Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Síða 28
32
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
DV
Smáauglýsingar
.visir.is
Nýr og betri
smáauglýsinga-
vefur á vísir.is
W j
e „Smáaugl DV*'
@ÞÚ velur þann
smáauglýsinga-
flokk sem þú
vilt skoða...
MailiSS^SBS&aBffsessstsmKr
H $0
9 ...eða slærð inn leitarorð.
Q ...eða pantað
birtingu
eigin auglýsingu
Bílar, bátar, hjólhýsi,
sumarbústaðir, fyrir
veiðimenn, fyrirtæki,
útgerðarvörur, tónlist,
teppi, bólstrun, antik,
málverk, jeppar,
lyftarar, dýrahald,
sjónvörp, Ijósmyndun,
garðyrkja, ræstingar,
hreingerningar,
þjónusta, bókhald,
fjármál, fasteignir,
byssur, viðgerðir, vélar
- verkfæri, gisting,
sveit, sport, heilsa,
spákonur, líkamsrækt,
tölvur, dulspeki -
heilun, hljómtæki,
teppi, parket, húsgögn,
mótorhjól, fjórhjól,
vetrarvörur, flug,
kerrur, einkamál,
a^Xðíí^dir fundir» gefins, þjónusta,
skemmtanir, tapað -
fundið, matsölustaðir,
einn hnapp. fatnaður, bækur, hár og
snyrting, fornbílar,
óskast keypt, heildsala,
verslun, húsnæði
til vina þiniia... óskast, barnavörur,
útgerðarvörur, nudd,
aukahlutir á bíla...
þarsemþaðávið
og getur svarað með
því að smella á
O Þú getur líka
sent smáauglýsingu
A ...sem birtist
w líka í DV.
Sími 550 5000
Tilvera
McCourt-fjölskyldan kemur til Limerick
Myndin lýsir átakaniegri sögu hennar á fjóröa og fimmta áratugnum og þeim
erfiöleikum sem hún þurfti aö kljást viö.
Verðlaunabókin Angela’s Ashes í mynd:
Harmþrungin
fjölskyldusaga
Háskólabíó sýnir um þessar
mundir myndina Angela’s Ashes í
leikstjórn hins kunna leikstjóra Al-
ans Parkers. Myndin er byggð á
samnefndri bók rithöfundarins
Franks McCourts sem hlaut Pulitz-
er verðlaunin árið 1997. í bókinni
fjallar McCourt um bemsku sína en
hann fæddist í Brooklyn hverfinu í
New York árið 1935 inn í fjölskyldu
af írskum uppruna. Þegar McCourt
var barn að aldri fluttist fjölskyldan
til Limerick á írlandi og fjaliar
myndin öðrum þræði um þau vand-
mál sem fylgdu þeim flutningum.
Fjölskyldan fær heldur kaldar mót-
tökur í hinu nýja samfélagi og
margt er öðruvísi en vestanhafs.
Ekki síst reynist yngstu kynslóð-
inni erfitt að festa rætur í írskum
jarðvegi. Hvers kyns vandamál
koma upp, svo sem trúarbragðaá-
rekstrar, aðlögunarerfiðleikar, veik-
indi og bamadauði. Ofan á allt sam-
an bætist síðan örbirgð, atvinnu-
leysi og drykkjuskapur heimilisfoð-
urins.
Með helstu hlutverk fara Emily
Watson, sem leikur Angelu
McCourt, og Robert Carlyle sem
leikur eiginmann hennar. Frank er
sjálfur leikinn af þremur mismun-
andi leikurum. Fjöldi annarra leik-
ara kemur fram í myndinni enda
spannar hún um tvo áratugi í lífi
fjölskyldunnar.
Leikstjórinn Alan Parker á að
baki glæstan feril i faginu og hefur
meðcd annars leikstýrt stórmyndun-
um Bugsy Malone, Birdy og Miss-
issippi Buming. Hann hefur hlotið
fjölda viðurkenninga fyrir verk sín,
nú seinast fékk hann sérstök verð-
laun fyrir ævistarfið hjá samtökum
breskra leikstjóra.
Á næstunni er von á íslenskri út-
gáfu bókar McCourts hjá bókafor-
laginu Bjarti í þýðingu Árna Ósk-
Ben Affleck og Charlize Theron
Þau leika ungt par sem vill hefja nýtt iíf en ýmis Ijón eru í veginum.
Reindeer Games:
Fangi reynir
að snúa við
blaðinu
Nýjasta mynd leikstjórans Johns
Frankenheimers, Reindeer Games,
verður frumsýnd í Kringlubíói á
fóstudaginn. Myndin er spennu-
mynd á gamansömu nótunum og
fjallar um Rudy Duncan sem er ný-
kominn út úr fangelsi og staðráðinn
í að hefja nýtt og betra líf með
draumastúlkunni Ashley. Ekki fer
þó ailt eins og til var ætlast því að í
veginum stendur bróöir stúlkunnar,
vörubilstjórinn Gabriel, og
harðsvíraðir vinir hans. Þeir telja
að Rudy lumi á upplýsingum um
spílavíti sem þeir hafa i hyggju að
yfirtaka. Áður en hann veit af er
Rudy því flæktur í hraða atburðarás
sem hugsanlega gæti riðið honum
að fullu.
Með hlutverk Rudys fer Ben Af-
fleck en unnustu hans Ashley leikur
Charlize Theron. Hlutverk hins
brjálaða bróður hennar, Gabriels, er
í höndum Gary Sinise.
Handritshöfundur er Ehrin Kru-
ger sem hefur á tiltölulega stuttum
tíma skipað sér sess sem einn eftir-
sóknarverðasti handritshöfundur í
Hollywood. Um leikstjóm sér sem
fyrr sagði John Frankenheimer en
hann er einkum þekktur fyrir
spennumyndir sem einkennast af
mikilli sálfræðilegri dýpt og fjaila
oftar en ekki um heimspekileg og fé-
lagsleg málefni á spennandi hátt.
-EÖJ