Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Síða 31
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
35
Tilvera
Sigrún Þorsteinsdóttir hyggur ekki á nýtt
forsetaframboð:
Ekki
skelfilegt
að tapa
„Það er ekki á döfinni hjá mér
að fara aftur í forsetaframboð. Mér
finnst hins vegar full þörf á að
hrista svolítið upp i embættinu og
með nýjum forseta gætum við séð
áherslumar og embættið í heild
sinni breytast,“ segir Sigrún Þor-
steinsdóttir framkvæmdastjóri en
hún bauð sig fram gegn Vigdísi
Finnbogadóttur í forsetakosning-
unum árið 1988.
Aöspurð um hvemig henni finn-
ist Ólafur Ragnar hafa staðið sig í
embætti segist Sigrún á þeirri
skoðun að hann hafi hvorki staðið
sig betur né verr en fyrri forsetar.
„Mér finnst hins vanta verulega á
að forsetinn standi með þjóðinni í
stórum málum. Það virðist oft
gleymast að það er þjóðin en ekki
alþingi sem velur forsetann hverju
sinni. Forseti beitir aldrei neitun-
arvaldi sínu þegar skrifa á undir
lög en auðvitað getur hann og á að
efna til þjóðaratkvæðagreiðslu
þegar stór mál eru í húfi, mál sem
skipta þjóðina miklu. Hér efna
menn einungis til þjóðaratkvæða-
greiðslu þegar hundahald eða
áfengisútsölur eru til umræðu,
segir Sigrún.
„Það er alltaf talað um að for-
setaembættið eigi að vera samein-
ingartákn þjóðarinnar en ég spyr
á móti er það tákn um sameigin-
lega afstöðu þjóðarinnar að bilið
milli fátækra og ríkra skuli sífellt
breikka. Forsetinn á að skipta sér
af stærri málefnum í stað þess að
vera bara handbendi alþingis-
manna.“
Á þessari stundu þykja ekki
miklar líkur á mótframboði gegn
Ólafi og segir Sigrún það nei-
kvætt. „Það væri afar ákjósanlegt
ef það kæmi fram góður frambjóð-
andi gegn Ólafi. Þó ekki væri
nema til að fá í gang umræður um
ýmis mál. Það er mikið til af hæfi-
leikafólki sem ég gæti séð fyrir
mér í þessu embætti og fólk á ekki
að óttast það að tapa forsetakosn-
ingum. Það er ekkert skelfílegt við
það,“ segir Sigrún Þorsteinsdóttir.
-aþ
Ætlar ekki aftur í framboö
Sigrún Þorsteinsdóttir segir fulla þörf á að hrista upp í embætti forseta.
Útsaumuð
guðsmóðir
Elsa E. Guðjónsson sýnir nú
fimmtán útsaumaðar smámyndir,
byggðar á frásögn Biblíunnar um lif
Maríu meyjar. Sýning Elsu er í
kafíistofu Listasafns Kópavogs,
Gerðarsafni, og lýkur henni 21. maí.
Elsa var sérfræðingur og síðar
deildarstjóri textíl- og búningadeild-
ar Þjóðminjasafns íslands í rúm 30
ár þar til hún fór á eftirlaun 1994.
oo
IflWIlil
Fyrirlestur í Gerðubergi kl. 20
Aðgangseyrír kr. 1000
- Dyrnar að undirmeðvltundinni.
- Hvemig hugurinn starfar í raun og veru.
- Aðferðir til aö auka sköpun og velgengni.
Fyrirlesari: Jóhann Ðreiðfjörð
- Starfaði sem hönnuður fyrir LEGO f fimm ár.
Framboðsmál Guðmundar Rafns í biðstöðu:
Heitur fyrir fram-
boði til forseta
„Ég er heitur fyrir framboði, á
því er engin launung. Framboðs-
málin eru í biðstöðu og ég hef ekki
afskrifað neitt,“ segir Guðmundur
Rafn Geirdal sem hyggur jafnvel á
framboð til forseta íslands I kom-
andi kosningum.
Fyrir síðustu forsetakosningar,
árið 1996, hætti Guðmund Rafn við
framboð þar sem hann var ekki
kominn með tilskilinn fjölda með-
mælenda. „Það er afar mikilvægt
að stuðningurinn sé sjálfsprott-
inn úti í samfélaginu og ég fer
ekki út i þetta nema ég finni
mikinn meðbyr. Margir hafa
haft samband við mig og
tjáð mér persónulega að
þeir vilji sjá mig á forseta-
stóli en það er óraunhæft
að stíga næsta skref nema
undirskriftalistar liggi
fyrir. Ég hef tekið þá
ákvörðun að vaða ekki
sjálfur af stað til að safna
nöfnum á lista heldur finnst
mér að það verði að koma ut-
anfrá,“ segir Guðmundur
Rafn.
Hann segist ekkert hafa
við störf Ólafs Ragnars að
athuga og fínnst frammi-
staða hans í það heila tekið góð.
„Ólafur hefur verið ágætur forseti
en ég óttast að þjóðin verði lengi
að taka nýju konuna hans í sátt.
Það er ekkert vafamál að margir
sem kusu Ólaf á sinum tíma gerðu
það ekki sist vegna Guðrúnar
Katrínar heitinnar sem var mikil
sómakona. Ég gæti trúað að það
eigi eftir að íþyngja þjóðinni ef for-
setaembættið verður ekki lengur
íslenskt en forsetinn verður auð-
vitað að ráða sínu einkalífi."
Mánuður til stefnu
Mótframboð við sitjandi
forseta er mikil-
vægt að
mati
Guð-
mundar Rafns ekki síst
vegna þess að þá þarf
forsetinn enn frekar að
sanna sig. „Jafnvel þótt
slíkur frambjóðandi
hefði ekki raunhæfa
vinningsmöguleika þá
held ég kosningabarátta
væri til þess fallinn að
vekja umræður um
málefni sem skipta þjóð-
ina máli. Enn sem kom-
ið er hefur ekkert
framboð komið fram
en það er aldrei að
vita hvað gerist, það
er jú rúmur mánuð-
ur þar til framboðs-
frestur rennur út.
Sjálfur er ég reiðu-
búinn að takast á
við þetta embætti
og ef ég býð mig
ekki fram nú er
aldrei að vita
nema ég helli mér
í slaginn árið
2004,“ segir Guð-
mundur Rafn Geir-
dal.
-aþ
DV-MYND HARI
Utilokar ekkl framboö 2004
Guðmundur Rafn Geirdal greiðir atkvæði í síðustu
forsetakosningum.
háþrýstidælan
- fer betur með bílinn þinn
* Hobby compact 500 (þrýstingur 100 bör) 11.888 kr.
► Hobby Dynamic Elite 7650 X-tra (þrýstingur 130bör)
Ein með öllu 31.994 kr.
Með KEW Hobby færðu hagkvæma lausn á hreingerningar-
þörfum þínum.
Undirvagnsspúll - Snúningsbursti - Bílasápa - Bílabón o.fl.
—
f Fyrir sólpallinn, stéttina,
grindverkið o.fl.
Rekstrarvörur
- svo þú getir sinnt þínu
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík • Stmi 520 6666 • Fax 520 6665
Iðavöllum 3 • 230 Keflavfk • Sími 421 4156 • Fax 421 1059
<^>
R
V