Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Page 2
2 MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 DV Fréttir Erlent ferðafólk féflett við komuna til íslands: Leigubíll á hund- rað þúsund kall - frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur „Við vorum fimm sem deildum leigubíl frá Keflavíkurflugvelli og borguðum 20.000 krónur hvert,“ segir Richard Bird, ferðamaður frá Englandi. Richard og kona hans, Jan- ice Bird, komu til landsins síðastlið- inn fimmtudag frá Heathrow. Eins og fram hefur komið í fréttum undan- farið stendur nú yfir verkfall Sleipn- is, félags rútubílstjóra. Hefur það valdið þónokkrum vandræðum fyrir ferðafólk sem þarf að komast frá flug- vellinum í Keflavík til Reykjavíkur eða annarra áfangastaða. Sannkallað gullæði hefur runnið á leigubilstjóra og meðal annars hafa brotist út slags- mál á milli reykviskra leigubílstjóra og keflviskra, en síðamefndir töldu sig hafa einkarétt á akstri frá flug- vellinum. „Okkur hafði verið sagt það i Englandi að hér væru rútubílstjórar í verkfalli og að leigubílar krefðust hærri greiðslu en eðlilegt væri. Því tókum við því feginshendi er við komum út úr flugstöðinni og finnsk eða dönsk hjón sem þama voru buðu okkur að deila með sér leigubíl," seg- ir Richard. í hópinn slóst einnig níræð ensk kona sem búsett er á Sri Lanka. „Bíltúrinn var ekki langur, senni- lega svona 45 mínútur. Hin hjónin fóru út fyrst og þeim brá ansi mikið í brún þegar þau fengu verðið upp- gefið,“ heldur Richard áfram og tek- ur fram að ekki hafi verið kveikt á gjaldmælinum. Aliir ferðamennirnir borguðu verðið sem leigubílstjórinn setti upp. Richard gat ekki nefnt leigubílafyrir- tækið en kvaðst þess fullviss að um raunverulegan leigubíl hefði verið að ræða. „Þetta var 6 sæta bíll, ljósrauð- brúnn að lit.“ Þau hjónin voru að öðru leyti ánægð með dvöl sína á ís- landi, þrátt fyrir þessa mjög svo óá- nægjulegu byrjun. Venjulegt verð á leigubíl frá Kefla- víkurflugvelli mun vera 5000 krónur fyrir 4 saman i bíl en 8000 þegar um er að ræða 6 manna bíl. -hds DV-MYND JAK Leigubílaokur Hjónin Janice og Richard Bird voru að vonum svekkt yfir þeirri himinháu fúlgu sem þau voru látin greiöa fyrir leiguþíl frá Keflavíkurflugvelli til borgarinnar. Jóhannes Páll fordæmir göngu samkynhneigðra í Róm: Fordæmir sköpunarverk Guðs B Ógeðfelld aðgerð Júlíus Vífill Ingv- arsson, fulltrúi minnihluta Sjáifstæð- isflokks í borgar- stjórn Reykjavíkur, segir aðgerðir yfir- valda gegn villikött- um vera ógeðfellda og flármunum sem fór í átakið illa varið. Þrjátíu köttum var fargað eftir aðgerðir yfirvaida til að fækka viiliköttum í borginni og var kostnaður við hvern kött um 100.000 krónur. Vitnar um brottkast islenskur sjómaður segist tilbúinn að vitna um að hafa tekið þátt í veiði- þjófnaði og brottkasti á tveimur togur- um sem stunduðu veiðar í landhelgi ís- lands. Skipin tilheyra tveimur af stærstu útgerðarfyrirtækjum landsins. Sjónvarpið greindi frá. Ófrískar flugfreyjur Óvenju margar flugfreyjur hjá Flug- leiðum eru ófrískar um þessar mundir og hefur félagið orðið að bregðast sér- staklega við þeim kringumstæðum. Alls eru 50 flugfreyjur með bami eða í barneignarleyfi þessa dagana en það lætur nærri að vera um 10% af flug- þjónaflota Flugleiða. Hefur félagið orð- ið að bæta við starfsfólki vegna þessa. Dagur sagði frá. Aukin afföll Afloll á nýjasta flokki húsbréfa hafa aukist úr 9,04% í 14,34% það sem af er mánuð- inum. Guðmund- ur Bjarnason, framkvæmda- stjóri íbúðalána- sjóðs, segir að þessi miklu afloll endurspegli hátt vaxtastig í landinu. Mbl. greindi frá. - segir Heimir Már Pétursson „Það er sorg- legt að æðsti maður kaþ- ólsku kirkjunn- ar, sem er ein stærsta kirkja í heimi, skuli hafa svo fom- aldarlega sýn á hlutina og í raun og veru fordæma hluta sköpunarverks þess Guðs sem hann segist páfi: -Vill ekki göngu samkynhneigöra. trúa á,“ segir Heimir Már Pét- ursson, fram- kvæmdastjóri Hinsegin daga en það er nafn hinnar íslensku Gay Pride hátíð- ar sem haldin verður i ágúst. Jóhannes Páll páfi fordæmdi í ræðu á sunnudag göngu samkyn- Heimir Már Pét- ursson: -Sorglegt. hneigðra i Róm á laugardag. DV-MYND KK Sparkaði í gegnum rúðu Lögregla og sjúkrabíll voru kölluö aö veitingahúsinu Kaffi Austurstræti aöfara- nótt sunnudagsins. Þar haföi ungur maöur gert sér lítiö fyrir og sparkaö af al- efli í gegnum rúöu á hurö. Maöurinn lét sér ekki aö nægja aö sparka heldur notaöi einnig hendurnar meö þeim afleiöingum aö hann skarst illa bæöi á höndum og fótum. Ekki er Ijóst hvað manninum gekk til meö háttalagi sínu en hann var fluttur á slysadeild Landspítalans til aöhlynningar. Það voru Inter Pride, alþjóða- samtök samkynhneigðra, sem stóðu fyrir göngunni á laugardag en tilefni göngunnar var síðasti dagur Gay Pride-hátíðar samtak- anna sem staðið hafði í viku. Há- tíðin var fyrsta alþjóðlega hátíð homma og lesbía i Evrópu og var þátttaka mjög góð en um 70.000 manns tóku þátt. Vegna þrýstings frá Páfagarði drógu borgaryfirvöld í Róm stuðning sinn við gönguna til baka en leyfðu engu að síður að hún færi fram. Páfi var harðorður i ræðu sinni og lýsti fyrir hönd kaþólsku kirkjunnar yfir leiða vegna þess að gangan hefði verið leyfð á hinu merka ári 2000 í borg- inni sem er kaþólikkum um allan heim svo kær. Hann lét einnig í það skína að Páfagarður væri óá- nægður með að yfirvöld í Róma- borg hefðu leyft gönguna. Væri Kristur eins? Aðspuröur sagðist Heimir Már telja að viðhorf kaþólsku kirkjunn- ar á íslandi hljóti að vera svipað viðhorfi Páfa þar eð kaþólska kirkjan er mjög miðstýrð. Kaþólski biskupinn á Islandi vildi ekki tjá sig um málið við DV. „Það virðist skorta á að kirkjunn- ar menn velti því fyrir sér hvort Kristur væri eins og þeir ef hann kæmi aftur hingað eins og boðað er að hann muni gera,“ segir Heimir Már sem er ekki heldur fyllilega sáttur við afstöðu íslensku þjóðkirkjunnar til samkyn- hneigðra. “Þjóökirkjan setti sig þó aila vega ekki upp á móti staðfestri samvist samkynhneigðra. Hins vegar hefur eitthvað vafist fyrir kirkjunni að blessa samvist sam- kynhneigðra," sagði Heimir Már. Herra Karl Sigurbjömsson, bisk- up íslands, vildi hvorki tjá sig um skoðanir sinar á orðum páfa né heldur viðhorf þjóðkirkjunnar er DV hafði samband við hann. -hds Húsavík: Erlendir ferða- menn í bílveltu Tveir erlendir ferðamenn sluppu með skrekkinn þegar bíla- leigubíll þeirra valt út af þjóðveg- inum um Hólssand, skammt neð- an Grímsstaða á Fjöllinn, á föstu- dagskvöldið. Að sögn lögreglunn- ar á Húsavik virðist bílstjórinn hafa misst stjóm á bílnum, sem ekið var eftir malarvegi, með þeim afleiðingum að hann enda- sentist út af og valt. Bílstjóri og farþegi vom báðir fluttir á sjúkra- húsið á Húsavík en meiðsl þeirra reyndust minni háttar. Bílaleigu- bíllinn er hins vegar mikið skemmdur. -aþ Gagnrýnir öryggisgæslu Formaður Landssambands lögreglu- manna gagnrýnir hvernig staðið var að mönnun í öryggisgæslu á Kristnihá- tíðinni á Þingvöllum um siðustu heigi. Þar voru björgunarsveitarmenn í vest- um merktum lögreglu og ekkert gert til að greina þá að frá lögreglumönnum. Sjónvarpið greindi frá. 88% vijja lækkun Stór hluti þjóðarinnar er á þvi að ríkið eigi að draga úr sköttum sínum á bensini, ef marka má niðurstöður í spurningaleik Dags á Vísi.is. 88% þeirra 1.300 netveija sem þátt tóku svöruðu spumingunni játandi en 12% vildu engin ríkisafskipti í bensínmál- um. Gagnagrunnur um hesta Bændasamtök íslands og FEIF hafa tekið upp samstarf um að móta alþjóð- legan gagnagrunn um íslenska hest- inn. Talið er að þessi gagnagrunnur verði sá fyrsti sinnar tegundar í heim- inum og endurspeglar verkefnið þann mikla áhuga sem ríkir um íslenska hestinn i fjölmörgum löndum og glöggt kemur fram á landsmóti 2000. Landbúnaðarvörur verstar Bpjj^ I | smæð markaðarins ---iU sem að sjálfsögðu þýðir hærra innkaupsverð. Þetta eru höfúðástæðurnar því álagning í smá- sölu hér á landi er sambærileg eða jafnvel lægri, i prósentum talið, miðað við þau lönd sem verðkönnunin nær til,“ sagði Jóhannes í Bónusi í samtali við Dag um hátt verðlag hérlendis. -hdm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.