Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Síða 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
I>V
Bill Clinton
Ólíklegt þykir aö Clinton ákveói um
framhald tilraunanna.
Ógn við stöðug-
leika heimsins
íran hefur fordæmt tilraunir
Bandaríkjamanna með svokallað
eldflaugavarnarkerfi sem á að geta
grandað elflaugum á lofti. Sem
kunnugt er mistókst önnur tilraun
með eldflaugakerfið á laugardag
þegar misfórst að granda skotmark-
inu.
íran bætist þar með í hóp ríkja á
borð við Kína, Rússland og hluta
ríkja úr ríkjasambandi fyrrum Sov-
étríkja, CIS, sem gagnrýndu nýverið
harðlega tilraunir Bandaríkja-
manna með kerfið. í yfirlýsingu frá
írönskum stjómvöldum segir að
með tilraunum sínum stofni Banda-
rikin viökvæmum stöðugleika í ör-
yggismálum heimsins í hættu.
Eftir misheppnaða tilraun á laug-
ardag hefur Biil Clinton verið ráð-
lagt að lægja öldurnar og láta eftir-
manni sínum eftir að ákveða um
framhald tilraunanna.
Sjö manns létu lífiö í tveimur sprengingum í Suður-Rússlandi:
Aðskilnaðarsinnar
færa út kvíarnar
Sjö manns týndu lífi i tveimur
sprengingum í Suður Rússlandi ná-
lægt Tsjetsjeníu í gær. Hafa árásim-
ar kynt undir hræðslu manna að
tsjetsjenskir skæruliðar séu að færa
sig um set að nýju og valda með þvi
usla utan Tsjetsjeníu. Skemmst er
að minnast þess þegar fjöldi spreng-
inga varð í og við íbúðarhús í
Moskvu sem talið var að hefðu ver-
ið hefndaraðgerðir tsjetsjenskra að-
skilnaðarsinna fyrir hernaðarað-
gerðir Rússa í Tsjetsjeníu.
Samkvæmt Itar-Tass fréttastof-
unni létust fimm og sautján særðust
í sprengingu á aðalmarkaðstorginu
í bænum Vladíkavkaz en sama torg
komst í heimsfréttimar í mars í
fyrra þegar rúmlega 50 manns létust
í sprenginu þar og meira en 150
manns særðust.
Þá greindu rússneskir fjölmiðlar
frá því að tveir hefðu látist og tveir
særst í sprengingu sem varð í versl-
un í bænum Rostov sem liggur
norðar í Rússlandi. Tildrög urðu
með þeim hætti að starfsmaður í
versluninni reyndi að opna poka
sem einhver hafði skilið eftir en þar
hafði sprengjunni verið komið fyrir.
Mikil spenna hefur ríkt í Norður
Kákasus síðan sprengjur sprungu
síðastliðinn sunnudag þegar 33
týndu lífi, mestmegnis laganna
verðir. Var talið að þar hefðu
tsjetsjenskir aðskilnaðarsinnar ver-
ið að verki.
V*
slysstaö
Sjónvarpsstööin NTV sýndi sérfæöinga rússnesku lögreglunnar viö rústirnar
á markaöstorginu í Vladíkavkaz. Skemmst er aö minnast þess er sprengja
sprakk þar í mars í fyrra og varð 50 manns að bana og særöi 150.
BBÍi
Ánægður borgarstjóri
Borgarstjóri
Lundúna, Ken
Livingstone, sagðist
í gær ekki myndu
gefa kost á sér til
þingmennsku í
næstu kosningum
heldur einbeita sér
að borgarstjóra-
starfmu. Hefur hann fullan hug á að
halda borgarstjórastöðunni í a.m.k.
2 kjörtímabil.
Hótar viðskiptaþvingunum
„íslandsvinurinn" Paul Watson
ihugar að beita sér fyrir viðskipta-
þvingunum gegn Dönum fyrir af-
skipti þeirra af aðgerðum Sea
Shepherd við Færeyjar. Watson er
nú í skipinu Ocean Warrior innan
landhelgi Færeyja.
Grænland á kortinu
„Græniand er komið á kortið“ hjá
EB að því er fram kom í yfirlýsingu
forsætisráðherra Danmerkur, Pouls
Nyrups Rasmussens, í tilefni af vel
heppnaðri heimsókn Romanos
Prodis, fyrir hönd EB, til Grænlands.
Friðsamleg Óraníuganga
Ganga Óraníureglunnar um
stræti Portadown á Norður-Irlandi í
gær fór vel fram í alla staði og ekk-
ert bar á átökum sem einkennt hafa
göngumar síðastliðin ár. Venju
samkvæmt var mikill viðbúnaður á
meðan á göngunni stóð.
útbor
Fyrsta greiðslál
nóvember 2000
Lán í allt að
60 mánuði
A notuðum bílum
frá Ingvari Helgasyni hf. og Bílheimum ehf.
£3 Olí
Cir3n|rt-FvviSfji 1 1 -■ -ífrni FfFIOO