Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2000, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
Fréttir I>V
Forsvarsmaöur byggingarfyrirtækja ákæröur í vsk- og staðgreiðslusakamáli:
Gefið að sok að hafa
vantalið 40,6 milljónir
- vangreiddur viröisaukaskattur og staðgreiðslugjöld nema um 17 milljónum
Ríkislögreglustjóri hefur gefið út
ákæru á hendur forsvarsmanni
tveggja byggingarverktakafyrir-
tækja fyrir að hafa ekki staðið skil
á 13,4 milljóna króna virðisauka-
skattsgjöldum og 3,6 milljónum
króna í staðgreiðslugjöld. Hér er um
að ræða rekstrarárin 1991 til 1998.
Á tímabilinu frá 1991 til 1995 er
manninum gefið að sök að hafa van-
talið 40,6 milljónir króna af veltu
annars fyrirtækisins. Þannig er
ákærða gefið að sök að hafa gefið
rangar upplýsingar um virðisauka-
skattsskylda sölu á vöru og þjón-
ustu samkvæmt 112 reikningum.
Manninum, sem var daglegur
stjómandi beggja fyrirtækjanna, er
gefið að sök brot á lögum um virðis-
aukaskatt, staðgreiðslu opinberra
gjalda, lögum um bókhald, lögum
um tekjuskatt og almennum hegn-
ingarlögum.
Önnur ákæran lýtur að bygg-
ingarfélaginu Bekk. Þar voru meint
brot framin árin 1991-1995. Ríkislög-
reglustjóri gefur manninum að sök
að hafa vantalið 40,6 milljónir króna
af veltu fyrirtækisins og þannig
ekki staðið skil á 6,5 milljóna króna
virðisaukaskatti.
Eftir að Bekkur ehf. hætti starf-
semi og fór í gjaldþrot stofnaði mað-
urinn annað hlutafélag í eigin nafni
og nafni konu sinnar. Það fyrirtæki
hét Bergverk ehf. í ákæru ríkislög-
reglustjóra sem snýr að því fyrir-
tæki er fólkinu gefið að sök að hafa
sem daglegir stjórnendur ekki stað-
ið skil á 6,9 milljóna króna virðis-
aukaskatti sem innheimtur var í
starfsemi fyrirtækisins vegna ár-
anna 1997-1998.
Þeim er auk þess gefið að sök að
hafa ekki staöið skil á 3,6 milljóna
króna staðgreiðslu opinberra gjalda
sem haldið var eftir af launum
starfsmanna. -Ótt
DVWVND ORN ÞÖRARINSSON.
Þrílembingar í Fljótum:
Líklega þeir
fyrstu á
21. öldinni
DV, SKAGAFIRDI:____________________
Þrílembingamir á myndinni telj-
um við að séu þeir fyrstu á 21. öld-
inni. Þeir fæddust 26. mars á bæn-
um Stóru-Brekku I Fljótum. Þar búa
Arnbjörg Lúðvíksdóttir og Hjálmar
Jónsson. Bústofninn er aðallega kýr
en fjárstofninn er um tuttugu kind-
ur sem eiga uppruna að rekja til
Strandasýslu. Móðirin er þriggja
vetra og afkvæmin flekkóttur hrút-
ur og tvær hvítar gimbrar. Faðirinn
er óþekktur. -ÖÞ
Húsið brennur
Þessir slökkviliðsmenn voru ekkert aö reyna að slökkva eldinn í húsinu Hóli sem stendur við Köllunarklettsveg í Laug-
arnesinu í Reykjavík. Slökkviliðið hafði fengið Hól til reykköfunaræfinga áöur en húsið verður rifið. Bæði nýliðar og
reyndari slökkviliðsmenn æföu sig þar á miðvikudaginn.
Mokað frá bryggjunni í Haganesvík
Nauösynlegt er að dýpka höfnina annað hvert ár, ella
stæðu trillurnar á þurru.
UV-IVlri\U UKIN PUKAmiNUÖUIN
Grásleppa á
hálfum dampi
DV, FUÓTUM:
Fjórar trdlur eru gerðar út á grá-
sleppuveiöi frá Haganesvik i vor. Er
þar um aö ræða sömu sjósóknara og
stundað hafa veiðamar undanfarin
vor. Veiðin í ár fór nokkuö vel á
staö og er útlit fyrir að afrakstur
geti orðið bærilegur. Vegna lágs
verðs á grásleppuhrognum eru karl-
arnir með mun færri net í sjó en
undanfarin ár og segjast ekki sækja
veiðamar nema af háifum krafti
miöaö við það sem áður hefur
tíðkast.
Skömmu eftir að vertíðin hófst
var graflð frá bryggjunni í Haganes-
vík. Þarf að ráðast í það verk að
minnsta kosti annaö hvert ár til að
trillumar geti legið við bryggjuna.
Árlega skolar miklum sandi og möl
að bryggjunni og þvi er nauösynlegt
að dýpka við hana. Að öðrum kosti
myndu bátarnir standa á þurru við
bryggjuna þegar lágsjávað er. -ÖÞ
Strikamerktir
sjúklingar
Strikamerktir sjúklingar, rafrænar
sjúkraskráningar og fjarlækninga-
búnaður gætu orðið hluti af islensku
heilbrigðiskerfi í framtíðinni.
Fyrirtækið Nýheiji efndi til ráð-
stefnu á fimmtudag fyrir fólk úr heil-
brigðisgeiranum varðandi notkun
upplýsingatækni á sjúkrahúsum. Á
ráðstefnunni, sem haldin var á Grand
Hótel í Reykjavík, héldu sjö erlendir
sérfræðingar frá Norðurlöndunum og
Bandaríkjunum fyrirlestra um það
hvemig hið íslenska heilbrigðiskerfi
geti nýtt sér þessa tækni. 120 heil-
brigðisstarfsmenn mættu á ráðstefn-
una og var þar meðal annars að finna
lækna, hjúkrunarfræðinga og stjóm-
endur sjúkrahúsa.
Þórarinn Kópsson, sölustjóri Ný-
herja í þráðlausum lausnum og
strikamerkjalausnum, sagði að fólk í
heilbrigðisgeiranum virtist vera
spennt fyrir þeim tækninýjungum
sem kynntar vora á ráðstefnunni.
Fjarlækningar með myndbands-
upptökuvélum era til dæmis sniðugar
fyrir fólk sem býr úti á landi og
gagnabrannar sjúkrahúsa með vefsíð-
um um ákveðna sjúkdóma gætu veitt
fólki miklar upplýsingar, sagði Þor-
steinn.
Jeff Schou er bandarískur sérfræð-
ingur á sviði strikamerkja, handtölva
og þráðlausra neta.
„Strikamerkingar sjúklinga tak-
marka mistök í lyfjagjöfum," sagði
Jeff. „Tæknin gerir sjúklingum kleift
að njóta betri heilsugæslu."
Sjúklingar fá armbönd með strika-
DV-MYND ÞÓK
Tækninýjungar í heilbrigöiskerfinu
Jeff Schou er bandarískur sérfræöingur
á sviði strikamerkja, handtölva og þráö-
lausra neta. Hér er hann ásamt Þórarni
Kópssyni, sölustjóra Nýherja.
merkjum sem starfsfólk sjúkrahúss-
ins les af með handheldri tölvu. Þessi
tölva er tengd móðurtölvu og starfs-
fólkið fær upplýsingar þaðan um
sjúklingana.
„Þannig veit starfsfólkið að það er
að gefa réttum sjúklingi rétt lyf,“
sagði Schou og bætti því við að á
þessu ári væri gert ráð fyrir því að á
milli 44 þúsund og 98 þúsund Banda-
ríkjamenn dæju af völdum rangrar
lyQagjafar. -SMK
__________ 'Umsjón:
Höröur Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.is
Ragnheiður
Ólafsdóttir á
Þingeyri er ýmis-
legt annað til
lista lagt en að
halda þrumandi
ræður. Hún þyk-
ir t.d. vel liðtæk-
ur listhönnuður
og sýnir nú á
slóðum Sverris
bróður í Straumi við Hafnarfjörð.
Þar getur að lita listaverk af ýms-
um toga en hugur Ragnheiðar til
sjávarútvegs á þar líka sinn sess.
Meðal verka er lítil mynd, gjörð af
stáli og leðri. Heitir hún Sægreif-
inn og sýnir ófrýnilegan karl sem
horfir á heiminn með öðru auga
en dregur hitt í pung. Af græðgi
sýgur hann upp í sig gull lands-
manna. Segja gárungar að verkið
sé sérstaklega hannað með skrif-
stofu LÍÚ í huga...
Vísitölufall
fyrir hjarta fjöl-
margra ijárfesta
í dymbilvikunni
þegar fregnir
bárust af hröðu
falli erlendra
verðbréafvísi-
talna. Sagt er
að að Pétur H.
Blöndal, alþing-
ismaður og peningasérfræðingur,
hafi m.a. glaðvaknað yfir morgun-
kaffinu þegar fallið spurðist út og
fálmað skjálfhentur í vasann eftir
reiknivélinni. í tilefni af þessu
visitölufalli orti einn af góðkunn-
ingjum Sandkorns:
Slgótt í lofti skipast veður,
skýjabakki í vestri hækkar.
Nú er varla neitt sem gleður.
Nasdaqvísitalan lækkar.
Flokkurinn í fyrirrúmi
Gxmnarsson,
framkvæmda-
stjóri Neytenda-
samtakanna,
þykir ekki hafa
átt sjö dagana
sæla að undan-
fömu. Þykir
glöggum Sand-
komssinnum
því ljóst aö ítrekuð frestun á aðal
fundi samtakanna sé engin tilvilj-
un. Fyrirhugaðir fundir hafi
stangast á við flokksgerðarvinnu
Samfylkingarinnar. Þar sitji
einmitt helstu stuðningsmenn Jó-
hannesar í Neytendasamtökunum
og illt að vera án þeirra í stjóm-
arkjöri. Já, fundir Samfylkingar
eru strax famir aö verða til vand-
ræða, samt er flokkurinn enn
óstofnaður...
Orðuhringl
Forseti ís-
lands, hr. Ólaf-
ur Ragnar
Grímsson, fór í
víking til Vest-
urheims sem
kunnugt er á
dögumnn.
Hverri slíkri
ferð fylgja
handabönd og
samtöl við heimamenn. Ástþór
Magnússon, fyrrum forsetafram-
bjóðandi og stjórnandi Friðar 2000,
ku hafa dálitlar áhyggjur af þess-
ari heimsókn. Ekki það að Ólafur
standi sig ekki með sóma heldur
hitt að slíkum heimsóknum hefur
g)aman fylgt óteljandi orðuveiting-
ar af hálfu íslenska ríkisins. Af
þeirri ástæðu munu ógæfumenn
víða um Noröurlönd hugsa með
hlýhug tU slíkra opinberra heim-
sókna frá íslandi. Ástæöan er sú
að ekki þarf lengur að vera sér-
staklega á varðbergi yfir ferðum
háttsettra lögreglu- og embættis-
manna, - það hringlar svo mikið í
islensku heiðursmerkjunum...