Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2000, Qupperneq 1
15
Föstudagur 12. maí 2000
dvsport@ff.is
Heimsmeistarar
til íslands I janúar
Ef íslenska landsliðiö í handbolta
kemst á HM í Frakklandi 2001 verður
líklega haidið alþjóðlegt fjögurra iiða
mót í janúar næstkomandi með
þátttöku síðustu tveggja heims-
meistara í handbolta, Svia (1999) og
Frakka (1997) auk einnar annarar
þjóðar og íslenska landsliðsins. -ÓÓJ
Þorbjörn Jensson velur 19 manna hóp:
Breytingar
- á íslenska landsliöinu fyrir leiki við Makedóna
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari íslands í handbolta, tilkynnti í
gær nítján manna landsliðshóp sem mun taka þátt í leikjum við
Makedóníu í undankeppni heimsmeistaramótsins í Frakklandi sem
fer fram í janúar á næsta ári. Leikirnir fara fram 4. og 10. júní og sá
fyrri er út í Makedóníu þar sem íslenska liðið vann sér þátttökurétt
á síðasta Evrópumóti. Það lið sem hefur betur kemst á HM í
Frakklandi 2001.
Þorbjörn gerir nokkrar breytingar á íslenska liðinu, tveir nýliðar
eru i hópnum, þeir Magnús Sigmundsson, markvörður úr Haukum,
og Erlingur Richardsson, línumaður úr ÍBV. Þá hafa 11 af 19
leikmönnum ekki enn náð að leika 50 landsleiki og
heildarlandsleikjareynsla liðsins hefur oft verið meiri en nú. Alls
hafa þessir 19 leikmenn leikið 1342 landsleiki eða 78,9 að meðaltali en
án þeirra Guðmundar Hrafnkelssonar og Bjarka Sigurðssonar aðeins
53,7 að meðaltali.
Landsliðshópinn skipa eftirtaldir:
Markmenn: Guömundur Hrafnkelsson, Nordhorn (313 leikir), Sebastian
Alexandersson, Fram (23), og Magnús Sigurðsson, Haukum (0).
Homamenn: Guöjón Valur Sigurösson, KA (12), Gústaf Bjarnason, Willstatt
(102), Björgvin Björgvinsson, Fram (41), Bjarki Sigurðsson, Aftureldingu (223)
og Njöröur Ámason, Fram (32). Línumenn: Róbert Sighvatsson, Dormagen (81),
og Erlingur Richardsson, ÍBV (0). Skyttur: Róbert Jullan Duranona, Eisenach
(50), Guðfinnur Kristmannsson, ÍBV (4), Ólafur Stefánsson, Magdeburg (112),
Patrekur Jóhannesson, Essen (164), og Daði Hafþórsson, Dormagen (13).
Leikstjórnendur: Dagur Sigurðsson, Wuppertal (118), Aron Kristjánsson,
Skjern (23), og Ragnar Óskarsson, ÍR (16).
-ÓÓJ
Úrslitakeppni NBA-deildar í nótt:
slæm mál
- þrjú töp í röð
Utah Jazz virðist ekk eiga mikla möguleika í
Portland Trailblazers í úrslitakeppni NBA-deildarinn-
ar. í nótt sigraði Portland, 103-84 á útivelli og þarf nú
aðeins einn sigur til viðbótar tii þess að komast
áfram í undanúrslit. Arvidas Sabonis var stiga-
hæstur hjá Portland með 22 stig, Steve Smith
skoraði 21 og Bonzo Wells gerði 19. Karl Malone
vtu: atkvæðamestur i liði Utah með 28 stig og
tók 11 fráköst, Jeff Homacek skoraði 24 og
Bryon Russell setti 18 stig. -ÓHÞ
Maradona:
Púlaðfy
Matth
Diego Maradona æfir nú af kappi
fyrir ágóðaleik til heiðurs Lothar
Matthaus sem fram fer 26. maí og stefnir
þar á endurkomu í boltann eftir erfiða
tíma að undanfomu. Maradona er á Kúbu
þar sem hann hefur verið frá því í janúar
að hann fór í meðferð við áfengis og
eiturlyfjanotkunar. Hér til hægri púlar
kappinn kófsveittur við háar hnélyftur í
líkamræktarstöð á Havana í gær. -ÓÓJ
Utah komið í
Þorbjörn Jensson, landsliösþjálfari í handbolta, ásamt
þremur lærisveinum sínum, Aroni Kristjánssyni á
vinstri hönd og þeim Ragnari Óskarssyni og Guðjóni
Val Sigurðssyni fyrir framan. DV-mynd E. Ól.
Meiðsli hjá
KR-ingum
Ástandið er ekki gott í herbúðum KR-
inga þegar tæp vika er í fyrsta leik þeirra í
LandssímadeUdinni. Þó nokkuð er um
meiðsli hjá þeim og er ljóst að þeir verða
án tveggja lykilmanna í fyrstu leikjum
deildarinnar. Þórhallur Hinriksson, sem
gegndi lykilhlutverki á miðjunni hjá KR í
fyrra, er meiddur á ökkla. Markvörðurinn
Kristján Finnbogason fór nýverið í aðgerð
á hné og verða þessir tveir burðarásar KR-
liðsins ekki með fyrr en í byrjun júní. Jafn-
framt eiga margir leikmenn liðsins við
smámeiðsli að stríða en fastlega er búist
við því að þeir verði klárir í slaginn þann
18. maí næstkomandi, þegar KR sækir
Fram heim.
-ÓK
Þorbimi Jenssyni, landsiiðsþjálfara í
handbolta, bíður verðugt verkefni við að rétta
íslenska landsliðið aftur við eftir strandið á
Evrópumótinu í Króatíu í byrjun árs.
Fyrsta verkefni liðsins em þrír æfingaleikir
við Tékka úti, sem era undanfari tveggja leikja
við Makedóníu í undankeppni HM. Þorbjörn
setur stefnuna á sæti í úrslitakeppni HM.
„Þetta er töluvert breyttur hópur, menn eins
og Valdimar og fleiri detta út en kjaminn er sá
sami. Ég er að leita eftir að byggja liðið upp
vamarlega," sagði Þorbjöm við DV í gær.
„Við höfum verið að spila framliggjandi vörn
og Erlingur kemur sem dæmi inn sem maður
sem er vanur því að spila indjánann. Það er
vissulega þægilegra að spila seinni leikinn
heima. Við erum búnir að fara hina leiðina og
eftir á að hyggja er það ekkert verra. Það eru
breytingar á makedóníska liðinu frá því við
slógum þá út úr undankeppni EM og þeir hafa
skipt um þjálfara. Gegn Júgólsavíu í janúar
spiluðu þeir 6:0 vörn á útivelli en mjög
framliggjandi vöm heima sem Júgóslavar áttu
mjög erfltt með. Spilamennskan var eins og
svart og hvítt hjá þeim heima og svo í
Júgóslaviu, en við þekkjum höllina þeirra núna.
Mínir menn munu hugsa aftur á bak til
Króatíu en þetta er mynstrið hjá okkur
Islendingum, við náum toppárangri og dettum
svo niður inn á milli. Það sem skiptir höfuðmáli
er að allir leikmennimir séu sannfærðir um að
þeir geti meira en þeir sýndu í Króatíu og ætli
að sanna það fyrir sjálfum sér og öðram.
Það verða engin stór tímamót hjá íslenska
liðinu. Ég tel það vænlegast að taka þessa ungu
stráka einn og einn inn og ég hefði tekið fleiri
leikmenn núna úr 20 ára liðinu í þetta verkefni
ef þeir hefðu ekki verið með sitt stóra verkefni
á sama tima.
Við eigum að vinna og komast áfram og
leikirnir við Tékka á undan eru lykilleikir í að
stilla saman liðið því þeir eru með svipað lið en
Makedónar og jafnvel aðeins betri.
Ég vildi spila heimaleikinn í Kaplakrika. Þar
höfum við náð góðum úrslitum og því sem hefur
þurft að ná og hver veit nema það verði bara
líka núna,“ sagði Þorbjörn Jensson
-ÓÓJ