Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2000, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2000 r>v 9 Rekstraraðilar við Þingvallavatn töpuðu miklu vegna lokaðra vega um helgina: Við förum fram i á skaðabætur - segir framkvæmdastjóri Nesbúðar - ekkert að gera í Þjónustumiðstöðinni Rekstraraðilar Nesbúðar, Þjónustumiðstöðvarinnar á Þingvöllum og a.m.k. 3-4 aðrir aðilar sem stunda við- skipti við Þingvallavatn hyggjast leita réttar síns gagnvart því að þeir töpuðu miklu rekstrarfé þegar veg- ir voru lokaðir að þjónustu- stöðum þeirra - án sérstaks fyrirvara til þeirra sjálfra - á meðan Kristnihátíð stóð um helgina. Framkvæmda- stjóri Nesbúðar segir að málið sé þegar í skoðun hjá lögfræðingum og fari örugg- lega fyrir héraðsdóm verði honum ekki bættur hund- ruða þúsunda króna skaði. Júlíus Hafstein, fram- kvæmdastjóri Kristnihátið- ar, segist álfarið vísa þess- um erindum til ríkislög- reglustjóra. Það embætti hefði ákveðið að loka vegun- um. „Við ætlum að fara fram á skaðabætur. Auk þess er þetta mikill dónaskapur. Ég las um þetta í bæklingi að allar leiðir til mín yrðu lok- aðar á meðan hátiðinni stæði. Menn höfðu ekki svo mikið sem fyrir því að hringja í okkur og láta vita,“ segir Hörður Ingi Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Nesbúðar að Nesja- völlum, þar sem fjölsótt kaffihlað- borð eru m.a. á sunnudögum. Þá, eins og á laugardag, voru bæði Grafningsvegur og Nesjavallavegur lokaðir almennri umferð. Þóra Einarsdóttir, rekstraraðili Þjónustumiðstöðvarinnar á Þing- völlum, sagði í samtali við DV í gær að fyrstu helgina í júli kæmi yfír- leitt um 10 prósent af rekstrarfé stöðvarinnar inn. Þetta væri fjöl- sóttasta helgin fyrir utan verslunar- mannahelgina. Fyrir síðustu helgi DV-MYNDIR ÞÖK Tapaði hundruðum þúsunda um helgina Hörður Ingi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Nesbúöar, segir engan hafa tilkynnt sér um að loka ætti öllum leiðum að veitingabúð hans við Nesjavelli meðan á Kristnihátíð stæði. Hann hafí fyrir tilviljun séð það í bæklingi. höfðu girðingar hins vegar verið reistar við þjónustumiðstöðina þannig að viðskiptavinir komu nán- ast ekki á staðinn. Þóra sagði eins og Hörður að henni hefði aldrei ver- ið tilkynnt um lokun að stað sínum af neinum - hvorki Kristnihátíðar- nefnd né lögreglu. „Ég ætla að leita réttar míns,“ sagði Þóra. Þegar DV spurði Júlíus Hafstein hvort það væri óviðeigandi að aðil- ar sem undirbúa hátíð mánuðum saman fyrir hundruð milljónir króna hefðu samband með einhverj- um hætti við þá sem mest snúast í rekstri við Þingvallavatn sagði hann: „Ég visa þessu alfarið á ríkislög- reglustjóra.“ Jón Bjartmarz, talsmaður ríkis- lögreglustjóra, segir að þarna hafi lögreglan verið að framfylgja ákveðnu umferðarskipulagi. „Þetta skipulag hafði verið lagt fyrir forsætisráðuneytið og það samþykkt þar - það skipulag sem umferðamefndin lagði til. Ef fólk telur sig hafa orðið fyrir skaða verða lögfræðingar að vinna úr því og slíkt verður sótt með hefðbundn- um aðferðum," sagði Jón. -Ótt Fréttir Bara lottóbíllinn í heimsókn Við Þjónustumiðstöðina á Þingvöllum á meðan Kristnihátíð stóð. Ekkert að gera. HJ0LAB0RÐ gadsM.].1.! MEÐ SKUFFUM F4C0M-Plastbakkar Oruggur staður fyrir fyrip Öll verkfæri «C0M verkfœrin. * og allt á sínum stað! ..það sem fagmaðurinn notar! i S 0 I. i s 0 r ArmúU 17, lOB Reykjavík Sími: 533 1334 fax.- 5GB 0499 StértetlM vegna opnunar á einum glæsilegasta sýhingarsal í Evrópu á stillanlegum rumum! Þú eyðir 1/3 hluta ævinnar í rúminu! Með því einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stellingu sem er. Með öðrum takka færð þú nudd sem þú getur stillt eftir eigin þörfum og látið þreytuna eftir eril dagsins líða úr þér. Með stillanlegu rúmunum frá Betra Bak er allt gert til þess að hjálpa þér að ná hámarks slökun og þannig dýpri og betri svefni. ...gerðu kröfur um heilsu & þægindi Einnig fylgir öllum einbreiðum, stillanlegum rúmum 20” sjónvarp frá BT í júlí. prffffff f§tmm Éffl' ffefra RAMi ) Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 Opib: Món. - fös kl. 10-18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.