Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2000, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
Fréttir
DV
Þorskstofninn enn í kreppu og niðurskurður hugsanlegur:
Fiskifræðingar
klikka illilega
- segir Guðjón A. Kristjánsson alþingismaður
DV. AKUREVRI:____________________
„Ef það verður reyndin að skera
þurfi niður þorskkvótann þá get
ég sagt að fiskifræðingamir okkar
hafi klikkað illilega,“ segir Guðjón
A. Kristjánsson, alþingismaður og
fyrrverandi formaður Farmanna-
og fiskimannasambands íslands,
um fyrstu niðurstöður úr tog- og
netaröllum Hafrannsóknastofmm-
ar en þær niðurstöður eru af
mörgtun túlkaðar þannig að nauð-
synlegt kunni að vera að skera
niður veiðar á þorski og e.t.v.
fleiri botnfisktegundum hér við
land.
Breytingar á Reykjanesbraut
Reykjanesbraut
Þetta kort sýnir umferöarstýringu á gatnamótum á Reykjanesbraut
viö Nýbýlaveg.
Vegaframkvæmdir á Reykjanesbraut:
Tímabundin lokun
Þegar morgunumferðin þriðju-
daginn 2. maí verður afstaðin mun
hluta Reykjanesbrautarinnar
verða lokað vegna vinnu við und-
irgöng.
Um er aö ræöa vegarkaflann á
milli Breiðholtsbrautar og Fífu-
hvammsvegar þar sem ný akbraut
var tekin í gagnið í haust. Undir
nýju akbrautina eru undirgöng og
nú er komið að því að framlengja
þau undir gömlu vestari akbraut-
ina.
Á meðan framkvæmdir standa
yfir verða þeir sem koma úr
Reykjavík á suðurleið að beygja
yfir á nýju eystri akbrautina eftir
að farið er yfir á umferðarljósum
við Nýbýlaveg. Gildir þá að hægri
akgrein hefur forgang yfir gatna-
mótin. PYrir sunnan Nýbýlaveg
verður því aðeins um eina akrein
að ræða í hvora átt að afreinum
sem liggja að Smáranum.
Þeir sem koma úr suðri aka að
vinnusvæðinu á einni akgrein og
helst hún áfram 1 gegn. Þá verður
svipuð aðkeyrsla að afreinum í og
úr Kópavogi við Smárann og verið
hefur.
Vegagerðarmenn vænta þess að
vegfarendur sýni skilning á þess-
um framkvæmdum með prúð-
mennsku í umferðinni. Þá á þetta
að geta gengið tafalítið og óhappa-
laust fyrir sig. Þann 23. júní á veg-
urinn að vera kominn í samt lag
aftur með fjórum akreinum,
tvennum göngum og mislægum
gatnamótum við Fífuhvammsveg.
Áætlað er að öllum frágangi verði
lokið þann 1. júlí. -HKr.
Guðjón A.
Kristjánsson
„ Vísindamennirn-
ir tveimur árum
á eftir. “
„Mér líst bölv-
anlega á að farið
verði að skera
niður þorsk-
kvótann en það
kann að vera að
vísbendingarnar
séu svo sterkar
að það kunni að
reynast nauð-
synlegt. En það
er að mörgu að
hyggja í þessu
sambandi, s.s.
eins og þvi
hvort fiskurinn
hafi nægjanlegt æti og hvort sjálfs-
át eigi sér stað. Það þarf að meta
aflagögn og margt fleira áður en
endanleg ákvörðun verður tekin í
þessu máli,“ segir Guðjón.
Hann segir skipstjórana hafa
byrjað að vara við þessari þróun
fyrir tveimur árum. Þeir hafi orð-
ið varir við samdrátt en þá hafi
ekki verið hlustað á Hafrann-
sóknastofnun frekar en fyrri dag-
inn. „Mér sýnist að nú eigi sér
staö þetta venjubundna mynstur,
sem verið hefur i ráðleggingum
varðandi þorskveiðar undanfarna
tvo áratugi, að vísindamennirnir
séu tveimur árum á eftir. Það ger-
ist hvort sem um er að ræða upp-
sveiflu eða niðursveiflu. En ef fara
á að skera niður þorskveiðina
núna þá er allt upp í loft, allt upp-
byggingarstarfið og allt sem menn
hafa verið að segja gjörsamlega
ónýtt og ekki stendur steinn yfir
steini.“
Guðjón segir að ekki sé hægt að
kenna ástandi sjávar um núna,
það hafi verið gott á allan hátt.
„Það þarf einhverjar aðrar skýr-
ingar. Maður fer að spyrja sig
spurninga eins og þeirrar hvort
við séum að nýta stofninn rétt,
séum að taka of hátt hlutfall af
stofninum. Og hvað með stjórn-
kerfið? Er það að sýna okkur rétt-
ar aflatölur? Erum við ekki að
drepa miklu meira af fiski en þar
kemur fram? Það er ótal spurning-
um ósvarað og menn ættu að setj-
ast niður yfir þessi mál öll,“ segir
Guðjón.
-gk
Númer klippt
Lögreglan í Reykjavík er meö herferö gegn óskoöuöum bifreiöum
bæjarins þessa dagana.
Sóleyjargata 1.
Rúður brotnar
í forsetaskrif-
stofu
Rúður voru brotnar i þremur glugg-
um í skrifstofúm forseta Islands i gær-
morgun.
Skemmdarverkið var tilkynnt til lög-
reglunnar í Reykjavík um klukkan 10 og
er málið í rannsókn.
Ytra glerið í tvöfóldum rúðunum
brotnaði en það innra skemmdist ekki.
Skrifstofur forseta íslands eru á móti
Hljómskálagarðinum, á Sóleyjargötu 1 í
Reykjavik, i húsi sem heitir Staðastað-
ur. Forsetinn sjálfúr, Ólafúr Ragnar
Grímsson, er hins vegar i opinberri
heimsókn í Bandaríkjunum. -SMK
Samfylkingin:
Um helmingur
hefur greitt at-
kvæði
Rúmlega 5 þúsund
manns, sem hafa rétt á
að kjósa til formanns
Samfylkingarinnar,
höfðu nýtt atkvæðis-
rétt sinn í gær, fóstu-
dag, samkvæmt upp-
lýsingum frá skrifstofú
Samfylkingarinnar í
gær. Hér er um að
ræða rúmlega 50 pró-
sent kosningaþátttöku
til þessa en um 10 þús-
und manns í ýmsum
félögum þessa stjóm-
málaafls em gjaldgeng-
ir kjósendur í kosning-
unni. Búist er við að
margir muni skila á
síðustu dögunum en
fresturinn til að velja á
milli Tryggva Harðar-
sonar og Össurar
Skarphéðinssonar til formanns rennur
út á miðnætti á þriðjudagskvöld. Flestir
hafa sent atkvæði sín í pósti.
„Mér fmnast undirtektir góðar. Það
er mikið hringt i okkur sem emm í
framboði og góður hugur í fólki.
Ég er fyrir mína hönd bjartsýnn.
Þetta er póstkosning og ég segi að ef við
náum 55-60 prósenta kosningaþátttöku
þá er ég ánægður," sagði Össur Skarp-
héðinsson.
„Ég fmn jákvæða strauma," sagði
Tryggvi Harðarson við DV. -Ótt
Tryggvi
Harðarson.
- Jákvæðir
straumar.
Ossur Skarp-
héðinsson.
- Góöar undir-
tektir.
Veörið íi k\ old
Hæg suðlæg átt
Hæg suölæg átt og skýjað sunnanlands en
bjart fyrir norðan, 4 til 10 stig, hlýjast
norðaustanlands, en kólnar þegar líður á
kvöldið.
Solfrrgangur og sjávarfóll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 21.47 20.04
Sólarupprás á morgun 05.02 04.36
Síódegisflóö 15.26 19.59
l á morgun 03.46 08.19
Veðriö a morgun
Skýringará veöurtáknuin
]*-~-VINDÁTT ÍO^HIT,
151 -10°
Vrost hbðskirt
WÍNDSTYRKUR
i metruni á sekúndu
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF-
SKÝJAÐ
£> O '
skVjao alskýjað
RIGNING SKÚRIR SLÝDDA SNJÓKOMA
ÉUAGANGUR PRUMU- SKAF-
VEOUR RENNINGUR
iól og blíðu, takk fyrir
/etur konungur er loks að tapa
jaráttunni fyrir sumrinu. Trúlega harma
>aö fáir nema alhörðustu jeppa- og
jallamenn. Þeir hafa líka sumir talsvert
innað viðhorf til veöurs en flest annað
ólk. Því meira slark og ófærð því betra
>r veðrið í þeirra augum. Þeir veröa þá
>ara að bíta í það súra því við hin ætlum
ið hafa sól og blíðu í allt sumar.
Rigning syðra og þurrt nyrðra
Gert er ráð fýrir suðlægri átt, með vindhraða upp á 3-5 m/s. Skýjað
veröur sunnanlands en bjart veður fyrir norðan.
Hiti 3 til 8 stig.
Wlismiidiagisiri1
Vindur:
8-13 ’
Hiti 4“ til 9°
Suöaustan 8-13 m/s
og rignlng eöa skúrir
vestanlands en hægarl
og þurrt á Austurlandl.
Hlti 4 tll 9 stig.
Vestlæg átt og rigning
eöa súld vestanlands
en þurrt aö kalla austan
til. Hiti víöa 5 tll 10 stlg.
Afram er gert ráö fyrir
vestlægri átt og rigningu
eöa súld vestanlands,
en þurrt aö kalla austan
tll. Hlti víöa 5 tll 10 stlg.
Veör ió kl „ 12 i; £.æt: /i
AKUREYRI léttskýjaö 7
BERGSSTAÐIR léttskýjaö 8
BOLUNGARVÍK skýjaö 6
EGILSSTAÐIR 4
KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK skýjaö 6
RAUFARHÖFN léttskýjaö 5
REYKJAVÍK skýjaö 6
STÓRHÖFÐI moldrok 5
BERGEN skýjaö 19
HELSINKI alskýjaö 15
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 18
ÓSLÓ skýjaö 14
STOKKHÓLMUR 19
ÞÓRSHÖFN þokumóöa 6
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 14
ALGARVE skýjaö 16
AMSTERDAM léttskýjaö 21
BARCEL0NA skýjaö 14
BERLÍN skýjaö 24
CHICAGO léttskýjaö 7
DUBLIN hálfskýjaö 12
HALIFAX skúr 4
FRANKFURT skýjaö 20
HAMBORG skýjaö 23
JAN MAYEN skýjaö 1
LONDON súld 12
LÚXEMB0RG skýjaö 21
MALLORCA skýjaö 17
MONTREAL léttskýjaö 5
NARSSARSSUAQ snjókoma 1
NEW YORK þokumóöa 9
ORLANDO þokumóöa 15
PARÍS skýjaö 15
VÍN léttskýjaö 23
WASHINGTON alskýjaö 10
WINNIPEG léttskýjaö 1