Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Blaðsíða 32
36
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
Tilvera I>V
Heimur Gudríð-
ar í kvöld
Leikritið Heimur Guðriðar -
síðasta heimsókn Guðríðar Sím-
onardóttur í kirkju Hallgríms-
eftir Steinunni Jóhannesdóttur,
sem einnig leikstýrir, verður
sýnt í Seljakirkju kl. 20. Sýning-
in er sett upp í tengslum við
sögulega guðsþjónustu frá 17.
öld. Leikarar eru Margrét Guð-
mundsdóttir, Helga Elínborg
Jónsdóttir, Jakob Þór Einarsson,
Guðjón Davíð Karlsson og Egill
Ásbjamarson.
Krár
■ BUTTERCUP A GAUKNUM Það
verður rokkað til helv... með Butt-
ercup á Gauki á Stöng. Lagið „Bú-
inn“ situr í 10. sæti íslenska list-
ans.
■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó-
leikarinn Simone Young hamrar á pí-
anóið af öllum lífs og sálar kröftum.
■ TARA Á KRINGLUKRÁ Frekar ró-
legt og næs verður þegar dúettinn
Tara dregur fram tóna úr farteskinu
á barnum í musteri Mammons,
Kringlukránni.
Klassík
■ TONLEIKAR I ARBÆJARKIRKJU
Söngfélag Skaftfellinga heldur sína
árlegu tónleika í Árbæjarkirkju kl.
20.
Sveitin
■ FYRIRLESTDR A AKUREYRI
Edda Hermannsdóttir íþróttakennari
heldur fyrirlestur sem hún nefnir
heilbrigður lífstíll í íþróttahöllinni,
Akureyri, kl. 19 og stendur hann til
kl. 22. Skráning fer fram hjá Flmi í
Vaxtarræktinni í íþróttahöllinni og
aðgangseyrir er 1000 kr.
Leikhús
■ KYSSUI MIG KATA Söngleikurinr
Kysstu mig, Kata, eftir Cole Porter
verður sýndur klukkan 19 í Borgar-
leikhúsinu. Leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir og meö aöalhlutverk
fara Jóhanna Vigdís Arnardóttir og
Bergþór Pálsson. Sfmi í miðasölu er
568 8000.
■ LANGAFI PRAKKARI Barnaleikrit
iö Langafi prakkari veröur sýnt í
grunnskólanum á Hvammstanga
klukkan 17.00. Verkið er byggt á
bókum Sigrúnar Eldjárn og hefur not
ið mikilla vinsælda.
■ ÉG SÉ EKKI MUNIN Leikfélagið
Hugieikur sýnir leikverkiö Ég sé
ekki Munin í Möguleikhúslnu klukk-
an 20. ÞórTulinus leikstýrir verkinu
sem er byggt á Hávamálum og hafa
fjórtán hugleiskir höfundar túlkað
þau og fært forna speki I nútíma-
búning á gamansaman hátt.
Opnanir
■ KJARVALSSTAÐIR Ragnheiður
Jónsdóttlr er mætt á Kjarvalstaði til
að standa síðustu vaktina í sýning-
arverkefninu Veg(g)lr en hún er að
taka við af Gunnari Erni. Ragnheiður
stendur vaktina til 18. maí.
Fundir
■ STARFSFUNDIJR KHI Haldinn
verður starfsfundur f Kennarahá-
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Ríki kiðlinga
og gríslinga
- Guttormur yfir 900 kílóin og Hagbaröur minkur talinn af á Bústaðaveginum
„Það er komið vor í loft og 1
hjörtun líka,“ segir Tómas Guðjóns-
son, forstöðumaður Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins í Laugardal, en í
Húsdýragarðinum hefur verið í nógu
að snúast undanfarnar vikur því
gríslingar, kiðlingar og kálfar hafa
skotið þar upp sínum velkomnu koll-
um.
Von er á minkahvolpum innan
skamms og líklegt er að hreindýra-
kálfar, selkópar og yrðlingar andi að
sér fersku vorloftinu í Laugardaln-
um.
„Aðsóknin hefur verið ágæt það
sem af er árinu og alls eigum við von
á um 200 þúsund gestum í ár. Við höf-
um verið að vinna að stefnumótun
fyrir framtíðina í samráði við Iðn-
tæknistofnun og hugmyndir okkar
verða væntanlega kynntar 19. maí á
tíu ára afmæli garðsins," segir
Tómas dálítið leyndardómsfullur.
Hann bendir á stækkunarmöguleika
fyrir ofan garðinn þar sem hætt hef-
ur verið við byggingu nýs húss fyrir
Landssímann og nýtt kvikmyndahús
og fyrir neðan garðinn þar sem nú er
ræktunarstöð sem flytja á annað.
Tómas segir ýmsar hugmyndir
hafa verið ræddar, m.a. sjávardýra-
safn, vísindasafn og tívolí. „Það eru
ýmsar draumahugmyndir í gangi
sem á eftir að vinna úr,“ segir hann.
Þess má geta að Fjölskyldugarður-
inn, sem er lokaður á veturna, verð-
ur opnaður 15. mai nk.
Draumfarir í Laugardalnum
„Þaö eru ýmsar draumahugmyndir í gangi sem á eftir aö vinna úr, “ segir Tómas Guöjónsson,
forstööumaöur Fjölskyldu- og húsdýragarösins í Laugardal. Meö Tómasi á myndinni eru
Berglind Ágústsdóttir dýrahiröir og kálfurinn Skrauta.
DV-MVND ÞOK
Os á fæðingardeildinnni
Fyrsta ungviði ársins í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum voru 12 litlir
grísir sem gyltan Freyja gaut 15.
mars. Öllum heilsast þeim vel og
gríslingamir stækka dag frá degi.
Rúmum hálfum mánuði síðar báru
þrjár geitahuðnur, Rák, Fiða og
Skálm, samtals fimm kiðlingum og
voru tveir þeirra hafrar en þrír
huðnur.
Enn leið hálfur mánuður og var
Bíógagnrýni
kominn 18. apríl en þá bar kýrin
Gæfa rauðskjöldóttum kvígukálfi.
Faðirinn er enginn annar en hinn
þéttvaxni Guttormur, þyngsta naut
landsins, sem enn er að bæta við sig
kílóum og var 906 kíló við síðustu
vigtun sem fram fór í febrúar. Gutt-
ormur hefur nú fengið nýja stíu und-
ir sitt jarðneska hýði og unir þar
sæll. „Hann er orðinn það stór að
þessir stöðluðu básar hentuðu hon-
um ekki. Við héldum að hann væri
orðinn gamall og stirður en þá var
bara of þröngt um hann þannig að
hann fékk ekki nægilegt legupláss.
Eftir að hann fór sér í stíu er hann
allur annar; liðugur og amar ekkert
að honum," segir Tómas.
í vor mun minkalæðan Gunnvör
gjóta hvolpum sinum en Hagbarður
faðir þeirra verður fjarri góðu gamni
því hann sætti lagi í snjóþyngslum
marsmánaðar og yfirgaf Gunnvöru
og væntanlega afkomendur sína og
húsdýragarðinn í heild sinni fyrir
fullt og fast. „Við fréttum af minki
sem ekið var yfir á Bústaðavegi og
það gæti hafa verið Hagbarður en við
höfum enn ekki fengið það staðfest,"
segir Tómas Guðjónsson. -GAR
Laugarásbíó/Stjörnubíó - Final Destination: ★ ★ '
Grafalvarlegur leikur við dauðann
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir
Enginn getur flúið sín örlög eða
næstum engir. í Final Destination
kynnumst við nokkrum ungmenn-
um sem storka örlögunum og þegar
þau halda að þau séu hólpin er að-
eins hálfleikur. Allt er þetta ungum
pilti, Alex Browning (Davon Sewa),
að þakka eða kenna. Hann hefur
gáfu sem sjálfsagt margir vildu
hafa, getur séð fyrir hluti en ein-
göngu sem tengjast dauðanum.
í byrjun myndarinnar er Alex
einn úr hópi fjörutiu nemanda sem
eru á leið með kennurum sinum til
Parísar. Þegar hann er kominn um
borð í Boeing 747 fær hann sýn.
Flugvélin mun springa í loft upp
rétt eftir flugtak. Alex er flughrædd-
ur fyrir og óhætt er aö segja að
hann tryllist í kjölfarið á sýninni og
er þvi ekki beint trúverðugur þegar
hann æðir um flugvélina æpandi að
hún muni springa rétt eftir flugtak.
Lætin um borð enda með því að
nokkrum nemendum og kennara
þeirra er hent frá borði. Vélin fer af
stað og eins og Alex spáði springur
hún í loft upp stuttu eftir flugtak.
Hinir eftirlifandi og lögreglan sem
kemur á vettvang líta Alex horn-
auga, vita varla hvemig á að um-
gangast hann. Alex fær jafnvel á til-
finninguna að það sé honum að
kenna að flugvélin fórst. Ekki tekur
betra við þegar heim er komið. All-
ir forðast hann þar til Alex fær á til-
flnninguna að öll sem lifðu hefðu átt
að deyja. Þau léku á dauðann og það
væri ekki látið líðast...
Final Destination fer nokkuð vel
af stað. Sýnin er skemmtilega
stílisemð og ógnvekjandi og aðdrag-
andinn að slysinu er góður og eftir-
málin trúverðug. Þegar aftur á móti
dauðinn er kominn inn í spilið sem
einhver áþreifanlegur en þó ósýni-
legur hlutur fer myndin að missa
marks og fer út og suður í atburða-
skýringum. Um leið missa leikarar
tökin á persónum sínum sem verða
flatari með hverri mínútu. Þama er
fyrst og fremst um að kenna
reynsluleysi eða jafnvel getuleysi
ungra leikara og einnig reynsluleysi
leikstjórans James Wong sem er að
gera sína fyrstu kvikmynd.
Eins og með hryllingsmyndir sem
beint er að unga fólkinu, Scream,
Idle Hands, svo að einhverjar séu
nefndar, þá virðist það vera formúl-
an að vera nógu frumlegur. Þetta
heppnast stundum og stundum
ekki. Final Destination er best þeg-
ar hún fer á fjörurnar við klassísk-
ar formúlur eins og sýnir Alex og
verst þegar hún reynir að fara nýj-
ar leiðir, þá er hugmyndaauðgin
ekki meiri en svo að stundum er
ekki annað hægt en að brosa að vit-
leysunni.
Leikstjóri: James Wong. Handrit: James
Wong, Glen Morgan og Jeffrey Reddick.
Kvikmyndataka: Robert McLachlan. Tón-
list: Shirley Walker. Aðalhlutverk: Devon
Sawa, Ali Larter, Kerr Smith og Kristen
Cloke.