Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2000, Page 28
32
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
* Tilvera DV
Allt frá því Sandra Bullock vann
það sér til frægðar að keyra strætis-
vagninn í Speed hefur hún verið í
miklu uppáhaldi í Hollywood. Hún
er hin dæmigerða ameríska mið-
stéttarstúlka, fogur og skemmtileg
og er laus við að vera á milli tann-
anna á slúðurpressunni. Það hefur
þó stundum farið í taugamar á
henni hvemig hún er meðhöndluð í
íjölmiðlum, staðreyndin er bara sú
að það er fátt í fari hennar sem ekki
er hægt að líka við.
Sandra Bullock, sem er að hálfu
þýsk, fæddist 26. júlí 1964. Faðir
hennar John er raddþjálfari fyrir
óperusöngvara og móðir hennar
Helga var óperusöngvari. Hún á
eina systur Gesine. Vegna starfa
foreldra sinna var mikill flækingur
á Söndru þegar hún var ung en hún
eyddi siðan unglingsárunum í Arl-
ington þar sem hún gekk í skóla.
Árið 1985 þótti henni nóg komið af
skólalærdómi og hætti í háskóla til
að komast í skemmtanabransann.
Eftir nokkur smáhlutverk í kvik-
myndum var henni óvænt boðið
hlutverk í sjónvarpsseríu, sem
byggð var á kvikmyndinni Working
Girl, var hún í hlutverki sem
Melanie Griffith lék í myndinni.
Ekki varð þessi sería langlíf og eftir
margar prufur og mörg nei fékk
hún loks stórt hlutverk á móti Sylv-
ester Stallone í Demolation Man.
Speed gerði svo gæfumuninn fyrir
hana. Hér á eftir fer listi yfir þær
kvikmyndir sem Bullock hefur leik-
ið í:
Love Potion no. 9, 1992
When the Party’s Over, 1992
The Vanishing, 1993
Demolation Man, 1993
Wrestling Emest Hemingway,
1993
The Thing Called Love, 1993
Speed, 1994
While You Were Sleeping, 1995
The Net, 1995
A Time To Kill, 1996
Two By Sea, 1996
In Love and War, 1996
Speed 2: Cruise Control, Hope
Floats, 1998
Practical magic, 1998
Forces of Nature, 1999
28 Days, 2000
Gun Shy, 2000
Jon Voight leikur Roosevelt
Tökur eru hafnar á stórmynd-
inni Pearl Harbour, í leikstjóm
Michaels Bay (The Rock, Arma-
geddon), sem
sjálfsagt á eftir
að verða ein
dýrasta kvik-
mynd sögunnar.
Framleiðandi
myndarinnar er
Jerry Bruck-
heimer, sem hef-
ur í mörgu að
snúast þess dag-
Jon Voight ana, en hann er
Bregdur sér / einnig framleið-
hlutverk andi Gone in 60
Franklins Delano Seconds sem
Roosevelts. frumsýnd verð-
ur í allt að 3000
sýningarsölum í Bandaríkjunum
um helgina. Pearl Harbour fjallar
um tvo herflugmenn og vini (Ben
Affieck og Josh Hartnett) sem
verða ástfangnir af hjúkrunarkonu
(Kate Beckinsale). Aðrir leikarar
eru meðal annars Cuba Gooding
jr., Alec Baldwin, Tom Sizemoore
og Jon Voight sem leikur Franklin
Delano Roosevelt Bandaríkja-
forseta. Þegar upptökur hófust var
ekki búið að ráða I hlutverk forset-
ans og var Voight því sá síðasti
sem kom inn í stóran hóp þekktra
leikara.
Símaklefinn
Eftir að Joel Schumacher hafði
gengið lengi á eftir Jim Carrey til
að fá hann til að leika í nýjustu
kvikmynd sinni, Phone Booth, lét
Carrey undan og víst er að hann
tekur nokkra áhættu því um er að
ræða spennudrama um mann sem
fer inn í símaklefa. Um leið og
hann tekur tólið upp heyrist rödd
sem segir: „Ef þú leggur á verður
þú skotinn."
Ekki er ná-
kvæmlega vitað
hvernig
Schumacher út-
færir söguna en
víst er að Carrey
þarf að dvelja
mestan hluta
tímans við tökur
á myndinni inni
Jlm Carrey í símaklefa. Pho-
Eyöir miklum tíma ne Booth verður
ísímaklefa ekki dýr kvik-
í næstu mynd í fram-
kvikmynd sinni. ieiðslu og gerð
af óháðum fram-
leiðendum og Schumacher því trúr
þeirri köllun sinni að gera jöfnum
höndum dýrar (Batman and Robin,
8 mm) og ódýrar kvikmyndir
(Flawless).
Golfhetjur
Robert Redford er þessa dagana
að ljúka við nýjustu kvikmynd
sina, The Legend of Bagger
Vance, mynd sem hann bara leik-
stýrir. Um er að ræða verkefni sem
Redford hefur lengi verið með í
gangi og gerist
stuttu eftir fyrri
heimsstyrjöld-
ina. Stríðshetju
(Matt Damon) er
boðiö að leika
við tvo mestu
golfleikara
heimsins, Bobby
Jones og Walter
Hagen. Til að
koma lagi á
spilamennsku
sína fær hann til
liðs við sig dul-
arfullan kylfu-
svein, Bagger Vance (WUl Smith).
Myndin er tengd saman af sögu-
manni sem Jack Lemmon túlkar. í
stóru hlutverki er einnig Charlize
Theron. Upprunalega ætlaði Red-
ford sjálfur að leika stríðshetjuna
en árin liðu og ekkert varð af fram-
kvæmdinni og Redford varð of
gamall fyrir hlutverkið. Áætlað er
að frumsýna myndina 3. nóvem-
ber.
The Legend of
Bagger Vance
Will Smith og
Matt Damon
leika tvo kylfinga.
Búin að klessukeyra brúðarbíl systur sinnar
Sandra Bullock í hlutverki drykkfelldrar konu sem send er i afvötnun.
Boiler Room í Bíóhöllinni:
Ungir ríkir menn sem
vilja verða ríkari
Stjörnubíó sýnir 28 daga:
Afleiðingar
„ljúfa lífsins“
28 dagar (28 Days) sem Stjörnu-
bíó frumsýnir á morgun er er grá-
glettin með Söndru Bullock í aðal-
hlutverkinu. Leikur hún Gwen
Cummings sem er vinsæll rithöf-
undur. Hún er mikið fyrir sam-
kvæmislffið, liflr hátt og er hrókur
alls fagnaðar og á við áfengis-
vandamál að stríða. Þegar Gwen er
boðið í brúðkaupsveislu systur
sinnar mætir hún blindfull, eyði-
leggur brúðkaupstertu systur sinn-
ar með því að detta á hana og sest
drukkin undir stýri og klessukeyr-
ir glæsibifreið sem systirin notar
sem brúðarbil. Það þarf því engan
að undra að Gwen er send í 28 daga
afvötnun. Hún kynnist skrautlegu
fólki sem kyrjar sér til heilsubótar.
Þetta er ekki aðeins mikill tíma-
punktur í lífi hennar í sambandi
við brennivin. Hún þarf að læra að
afneita ýmsum nútímaþægindum,
til að mynda farsíma - þarf sem
sagt að endurmeta líf sitt frá
grunni. Hún kynnist litriku fólki
meðan hún er í afvötnun, m.a.
homaboltakappanum Eddie Ger-
hardt, Roshanda og Bobbie Jean.
Ráðgjafi Gwen, Cornell (Steve
Buscemi) er ákveðinn að hjálpa
henni að meta sjálfa sig betur.
Villtir dagar að baki
Komin í afvötnun
og brosir framan í lífiö.
Smám saman fer Gwen að kynnast
lífmu betur og það sem meira er,
hún verður sáttari við sjálfa sig
eftir að hafa upplifað ýmislegt á 28
dögum.
Auk Söndru Bullock leika í
myndinni Viggo Mortensen, Dom-
inic West, Diane Ladd, Elizabeth
Perkins og Steve Buscemi. Leik-
stjóri er Betty Thomas sem meðal
annars leikstýrði Dr. Doolittle og
The Brady Bunch Movie. -HK
Þar sem allt snyst um penlnga
Ben Afieck og Giovanni Ribisi í hlutverkum sínum í Boiler Room.
ur hans gildnar. Seth er samt ekki
eins og hinir. Hann er forvitinn og
leyfir sér að kanna hvaðan peningarn-
ir koma. í kjölfarið tekur hann slæm-
ar ákvarðanir og stendur brátt í þeim
sporum að vera í orðsins fyllstu merk-
ingu í „heitu herbergi".
Auk Giovanni Ribisi leika í mynd-
inni Nia Long, Ben Afleck, Vin Diesel,
Nicky Katt og Ron Rifkin. Leikstjóri
er Ben Younger sem einnig skrifar
handritið og er Boiler Room hans
fyrsta kvikmynd. Byggir hann mynd
sína á reynslu þegar hann vann sem
lærlingur hjá verðbréfastofu.
Giovanni Ribisi hefur leikið í mörg-
um kvikmyndum og fer vegur hans
vaxandi þessa dagana. Hann vakti
fyrst athygli fyrir leik sinn í hinni
umtöluðu subUrbia. Kvikmyndir sem
hann hefur leikið í eru meðal annars
Lost Highway, Saving Private Ryan,
The Postman, Mod Squad og The
Other Sister. -HK
Heita herbergið eða Boiler Room er
nafn á stað þar sem ungir menn, yfir-
leitt ríkir, verða milljónamæringar á
einni nóttu. Þetta er heimur hinna
ungu metnaðarfullu og miskunnar-
lausu fjármáladrengja í verðbréfa-
heiminum sem ekkert er heilagt.
Drengir sem lifa
hátt og eiga fullt
af „leikfóngum“.
Inn í þennan
heim kemur hinn
nítján ára Seth
Davis (Giovanni
Ribbisi) sem hafði
hætt í mennta-
skóla og kemst
hann fljótt í
innsta hringinn í
„Heita herberg-
inu“. Seth á sér
_______ tvenns konar tak-
mark í lífinu. Að
vinna sér inn eina milljón dollara og
öðlast virðingu föður síns. Hingað til
hefur honum ekki tekist þetta. í fyrstu
er hann mjög ánægður með hlutskipti
sitt innan um aðra stráka sem hafa
sömu markmið. Hann stenst verö-
bréfasalaprófið með glans og vinnur
myrkranna á milli og bankareikning-
Nia Long
Ritarinn í heita
herberginu.