Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2000, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2000, Blaðsíða 57
65 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000 ÐV Tilvera Afmælisbörn Bacon 42 ára Bandaríski kvikmyndaleikarinn Kevin Bacon heldur væntanlega upp á daginn þótt afmæli hans teljist vart stórafmæli. Ferill Bacons í kvikmynd- um er orðinn langur en kappinn hefur leikið í 47 myndum. Meðal þeirra frægustu eru vafalaust Apollo, JFK, Sleepers, Flatliners og Murder in the First en í þeirri síðastnefndu þótti leikarinn fara á kostum. Hanks 44 ára Stórleikarinn Tom Hanks fæddist í bænum Concord í Kalifomíu þenn- an dag árið 1956. Hanks hefur eins og flestir vita leikið í hverri stór- myndinni á fætur annarri. Hann hef- ur þrisvar sinnum fengið ósk- arsverðlaun; fyrir myndimar Saving Private Ryan, Forrest Gump og Philadelphiu. Ails hefur Hanks leik- ið í 38 kvikmyndum og hann er einn best launaði leikari Hollywood fyrr og siðar. Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.): Spa sunnudagsins: Þér verður mest úr verki fyrri hluta dags- ins. Dagurinn verður afar skemmtilegur og lánið leikiu- við þig á sviði viðskipta. pa mánudagsins: Þú færð að heyra gagnrýni varðandi það hvemig þú verð tima þínum. Þér finnst þú hafa mikið að gera en sumum finnst þeir vera vanræktir. Hrúturinn (21. mars-19. aprili: ■ Þó að þú sért ekki alveg viss um að það sem þú » ert að gera sé rétt verð- ur það sem þú velur þér til góðs þeg- ar til lengri tima er litið. Gildir fyrir sunnudagirm 9. júfí og mánudaginn 10. júfí Spá mánudagsins: Þú færð fréttir sem þú átt eftir að vera mjög hugsandi yfir. Þú verð- ur að vega og meta stöðu þina áður en þú hefst nokkuð að. Tvíburarnlr (21. maí-21. iúníi: Fólk treystir á þig og leit- ^Jf ar ráða hjá þér um hug- \ myndir og útfærslu þeirra. Þú þarft að sýna skilning og þolinmæði. Spá mánudagsins: Vinnan gengur fyrir þessa dagana enda mikið um að vera. Þetta kem- ur niður á heimllislífinu og kann að valda smávægilegum deilum. Bogamaður (22. nóv.-21. des.i: Spa sunnudagsins: Þú þarft að gæta þagmælsku W varðandi verkefhi sem þú \ vinnur að. Annars er hætt við að minni árangur náist en ella. Þú ættir að hlusta betur á það sem aðrir segja. Vertu hreinskilinn og heiðarlegur í samskipfum við aðra. Óheiðarleiki borgar sig aldrei og kemur mönnum í koll. Kvöldið verður fjörugt. Rskamir (19. febr.-20. mars): Spá sunnudagsins: 'Þú ert óþarflega varkár gagnvart tillögum ann- arra en þær eru aikiýstárlegar. Þú myndir samþykkja þær ef þú þyrðir að taka áhættu. Ferðalag liggur í lofttnu og hlakk- ar þú mikið til. Ef þú ert jákvæð- ur mun ferðin verða afar skemmtileg og eftirminnileg. Nautið (20. apríl-20. maí.l: Spá sunnudagsins: Þú gerir einhverjum greiða sem átti alis ekki von á slíku. Þetta veldur skemmtilegri uppákomu sem þú átt eftir að minnast í nokkum tíma. Spá mánudagsins: Þaö verður mikið um að vera fýrri hluta dagsins og þú tekur ef til vUl þátt í þvf að skipuleggja viðburð í félagslíf- inu. Kvöldið verður afar eftirminnilegt. Krabbinn 122. iúní-22. íúiíi: Spá mánudagsins: Þú færð einhveija ósk þína uppfyllta, verið getur að gamall draumur sé loks- ins að rætast. Þetta veldur þér mikilli gleði en jafnframt nokkurri undrun. Liónið (23. iúií- 22. aeústl: Spá sunnudagsins: ' Þú ert orðin þreyttur á venjubundnum verkefhum og ert fremur eirðarlaus. Þú ættir að breyta til og fara að gera eitthvað alveg nýtt. Spa manudagsins: Vinabönd styrkjast á næstunni. Þú finnur fyrir stuðningi við áform þín en jafnframt er ætlast til þess af þér að þú sýnir öðnun áhuga og stuðning. Vogin (23. sept.-23. okt.l: Oyr Mikið rót er á tilfinning- \ J um þinum og þér gengur 'J ekki vel að taka ákvarðanir. Mannamót lífgar upp á dagiiin. Spa sunnudagsins: l Næstu dagar verða sér- staklega skemmtilegir. Það er ekki allt sem sýn- ist og þó að einhveijum virðist ganga betur en þér á ákveðnum vettvangi. Spa manudagsins: Þú ættir að láta meira að þér kveða í félagsllfmu. Vertu óhræddur við að láta skoðanir þínar í ljós og koma hugmyndum þínum á framfæri. Mevian (23. áeúst-22. seot.I: Spá sunnudagsins: y(VV 1 'YXM Þaðermikiðumaðveraí ^fcskemmtanalífmu um þess- ' ar mundir. Morgunninn verður rólegur og notalegur og þér gefst tími til að hugsa málin. Spá mánudagsins: Eitthvað sem þú hefur beðið eftir lengi verður loksins að veruleika. Þú átt ekki eftir að verða fyrir vonbrigð- um. Rómantíkin liggur í loftinu. Sporðdreki (24. okt.-21. nnv.I: t\\’ Spá sunnudagsins: Vinir þínir skipuleggja ^helgarferð og mikil sam- * staða ríkir meðal hóps- ins. Félagslifið tekur mikið af tíma þfnum en þein tíma er vel varið. Spá mánudagsins: Þú átt rólegan dag í vændum sem einkennist af góðum samskiptum við fjölskyldu og ástvini. Róman- tíkin liggur í lofttnu. Stelngeitin (22. des.-i9. ian.): Spá sunnudagsins: Þú kynnist einhverjum nýjum á næstunni og það veittr þér ný tæki- færi í einkaliftnu. Þú ættir að íhuga breytingar í félagslífinu. Spá mánudagsins: Þú kynnist manneskju sem á eftir að hafa djúpstæð áhrif á þig. Rómantíkin liggur í loftinu og þú ert afar ánægður með gang mála. Kaupfélagsstjórinn Guðrún Jóhannsdóttir „Ég hef sannfærst um að vagga Samvinnuhreyfmgarinnar er hér við Hrútafjörð og hvergi annars staðar. “ S Guðrún Jóhannsdóttir, kaupfélagsstjóri á Borðevri: Útilokað að íata sér leiðast DV, HÓLMAVÍK: „Hrútfiörðurinn hefur alltaf höfð- að tii mín. Þetta var nánast eina sveitin sem rætt var um á bemsku- og æskuárum mínum og ég kynntist, hér eru því rætur mínar,“ segir Guð- rún Jóhannsdóttir sem nýlega tók við starfi kaupfélagsstjóra hjá Kaup- félagi Hrútfirðinga á Borðeyri. Hún er ein af örfáum konum sem gegnt hafa starfi kaupfélagssfióra en þó ekki sú fyrsta hjá Kaupfélagi Hrút- firðinga því Þórhalla Snæþórsdóttir frá Giisárteigi á Héraði var þar kaup- félagsstjóri um þriggja ára skeið fyr- ir um áratug síðan. „Það hefur trúlega ekki skemmt fyrir að bakgrunnur minn er héðan þó ég hafi ekki verið kunnug héma þegar ég kom,“ segir Guðrún. „For- eldrar mínir eru Kristjana Sigríður Pálsdóttir og Jóhann Valdimar Guð- mundsson, sem er fæddur i Gilhaga, en það býli er löngu komið í eyði. Hann ólst upp á Fögrubrekku hjá Halldóri Ólafssyni og konu hans Guðrúnu Finnbogadóttur og ber ég nafn hennar. Guðmundur afi hyggöi hús á Borðeyri um 1930, sem nefnt var Knallettan. Hann var hagleiks- maður og sagður vel hagmæltur og hef ég verið að safna vísum sem hann gerði og nokkuð orðið ágengt. Ein er svona: Örtfrá landi ýtti sér, uppi er band og dula, Kolla Brandur kominn er, í kápufjandann gula. Guðrún er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún fylgdi síðasta ár- gangi þeirrar kynslóðar sem tók svo- nefnt landspróf. Þaðan lá leiðin í Verslunarskólann og síðan í banka- mannaskólann. Hún hefur starfað hjá Búnaðarbankanum mörg undan- farin ár eða allt þar til hún tók við kaupfélagsstjórastarfmu. Fyrsta árið segir hún fer í að kynnast fólki og umhverfi og komast inn i flesta þætti þessa nýja starfs en á þeim stutta tima sem hún hefur dvalið hafi hún komist að því að sér- hvert tbnabil hafi sín úrlausnarefni. „Starfið er mun fiölbreyttara en ég átti von á og mjög frábrugðið þvi sem ég hef áður gert. Ég tel að minnsta kosti eitt ár þurfi til að sjá allar hlið- ar þess og alveg útilokað er að láta sér leiðast." Hún segir byggðina trausta þetta sé að meirihluta til bændasamfélag og búin sem eru aðal- lega sauðfiárbú séu frekar stór. Úr öskustónni Kaupfélag Hrútfirðinga er stofnað 1899 og því með elstu kaupfélögum landsins. „Engu að síður hefur það haldið velli og það ánægjulegasta er að það er heldur að færa út kvíam- ar,“ segir Guðrún. Félagsverslun við Húnaflóa, og á Borðeyri sérstaklega, á sér langa og sérstaka sögu. Fyrir tæpum þremur árum var með veglegum hætti minnst 150 ára verslunarsögu Borð- eyrar. Pétur Eggerts sem réttilega er nefndur faðir Borðeyrar lét reisa þar verslunarhús um 1860. Það gekk und- ir nafninu faktorshús en föst verslun hefst um það leyti. Þessi bygging ásamt fleirum verður eign þeirra sem á eftir koma svo sem hins vin- sæla Richard P. Riis kaupmanns sem sest þar að 1891. Minjar þessarar gömlu og afar merkilegu verslunar- Hún segir að til gamans megi geta þess að kandísinn hafi verið nánast eina munaðarvaran sem menn veittu sér fyrr á tíð. Þá eins og nú hefur þótt notalegt að gera sér sætt í munni. „Frá þvi að ég kom hingað hafa heimamenn einkum Georg Jón Jónsson á Kjörseyri, formaður kaup- félagsstjórnar, sem er með fróðari mönnum hér um verslunarsöguna fært fyrir því rök sem mér þykja svo trúverðug að ég hef sannfærst um að vagga Samvinnuhreyfmgarinnar er hér við Hrútafiörð og hvergi annars staðar.“ Stærsta þáttinn í starfsemi kaupfé- lagsins segir Guðrún vera útvegun á rekstrarvöru fyrir bændur. Umsvif í Opnun gistihússins í gamla símstöðvarhúsinu Starfsmenn fagna opnun gistihússins en að sögn Guðrúnar er saga þess hin merkilegasta og óvíða í sýslunni hafí fieira fólk verið heimilisfast fyrr á tíð. sögu eru til staðar á Borðeyri. Riis- húsið, sem er eitt elsta hús landsins og er friðlýst, hefur á seinni árum fengið andlitslyftingu. Húsið er í eigu kaupfélagsins og auk verslunarsög- unnar sem þar verður varðveitt verð- ur einnig komið upp safni gamalla mynda, m.a. frá þeim tíma sem Borð- eyri var aðalútflutningshöfn fólks af Norður- og Vesturlandi sem fluttu til Vesturheims á síðustu öld. „Það hef- ur nánast risið úr öskustó, það var orðið illa farið þegar endurreisnar- starfið hófst en burðarviðir þess höfðu staðið af sér tímans álag og reyndust traustir. Það hefur nú feng- ið sitt upprunalega ytra útlit. Starf- andi er áhugahópur um framkvæmd- imar en fyrir honum fer Sverrrir Bjömsson í Brautarholti en Bragi Skúlason, húsasmíðameistari frá Ljótunnarstöðum, hefur haft umsjá framkvæmdanna á hendi.“ Hrútafjörður og Samvinnuhreyfíngin Guðrún segir að fljótlega komi að endurbótum að innan en hússins bíði veglegt og verðugt hlutverk í framtíð- inni, þ.á m. að þar verði vörslustað- ur allrar verslunarsögu svæðisins. Verslunarbækumar eru merk heim- ild um viðskiptahætti fyrri tíma. sambandi við starfsemi Veitingaskál- ans í Brú hafi sifellt verið að aukast og í mánuðinum verður opnuð svo- nefnd hraðbúð í Brú. Stærsti þáttur- inn til framtíðar litið segir Guðrún vera opnun gistihúss í gamla sím- stöðvarhúsinu við Brú. Guðrún segir einnig sögu símstöðvarhússins vera hina merkilegustu, og óvíða í sýsl- unni hafi fleira fólk verið heimilis- fast i einu húsi en á velgengnisárum þess. „Að auki var þar fólk tíma- bundið við störf, einkum stúlkur. Koma þeirra og dvöl urðu meðal ann- ars til þess að bjarga svæðinu frá of mikilli hreinræktun," segir Guðrún Jóhannsdóttir. -GF Landsins mesta úrval af unaðsvörum ástarlífsins. Myndbönd í ótrúlegu úrvali. Opiö mán.-fös. 10-11 laug.10-16 Fákafeni 9 • S. 553 1300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.