðárkróki, lést á Sjúkrahúsi Skag-
firðinga sunnudaginn 23.4. Útför hans
verður gerö frá Sauðárkrókskirkju föstu-
daginn 28.4. kl. 11.00.
Kristin Ásthiidur Lúthersdóttir, Bæjar-
túni 6, Kópavogi, andaðist á St. Jósefs-
spítala, Hafnarfirði, föstudaginn 21.4.
sl.
Þórólfur Alvin Gunnarsson, Höfðabraut
19, Hvammstanga, lést á heimili sínu
fimmtudaginn 20.4. Jaröarförin nánar
auglýst síðar.
Theodóra M. Stella Grímsdóttir, Stór-
holti 32, Reykjavík, andaöist á Landa-
kotsspítala mánudaginn 24.4. sl.