Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Page 14
14
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
Skoðun DV
Fannst þér kostnaðurinn við
Kristnihátíðina of mikill?
Anna Jóna Guðmundsdóttir framhalds-
skólakennari:
Nei, mér fannst þetta alveg þess
virði en komst því miöur ekki.
Sigurbjörn Óiafsson, er í sumarfríi:
Já, peningnum heföi betur veriö var-
ið í siöfræöi- og heimspekinám í
grunnskólum.
Gunnlaugur Magnússon fjármálastjóri:
Já, aö mínu mati var þetta of stór
hátíö til aö halda upp á kristnitöku.
Kristinn Hermannsson
matreiöslumaður:
Já, þetta var tóm vitleysa og alltof
mikill kostnaöur. Fénu heföi betur
veriö variö í skattalækkanir.
Eyjólfur Gunnarsson, vinnur í Álverinu:
Já, allt of mikill kostnaöur, þaö heföi
frekar átt aö minnka hallann á
sjúkrahúsunum og stytta biölistana
eftir aögeröum.
Jórunn Geirsdóttir:
Já, þaö heföi frekar átt aö hækka
launin í landinu.
Sjónvarpið á líka að sinna menningunni
Paö gerði þaö svo sannarlega á Þingvallahátíöinni.
'jl t ’ffr
F m, ^n
7 iflf’ W
S j ónvarp shátí ð
„Ég var á Þingvöllum
sunnudaginn 2. júlí og
hefði ég ekki fyrir nokkum
mun viljað missa af því að
hlýða á magnþmnginn tón-
listarflutninginn í þeirri
umgjörð sem Þingvellir
bjuggu honum. “
Á undanförnum
dögum hafa margir
velt því fyrir sér
hvað hafi valdið því
að ekki kom fleira
fólk til hátíðahald-
anna á Þingvöllum
um mánaðamótin
en raun bar vitni.
Á því eru án efa
margar skýringar,
en hitt er rétt sem
bent hefur verið á, að þeir listvið-
burðir sem þar var boðið upp á 1. og
2. júlí voru vandaðir og sumir stór-
brotnir.
Ég var á Þingvöllum sunnudaginn
2. jídí og hefði ég ekki fyrir nokkum
mun viljað missa af því að hlýða á
magnþrunginn tónlistarflutninginn í
þeirri umgjörð sem Þingvellir
bjuggu honum. Auðvitað verður
manni hugsað til þess, að sem flestir
hefðu þurft að njóta. Því fer hins veg-
ar fjarri aö þeir einir hafi notið sem
komu á Þingvöll og það má þakka
Sjónvarpinu. Sjónvarpið sýndi hvers
það var megnugt þessa daga og er
ástæða til að þakka fyrir vel unnin
verk.
Að undanfómu hefur RÚV nokkuð
átt undir högg að sækja. Manna á
meðal, og í fjölmiðlum, hefur Sjón-
varpið verið harðlega gagnrýnt fyrir
að láta ekki knattspymuna víkja 17.
júní þegar jarðskjálftarnir urðu á
Suðurlandi. Á það hefur verið bent
að til þess hefðum við ríkissjónvarp,
að það sinnti öryggis- og upplýsinga-
skyldum. Ég tek undir þessa gagn-
rýni og af viðbrögðum fréttastofu
Sjónvarps í seinni jarðskjálftahrin-
unni mátti greinilega ráða að þar á
bæ voru menn sama sinnis því þá
var vaktin vel staðin og til mikils
sóma. - Mistökin eru til að læra af
þeim og þegar það hefur gerst eins
og í þessu tilviki er mái að linni.
En Sjónvarpið á líka að sinna
menningunni og það gerði það svo
sannarlega á ÞingvaUahátíðinni.
Þótt hálf þjóðin mætti ekki á Þing-
völl eins og skipuleggjendur höfðu
gert sér vonir um fór hátiðin ekki
forgörðum hjá þeim sem heima sátu.
- Þökk sé Sjónvarpinu.
Ögmundur
Jónasson
alþm. skrifar:
Stóridómur 2000
Reynir Harðarson
skrifar:
Ég óska íslendingum til hamingju
með þann dóm sem þeir kváðu yfir
samkrulli stjómvalda og kirkju á
Þingvöllum í júlímánuði árið 2000. -
Von mín var sú að alþingismenn
sæju nú sóma sinn í því að skilja að
ríki og kirkju eftir 1000 ára valda-
tíma hennar. Sú von brást. En þá
kom almenningur til skjalanna og
tók af skarið með afdráttarlausum
hætti. Þótt yfnvöld reyni að klóra
yflr mistökin er ljóst að 5% aðsókn
hvorn daginn um sig verður að
túlka sem skýr skilaboð.
„En nú hefur dœmið snúist
við og þjóðin kveðið upp
sinn Stóradóm. Þjóðin hef-
ur augljóslega sagt sig úr
lögum við kirkjuna, þjóð
og kirkja er ekki eitt,
þjóðkirkjan er
úrelt þing. “
1 lok júnímánaðar 1564 samþykkti
Alþingi löggjöf sem fjallaöi um brot
í siðferðismálum er byggðist á
kristnu siðferði þess tíma og varð
til þess að dauðarefsing var tekin
upp á Þingvöllum, karlar voru háls-
höggnir og konum drekkt. Löggjöf
þessi kaUaðist Stóridómur.
Um síðustu helgi gengu prestar
þessa lands í skrúðgöngu um þessa
sömu velli og reyndu að breiða yfir
tengsl sín við þessa hörmulegu at-
burði.
En nú hefur dæmið snúist við og
þjóðin kveðið upp sinn Stóradóm.
Þjóðin hefur augljóslega sagt sig úr
lögum við kirkjuna, þjóð og kirkja
er ekki eitt, þjóðkirkjan er úrelt
þing.
Dagfari
Halló f jölskylda á Akureyri
Fréttir berast nú af því úr höfuðstað
Norðurlands, Akureyri að þar verði útihá-
tíðin Halló Akureyri ekki haldin um versl-
unarmannahelgina í ár. Þess i stað á að
bjóða upp á fjölskylduvæna hátíð og verði
hátíðin auglýst sem slík ætlar Akureyrar-
bær enn eitt árið að leggja peninga í þetta
verkefni. Þar er þó fyrst og fremst um að
ræða hátíð nokkurra veitinga- og verslunar-
manna sem hafa um verslunarmannahelgar
undanfarin ár mokað upp peningum úr vös-
um kófdrukkinna ungmenna.
Frægust var Halló-hátíðin árið 1996, en
það ár veltust dauðadrukkin og útúrdópuð
ungmenni um allan bæinn, ælandi með allt í
buxunum, eða þá að þau gerðu þarfir sínar í
húsagörðum virðulegra borgara á
Brekkunni sem auðvitað féll ekki í kramið. Ak
ureyringar, sem upp til hópa eru vandir að
virðingu sinni og lítið fyrir það að láta að-
komumenn af öllum mönnum „gera i garðana
sina“, hafa allt frá því litið Halló Akureyri
homauga og vilja flestir þetta fyrirbæri út i
hafsauga. Eitthvað hefur dregið úr unglinga-
drykkjunni síðan þetta gerðist áriö 1996, enda
hafa eflaust margir foreldrar bannað bömum sín-
um aðgang að gleðinni. Hins vegar er haft fyrir
satt að notkun fíkniefna hafi stóraukist og Hallóið
Þar er þó fyrst og fremst um að rœða
hátíð nokkurra veitinga- og verslunar-
manna sem hafa um verslunarmanna-
helgar undanfarin ár mokað upp pening-
um úr vösum kófdmkkinna ungmenna.
hafi verið sem stórvertíð fyrir þá sem slík efni
selja.
En nú á að snúa við blaðinu, segja þeir fyrir
norðan og stíla inn á að fá fjölskyldufólkið til bæj-
arins. Ef Dagfara misminnir ekki var hátíð-
in Halló Akureyri reyndar á síðasta ári aug-
lýst í fjölmiðlum sem fjölskylduhátíð og eitt-
hvað var rætt um fjölskylduna og skemmti-
legheitin árin næstu þar á undan. En menn
eru fljótir að gleyma. Dagfari var á fjöl-
skyldutjaldsvæði Akureyringa í Kjarnaskógi
um verslunarmannahelgina í fyrra og undi
reyndar hag sínum ágætlega þar. Hins vegar
fór hann að dæmi flestra sem þar dvöldu og
hætti sér ekki nálægt miðbænum fyrir sitt
litla líf. Þar vora unglingarnir að djamma á
fjölskylduhátíðinni Halló Akureyri og var
verið að nær allan sólarhringinn.
Þótt forráðamenn Akureyrarbæjar og
þeir aðrir sem að hátíðahaldi um verslunar-
mannahelgina ætla að koma tali mikið um
fjölskylduhátíð og fjölskylduvæna dagskrá
fylgja litlar útskýringar þeim orðum. Það eina
sem vitað er að sé ákveðið í skemmtanahaldi
um verslunarmannahelgina á Akureyri er að
góðar unglingahljómsveitir verða í Sjallanum
og gefið hefur verið út að unglingadansleikur
verði í KA-heimilinu. Hvort tveggja höfðar
sennifega mjög til fjölskyldufólks sem á leið um
Akureyri um verslunarmannahelgina, að mati
Akureyringa, eða hvað? ^ ,
Matvælin kosta mest hér
- Víkja tryggingaiðgjöldin fyrir
brauöveröinu?
Laun eða álögur
Jóhannes Einarsson skrifar:
Einkennileg eru rökin sem heyrast
frá helstu deiluaðilum þjóðarinnar
nú um stundir. Annars vegar vegna
yflrstandandi verkfalls bifreiðar-
stjóra og hins vegar út af hækkunum
iðgjalda tryggingafélaganna. - Sam-
tök iðnaðarins staðhæfa að fyrirtæki
innan þeirra samtaka geti engan veg-
inn staðist 30% launahækkun bifreið-
arstjóranna. Á sama tíma hækka
tryggingafélögin iðgjöld fólksbifreiða
um 30-60%, sem öllum bíleigendum
er gert skylt að greiða og eiga enga
undankomuleið til spamaðar (en það
eiga bUeigendur þó varðandi bensín-
verðhækkanir með því að draga úr
akstrinum). Eru þá launþegar svona
miklu betur settir en fyrirtæki innan
Samtaka atvinnulifsins, að þeir beri
þessar álögur bótalaust?
Gucci-úr tapaðist
B.K. skrifar:
Síðari hluta fimmtudags tapaði ég
armbandsúri af Gucci-gerð á svæðinu
Hávallagata-Ásvallagata niður að
gamla kirkjugarðinum eða i honum
sjálfum. Úrið er með grænum hring
og gulllitaðri festingu. Sá sem hugs-
anlega hefir fundið það er vinsamlega
beðinn um að hringja í síma 552 6222
tU kl. 13.00 og 551 4334 eftir það.
Fundarlaunum heitið.
Matvöruverð
Ólafur Stefánsson skrifar:
Mitt í umræðunni um iðgjaldahækk-
un tryggingafélaganna skýtur skyndi-
lega upp niðurstöðu könnunar á mat-
vælaverði í Reykjavík og fjórum öðr-
um borgum nágrannalandanna. Vissu-
lega uggvænlegar niðurstöður, sem nú
á að rekja tU innkaupsverðs erlendis
frá. Er hægt að líða það að t.d. brauð-
verð sé 1500% hærra hér en í London
og að flestar aðrar vömr séu um og
yfir 1000% dýrari hér en í nágranna-
löndunum? Manni dettur hins vegar i
hug hvers vegna niðurstöðum þessarar
könnunar skuli skeUt inn tU fjölmiðla
einmitt nú, þegar iðgjöld tryggingafé-
laganna em í hámæli og ekki útrædd.
Á markvisst að deyfa tryggingamálin
með þessum hætti? Og hver/hverjir
hafa slíkt vald hér á landi?
Tveir farnir.
- Tími mótæla runninn upp?
Þeir sömdu af sér
Hjörleifur skrifar:
Margir tala nú um að forystumenn
launþega hafi látið plata sig tU að
skrifa undir samninga með ákvæði
um uppsagnarfrest með jafn rúman
tíma og raun ber vitni, þ.e. á næsta
ári, ef forsendur breyttust (verðhækk-
anir, verðbólga o.s.frv.). Það er ekki
fyrr en á næsta ári sem leyfilegt er að
beita uppsagnarákvæðum. Það hefðu
auðvitað átt að vera 6 mánuðir, hið
mesta, helst 3 mánuðir. Það er ekki
nema von að hver verkalýðsleiðtog-
inn eftir annan vUji nú hoppa íyrir
borð og tryggja sig með riflegum
starfslokasamningum. - Á verkalýðs-
forustan að sleppa svona ódýrt frá
þessu? Er ekki timi til kominn að
launþegar taki sjálfir í taumana, með
raunhæfum mótmælum?
IPV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhrlng-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.