Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 7
7
MÁNUDAGUR 10. JÚLl 2000___________________________________________________________________________
DV Fréttir
Haukadalur eftir Suðurlandsskjálftana:
Talsverðar breytingar
á hverasvæðinu
Talsverðar breytingar eru merkjan-
legar á jarðhitasvæðinu í Haukadal
eftir að jarðskjálftar skóku Suðurland.
Þetta er alþekkt frá fyrri Suðurlands-
skjálftum og staðfestir söguna. Nú er
Geysir sjálfur farinn að skvetta úr sér
án þess að nokkuð sé gert til að koma
honum af stað og talsverðar breyting-
ar hafa orðið á öðrum hverum á svæð-
inu. „Gosin eru nokkuð óregluleg í
Geysi og enn sem komið er er ekkert
hægt að segja til um hvort þetta verð-
ur til frambúðar. Á næstu dögum
verður svæðið mælt og þá kemur í ljós
hve miklar breytingar hafa orðið,“
sagði Þórir Sigurðsson, umsjónarmað-
ur Geysissvæðisins. Hann segir breyt-
ingarnar á svæðinu koma misjafnlega
fram, sumir hverir hafi þomað en aðr-
ir séu mun virkari, eins og Konungs-
hver og litli Geysir auk Geysis sjálfs.
Breytingarnar á Geysissvæðinu
hafa ekki haft nein áhrif á Strokk.
Hann gýs reglulega, gestum svæðisins
til ánægju. Margir sem stóðu við
Strokk gjóuðu þó augunum reglulega
til Geysis í von um að hann léti á sér
kræla en undanfarna daga hefur svo
sannarlega verið að lifna yfir þeim
gamla.
Þegar mælingar verða gerðar á
Geysissvæðinu á næstunni koma sér
vel þær umfangsmiklu mælingar sem
gerðar vom þegar Geysir var látinn
gjósa fyrr í sumar. Ljóst er að þær
mælingar eiga eftir að verða mikils
virði i að komast að hve miklar breyt-
ingar hafa orðið þar eftir skjálftana.
-NH
DV-MYNDIR NH
Strokkur heldur sínu striki
Talsverðar breytingar hafa oröiö á
hverum í Haukadal, sumir eru vatns-
meiri en aörir kraftminni.
Grand Cherokee Limited, árg. 2000, 4,7 vél,
quadro drive, sóllúga, ekinn 17 þús. km, 10xcd
magasín.
Verð 4.450 þús.
Chevrolet Silverado SLT 4x4, árg. '98, turbo 5,5
dísil, ekinn 86 þús. km. Verð 2.900 þús.
Ræsir hf.,
Skúlagötu 59,
verður þjónustuaðili með
varahluti og viðgerðarþjónustu.
BÍLAR
Chevrolet pick-up S-10 4x4, árg.
'95.Verð 980 þús.
Toyota HiLux V-6 e. cab ‘91.
Verð 980.000.
Toyota touring 4x4, árg. '92.
Verð 550 þús.
Dodge Caravan, árg. '98, 3,3 vél, 5 d., ekinn 39
þús. km, centrallæsingar, rafdr. rúður og speglar.
Air con, control, cruise. Verð 2.100 þús.
Laramy SLT PlusDodge Ram Quad Cab 2500,
árg. 2000, 4x4, dísil, leðurklæddur, CD.
Nýr bíll. Verð kr. 3.950.000.
VW Passat '99, basicline, álfelgur,
spoiler. Verð 1.550.000.
Mazda station 4x4, árg. '93.
Verð 450 þús.
Dodge Dakota árg. 2000, ssk., V8-vél, 4,7, 4x4,
4 dyra. Nýr bíll. Verð 2.950.000.
Bílaverkstæði
Friðfinns Halldórssonar,
Funahöfða, s. 587-1480,
hefur sérhæft sig í
þjónustu á þessum bifreiðum
Egill Vilhjálmsson, Smiðjuvegi 1,
sími 564 5000
,1-dagaf
Whirlp®?'
* Whirlpool
Eldavél, 4 keramikhellur
m. hraðhitun, 671 blástursofn.
Verð áður: 94.700 kr.
Whirlpool
Frystikista, 258 I (nettó),
á hjólum, orkuflokkur E.
Verft áður: 38.900 kr.
1- . •
Whirlpoóll
Kæli- og frystiskápur,
kælir 204 I, frystir 96
Verð áður: 67.900 kr.
Whirlpool
Þvottavél, 5 kg. 1200/600
snúninga, ullarvagga, 13 kerfi.
Verð áður: 68.400 kr.
Whirlpool
Uppþvottavél, 12 manna,
3 kerfi, skolun, hljóðlát.
Verð áðun 57.800 kr.
Heimilistæki
SÆTÚNi 8 - SÍMI 569 1500
umboðsmenn um land allt
Verö miöast við staðgreiðslu.