Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2000
23
I>V
Sport
Fyrsti sigur
Skallagríms
- vannst á Hornafirði
0-1 Emil Sigurösson (88., viti)
Borgnesingar gerðu góða ferð
austur á Höfn í Hornafirði þar
sem þeir mættu nýliðum Sindra
en Skallagrímur vann þar sinn
fyrsta sigur i deOdinni í sumar
með marki frá Emili Sigurðssyni
úr vítaspymu tveimur mínútum
fyrir leikslok. Mínútu síðar fékk
Hilmar Hákonarson Borgnesing-
ur rautt spjald fyrir sitt annað
gula spjald. Sindri tapaði þarna
sínum fyrsta leik í sumar. -ÓÓJ
Fylkir - Breiðablik 5-0
Hálfleikur: 3-0 Leikstaóur: Fylkisvöllur. Áhorfendur: 700.
Dómari: Kristinn Jakobsson (5). Gœöi leiks: 4.
Gul spjöld: Sturla, Sverrir, Þórhallur (Fylki), Hreiðar (Breiðabliki)
SkoL: 15-11. Horn: 3-9. Aukaspyrnur fengnar: 11-9. Rangstööur: 1-0.
Mörkin: 1-0 Ómar Valdimarsson (2., með skoti rétt innan vítateigs eftir hom
Gunnars Þórs Péturssonar), 2-0 Sævar Þór Gíslason (27., með skalla eftir fyrirgjöf
Gylfa Einarssonar), 3-0 Gylfí Einarsson (32., með skoti úr markteig eftir fyrirgjöf
Sævars Þórs), 4-0 Sævar Þór Gíslason (53., afgreiddi vel stungusendingu Þórhalls
Dans Jóhannssonar), 5-0 Gylfi Einarsson (88., með skalla eftir hom Gunnars Þórs).
Maður leiksins: Sævar Þór Gíslason, Fylki
'k fe
Sm
Sævar Þór Gíslason skoraöi tvö
mörk fyrir Fylki í gær í 5-0 sígri á
Breiöabliki og var maöur
leiksins. Sævar sést hér skora
fyrra mark sitt meö skalla í fyrri
hálfleik. DV-mynd Hilmar Þór
iliseliiiiils
Einkunnagjöf
SW-Sport
Fvlkir-Breiðablik 5-0
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson...........3
Helgi Valur Danielsson......4
Þórhallur Dan Jóhannsson....4
Ómar Valdimarsson ..........4
Gunnar Þór Pétursson .......4
Kristinn Tómasson...........3
(77., Sigurður Karlssson...4)
Sverrir Sverrisson .........4
Hrafnkell Helgason..........3
(87., Ólafur Stigsson......-)
Sturla Guðlaugsson..........4
(72., Ólafur Ingi Skúlason.4)
Sævar Þór Gíslason .........5
Gylfi Einarsson.............5
Breiöablik (4-4-2)
Gísli Herjólfsson...........3
Hjalti Kristjánsson ........2
Andri Marteinsson...........3
Guðmundur Örn Guðmundsson . . 2
Karl Finnbogason............1
(46., Bjöm Jakobsson.......2)
Hreiðar Bjamason ...........2
Hákon Sverrisson............1
Róbert Russell..............3
(46., Ámi Kr. Gunnarsson ..3)
Salih Heimir Porca..........2
Bjarki Pétursson............1
ívar Sigurjónsson...........2
Blikar komust niður á jörðina eftir 6-2 sigurinn á Ólafsfirði:
null
- sigur Fylkis og annars sigur nýliöanna í röð, sem eru enn taplausir
Eftir að Blikar unnu Leiftur 6-2 á
Ólafsfirði í síðustu umferð hafa
sennilega bjartsýnustu stuðnings-
menn þeirra búist við álíka flug-
eldasýningu í Árbænum. En því var
aldeilis ekki að heilsa því eftir rúm-
an hálftíma voru Blikamir búnir að
fá á sig þrjú mörk og aðeins var
spurning um hversu stór sigur
fVlkis yrði. Lokatölurnar urðu 5-0
og geta Blikar í raun prísað sig sæla
að hafa ekki tapað með meiri mun.
Fylkismenn gáfu tóninn strax eft-
ir hálfa minútu þegar Sævar Þór,
sem var mjög hættulegur í sókn
Fylkis í leiknum, komst í gott skot-
færi en Gísli Herjólfsson, sem leysti
Atla Knútsson af í marki Blika,
varði vel. Gísli gat þó lítið gert við
fyrsta markinu sem kom rúmri
mínútu síðar eftir homspyrnu.
Blikarnir hresstust nokkuð eftir
þetta og komust tvívegis i ágæt færi
og virtust líklegir til að jafna metin.
En á fimm mínútna kafla kom
rothöggið en þá skóp samvinna
Sævars og Gylfa tvö mörk. Eftir það
datt leikurinn niður og fátt mark-
vert gerðist það sem eftir lifði hálf-
leiks. í upphafi síðari hálfleiks
fengu Blikar gullið tækifæri til að
minnka muninn en Kjartan varði
þá lausan skalla Salih Heimis
Porca. Fimm mínútum síðar skor-
aði Sævar sitt annað mark þegar
vörn Blika svaf á verðinum og eftir
það áttu Kópavogsbúar sér ekki við-
reisnar von. Þeir fóru reyndar að
berjast meira á miðjunni en sóknin
var nánast óvirk og vömin óörugg.
Það voru Fylkismenn sem fengu
þau færi sem buðust en tréverkið og
Gísli markvörður björguðu
Blikunum þangað til Gylfl gerði
þriðja skallamark leiksins á
lokamínútunum.
„Við vorum vel stemmdir í leikn-
um og staðráðnir í að landa fyrsta
heimasigrinum. Við náðum loksins
að láta boltann ganga og fundum
Baráttusigur
- Víkinga á Val sem tapaði sínum fyrstu stigum
0-1 Sumarliði Ámason (59.)
0-2 Jón Grétar Ólafsson (71.)
1-2 Ólafur Ingason (83.)
1- 3 Lárus E. Huldarson (84. viti)
2- 3 Amór Guðjohnsen (90. viti)
Það var mikill baráttuleikur sem
fram fór á milli Reykjavíkurliðanna
Vals og Víkings á Hlíðarenda í gær.
Gestgjafamir voru meira ógnandi
fyrstu mínútumar en strákamir úr
Fossvoginum tóku smám saman
völdin og héldu þeim að mestu fram
að leikhléi. Bæði liðin fengu þónokk-
ur færi í fyrri hálfleik og skot í slá
frá Vilhjálmi Vilhjálmssyni Vals-
manni komst næst því að skapa
mark en staðan i leikhléi var 0-0.
Valsmenn mættu grimmir til
síðari hálfleiks og ógnuðu mjög
marki Vfkings en hættu sér
kannski fullframarlega. Víkingar
skoruðu fyrsta markið úr skyndi-
sókn. Boltinn barst til Sumarliða
Ámasonar eftir skelfileg mistök
Johns Mills í marki Vals og Sum-
arliði skoraði í autt markið.
Skömmu síðar kom annað mark
Víkinga, aftur eftir mistök Vals-
manna. Sending Ólafs Ingasonar
var þá of stutt til að ná til Mills í
markinu og Jón Grétar Ólafsson
lyfti boltanum yfir hann og í mark-
ið.
Tæpum stundarfjórðungi síðar
svöraðu Valsmenn svo fyrir sig
þegar Ólafur Ingason setti boltann
í markið af stuttu færi eftir
skemmtilegt upphlaup Besims
Haxhiajdini. Minútu síðar gerðu
Víkingar hins vegar út um leikinn
þegar þeir fengu víti sem Lárus
Huldarsson fyrirliði skoraði úr.
Það var síðan eftir lok venjulegs
leiktíma sem Halldór Hilmisson
var felldur i vítateig Víkinga. Arn-
ór Guðjohnsen skoraði úr vítinu
en markið kom of seint fyrir Hlíð-
arendapilta og sigur Víkinga var
staðreynd, 2-3.
Luka Kostic, þjálfari Víkinga,
sagði eftir leikinn að heppnin hefði
verið þeirra megin í leiknum og að
loksins hefðu færin nýst sem
skyldi.
Maður leiksins: Stefán Þórð-
arson, Víkingi.
-ÓK
taktinn vel í leiknum. Vonandi
heldur þetta svona áfram,“ sagði
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Fylkis,
eftir leikinn.
Sævar og Gylfi voru mjög ógn-
andi í framlínu Fylkis en í raun
eiga allir leikmennimir hrós skilið
fyrir góðan leik.
Hugarfariö ekki rétt
„Hugarfarið var hreinlega ekki
rétt hjá okkur í þessum leik og liðs-
heildin var slök á vellinum. Það er
hugsanlegt að fjarvera Atla Knúts-
sonar hafi skapað smávegis óöryggi
en mér finnst að það ætti frekar að
þjappa mönnum betur saman,"
sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari
Blika.
Kópavogsliðið var hreinlega ofur-
liði borið í þessum leik og verður að
taka sig verulega á ef ekki á illa að
fara í sumar. -HI
Fyrir börn fædd ‘86 - ‘91
Knattspyrnuskóli
VALS OG AEG
Verð kr. 4000
10% afsl. af fleiri en einu námskeiði
10% afsl. fyrir systkini
10% afsl. fyrir iðkendur
Námskeiðin verða
05.-16. júní
19.-30. júní
03.-14. júlí
17.-28. júlí
Nánari upplýsingar
í síma 551 2187