Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2000, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
DV
Ferðir
Fjallakráin
vekur athygli
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON.
Fjallakráin á Vatnsleysu í Viövíkursveit.
Handunna bjálkahúsiö er eitt hinna elstu á landi hér - oröiö 160 ára gamalt.
DV, SKAGAFIRÐI: ______
Síðasta haust tók Fjallakráin á
Vatnsleysu í Viðvíkursveit til
starfa. Þarna er um að ræða 160 ára
gamalt handunnið norskt bjálkahús
sem flutt var inn frá Noregi og end-
urreist. Það var flutt hingað til
lands árið 1993. Tveimur árum síðar
hófst fjölskyldan á Vatnsleysu
handa við að standsetja húsið sem
veitingastað. Því lauk í júlí 1999 og
fljótlega á eftir hófst starfsemi i hús-
inu. Óhætt er að segja að þetta
gamla hús hafi vakið mikla athygli
gesta sem þangað hafa komið enda
er það vafalítið einstakt í sinni röð
hérlendis.
London:
Indversk
upplifun
í leigubíl
Það er hægt að upplifa ýmislegt í
leigubilum Lundúnaborgar og í
sumum tilfellum miklu meira en
það að láta flytja sig frá A til B.
Leigubílastöðin Karma Kabs býður
til að mynda upp á indverska
stemningu í bílum sínum. Karrílykt
og klassisk tónlist hljómar úr hátöl-
urum og ef farþegar eru heppnir
getur verið að bílstjórinn spái í tar-
rotspil áður en ferðin er á enda.
„Við erum afar ánægð með þær
móttökur sem þetta hefur fengið.
Skagfirðingar hafa tekið þessu vel
og hingað hefur komið talsvert af
fólki úr nágrannabyggðum,“ sögöu
hjónin Árdís Bjömsdóttir og Jón
Friðriksson, eigendur Fjallakrár-
innar. Þau segjast byggja rekstur-
inn nær eingöngu upp á veitinga-
sölu. Gistiaðstaða er á efri hæð
hússins fyrir átta manns en sá þátt-
ur er einmitt það sem eftir er að
byggja upp en getur vonandi hafist
á þessu ári. Þau segjast leggja
áherslu á að taka á móti hópum og
aö ágætlega líti út með sumarið.
Talsvert sé búið að panta, m.a. frá
útlöndum. Þau segjast vera bjartsýn
á að þessi þjónusta geti þrifist og
dafnað enda margir jákvæðir hlutir
að gerast varðandi ferðaþjónustu í
héraðinu. Þar má m.a. nefiia Hesta-
miðstöð íslands sem er í uppbygg-
ingu en þá starfsemi telja þau eiga
eftir að verða lyftistöng fyrir Skaga-
fjörð í framtíðinni. -ÖÞ
55
Nú er rétti tíminn fyrir
CcLóororv
Heldur trjábeðum
oggangstígum
lausum við illgresi
\V/>
60 ÁRA
FAGLEC REYNSLA
Á ÖLLUM SVIÐUM
RÆKTUNAR
GARÐHEIMAR
GRÆN VBRSLUNARMIÐSTÖÐ
STEKKJARBAKKA 6 ■ REYKJAVÍK • SÍMI 540 3300
f
UPPBOÐ
Á ÓSKILAMUNUM
Að beiðni lögreglustjórans í Reykjavík fer fram uppboð
á ýmsum óskilamunum, m.a. reiðhjólum, kerrum, úrum,
fatnaði og fleiri munum.
Uppboðið fer fram í uppboðssal Vöku hf. að
Eldshöfða 4, Reykjavík, laugardaginn 6. maí 2000
og hefst það íd. 13.30.
Eigendum glataðra muna er bent á að hafa samband við
skrifstoíu óskilamuna hjá lögreglustjóranum í Reykjavík,
Borgartúni 33, kl. 10-12 og 14-16 virka daga fram að
uppboði.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
„Eg vil bara minna alla
foreldra á
og kaffið á eftir
Við hvetjum félagsmenn til að halda dag verkalýðsins hátíðlegan
og taka fjölskylduna með í 1. maí göngu sem hefst kl. 14:00
á Skólavörðuholti.
Að loknum útifundi á Ingólfstorgi bjóðum við félagsmönnum og
fjölskyldum þeirra að þiggja veitingar á Hótel íslandi í tilefni dagsins
Gleðilegt sumar!
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
í