Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Síða 27
31
FIMMTTJDAGUR 27. APRÍL 2000
I>V Tilvera
Afmælisbarniö
Sheena Easton
61 árs
Skoska söngkona
Sheena Easton er
komin af sextugs-
aldri en hún fagnar
61. aönælisdegi sin-
um í dag. Sheena
hefur leikið i fjórtán kvikmyndum
og vakið töluverða athygli fyrir leik
sinn. Auk þess hefur hún sungið
inn á fjölda hljómplatna, svo sem
No Strings og My Cherie. Sheena
hefur þrisvar gengið í hjónaband en
þau hafa öll endað með skilnaði.
Hún á hins vegar tvö börn sem hún
ættleiddi fyrir mörgum árum.
Gildir fyrir föstudaginn 28. apríl
Vatnsberinn 120. ian.-18. febr.l:
I Þú þarft að vera
snöggur í dag, sérstak-
lega í viðskiptum og í
sambandi við fjármál.
Fjölskyldan nær vel saman í
kvöld.
Flskarniril9 febr.-20. marsi:
Gerðir þinar gætu haft
H för með sér misskiln-
ing sem erfltt er að
greiða úr. Gættu þess
að vera ekki of þrjóskur í sam-
skiptum við fólk.
Hrúturinn (21. mars-19. aprfl):
. Það ríkir einhver
' óvissa í dag og hegðun
ákveðins einstaklings
hefur í för með sér
vandræðT. Úr því leysist þó skjótt.
Nautið (20. april-20. maíl:
Aðrir hafa mikil áhrif
á það sem þú gerir en
þú verður að reyna að
vera sjálfstæður.
Kvoídið verður að einhveiju leyti
óvenjulegt.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi:
Það hefur góð áhrif á
'þig að vera mikið á
ferðinni og þér líður
best í dag ef þú hefur
nóg fýrir stafni. Happatölur þinar
eru 10, 12 og 28.
Krabbinn (22. iúní-22. íúitv.
Þú mætir harðri gagn-
| rýni fyrir eitthvað sem
' þú gerir en það hefúr
þegar upp er staðið
góð áhrif á þig. Kvöldið ætti að
vera rólegt.
Liónið (23. íúií- 22. agasai
. Fólk er hjálpsamt fyrri
hluta dagsins. í kvöld
verður fjölskyldan þér
ofarlega í huga. Farðu
varlega í fjármálum.
Mevian (23. áeúst-22. sentó:
Atburðir dagsins gera
þig liklega bjartsýnan
^^^lfcen þú veröur að gæta
^ f hófs, sérstaklega í pen-
ingamálum. Ekki vera kærulaus.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Einhver vandamál koma
upp en þegar þú kynnir
þér ástandið sérðu að þú
þarft ekki að hafa áhyggj-
ur.'Ef þér flnnst þú þarfnast aðstoðar
skaltu ekki hika við að biðja um hana.
Snorðdreki (24. okt.-2l. nðv.):
JÞÚ þarft að einbeita
þér að einkamálunum
jog rækta samband þitt
við manneskju sem þú
ert að fjaríægjast. Rómantikin
kemur við sögu í dag.
Bogamaður (22. nóv.-2i. des.):
|Eitthvað sem þú vinn-
rur að um þessar mund-
ir gæti valdið þér hug-
arangri. Taktu þér
góðan tíma til að íhuga hvað gera
skal. Þú færð góðar fréttir.
Stelngeitln (22. des.-l9. ian.):
Ekki taka mark á fólki
sem er neikvætt og
svartsýnt. Dagurinn
verður skemmtilegri
en þú býst við, sérstaklega seinni
hluti hans.
S Pamela Anderson:
I stríð vegna kyn-
lífsmyndbands
Nú hafa Pamela Anderson og
gamli kærastinn hennar, Bret
Michaels, grafið stríðsöxina og
tekið höndum saman. Þau ætla
nefnilega að stöðva sölu á mynd-
bandi þar sem þau sjást elskast.
„Myndin var aldrei ætluð öðr-
um en okkur sjálfum,“ segir
Michaels. Bæði hann og silíkon-
gellan fyrrverandi eru æf vegna
yfirvofandi sölu á myndbandinu.
Þau hafa fengið til liðs við sig tvo
þekktustu lögmenn Bandaríkjanna
í höfundarrétti, Ed Massry og Ed
McPherson, gegn IEG, Intemet
Entertainment Group. Fyrirtækið
hefur komist yfir myndbandið
með ástarsenum Pamelu og Brets
Michaels og hyggst það gefa út
upptökur af því út um allan heim.
Vegna þessa máls hafa Pamela
og Bret ákveðið að gleyma öllum
gömlum leiðindum til að geta ein-
beitt sér að sameiginlegri baráttu
Pameia brýnlr klærnar
Silíkongellan fyrrverandi vill ekki
sjá myndband meö ástarleikjum
sínum og Brets Michaels I hillum
verslana.
gegn sölu myndbandsins.
Pamela og Bret Michaels voru
saman áður en hún hitti trommu-
leikarann Tommy Lee. Pamela og
Tommy tóku reyndar einnig upp
sína ástarleiki á myndband á með-
an allt lék í lyndi. Þrátt fyrir mikl-
ar og margar tilraunir tókst
Strandvarðapíunni fyrrverandi
ekki að stöðva sölu þess mynd-
bands á Netinu.
íþetta sinn vonast hún til að
málalokin verði önnur. „Við von-
um hið besta. Við viljum ekki sjá
myndbandið í hillum verslana,"
segir Bret Michaels sem Pamela
sparkaði þegar hún hitti Tommy.
Nú hefur Tommy fengið að sigla
sinn sjó því Pamela er nú með
seglbrettaheimsmeistaranum
Kelly Slater. Bret Michaels býr
með Kristi Gibson og eiga þau von
á sínu fyrsta barni saman.
Cecilia Ahern, dóttir Berties Aherns, forsætisráöherra írlands, er í
hljómsveitinni Shimma sem tekur þátt í Evröpusöngvakeppninni í Svíþjóö 13.
maí næstkomandi. Ýmsir spá írunum sigri í keppninni.
Varð ófrísk með
afrískri aðferð
Ofurfyrirsætan Iman, eiginkona
Davids Bowies, kveðst hafa beitt
gamalli afrískri aðferð til þess að
verða bamshafandi. Iman og Dav-
id Bowie eiga bæði böm um
tvítugt með fyrrverandi mökum.
Sjálf reyndu þau meira en ár að
búa til barn en án árangurs.
„Þegar konum í Afríku gengur
illa að verða bamshafandi er þeim
ráðlagt að taka barn annarra
kvenna í fangið,“ sagði Iman ný-
lega i sjónvarpsviðtali. Hún kvaðst
hafa fengið að halda á barni fyrir-
sætimnar Christie Brinkley í fang-
inu.
„Við Christie vorum i mynda-
tökum hjá Vogue í september í
fyrra og hún lét mig halda á bam-
inu sinu allan daginn," sagði Iman
meðal annars. Nokkrum dögum
síðar varð Iman bamshafandi.
Algjör
„sucker“
Monica Lewinsky á ekki upp á
pallborðið hjá Kananum frekar en
annars staðar. Hefur þessi fyrrum
starfsmaður Hvita hússins reynt
allt til að auka vinsældir sínar -
m.a. gefið út endurminningar sínar
og selt handtöskur með nafninu
sínu en ekkert gengið upp.
Um daginn sást til hennar á kvik-
myndahátíð í New York þar sem
sýndar voru gamlar evrópskar
myndir. Þegar Monica kom inn í
salinn fóru menn að flissa, pískra
og benda eins og þeirra er vísa en
það var ekki fyrr en myndin byrjaði
að gamanið hófst. Svo skemmtilega
vildi nefnilega til að fyrsta setning-
in í myndinni, sem var frönsk og
textuð, var „I'm such a sucker".
Ætlaði salurinn að rifna úr hlátri á
kostnað grey Monicu.
Af rúntinum
í dómsalinn
Gwyneth Paltrow hefur verið
stefnt fyrir rétt eftir bílslys þar
sem hún kom við sögu í apríl í
fyrra. Að sögn Jorge Arauz og Ver-
onicu Cabello keyrði.leikkonan á
ofsahraða á kyrrstæðan bíl við
götu í Hollywood sem þau voru
farþegar í. Samkvæmt ákærunni
sem er gefin út á hendur leikkon-
unni olli áreksturinn varanlegum
og alvarlegum meiðslum þeirra
sem í kyrrstæða bílnum voru.
Sjálf var Gwyneth á bílaleigubíl
þegar atvikið átti sér stað.
Arauz og Cabello fara fram á
bætur fyrir líkamlegar og andleg-
ar þjáningar sem þau hafa gengið
í gegnum í kjölfar slyssins auk
þess sem hún greiði fyrir tjónið á
bílnum - 4000 dollara og læknis-
kostnað - 8000 dollara. Eigandi
bílasölunnar sem átti bílinn sem
leikkonan var á fer einnig fram á
sitt. Gwyneth hefur sjálf ekkert
tjáð sig um málið.
Gwyneth Paltrow
Dýr rúntur hjá leikkonunni.
Aðdáendurnir
höfðu of hátt
Britney Spears varð að láta taka
upp tónleika í klúbbnum Sound í
London fimm sinnum þar sem aðdá-
endur hennar höfðu of hátt. Lætin í
áheyrendum voru svo mikil að fjór-
ar fyrstu upptökurnar voru ónot-
hæfar. Samkvæmt frásögn breskra
slúðurblaða var það reyndar ekki
bara hávaði sem eyðilagði upptök-
urnar. Upptökumar þóttu eiginlega
fyrst og fremst ónothæfar vegna
þeirra orða sem áheyrendur létu
falla.
Carey ekki hrif-
in af Aguilera
Mariah Carey er ekki yfir sig
hrifin af Christinu Aguilera. Nýlega
fékk hún skipuleggjendur hátíðar-
tónleikanna til heiðurs Diönu Ross
til að reka Aguilera. Christina
Aguilera var rekin eftir að Carey
hafði hótað að hætta við þátttöku í
sýningunni. Samkvæmt frásögn
bandaríska tímaritsins US
Magazine er Mariah Carey hrædd
um að velgengni söngkonunnar
Christinu Aguilera hafi slæm áhrif
á hennar eigin söngferil.
Keyptu hús á
hálfan milljarð
Söngkonan Celine Dion og
eiginmaður hennar, Rene Angelil,
hafa keypt sér lúxusvillu í Quebec
fyrir um hálfan milljarð íslenskra
króna. Fyrir þessa upphæð hafa
hjónakornirn fengið hús með
i íjórum svefnherbergjum, sundlaug,
gufubaði, tónlistarherbergi, þremur
örnum og fimm herbergja
gestaíbúö. Celine hefur að
undanförnu verið að jafna sig á frétt
tímaritsins Enquirer sem hélt þvi
fram að hún ætti von á tvíburum.
i Dion hefur lengi reynt að eignast
; barn með eiginmanni sínum en án
j árangurs. Hún hefur nú tekið sér
: langt frí frá tónleikahaldi til þess að
geta sinn manni sínum og húsi.