Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Side 7
7 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000___________________________ I>V Fréttir _________Sandkorn Garöar Örn Ulfarsson netfang: sandkorn@ff.is Mogginn biður griða Eins og fram hef- ur komið hefur Sig- urbjörn Einarsson biskup verið kærð- ur til Siðanefndar Prestafélagsins j vegna ósmekklegra ummæla sinna um i gagnrýnendur framkvæmdar Kristnihátíðarinnar. Sigurbjörn mun nú hafa fengið frest til mánaðamóta að gera nefndinni grein fyrir sjónar- miðum sínum í málinu. Morgunblað- inu, sem studdi Kristnihátíð til síð- asta blóðdropa, finnst „leiðinlegt að horfa upp á neikvæðar umræður" og bað biskupi griða í forystugrein um helgina. „Ekki væri úr vegi að leyfa einum merkasta andlega leiðtoga þjóðarinnar að vera í friði,“ sagði Mogginn. Skyldi manninum ekki leiðast að láta krossfesta sig? söng Megas. Skyldi biskupi þykja þörf á náðunarbeiðni Morgunblaðsins fyrir sina hönd? Láttu mig í friði, Paul! Allir vita ai kvöldverði Sir Pauls McCartneys á Café Óperu í ný- legri heimsókn hans hérlendis og spunnust af því miklar sögur. Ein sagan segir að inn á Óperu hafi komið ungur piltur á sínu fyrsta stefnu- móti. Stefnumótið átti að hafa geng- ið illa og drengurinn fengið snjalla hugmynd þegar hann rak augun í McCartney. Hann afsakaði sig við dömuna og laumaðist að borði bitils- ins. Með eftirgangsmunum fékk strákur bítilinn til að koma að sínu borði og kasta á sig kveðju eins og um gamlan vin væri að ræða. Pilt- urinn sest síðan aftur hjá stúlkunni en stuttu síðar kemur McCartney röltandi fram hjá. „Blessaður, gamli vinur,“ hrópaði McCartney til stráksa sem leit við með vanþóknunarsvip og sagði: „Paul, hef ég ekki margsagt þér að láta mig í friði!“... Ungmenni í lendaskýlu íslensk íjölskylda fór til kirkju í Noregi á dögunum. Slíkt þykir j reyndar ekki í frásög- ur færandi út af fyrir sig, sérstaklega ekki þar í landi. Með í fór- inni var þriggja ára drengur og var sér- í staklega tekinn eið- stafur af þeim stutta um að hafa hægt um sig og þegja þunnu hljóði inni í helgidóminum. Þeim stutta varð starsýnt á Jesú Krist þar sem hann hékk á krossi eins og gengur og gerist í kirkjum. Það blasti fljótlega við að drengurinn var að springa á limminu og myndi rjúfa þagnarbindindið íyrir messu- lok. Og loks gat snáðinn ekki orða bundist. Hann sneri sér að pabba sínum, benti á frelsarann og sagði stundarhátt: „Sjáðu pabbi! Mowgli!!... Sigurganga Guðna Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra leikur á als oddi nú um hábjarg- ræðistímann. Guðni hefur verið ódeigur í yfirlýsingagerð, m.a. um matarskatt og jarðasölu, milli þess sem hann sprangar í sínum framsóknargrænu reiðbuxum um velli hestamanna ellegar opnar litskrúðugar landbún- aðarsýningar. Sjálfskipaðir stjóm- málaskýrendur þykjast skynja að þessi fyrirferð á ráðherranum sé alls ekki eðlileg enda eigi menn því að venjast að stjómmálamenn liggi í dvala frá páskum fram undir jól. Spekingarnir segja að Guðni sé á fullu að undirbúa framboð sitt til varaformanns í Framsóknarflokkn- um, eða hugsi jafnvel til enn hærri metorða. Sérstaka eftirtekt hefur vakið hversu viðnámið er lítið... Lítil áhrif af Sleipnisverkfalli DV, AKUREYRI:____________________ Talsverður kraftur virðist vera í ferðaþjónustunni á Norðurlandi um þessar mundir og aðilar í ferðaþjón- ustu, sem DV hefur rætt við, segja að áhrif verkfalls bifreiðarstjóra í Sleipni séu lítil sem engin. verkfallið hafi haft áhrif um tíma en eftir að samningar tókust hjá Sérleyfisbilum Akureyrar hf. komst ástandið í nær eðlilegt horf. Þó hefur það einhver áhrif á ferðamannastrauminn að ekki er ekið hjá Norðurleið hf. milli Reykjavíkur og Akureyrar. Veður hefur yfirleitt verið mjög gott á Norðurlandi i sumar og það hefur orðið til þess að lyfta upp ferðalögum íslendinga í landshlutanum. HrafnhUdm- Elín Karlsdóttir, að- stoðarhótelstjóri Fosshótels KEA á Akureyri, sagðist ekki hafa handbær- ar tölur tU að vitna i en hún sagði ferðamannastrauminn hafa tekið seint við sér en farið vel í gang þegar það gerðist. „íslendingar eru aUtaf á ferðinni þar sem veður er gott og við höfum notið góðs af því að undan- förnu. Hér hefur verið ágætlega bók- að og er áfram þannig að þetta lítur vel út,“ sagði Hrafnhildur. Friðrik Sigurðsson, hótelstjóri á Hótel Húsavík, sagði mikið vera að gera eins og venjulega. „Það hefur aldrei verið neitt vandamál að reka hótel hér á sumrin. Júnímánuður var mjög góður og það sem af er júlí og þetta lítur vel út fram á haustið þangað tU losna fer um á hótelunum í Reykjavik en þá hætta ferðaskrif- stofurnar að bóka út á land. Það er hins vegar lítið annað fram undan í vetur en að loka hótelinu í einhverja mánuði, það hefur ekki verið gert hér en ég á fastlega von á því að það verði niðurstaðan núna enda eftir litlu að slægjast," sagði Friðrik. Hann segir að verkfall Sleipnis hafi lítil sem engin áhrif haft á sinn rekstur. „Ég hef eiginlega ekki orðið var við verkfallið á annan hátt en þann að hingað komu einu sinni verkfallsverðir vegna einhvers ágreinings. Okkar gestir eru aðaUega í skipu- lögðum hópferðum og þá hefur verið leitað tU þeirra fyrirtækja um akstur sem ekki eru með Sleipnismenn í vinnu,“ sagði Friðrik. -gk Toifæran Þnðja umferð Formula Off Road Open, DV-Sport to fer fram við Litlu kaffistofuna á morgun laug; Keppnin hefst klukkan 11.00 méð tveimur þrautum TOYOTA BP / ! 1 : |iS9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.