Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Side 29
33
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
I>V Tilvera
Erin Brockovich í bíó:
Sviösljós
I
Sönn saga
k j arnakonu
Á morgun
verður frum-
sýnd myndin
Erin
Brockovich í
Laugarásbíói,
Stjörnubiói
og Borgar-
biói á Akur-
eyri. Myndin
er byggð á
sannri sögu
kjarna-
kvendisins
Erin
Brockovich
sem af ástríðu
og staðfestu barð-
ist gegn kerfinu og
hafði að lokum
sigur. Erin
Brockovich er ein-
stæð, atvinnulaus
móðir sem komin
er í klípu. Hún
fær vinnu á lög-
fræðistofu til að
leysa úr fjár-
hagskröggum sin-
um eftir bílslys. í
vinnunni rekst
Erin fyrir tilviljun
á læknaskýrslur
sem geymdar
höfðu veriö inni í
fasteignaskjöl-
um. Þetta vekur
forvitni hennar
og að lokum
fær hún lög-
fræðinginn
sinn, Ed
Masry, til að
leyfa sér að
rannsaka
málið. Upp úr
dúrnum kem-
ur að reynt
hefur verið
að hylma
yfir mengun f
neysluvatns
í nálægu
byggðarlagi
sem hefur
valdið
hræðileg-
um sjúk-
dómum á
meðal íbúa
þess. Með
dyggum stuðn-
ingi nágranna
síns, George, vek-
ur Erin athygli
íbúanna á ástand-
inu og fær þá
smám saman í lið
með sér. Haíln er
fjársöfnun og mál
höfðað í kjölfarið
gegn mengunar-
völdunum sem end-
ar með sigri Erin
og bæjarbúa. Með
því að berjast gegn
ofurefli tekst henni
að sanna sjálfa sig
og hefja nýtt líf.
Leikstjóri
myndarinnar er
Steven Soder-
bergh sem
hefur
einnig
leikstýrt
myndum á borð við Out of
Sight og The Limey. Með
hlutverk Erin
Brockovich fer leikkon-
önnur
hlutverk
fara meðal
annars Albert
Finney (The
Dresser)
sem leikur
lögfræð-
inginn Ed
Masry og
Aaron
Eckhart
(In the
Brjóstamikil
Brockovich
Aö sögn tók
heila klukku-
stund aö líma
upp barm Juliu
Roberts fyrir
myndina.
Lögfræöingurinn og hjálparhellan Aaron Eckhart og Julia Roberts í
hlutverkum sínum í myndinni um hörkukvendiö Erin Brockovich.
The Limey frumsýnd:
Company
of Men)
sem fer
með hlut-
verk
George,
mótorhjóla-
töffara og
nágranna
Erin.
Framleið-
endur myndar-
innár eru
Danny DeVito,
Stacy Cher og
Michael Sham-
berg. Hugmynd-
in að kvikmynd-
kviknaði
þegar Carla
Santos Sham-
berg, kona
Michaels, var
stödd hjá lækni
sínum. Læknir-
inn, sem enn-
fremur var
læknir Erin
Brockovich,
sagði Sham-
berg söguna af
baráttu
Brockovich
fyrir réttlæti
og hreifst hún
svo af henni að
hún nefndi það
við eiginmann
sinn að hér
væri komið efni
í kvikmynd. Sú
mynd er nú orðin
að veruleika.
-EÖJ
Faðir leitar
hefnda
lllskeyttur Englendingur
Wilson heldur til Los Angeles til aö hefna dóttur sinnar
Bíóborgin
frumsýnir á
morgun mynd-
ina The Limey.
Myndin fjallar
um Wilson,
enskan harð-
jaxl, sem heldur
til Los Angeles
til að leita
hefnda vegna
dauða dóttur
sinnar. í leit
sinni að vís-
bendingum um
hvað olli dauða
hennar lendir
hann í útistöð-
um við her ill-
skeyttra glæpa-
manna sem lúta
forystu Terrys
nokkurs Val-
entine. Eftir að hafa komist í hann
krappan, verið næstum barinn til
bana, fleygt fram af háhýsi og hund-
eltur um fjallvegi, ákveður Englend-
ingurinn að snúa vörn í sókn. Áður
en ferðin er á enda hefur nærvera
Limeys ekki farið fram hjá neinum
borgarbúa.
Með hlutverk Englendingsins
Wilsons fer leikarinn Terence
Stamp (The Adventures of Priscilla,
Queen of the Desert). Af öðrum stór-
leikurum sem koma fram í mynd-
inni má nefna Lesley Ann Warren
(Victor/Victoria) og Peter Fonda
(Easy Rider) sem leikur Valentine.
Leikstjóri er Steven Soderbergh,
sá hinn sami og leikstýrir myndinni
um Erin Brockovich sem fjallað er
um hér að ofan. Hann hefur getið
sér gott orð í Hollywood á undan-
fómum árum og á að baki margar
góðar myndir, svo sem Kafka, King
of the Hill, The Underneath og síð-
ast en ekki síst tímamótamyndina
Sex, Lies and Videotape. Fyrir hana
hlaut hann gullpálmann í Cannes
árið 1989. -EÖJ
*!*
Llósmvndastola RevKiavíkur
Hverfisgötu 105-2. hæð
101 Reykjavík,
Sími 562 1166-862 6636
E-mail: arnah.@tv.is
Rnnbogi Marinósson
Ljósmyndari
Meðlimur í Ljósmyndarafélagi íslands
Being John Malkovich
★★★★ Þvílík afbragðsskemmtunl Það er
auðvelt að láta dæluna ganga meö hátt-
stemmdum lýsingarorðum en ég skal
reyna að stilla mig. Og þó. í þessari
súrrelísku kómedíu um sjálfsmyndar-
krísu, refilstígu frægöarinnar og leitina
að eilífðinni rekur hver kostulega uppá-
koman aðra og eins og góðum myndum
sæmir vekur hún miklu fleiri spurning-
ar en hún svarar. -HK
The Insider
★★★★ The Insider er einhver besta kvik-
mynd sem gerð hefur verið um fjölmiðlun
og tekst leikstjóranum, Michael Mann
(The Last of the Mohicans, Heat), að ná
upp góðri spennu i kvikmynd sem hefur
sterkan boðskap og mikið raunsæi. The
Insider er einnig kvikmynd um fjölmiðlun,
baráttu um fréttir og baráttu við eigendur
sem hugsa öðruvísi heldur en fréttamenn.
Mann fær góða hjálp hjá frábærum leikur-
um, Russel Crowe og A1 Pacino. -HK
American Beauty
★★★★ Til allrar hamingju fer American
Beauty vel með þetta margþvælda efni,
gráa fiðringinn, óttann við að eldast og
lífsins allsherjar tilgangsleysi. Styrk og
hljóölát leikstjóm ásamt einbeittum leik-
arahópi lyftir þessari mynd yfir meðal-
mennskuna og gerir hana að eftirminni-
legu verki. -ÁS
Man on the Moon
★★★ Það er kvikmyndinni Man on the
Moon til mikils lofs að hún fylgir hinni
einstrengingslegu sýn grínistans Andy
Kaufmans á tilveruna allt til enda. Jim
Carrey sýnir fantagóðan leik í aðalhlut-
verkinu. Við gleymum því tiltölulega fljótt
að Carrey er ein mesta stjama kvikmynd-
anna um þessar mundir og sogumst inn í
þennan karakter sem um leið er aldrei
ráðinn eða útskýrður með sálfræðilegum
vísunum. -ÁS
Magnolia
★★★ Hér er áherslan lögð á þau skemmd-
arverk sem unnin era í skjóli fjölskyld-
unnar, vanrækslu, misnotkun og skeyting-
arleysi. Það sem heppnast afar vel er sam-
spil þessara þráða sögunnar svo úr verður
fallegur samhljómur og hjartnæm lýsing á
eðli mannlegra samskipta. Samkenndin
með persónunum á rætur sínar í þeirri
vitneskju að við erum öll tengd en það
sem tengir okkur er sú staðreynd að öll
emm við stök. -ÁS
Summer of Sam
★★★ Það er mikill kraftur í Summer of
Sam og sem fyrr er Spike Lee ekkert að
hlífa persónum sínum heldur rifur 1 ær
niður jafnóðum og hann er búinn að upp-
hefja þær. Þrátt fyrir að sumar hveijar
séu ýktar þá era þær trúveröugar, í meira
lagi orðljótar og í samræmi við það um-
hverfi sem þær alast upp í. Lee byggir
mynd sína ekki upp í kringum eina eða
tvær sögur heldur keðjuverkandi atburði
sem stundum virðast eins og tilviljana-
kenndir, en allt stenst þetta nánari skoð-
un. -HK
Fíaskó
★★★ Aðal Fíaskó er hvemig á galsafullan
en um leið vitrænan hátt þijár sögur um
ólík viðhorf til lifsins tengjast. Myndin er
fyndin og um leið mannleg. I sinni fyrstu
kvikmynd í fullri lengd fer Ragnar Braga-
son vel af stað. Það er viss ferskleiki í
kvikmynd hans og enginn byrjendabragur
á leikstjóminni sem er öragg og útsjónar-
söm. Honum tekst að láta smáatriðin vera
mikilvæg fyrir framvindu sögunnar, þá
hefur hann góð tök á leikuram sem upp til
hópa era í sinu besta formi. -HK
Græna milan
★★★ Vel gerð og spennandi kvikmynd
með áhugaverðum söguþræði á mörkum
raunsæis og þess sem enginn kann skýr-
ingu á. Leikstjórinn, Frank Daramont, sem
einnig skrifar handritið, fylgir sögunni vel
eftir og er lítið um breytingar hjá honum.
Þar af leiðandi er myndin mjög löng, nán-
ast engu er sleppt, og hefði aö ósekju mátt
stytta hana aðeins. Hún hefði þá sjálfsagt
orðið skarpari og með sterkari áherslum á
hið góða og illa. -HK
The Winslow Boy
*★★ Á okkar tilfmningalegu Qöllyndistim-
um, þegar lenskan er að spýja öllu úr sálar-
kimunni í slúðurblöðum og sjónvarpsþátt-
um, þegar þjartans mál sæta stöðugri geng-
isfellingu vegna offramboðs, er sérlega Ijúft
að fylgjast með frásögn sem skilur gildi þess
að tjá sig undir rós. Þegar dulmálið er
hnyttið og krefjandi eins og hér verður
ráðning þess eins og Ijúfur forleikur. -ÁS
The Hurricane
★★★ Hinn margreyndi leikstjóri, Norman
Jewison, hefur gert áhrifamikla og góða
kvikmynd þar sem réttlæti og óréttlæti er
f deiglunni. Myndin er byggð á reynslu
hnefaleikakappans Rubins „Hurricane"
Carters sem sat átján ár í fangelsi. Leikur
Denzels Washingtons í hlutverki Carters
er stórbrotinn og vel verðugur tilnefning-
arinnar til óskarsverðlauna. -HK