Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 DV 11 Fréttir Skagfirðingar vilja virkja - fjölmenni á fundi um virkjunarkosti DV, SKAGAFIRÐI:___________________ Greinilegt er að mikiU áhugi er fyrir þeim áformum sem uppi eru um virkjun í Héraðsvötnum og Jök- ulsá i Skagafirði. Salurinn í Ljós- heimum var þéttsetinn nýlega á fundi sem haldinn var um virkjun- arkostina. Fram kom í máli þingmanna kjör- dæmisins og sveitarstjórnarmanna að leggja beri mikla áherslu á að orka frá væntanlegri virkjun eða virkjunum fari að drjúgum hluta til atvinnuuppbyggingar í Skagaflrði. Þorkell Helgason orkumálastjóri benti hins vegar á að þegar að breytt skipulag í raforkugeiranum, sem beindist að aukinni samkeppni um orkudreifmgu, yrði komið til framkvæmda að 2 til 5 árum liðn- um, vildu virkjunaraðilar að sjálf- sögðu fá sem hagkvæmast verð fyr- ir orkuna, og myndu væntanlega ekki afhenda heimaaðilum i Skaga- firði raforkuna á einhverjum vildar- kjörum. Verkefnisstjóm Rammaáætlunar og Landvemdar kynntu nýtingu vatnsafls og jarðvarma í Skagafírði á fundinum. Verkefnishópurinn er skipaður 15 manns víðs vegar af landinu, með fjölbreytta þekkingu og bakgrunn. Verkefnið er að leggja mat á virkjunarkosti og flokka þá. Rammaáætlunin fjallar m.a. um náttúm- og náttúruvemd, útivist og hlunnindi, þjóðhagsmál og orku- lindir. Verkefnishópurinn fjallar um eina 25 virkjunarkosti í landinu og er ætlað að vinnan taki um 12 ár. Þær virkjanir sem nú eru í sigtinu eru í forgangi hvað úttekt varðar og t.d. er stefnt að því að drög að skýrslum vegna Kárahnjúkavirkj- unar verði til taks á næsta ári. Hagkvæmir virkjunarkostir Fram kom í máli Sveinbjöms Bjömssonar, formanns verkefnis- stjómar, að enn eru miklir mögu- leikar ónýttir til virkjunar raforku hér á landi. Þeir em áætlaðir 57 gígavattstundir en búið er að virkja 7,5 gvs. En þó verkefnishópurinn raði virkjunarkostunum, er það virkjunaraðilinn sem ákveður hvar er virkjað. Pétur Þórðarson, fulitrúi Héraðs- vatna ehf., skýrði frá undirbúnings- vinnu vegna Villinganesvirkjunar en áætlað er að umhverfismat vegna virkjunarinnar liggi fyrir um næstu áramót. Áætlað er að þá muni líða allt að eitt og hálft ár áður en unnt verði að bjóða virkjun- ina út og að því gefnu er það í fyrsta lagi að fimm áram liðnum sem orka kæmi frá Viilinganesvirkjun. Páll Pétursson, alþingismaður og ráðherra, bað Skagfirðinga að vera þess minnuga hvernig farið hefði með Blönduvirkjun, orkan hefði verið flutt burtu og virkjunin orðið tiltölulega lítil lyftistöng fyrir at- vinnulífið í héraðinu. Páll sagði jafnframt að Skagflrðingar hlytu að vera einhuga um ViUinganesvirkj- un, en bað þá að geyma Skatastaða- virkjun. -ÞÁ Þú nærð alltaf sambandi við okkur! 550 5000 © alla virka daga kl. 9-22 sunnudaga kl. 16-22 dvaugl@ff.is hvenær sólarhringslns sem er 550 5000 Sýningar- og reynsluakstursbílar Á STÓRLÆKKUÐU VERÐI! FYRSTIR KOMA FYRSTIR FA Þeir sem hafa hraðar hendur geta nú tryggt sér bíl af bestu gerð á enn lægra verði. í nokkra daga seljum við með góðum afslætti nokkra bíla sem notaðir hafa verið á sýningum og í reynsluakstri. Fyrstir koma, fyrstir fá. Ekki missa af þessu tækifæri. IfjglJlglÍ HYunoni BÍLAR AF BESTU GERO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.