Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2000, Qupperneq 1
15
Framarar semja við Dana
Úrvalsdeildarliöi Fram í knattspymu hefur bæst góður liðstyrkur. Félagiö
hefur gert samning við danska sóknarmanninn Ronny Petersen um að leika
með liðinu út þessa leiktið og með þeim möguleika að leika einnig með því á
næsta tímabili. Petersen verður 22 árs í haust og hefur leikið með öllum yngri
landsliðum Dana, þar af 6 leiki með 21 árs landsliðinu, og skorað í þeim 3 mörk.
Leikur meö í kvöld gegn Fylki
Petersen leikur sinn fyrsta leik með aðalliði Fram í kvöld þegar liðið mætir
Fylki á Laugardalsvellinum í Fimmtu umferð LandssímadeiMarinnar. Petersen
lék reyndar með 23 ára liði Fram í bikarkeppninni um helgina og skoraði tvö
mörk í 5-0 sigri á Reyni. Þar sýndi Daninn góða takta og mun hann eflaust
friska upp á framlínu Safamýrarliðsins. -JKS
Makedónarnir koma
Handknattleikssamband íslands fékk í gær loksins skeyti frá
Makedóníumönnum um ferðatilhögun liðsins til íslands en HSl hafði
óskað eftir upplýsingum þess efnis síðustu daga. Makedónar koma til
íslands á fimmtudag í áætlunarflugi og fara af landi brott strax eftir
síðari leikinn við íslendinga á sunnudagskvöldið.
Makedónar voru afar ósáttir yflr þeirri ákvörðun evrópska
handknattleikssambandsins að báðar viðureignir þjóðanna skuli fara
fram á íslandi. Sú ákvörðun var tekin eins og fram hefur komið í
kjölfar bágs öryggis á leikstað í Skopje en Makedónar höfðu verið
aðvaraðir margsinnis en ekkert gert til að bæta ástandið.
Báðir leikirnir verða í Kaplakrika, sá fyrri á fostudag og hinn síðari
á sunnudagskvöld. -JKS
Úrslitakeppni Evrópumóts landsliða
í knattspyrnu hefst í Niðurlöndum á
laugardaginn kemur. Opnunarleikur
mótsins verður á milli Belga og Svía
í Brússel og síðan rekur hver leikur-
inn annan og lýkur mótinu síöan
með úrslitaleik í Rotterdam 2. júlf.
Það eru margir sem biða spenntir
eftir að flautað verði til leiks og eru
liöin farin að streyma til Belgíu og
Hollands og veröa þar í æfingabúð-
um fram að helgi. Belgar binda
miklar vonir viö sitt lið og kom hóp-
ur þeirra allur saman í gær. Menn
stytta sér stundir með ýmsum hætti
á milli æfinga og hér sjást Belgarnir
Mbo Mpenza, leikmaöur hjá Sport-
ing í Lissabon, og Gilles de Bilde
hjá Sheffield Wednesday sýna listir
sínar í billiard.
JKS/Reuters
Norðmenn eiga von
Norðmenn eygja von um að komast I úrslitakeppni heimsmeistara-
mótsins í handknattleik eftir eins marks ósigur gegn Ungverjum á útivelli
um helgina. Ungverjar sigruðu í leiknum, 20-19, en Norðmenn höfðu eins
marks forystu i háifleik, 10-11. Síðari viðureign þjóðanna verður í Alta í
Norður-Noregi um næstu helgi og verða möguleika Norðmanna að teljast
góðir. Hagen og Jensen skoruðu fimm mörk hvor fyrir Norðmenn en hjá
Ungverjum var Eles allt í öllu og skoraði tíu mörk.
Lítill möguleiki hjá Sviss
Sviss sigraði Úkraínu, 20-17, á heimavelli og eru litlar likur á því að
þetta forskot nægi Svisslendingum fyrir síðari leikinn í Úkraínu á
laugardag. Baumgartner skoraði sex mörk fyrir Sviss en hjá Úkraínu
skoraði Velykky 10 mörk. Tékkland lagði Portúgal, 19-15, i Pilsen. Póliand
sigraði Þýskland, 23-22, en nokkra sterka leikmenn vantaði í þýska liðið.
Siðari leikurinn verður í Lúbeck um næstu helgi. Danir töpuðu með
fjögurra marka mun, 26-22, fyrir Júgóslövum og eiga því erfiðan leik fyrir
hnnrtnm í Danmnrkn á snnnnHao -JKS
Guðrún fjórða
Guðrún Arnaraottir varð
fjórða í 400 m grindahlaupi á
móti í Jena í Þýskalandi um
helgina. Guðrún hljóp á 56,94
sek. en sigurvegari varð Sandra
Glover frá Bandaríkjunum á
55,24 sek.
Mesta athygli á mótinu vakti
árangur Kúbumannsins Ivans
Pedroso í langstökki. Hann
stökk 8,65 m, það lengsta sem
hann hefur stokkið síðan 1996.
Annar varð landi Pedrosos, Luis
Meliz, og stökk hann 8,43 m.
Fleiri Kúbverjar voru einnig í
sviðsljósinu. Lisset Cuza stökk
6,99 m í langstökkinu og vann
hina reyndu Heike Drechsler
og Emeterio. Gonzalez vann
spjótkastið með 87,12 metra kasti
í síðustu umferð.
Myriam Mani frá Kamerún
kom sterk inn í 100 m hlaupið á
mótinu, vann hlaupið á 11,01
sek. og setti kamerúnskt met.
Bailey af
stað aftur
Donovan Bailey, fyrrverandi
heimsmethafi og núverandi
ólympíumeistari í 100 m hlaupi,
er kominn á brautina að nýju
eftir langvarandi meiðsli. Hann
tók þátt í móti i Bedford á
Englandi þar sem hann mætti
sterkum hópi heimamanna.
Bailey var þó nokkuð stífur á
brautinni, hljóp á 10,27 sek. og
varð annar á eftir Skotanum Ian
Mackie sem hljóp á 10,24 sek. og
er einnig að ná sér af meiðslum.
Þriðji í hlaupinu varð hinn
sautján ára gamli heimsmeistari
unglinga, Mark Lewis-Francis, á
10,29 sek.
Ferðaþreyta gæti hafa haft
eitthvað að segja meö árangur
Baileys en ferðin til Bedford frá
Atlanta tók hann 20 tíma í stað
þeirra sjö sem hún að öllu eðli-
legu hefði tekiö. Bailey segist
ætla að komast rólega af stað inn
á keppnisvöllinn. -ÓK