Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2000, Síða 15
15
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
r>v
Hagsýni
Sumarbústaður í sveit:
Holl sumarlandsins
- fjölbreytnin er mikil og verö eftir því
Mikið er að gera um þessar
mundir hjá þeim aðilum sem
smíða og selja sumarbústaði. Ým-
ist er um að ræða innlenda eða
innflutta framleiðslu og af nógu að
taka. DV leitaði af handahófi til
nokkurra þessara aðila til að gefa
fólki örlitla hugmynd um hvað
málið snýst.
Kröfur fólks eru mismunandi og
gæði húsanna og verð einnig mjög
breytilegt. Ráðlegast er því að gera
vandlega samanburð út frá eigin
forsendum á verði og gæðum áður
en ráðist er í húsakaup af þessu
tagi.
Heföbundin íslensk smíði
Borgarhús hf. á Minni-Borg í
Grímsnesi er eitt fjölmargra fyrir-
tækja sem framleiða sumarbústaði
á hefðbundinn hátt. Þeir afhenda þá
á ýmsum byggingarstigum, en þá
alltaf fullbúna að utan. Algengast er
að þeir séu fluttir samsettir á end-
anlegan grunn. Sem dæmi, þá er fer-
metraverð á fullbúnum bústað án
svefnlofts um 86 þúsund krónur. Þá
er ekki meðtalinn kostnaður við að
flytja hann á endanlegan stað. Fer-
metraverð í slíkum bústað fokheld-
um en fullbúnum að utan er um 55
þúsund krónur. Með svefnlofti er
fermetraverðið á einangruðum og
klæddum bústað um 95 þúsund
krónur. Sjötiu fermetra hús af þess-
ari gerð getur því kostað, tilbúið við
verksmiðjuvegg, ríflega 6,6 milljónir
króna.
Norsk smíði
- íslensk hönnun
Reimar Charlesson er einn þeirra
sem um árabil hafa selt íslending-
um sumarhús undir nafninu RC-
hús. Bæði er þar um hefðbundin
sumarhús að ræða og íbúðarhús
samkvæmt ströngustu kröfum.
Reimar segir hugmyndina að þess-
um húsum eiga rætur í norsk-ís-
lensku timburhúsunum sem reist
voru á ýmsum stöðum hér á landi
um og eftir aldamótin 1900. Þeirra á
meðal má nefna Ráðherrabústaðinn
Lesendum svarað
Sumarbústaöir.
Mikiö framboð er af hverskyns sumarhúsum, bæöi sem framleiddum
hérlendis og erlendis.
við Tjamargötu sem upphaflega var
reistur á Flateyri. Slík hús hafa
stundum verið nefnd „katalóghús",
þar sem efnað var niður í þau í Nor-
egi og þau flutt ósamsett, tilsniðin
með númeruðum viðum til islands.
Nýju RC-húsin eru hönnuð hér á
landi samkvæmt hugmyndum
kaupenda. Þau em síðan löguð að
ströngum kröfum og stöðlum timb-
Timbur
Hægvaxinn viöur meö þéttum árhringjum þykir
eftirsóknarvert efni til húsageröar.
urframleiðanda í Noregi og efnað í
þau úr hægvaxinni fum. Það þýðir
að timbrið er þétt í sér, vel þurrk-
að og kvistalítið. Húsin em seld á
ýmsum byggingarstigum. Sem
dæmi um verð, þá kostar 73 fer-
metra hús sem er hæð og ris með
einum kvisti uppsett á byggingar-
stað um 8,3 milljónir króna. Þar af
má gera ráð fyrir að uppsetning
kosti um 500
þúsund krónur.
Sama hús upp-
sett en einungis
fullfrágengið að
utan kostar
rúmar 5,7 millj-
ónir króna. Fyr-
ir utan þetta
verð er síöan
kostnaður við
sökkla og lóð.
Einingunum í
húsið fylgir allt
sem til þarf svo
hægt sé að
klára smíðina,
hvort heldur
eru naglar eða
annað.
Innflutt bjálkahús
Visthús að Klöpp í Reykholtsdal
í Borgarflrði flytur inn bjálkahús
frá Finnlandi og Eistlandi. Húsin
koma niðursniðin tilbúin til upp-
setningar. Ekki er alltaf talin þörf
á að einangra þessi hús nema í loft
og gólf.
Guðjón Kristjánsson, eigamdi
Visthúsa, segist vera búinn að
kynna sér bjálkahús síðastliðin sjö
ár. Hann segir flnnsku húsin gerð
úr Lapplandsfuru sem er mun
harðari, þéttari í sér og hægvaxn-
ari en ræktuð fura af suðlægari
slóðum. Guðjón segir mikilvægt í
þessum efnum að vera svolítið sér-
vitur og láta ekki rétta sér hvað
sem er.
Fermetraverð í þessum húsum
uppsettum er um 50 til 60 þúsund
krónur og ræðst m.a. af þykkt
bjálkanna. Þá er verið að miða við
brúttóstærð á húsi með svefnlofti sé
um 90 fermetrar. Sökklar geta kost-
að frá hálfri til eina milljón króna.
Það þýðir að húsið, uppsett með
sökklum, gæti kostað í kringum 5
milljónir króna fyrir utan innrétt-
ingar, lagnir og lóö.
Byko í Kópavogi flytur einnig inn
finnsk bjálkahús, svokölluð Art-
ichouse. Timbrið er einnig seinvax-
in og þétt fura frá Lapplandi. Sig-
urður Ingólfsson sölumaður segir
útlit og húsagerðir af margvíslegum
toga sem og þykkt og lögun
bjálkanna. Þau eru afgreidd á ýms-
um byggingarstigum allt eftir
óskum kaupenda.
Sem dæmi um verð á sliku húsi
sem kallast Teno 98, gerð 1, þá kostar
efnið i það með hurðum og gluggum
komið á hafnarbakka í Reykjavík um
2.840.000. Er þá miðað við 140 millí-
metra þykka bjálka, Þá er eftir að
velja þakefni, taka tillit til flutnings á
byggingarstað, uppsetning, grunnur,
lóð, innréttingar, lagnir og einangrun
ef menn velja slíkt. Þetta hús er með
40,6 fermetra neðri hæð, 28,6 fm efri
hæð, 11,6 fm svölum og 16,4 fm ver-
önd undir þaki. -HKr.
Vanskil á gjöldum í hússjóð:
Lesendur geta sent stuttar og gagnoröar
spurningar á netfangiö dvritst@ff.is
og merkt þær hagsýni.
Best að semja við banka
Gjaldkeri i húsfélagi hafði sam-
band vegna vanskila á gjöldum í
hússjóð.
„Ég tók nýlega viö starfi gjaldkera í
húsfélaginu minu. Þaó hefur verið mik-
ið um aðfólk greiði hússjóðinn seint án
þess að stjórnin hafi gert neitt i því.
Sumir hafa jafnvel verió með ógreidda
seðla í sex mánuói. Ég vil helst ekki aó
þetta sé svona, mér fmnst það ekki
sanngjarnt gagnvart þeim sem alltaf
greiða á réttum tíma. Hvemig teljiö þió
hjá Húsráóum rétt aó húsfelagið bregð-
ist viö ógreiddum hússjóösgjöldum?"
Fanny Kristín Tryggvadóttir,
framkvæmdastjóri Húsráða, svarar.
Það er vissulega ósanngjamt gagn-
vart öðrum í húsfélaginu að sumir kom-
ist upp með að greiða ekki í hússjóð svo
mánuðum skipti. Ef inneign er í hús-
sjóði fara reikningar ekki i vanskil en
þetta leiðir vitaskuld til þess að aðrir
íbúar hússins greiða reikningana fyrir
þá sem ekki standa í skilum. Ef hússjóð-
urinn stendur tæpt getur vel farið svo
að ekki sé til fjármagn til að greiða út-
gjöld vegna reksturs hússins. Þá falla
dráttarvextir og annar vanskilakostnað-
ur á alla íbúana, einnig þá sem alltaf
greiða sinn hlut i rekstrinum á réttum
tíma.
Gjöld í sameiginlegan hússjóð hafa
sérstöðu að því leyti að fari þau í van-
skil eignast húsfélagið eða aðrir eigend-
ur lögveð í eignarhluta þess sem skuld-
ar. Lögveðið tryggir þannig að krafan
fáist greidd því lögveð felur í sér að
krafan (ásamt vöxtum og innheimtu-
kostnaði) gengur fyrir öðrum kröfum ef
eignin er seld nauöungarsölu. Hins veg-
ar er mikilvægt að benda á að lögveð
þetta fellur niður innan árs frá stofii-
un þess ef því er ekki fylgt eftir með lög-
sókn eða því lýst við nauðungarsölu.
Það heyrir m.a. undir skyldur stjóm-
ar að innheimta hjá eigendum hlutdeild
þeirra í sameiginlegum kostnaði. Stjóm-
in skal varðveita og ávaxta fjármuni
húsfélagsins á ábatasaman og tryggan
hátt. Þegar stjóm húsfélags lætur undir
höfuð leggjast að setja vanskil í inn-
heimtu er hún að taka þá áhættu að lög-
veðskröfúr falli niður og krafan inn-
heimtist ekki. Fari svo fellur þessi
kostnaður að sjálfsögðu á alla íbúa húss-
.ins. Dæmi em um að húsfélög hafl
þannig tapað háum fjárhæðum vegna
þess að lögveð féllu niður og kröfúr
fengust ekki greiddar.
Þegar rætt er um að setja vanskiia-
kröfur í lögfræðiinnheimtu koma gjam-
an upp ákveðnar mótbárur hjá þeim
sem að málinu koma:
1. Fólki flnnst það hörkuleg aðgerð
að setja vanskil í lögfræðiinnheimtu.
En hvers vegna ættu íbúar fjölbýlishúsa
að þurfa að greiða reikningana fyrir ná-
granna sína sem ekki standa i skilum?
2. Gjaldkerinn í húsfélaginu vill
ekki vera í þeirri stöðu að ákveða
hvenær vanskil „nágrannans“ eru
sett í innheimtu. Það á heldur ekki að
vera hans hlutverk að ákveða það og
þurfa að svara fyrir slíkar ákvarðanir.
Eðlilegast er að húsfúndur ákveði
hvenær vanskil á að setja í innheimtu,
eitt gangi yfir alla og gjaldkerinn hafi
engin afskipti af þessu ferli (nema um
alveg sérstakar aðstæður sé að ræða og
þá sé það ákvörðun stjómar hverju
sinni). Reynslan sýnir að vanskil
minnka þegar meðferð þessara mála er
i fóstum farvegi.
3. Fólk telur að þvi fylgi mikill
kostnaður að setja kröfur í inn-
heimtu. Það er skuldarinn sem þarf að
greiða kostnað við innheimtu, ekki
kröfúhaflnn (húsfélagið). Ýmsir inn-
heimtuaðilar bjóða mikinn afslátt af
innheimtukostnaði að því tilskildu að
vanskilakröfur séu ekki allt of gamlar
og þær greiðist innan ákveðins tíma.
Bregðist fólk þvi fljótt við er kostnaður
við innheimtuna ekki hár enda era
þessar kröfúr almennt fremur lágar.
Hér getur hlutverk gjaldkera og hús-
stjómar verið að ná sem hagstæðustum
samningum um innheimtukostnað og
kemur það skuldurum til góða.
Mikilvægt er að rekstur húsfélagsins
sé í góðum farvegi á öllum sviðum
þannig að hagsmuna heildarinnar sé
gætt í hvívetna. Einn þáttur í því er að
skynsamlega sé farið með vanskil í hús-
sjóði. Best væri raunar ef húsfélagið
gæti gert samning við bankann sinn um
að kröfur færa sjálfkrafa í innheimtu
eftir ákveöinn tíma (nema um alveg sér-
stakar aðstæður væri að ræða). Þannig
væri tryggt að kröfur fengjust greiddar,
kostnaður við innheimtu væri lágmark-
aður, gjaldkerar þyrftu ekki að hafa af-
skipti af þessum málum og vanskil yrðu
að öllum likindum minni.
Að mörgu að hyggja:
Rotþró er
hluti af
dæminu
- standa rétt að
uppsetningu
Að ýmsu er að hyggja við byggingu
sumarhúsa og þar eru skolpmálin ekki
síst mikilvæg. Borgarplast framleiðir
m.a. rotþrær fyrir sumarbústaði. Þar
fengust þær upplýsingar að minnsta
rotþró sem framleidd væri tæki 1500
lítra. Slík þró er talin duga fyrir hefð-
bundna sumarbústaðamotkun fjög-
urra til fimm manna fjölskyldu. Verð á
slíkri þró með vsk. er 45.700 krónur. Ef
mikil notkun er á sumarbústaðnum
getur verið ráðlegt að taka stærri rot-
þró. 1800 lítra þró kostar t.d. um 54.000
krónur. Miklu skiptir að farið sé að
leiðbeiningum framleiðanda við upp-
setningu. Ef það er gert á þróin að vera
viðhaldsfrí. Sápu er algjörlega bannað
að setja í rotþrær þar sem hún drepur
gerla sem annast niðurbrot úrgangs í
þrónni. Leiða þarf allt sápuvatn fram
hjá þrónni. Ef rétt er staðið að öllu á
þróin að mestu að hreinsa sig sjálf. Þó
geta aðstæður verið þannig að dæla
þurfi úr henni á tveggja til þriggja ára
fresti og þá er vert að hugsa fýrir að-
gengi dælubíls. -HKr.
40 tonna
bjálkahús
Trjábolirnir í bjálkahúsum eru
massamiklir og hús sem er 50 til 60
fermetrar að grunnfleti og með
svefnlofti getur verið 30 til 40 tonn
að þyngd. Guðjón Kristjánsson, eig-
andi Visthúsa í Reykholtsdal, segir
þennan mikla timburmassa tempra
hita og rakasveiflur, en skilyrði sé
að á viðinn sé ekki borið annað en
náttúruleg efni eins og viðarolíur.
Guðjón mælir með bývaxi innan á
veggi, en plastefni eyðileggi öndun-
arhæfileika viðarins. Hann segir að
samkvæmt kólnunartölum bygging-
arreglugerða þyrfti heilsárs íbúðar-
hús að vera með 33 sentímetra
þykka bjálka. Slíkt er þó yfirleitt
ekki gert og 204 millímetra bjálka
telur Guðjón vel boðlega i heilsárs-
hús án útveggjaeinangrunar. Það er
þá háð mati byggingarfulltrúa á
hverjum stað hvort slíkt er leyft.
Hann segir að reynslan og rann-
sóknir sýni þó að varmaþörfin í
slíku húsi sé um 50% minni en
kólnunartala gefi til kynna. -HKr.
•PIÐ •
til kl. 21.00
á fímmtudögum!
LKC*\
M I SEl/lll
R T H 6 SISR
UPPLÝSIHGASÍMl 588 7788 SKRIFSTOFUSÍMI 568 9200