Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Qupperneq 24
36
_______ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
Tilvera uv
Kæfa á
Gauknum
Borð Gauks á Stöng svigna undan
vel útilátnu kæfurokks-hlaðborði
a'la URL. Eintóm hamingja og píp-
andi gleði er mottó kvöldsins.
Klúbbar
■ THOMSEN Plötustýran Sóley mætir með
safnið sitt og sér um að malla Ijúffenga RN'B,
hip hop og soulfunk tóna ofan í gesti Thom-
sen. Staðarhaldarar vilja endilega að fólk fari
líka að mæta í miðri viku. Er ekki best að hlýða
því?
Leikhús
■ ENGLAR ALHEIMSINS Á DÓNSKU Café
Teatret sýnir leikgerð sína á skáldsögu Einars
Más Guðmundssonar, Englum alheimsins.
Áhugavert verður fýrir íslendinga að sjá hvaða
tökum Danir taka söguna í samanburði við
kvikmynd Frikka Þórs. Sýnt er á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins.
Kabarett
■ LAPYSMITH BLACK MAMBAZO Á BROAD-
k WAY Sönghópurinn Ladysmith Black
Mambazo frá Suður-Afríku heldur tónleika á
Broadway í kvöld. Þetta er alla vega þess virði
til að sýna þeim viröingu fyrir að hafa komið
alla þessa leiö. Tónleikarnir eru liður í Listahá-
tíð í Reykjavík.
Tónleikar
■ Landið sem ekki er tll i kvöld kl. 20.30
flytja sænsku listamennirnir Susanna
Levonen messósópran, Bemt Wilhelmsson
píanóleikari og Magnus Irving flautuleikari
triótónleika T Salnum í Kópavogi. Þremenn-
ingarnir munu frumflytja tvö ný verk á þess-
um tónleikum. Fýrra verkiö er eftir íslenska
tónskáldiö Svein Lúövík Björnsson viö Ijóöiö
Landet som icke ár (Landið sem ekki er til)
eftir Edith Södergran. Verkiö er skrifað fyrir
messósópran og flautu. Stöara verkiö sem
frumflutt veröur er, För nára (Of nálægt) eftir
A sænska tónskáldiö Sven Ahlin fyrir
messósópran, flautu og píanó. Ljóöiö er eftir
Wislawa Szymborska og þýtt á sænsku af
Per Arne Bodin og Roger Fjellström.
Sýningar
■ Ámastofnun Stofnun Árna Magnússonar,
Ámagarði vlð Suðurgötu. Handritasýning er
opin kl. 13-17 daglega, 1. júní til 31. ágúst.
Unnt er aö panta sýningu utan reglulegs sýn-
ingartíma sé þaö gert meö dags fyrirvara.
■ Þióðarfaókhlaða Kvennasögusafn íslands
minnist Ástu Slgurðardóttur meö sýningu á
verkum hennar I Þjöðarbókhlöðu. Á sýning-
unni eru meöal annars nokkur málverka Ástu
og dúkristur sem hún myndskreytti smásögur
sínar með. Þá veröa einnig til sýnis kynngi-
mögnuö mannspil sem hún teiknaði á árun-
um 1960-1963. Fyrirmyndir spilanna eru
þjóðsagnapersónur, forynjur og galdramenn.
Þar má meöal annars sjá Miklabæjar-Sol-
veigu meö rýting í hendi og opið sár á hálsi
og Djáknann á Myrká.
> "
Sjá nánar: Líflö eftir vinnu á Vísi.is.
Ladysmith Black Mambazo:
Syngjandi sendiherrar
- „Söngur gleður þá sem eru daprir því söngurinn er rödd hamingjunnar“
1 kvöld verða tónleikar suður-
afríska sönghópsins Ladysmith
Black Mambazo haldnir á Hótel ís-
landi.
Sönghópurinn var stofnaður um
1960 af Joseph Shabalala sem jafn-
framt er forsöngvari hans. Sagan
segir að Shabalala hafi fengið hug-
myndina að Ladysmith í draumi,
þar sem hann sá fyrir sér hóp af
börnum aö dansa og syngja. Nafnið
Ladysmith Black Mambazo hefur
tvenns konar vísun, þ.e.a.s. til borg-
arinnar Ladysmith, þaðan sem
söngsveitin er upprunnin, og Black
Mambazo sem þýðir svört öxi og
vísar til þess að þeir hafa lagt alla
keppinauta sína að velli.
Hinn sérstæði stUl Ladysmith er
blanda af sönghefð Zulu-manna og
kórtónlist sem flutt er án undir-
leiks.
Tónlist Ladysmith naut strax
mikilla vinsælda í heimalandi sínu
og reyndar um alla Afriku. Fyrsta
plata þeirra kom út árið 1962 og
seldist vel. En það var ekki fyrr en
1986 að þeir hlutu náð fyrir eyrum
Vesturlandabúa í kjölfar þess að
þeir sungu bakradir á plötunni
Graceland fyrir Paul Simon. Ári síð-
ar gáfu þeir út plötuna Shaka Zulu
sem seldist í heUum bílhlössum og
hlaut Grammy-verðlaunin sem
besta þjóðlagaplatan það ár. Síðan
hafa þeir sungið inn á rúmlega
fjörutíu hljómplötur með ýmsum
listamönnum eins og Stevie Wond-
er, Yousson N’Dour, Dolly Parton og
nú síðast óperusöngkonunni Lesley
Carret.
Tónlist Ladysmith hefur einnig
notið vinsælda í kvikmyndum og
má þar nefna myndirnar Moonwal-
ker (Michael Jackson), A Dry White
Season (Marlon Brando) og Coming
to America (Eddie Murphy). Vin-
sældir Ladysmith hafa aukist jafnt
og þétt á undanförnum árum, ekki
síst fyrir þær sakir að tónlist þeirra
hefur verið notuð í auglýsingar fyr-
ir vörumerki eins og IBM, 7-up og
Heinz-súpur.
Ladysmith Black Mambazo voru í
fylgd með Nelson Mandela þegar
hann tók við friðarverðlaunum
Nóbels 1993 og fluttu þar tónlist
sína. Mandela hefur lýst því yfir að
hann telji sönghópinn vera bestu
sendiherra Suður-Afríku á erlendri
grund.
Ásmundur Jónsson hjá Japis seg-
Ladysmith Black Mambazo
Söngsveitin kom til landsins í gær.
ist lengi hafa fylgst með Ladysmith
Black Mambazo og að hann hlakki
til að fara á tónleikana með þeim
þar sem hann hafi ekki séð þá á tón-
leikum áður. Hann segir að
Ladysmith-flokkurinn hafi fyrst náð
athygli Vesturlandabúa á áratugn-
um milli 1970 og 1980, um það leyti
sem svokölluð heimstónlist var að
verða vinsæl.
DVWND
Joseph Shabalala hefur sagt að
það sem skipti mestu máli fyrir
hann sé hversu vel þeim hafi tekist
að brjóta niður menningarleg landa-
mæri og deila tónlist sinni með öðr-
um því að „söngurinn gleður þá
sem eru daprir því söngurinn er
rödd hamingjunnar." -Kip
Arfur - sögur af sjálfstæðu fólkl
Þaö er ekki á hverjum degi sem áhugaleikarar stíga á fjatir Þjóðleikhússins. Leikarar frá Sólheimum í Grímsnesi
á æfingu í Þjóðleikhúsinu í gær.
Leikfélag Sólheima er elsta áhugamannaleikfélag á íslandi:
Hátíðarsýning í Þjóðleikhúsinu
Fyrsta kvöldganga sumarsins:
Kvöldganga
í Viðey
Fyrsta kvöldganga sumarsins
verður í Viðey i kvöld. Gengið verö-
ur um suðaustureyna. Lagt er af stað
með Viðeyjarferjunni kl. 20. Gengið
verður upp að Stofu en síðan austur
á Sundbakka og Stöðin skoðuð, þorp-
ið sem þarna var á árunum
1907-1942. Þá verður litið inn í Tank-
inn sem er félagsheimili Viðeyinga í
gömlum 150 tonna steyptum vatns-
geymi. Þaðan verður haldið fyrir
Þórsnesið um Kríusand og upp í
Kvennagönguhóla og svo aftur heim í
Stofu. Farið verður í land upp úr kl.
22.
Á Suðurströnd eru mörg áhuga-
verð örnefhi sem mörg hver eiga sér
skemmtilega sögu og geyma fróðleik
sem staðarhaldari leitast við að
draga fram í dagsljósið. Einnig verð-
ur reynt að halda uppi gamanmálum
og söng eftir aðstæðum.
Göngufólk er minnt á að vera
klætt eftir veðri og vera vel búið til
fótanna. Gjald er aðeins ferjutollur-
inn, kr. 400 fyrir fullorðna og 200 fyr-
ir böm.
Óhætt er að mæla með kvöldgöngu
í Viðey undir leiðsögn staðarhaldara,
ekki síst í fógru veðri. -ss
Viðey
í kvöld er hátíðarsýning Leikfé-
lags Sólheima í Þjóðleikhúsinu.
Sýnt verður leikritiö Arfur - sögur
af sjálfstæðu fólki sem er frum-
samið verk í fullri lengd og fjallar
um þá sem mætt hafa mótlæti í ís-
landssögunni. Leitað er í smiðju
þekktra bókmenntaverka.
Leikfélag Sólheima hefur að
þessu sinni fengið í lið með sér at-
vinnuleikara auk þess sem íbúar
Sólheima, jafnt fatlaðir sem ófatlað-
ir, taka þátt í uppfærslunni. Sam-
tals koma meira en 30 manns að
sýningunni. Æfingar hafa staðið
yfir í allan vetur, eða frá því í októ-
ber, þannig að mikiö er lagt í sýn-
inguna.
Leikfélag Sólheima er elsta
áhugamannaleikfélag á íslandi og
hefur starfað nær samfellt frá 1931
og sett upp a.m.k. eina stórsýningu
á hverju ári auk minni
verka.
Sólheimar fagna 70 ára
afmæli sínu í ár og er sýn-
ingin í Þjóðleikhúsinu
einn fjölmargra menning-
aratburða sem eru á dag-
skrá í tilefni þessara
tímamóta.
Sýningin hefst kl. 20 í kvöld og
aðgangseyrir er 1500 kr.
Sumardagskráin í Viðey er komin í
fullan gang.