Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Qupperneq 7
7 MÁNUDAGUR 10. JÚLl 2000___________________________________________________________________________ DV Fréttir Haukadalur eftir Suðurlandsskjálftana: Talsverðar breytingar á hverasvæðinu Talsverðar breytingar eru merkjan- legar á jarðhitasvæðinu í Haukadal eftir að jarðskjálftar skóku Suðurland. Þetta er alþekkt frá fyrri Suðurlands- skjálftum og staðfestir söguna. Nú er Geysir sjálfur farinn að skvetta úr sér án þess að nokkuð sé gert til að koma honum af stað og talsverðar breyting- ar hafa orðið á öðrum hverum á svæð- inu. „Gosin eru nokkuð óregluleg í Geysi og enn sem komið er er ekkert hægt að segja til um hvort þetta verð- ur til frambúðar. Á næstu dögum verður svæðið mælt og þá kemur í ljós hve miklar breytingar hafa orðið,“ sagði Þórir Sigurðsson, umsjónarmað- ur Geysissvæðisins. Hann segir breyt- ingarnar á svæðinu koma misjafnlega fram, sumir hverir hafi þomað en aðr- ir séu mun virkari, eins og Konungs- hver og litli Geysir auk Geysis sjálfs. Breytingarnar á Geysissvæðinu hafa ekki haft nein áhrif á Strokk. Hann gýs reglulega, gestum svæðisins til ánægju. Margir sem stóðu við Strokk gjóuðu þó augunum reglulega til Geysis í von um að hann léti á sér kræla en undanfarna daga hefur svo sannarlega verið að lifna yfir þeim gamla. Þegar mælingar verða gerðar á Geysissvæðinu á næstunni koma sér vel þær umfangsmiklu mælingar sem gerðar vom þegar Geysir var látinn gjósa fyrr í sumar. Ljóst er að þær mælingar eiga eftir að verða mikils virði i að komast að hve miklar breyt- ingar hafa orðið þar eftir skjálftana. -NH DV-MYNDIR NH Strokkur heldur sínu striki Talsverðar breytingar hafa oröiö á hverum í Haukadal, sumir eru vatns- meiri en aörir kraftminni. Grand Cherokee Limited, árg. 2000, 4,7 vél, quadro drive, sóllúga, ekinn 17 þús. km, 10xcd magasín. Verð 4.450 þús. Chevrolet Silverado SLT 4x4, árg. '98, turbo 5,5 dísil, ekinn 86 þús. km. Verð 2.900 þús. Ræsir hf., Skúlagötu 59, verður þjónustuaðili með varahluti og viðgerðarþjónustu. BÍLAR Chevrolet pick-up S-10 4x4, árg. '95.Verð 980 þús. Toyota HiLux V-6 e. cab ‘91. Verð 980.000. Toyota touring 4x4, árg. '92. Verð 550 þús. Dodge Caravan, árg. '98, 3,3 vél, 5 d., ekinn 39 þús. km, centrallæsingar, rafdr. rúður og speglar. Air con, control, cruise. Verð 2.100 þús. Laramy SLT PlusDodge Ram Quad Cab 2500, árg. 2000, 4x4, dísil, leðurklæddur, CD. Nýr bíll. Verð kr. 3.950.000. VW Passat '99, basicline, álfelgur, spoiler. Verð 1.550.000. Mazda station 4x4, árg. '93. Verð 450 þús. Dodge Dakota árg. 2000, ssk., V8-vél, 4,7, 4x4, 4 dyra. Nýr bíll. Verð 2.950.000. Bílaverkstæði Friðfinns Halldórssonar, Funahöfða, s. 587-1480, hefur sérhæft sig í þjónustu á þessum bifreiðum Egill Vilhjálmsson, Smiðjuvegi 1, sími 564 5000 ,1-dagaf Whirlp®?' * Whirlpool Eldavél, 4 keramikhellur m. hraðhitun, 671 blástursofn. Verð áður: 94.700 kr. Whirlpool Frystikista, 258 I (nettó), á hjólum, orkuflokkur E. Verft áður: 38.900 kr. 1- . • Whirlpoóll Kæli- og frystiskápur, kælir 204 I, frystir 96 Verð áður: 67.900 kr. Whirlpool Þvottavél, 5 kg. 1200/600 snúninga, ullarvagga, 13 kerfi. Verð áður: 68.400 kr. Whirlpool Uppþvottavél, 12 manna, 3 kerfi, skolun, hljóðlát. Verð áðun 57.800 kr. Heimilistæki SÆTÚNi 8 - SÍMI 569 1500 umboðsmenn um land allt Verö miöast við staðgreiðslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.