Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Side 15
14
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
19
DV
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjórí: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjórí og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarrítstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjórí: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholtl 11,105 Rvík, siml: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafrsn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setnlng og umbrot: Frjáls fjölmiöiun hf.
Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lgusasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viötöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Á rangri leið
Geir H. Haarde fjármálaráöherra er á rangri leið þegar
hann reynir að gera lítið úr þeim hugmyndum að beita
lækkun tolla og vörugjalda til að stuðla að verðstöðug-
leika hér á landi samfara því að lofa gengi krónunnar að
lækka.
Viðskiptablaðið hefur varpað fram þeirri hugmynd að
mögulegt sé að draga úr viðskiptahalla með því að leyfa
krónunni að lækka. Veikari króna mun styrkja útflutn-
ingsgreinarnar en til að vinna gegn hækkun verðlags er
hægt að lækka tolla og aðflutningsgjöld á innfluttar vörur.
Fj ármálaráðherra er ekki hrifinn af þessum hugmyndum
og í Kastljósi Sjónvarpsins á mánudag hélt hann því fram
að tollar og aðflutningsgjöld skiptu litlu. Þetta er merkileg
yfirlýsing í ljósi þess að fjárlög yfirstandandi árs gera ráð
fyrir að gjöld á innfluttar vörur nemi samtals 24,5 millj-
örðum króna.
Hugmyndir Viðskiptablaðsins eru allar athyglisverðar
og skynsamar. Mikill þrýstingur hefur verið á krónuna,
enda viðskiptahallinn mikill. Verðbólga hefur á síðustu
mánuðum verið langt yflr því sem ásættanlegt getur talist
þó hluti skýringar á hækkun verðlags sé utanaðkomandi.
DV hefur margsinnis bent á að helsta vandamál ís-
lensks efnahagslífs er lausung í fjármálum opinberra að-
ila - skiptir engu hvort litið er á ríkissjóð eða stærstu
sveitarfélögin. Þessu er fjármálaráðherra ósammála og
þvi þarf það ekki að koma á óvart að hann reyni að gera
lítið úr tillögum Viðskiptablaðsins.
Geir H. Haarde getur ekki leyft sér að sitja rólegur á
meðan stöðugleikanum, sem íslendingar hafa fengið að
njóta undanfarin ár, er ógnað. Viðbrögð fjármálaráðherra
við skynsamlegum hugmyndum um leiðir út úr vandan-
um vekja hins vegar ekki miklar vonir um að tekist verði
á við vandann.
Það er langt frá því að vera fráleitt að lofa krónunni að
lækka og lækka opinberar álögur samhliða þvi að ryðja úr
vegi ýmsum viðskiptahindrunum, sem öðru fremur halda
uppi verðlagi hér á landi eins og dæmin sanna. Um leið
gæti ráðherrann brett upp ermamar og byrjað aftur á
einkavæðingu ríkisfyrirtækja, allt frá bönkum til verk-
takafyrirtækja.
Siv gegn Guðna
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra virðast ekki eiga mikla samleið
þó bæði séu þau þingmenn Framsóknarflokksins. Siv vill
þjóðnýta náttúruperlur en Guðni sér ekkert athugavert
við að einkaaðilar eigi þær og telur raunar nauðsynlegt að
losa eignarhald ríkisins á jörðum og selja einstaklingum
og samtökum þeirra.
„Það þarf ekki annað en að koma að Geysi i Haukadal
til að sjá hveiju einstaklingar geta áorkað,“ sagði Guðni
Ágústsson í viðtali við DV síðastliðinn þriðjudag.
„Forsenda þess að hægt sé að taka með viðeigandi hætti
á þessu svæði er að ríkið eignist það,“ hefiu: Morgunblað-
ið eftir Siv Friðleifsdóttur á blaðamannafundi á miðviku-
dag um Geysissvæðið.
Þannig er yngsti ráðherra ríkisstjómarinnar talsmaður
þjóðnýtingar en gamall varðmaður landbúnaðarkerfisins
hefur tekið sér stöðu til vamar eignarrétti einstaklings-
ins. Siv Friðleifsdóttir hefur rangt fyrir sér en Guðni
Ágústsson er á réttri leið og í pólitík skiptir það mestu.
Óli Bjöm Kárason
I>V
Skoðun
Prestar og pólitík
Allnokkur umræða hefur
átt sér stað í fjölmiðlum um
það hvort kirkjan eigi aö
blanda sér í þjóðmálaum-
ræðuna. Það er þekkt úr
sögunni aö valdamenn vilja
atkvæðalitla kirkju. Kirkj-
an hefur faliið í þá gryfju á
liðnum öldum að vera
handbendi valdhafa, verk-
færi til að slæva og jafnvel
Alkunn eru orð Marx um trúna
sem ópíum fyrir fólkið. Þar átti hann
líklega við boðskap kristinnar kirkju
sem boðaði það sem kalla má
glassúrtrú - trú sem lofar betra lífi
eftir dauðann en lokar augunum fyr-
ir vanda líðandi stundar. Slík sæta-
brauðstrú er jafnan uppteknari af
himninum en jarðlífinu. Hún er trú
skýjaglópa sem fást lítið sem ekkert
um kjör fólks.
Joe Hiil, sem var baráttumaður
fyrir betri kjörum fólks snemma á
síðustu öld, segir í einum söngtexta
sinna: You’ll get pie in the sky when
you die sem útleggst eitthað á þessa
leið: Þið fáið brauð á himn-
um þegar þið eruð dauð. í
textanum sneiðir hann að
kirkjunni, sakar hana um
að vísa vandamálum heims-
ins til lausnar á himnum.
Hann var tekinn af lífi í
Bandarfkjunum vegna
skoðana sinna.
Hápólitísk trú
Þegar grannt er skoðað er
kristin trú hápólitísk í þeim
skilningi að hún lætur sig
varða mannlífið. Orðið póli-
tík er komið af gríska orðinu polis
sem merkir borg. Pólitík merkir þá
málefni borgaranna. Sunnudagurinn
25. júní var fyrsti sunnudagur eftir
þrenningarhátíö í kirkjunni. Kirkjan
styðst við ákveðna textaröð í boðun
sinni og þennan tiltekna dag var
lexían úr 5. Mósebók 15. kafla (vers
7-8 og 10-11) þar sem fjallaö er um
umlíðun eða uppgjöf skulda. í pistli
dagsins talar postulinn um að elska
náungann og segir að ómögulegt sé
að elska Guð nema elska náungann
um leið (1. Jóhannesarbréf 4.16-21).
Og loks er guðspjallið tekið úr 16.
kafla Lúkasarguðspjalls þar sem
kúga.
Himinninn umfram
jarðlífió
Orn Báröur
Jónsson
prestur
„Að umrœðunni koma margir og þar eiga allir erindi í
pontu, kirkjan, stjómmálamenn, frœðimenn og aðrir
þegnar þessa lands. Enginn einn segir allan sannleikann.
Hvert innlegg í umrœðuna er sjónarhom sem máli skipt-
ir. “ - Forseti íslands talar í Grafarvogskirkju.
Jesús segir söguna af Lasarusi og
ríka manninum (vers 19-31).
í messu í einni af kirkjum höfuð-
borgarinnar í vikunni sem fylgdi í
kjölfar umrædds sunnudags lét
presturinn nægja að láta þessa þrjá
texta tala sínu máli um að kirkjan
ætti erindi í þjóðfélagsumræðuna.
Meira þurfti hann ekki að segja um
það mál. Lesið sjálf þessa texta og
sannfærist.
Prédikun er ekki fyrirlestur
Marga aðra texta mætti nefna sem
Bíræfni tryggingafélaganna
Tryggingafélögin vita að
það er þeim útgjaldalaust að
hækka bifreiðatryggingar
reglubundið um nokkra tugi
prósenta. Hefðbundið fjöl-
miðlafár, mótmæli verklýðs-
félaga, neytendasamtaka og
almennings í nokkra daga.
Svo fellur allt í dúnalogn og
þeir fá óáreittir að blóð-
mjólka bifreiðaeigendur.
Mest gerist þetta þó fyrir
sofanda- og aumingjahátt
stjómvalda gagnvart trygg-
ingafélögunum. Að ein-
hverju leyti llka fyrir manneklu og
peningaleysi eftirlitsstofnana og
stundum linkind þeirra
gagnvart tryggingafélög-
unum. Þess vegna vita
tryggingafélögin að þau
geta verið bíræfin, því þau
fá að leika lausum hala.
Stjórnvöldum gefið
langt nef
Það er ólíðandi ef trygg-
ingafélögin eiga að komast
upp með 70-80% hækkun
á bifreiðatryggingum á
einu ári, sem hvergi er
nægilega rökstudd, án
þess að stjómvöld eöa eftirlitsstofn-
anir grípi í taumana. Samráð, sam-
Jóhanna
Siguröardóttir
alþingismaöur
trygging, fákeppni og einokun virð-
ast líka vera einkenni hjá trygginga-
og olíufélögunum, sem bitnar með
fullum þunga á neytendum og heim-
ilunum í landinu. Samkeppnisstofn-
un er fjárhagslega svelt og getur ekki
svo viðunandi sé sinnt hlutverki
sínu, enda hefur hún ekki enn kveð-
ið upp úr um hvort samkeppnislög
hafi verið brotin þegar tryggingafé-
lögin hækkuðu bifreiðatryggingam-
ar fyrir ári um 25-39%.
Tryggingafélögin hafa líka gefið
Alþingi og ríkisstjóm langt nef, enda
hafa þau komist upp með að neita
ráðherrum og Alþingi um upplýsing-
ar mn forsendur gífurlegra hækkana
bifreiðatrygginga, sem sannar-
lega byggjast á hæpnum forsend-
um. Tryggingafélögin hunsa svo
Fjármálaeftirlitið með þvi að fara
ekki að ábendingum þess, en eft-
irlitið taldi sl. haust að vátrygg-
ingafélögum bæri að taka for-
sendur iðgjaldagrundvallar lög-
boðinni ökutækjatrygginga til
endurskoðunar. Því svara trygg-
ingafélögin nú með 30-40%
hækkun bifreiðatrygginga.
Sterk staða bótasjóða,
fjárfestinga og Innstæðna
Á árinu 1996 hélt Vátrygginga-
eftirlitið (nú Fjármálaeftirlitið)
því fram að ekki væri þörf á
neinni verulegri hækkun ið-
„Tryggingafélögin hafa líka gefið Alþingi og ríkisstjóm langt nef, Mtaiögunmn STSfmaf'áíö
enda hafa þau komist upp með að neita ráðhermm og Alþingi 3-4 milljarðar væm í bótasjóðum
um upplýsingar um forsendur gífurlegra hœkkana bifreiðatrygg- værfaStífilaðmæTatosS
inga, sem sannarlega byggjast á hæpnum forsendum. “ sem hlytist af breytingu á skaða-
bótalögunum.
Frá þeim tíma hafa bótasjóðimir
vaxið um 4 milljarða og em nú 18
milljarðar króna. í athugun Fjármál-
eftirlitsins á iðgjaldahækkun trygg-
ingcifélaganna á sl. ári, sem birt var í
sept. 1999, kemur fram, að fjárhags-
staða flestra vátryggingafélaganna sé
góð og hafi stöðugt farið batnandi.
Fjármálaeftirlitið bendir á að fjárfest-
ingar tryggingafélaganna, sjóður og
bankainnistæður hafi vaxið hraðar
en vátryggingarskuld og munar þar
tæpum 2,4 milljörðum króna 1996, 3,5
milljörðum árið 1997 og hvorki meira
né minna en 5,6 milljörðum 1998.
Elgió fé óx um 42%
Jafnframt bendir Fjármálaeftirlitð
á sterka eiginfjárstöðu vátrygginga-
félaganna en eigið fé þeirra sem
bjóða lögboðnar ökutækjatryggingar
óx um 42% yfir tímabilið 1996-1998.
Bent er einnig á þá athyglisveröu
staðreynd að i raun hafi vátrygg-
ingafélögin aukið eigið fé sitt meira
en fram kemur í bókum félaganna
þegar litið er til þess aö hlutabréf og
skuldabréf sem félögin hafí fjárfest í
séu í flestum tilvikum færð til eign-
ar á framreiknuðu kaupverði en
ekki markaðsvirði. í skýrslu Fjár-
málaeftirlitsins er einnig dregið
fram að öll þau ár sem voru til skoð-
unar hjá eftirlitinu hafi verið hagn-
aður af heildarstarfsemi félaganna.
Það er því ekkert annað en hreinn
aumingjaskapur ef ríkisstjómin og
eftirlitsstofnanir láta tryggingafélög-
in eina ferðina enn komast upp með
að níðast á bifreiðeigendum.
Jóhanna Sigurðardóttir
Meö og á móti
með efhistöku?
Tvímælalaust
Vísað til æðri máttarvalda
j Þaö er tví-
mælalaust veriö
að eyðileggja
Br sandfjörur við
Reykjavík. Við
sem búum við sjóinn og
fylgjumst með sjávarfollum
og náttúru fjörunnar verö-
um átakanlega vör við
breytingar.
Hér er ekki um að ræða
venjulegar breytingar sem
stafa af tilfærslu vegna
brims og sjávarfalla heldur ógn-
vænlegar breytingar þar sem sand-
flákar hafa horfiö og upp úr
stendur nú einungis stórgrýti og
mór.
Sigurður R.
Helgason,
framkvæmdastjóri
Björgunar
Ástæður em ef til vill
margar en áberandi er að
þegar sanddæluskip hefur
verið úti fyrir ströndinni
eða réttara sagt nánast uppi
í fjöru, þá hafa umtalsverð-
ar breytinar fylgt í kjölfarið
í næsta brimróti.
Auðvitað verðiu að rann-
saka orsakir þessa vandlega
en það segir sig sjálft að þar
sem sandur er tekinn úti
fyrir að þangað rennur
sandur við næsta brimrót.
Skráð saga
landbrots á höfuð-
borgarsvæðinu er
jafngömul íslands-
byggð. Allir
þekkja Seltjömina sem ekki
er lengur tjöm. Ámi Magnús-
son lýsir landbroti víða á
Kjalamesi árið 1703 og segir
m.a. að bærinn Saltvík hafi
þrisvar verið færöur undan
ágangi sjávar frá landnámi
og fjórða færslan sé áformuð.
Hvar var Björgun þá? Kirkjugarður-
inn í Saurbæ er hálfur horfinn vegna
landbrots án þess að efnistaka sé þar
neins staðar nærri.
Efnistaka Björgunar fer fram 115
metra, hið minnsta, frá stór-
straumsfjöruborði en yfirleitt
mun lengra frá landi. Efn-
istakan er á fáum og einangr-
uðum stöðum á svæðinu.
Þær rannsóknir sem fram-
kvæmdar hafa verið á efnis-
dælingu Björgunar hafa sýnt
að námur Björgunar era utan
fjörutengdra setflutninga-
leiða malar og sands og því
án áhrifa á fjörur á þeim ör-
fáu stöðum þar sem dælt er
nálægt landi. í ljósi þessara stað-
reynda og sögu almenns landbrots á
höfuðborgarsvæðinu er þeim sem
áhyggjur hafa af landbroti vísað til
æðri máttarvalda.
Sigþór
Magnússon,
skólastjórí Kié-
bergsskóla
Kjalnesingar hafa að undanförnu gagnrýnt efnistöku Björgunar í Kollafiröi og telja aö hún sé aö eyöileggja Qörurnar viö Reykjavík.
sýna að trúin varðar ekkert síður
þetta líf en hið komandi. Spámanna-
ritin em yfirfljótandi af boðskap um
þjóðfélagslegt réttlæti og orð Krists
eru svo beitt að þau smjúga í geng-
um merg og bein þjóðfélags, valda-
manna og almennings - dæma og af-
hjúpa allar gjörðir. Kirkjan gegnir
mikilvægu hlutverki í umræðunni
um lífið og tilveruna.
Að umræðunni koma margir og
þar eiga allir erindi í pontu, kirkjan,
stjómmálamenn, fræðimenn og aðrir
þegnar þessa lands. Enginn einn seg-
ir allan sannleikann. Hvert innlegg í
umræðuna er sjónarhom sem máli
skiptir.
Látið hefur verið að því liggja að
prestar fjalli yfirborðslega um þjóðfé-
lagsmál. í því sambandi er rétt að
benda á að prédikun er ekki fræðileg-
ur fyrirlestur. Hún er hugvekja,
hvatning, áminning, spámannlegt
orð, tiltal en ekki tæmandi umfjöllun.
Rödd kirkjunnar er ein margra radda
í kór þeirra sem standa vilja vörð um
fagurt mannlíf, réttlæti og frið. Þar
syngjum við saman, prestamir og öll
hin sem telja -sig kölluð til þess að
móta skoðanir og umræðu dagsins.
Öm Bárður Jónsson
Ummæli
Heilsugæsla
„Árangursríkar for-
vamir og fyrirbyggj-
andi heilsugæsla
grundvailast á vitund
almennings og al-
mennum vilja fólks til
þátttöku áður en sjúk-
dómar gera vart við
sig. Árangur verður betri heilbrigðis-
þjónusta og betra heilsufar, aukin lífs-
gæði. Hér er eindregið hvatt til þess
að fyrirbyggjandi heilsugæsla verði
stórum aukin.... Meðhöndlun sjúk-
dóma á frumstigi verður miklu kostn-
aðarminni og líklegri til árangurs en
langt genginna sjúkdóma."
Árni Ragnar Árnason alþm. í Mbl. 13. júll.
Þekking eða blekking?
„Kennt er að þekk-
ing og tækni séu und-
irstaða hagsældar og
velferðar.... Samt er
eins og að einhvers
staðar sé pottur brot-
inn og þekkingin og
tækniframfarirnar
duga ekki til að viðhalda þeim guðs-
gjöfum sem gerðu ísland byggilegt allt
fram að hugbúnaðaröld. Áldrei hefur
legið fyrir eins mikil þekking á lífríki
sjávar umhverfis landið og nú.... Samt
sem áður minnkar sjávarafli jafnt og
þétt og öll finustu tækin og upplýsing-
amar nýtast ekki nema að litlu leyti,
og kemur þekkingin á lífríkinu helst
að gagni til að vara við, svo að tækni-
þekkingin gangi ekki af því dauðu.“
Oddur Óiafsson blm. I Degi 13. júll.
Friðarbandalagið
„Aðild íslands að Atlantshafsbanda-
laginu hefur jafnan verið grundvölluð
á þeirri hugsun, að til samstarfsins
hafi verið efnt í því skyni að tryggja
friðinn. íslendingar hafa ávallt litið á
NATO sem friðarbandalag. Það mat
hefur ekki breyst, enda hefur sagan
síðustu 50 árin tekið af allan vafa um
að ráðlegt er að viðhalda tengslum við
slíkt bandalag."
Úr forystugreinum Mbl. 13. júlí.
Mærðin er meðfædd
„Hér á landi eru allir
dómar úrskurðaðir for-
dómar og fordómar úr-
skurðaðir hatur. Að
hafa skoðun er því að
hata. Enda þora íslend-
ingar ekki að tala upp-
hátt um framandi þjóð-
ir og langt að komið fólk á íslandi öðru-
vísi en leggjast í mærðina. Segi einhver
maður hug sinn allan leggja frægir
kommúnistar og misskilin gæðablóð
manninn í einelti svo hann hugsar sig
tvisvar um áður en hann hefur skoðun
á nokkrum sköpuðum hlut.“
Ásgeir Hannes Eiríksson t pistli slnum,
Umbúöalaust, í Degi 13. júlí.
Umferðarbullur
Vinur minn sem býr á Grímstaða-
holtinu, eins og það hét í æsku
minni, heimsótti mig um daginn, en
það þýddi að hann varð að aka
Reykjanesbrautina til að komast útá
Álftanes. Þessi vinur minn taldi sig
vart hafa komist i meiri lífsháska en
að aka þessa leið og þarf hann þó oft
að aka í sumarbústaðinn sinn austur
á Stokkseyri. Sjálfur hef ég víst öðl-
ast nokkurt ónæmi fyrir leiðinni eft-
ir nær tveggja áratuga akstur dag-
lega og stundum oftar.
Flokkun gæti hjálpað
Hér áður fyrr voru bUar merktir
með upphafsbókstöfum staðanna þar
sem þeir vora skráðir. Ekki kann ég
rökin fyrir því hversvegna þessu var
hætt en kosturinn við staðarmerking-
amar var að hægt var að gera sér
nokkra hugmynd um hvaðan verstu
bUstjóramir komu. Gunnar heitinn
Ólafsson sem stýrði læknavaktarbíln-
um í fjölda ára var orðsnjaU og sögu-
maður góður. Því miður munu flestar
sögur sem hann kunni og sagði af
læknum vera gleymdar, en þær hefðu
getað fyUt myndarlega bók.
Einhvem tímann sagði hann þeg-
ar við vorum á vakt saman: „Heyrðu
Ámi. Þegar þú mætir bU, sem er
merktur með G (en bUar af Suður-
nesjum voru þá merktir G, eða H,
sem þá einkenndi bUa úr Hafnar-
firði), skaltu aka eins langt útí veg-
kantinn og þú getur og stoppa, og
það er ekki einu sinni víst að það sé
nóg.“ Þótt nú sé langt um liðið síðan
Gunnar mælti þessi skarplegu við-
vörunarorð virðast þau 1 fullu gUdi
þótt nú sé ekki lengur hægt að stað-
setja ökuníðingana eftir
skrásetningarstað og flokka
þá þannig, sem er skaði, því
flokkun gæti varpað á það
ljósi hvar ökukennslu er
mest áfátt.
Eftir aldri og tegund
En það er er hægt að Uokka
ökuníðinga eftir bUategund-
um og aldri ökumannanna.
Það era fyrst og ffernst öku-
menn „fínna“ og kraftmikilla
bUa, t.d. BMW og stórra
jeppa, sem níðast á öðrum í umferð-
inni. Svo era það „bömin", 17-19 ára,
sem virðast ekki hafa andlegan þroska
tU að stjóma ökutækjum og loks era
þeir sem „sofa“ í umferðinni.
ÖUum er þessum „bílstjórum"
sameiginlegt að þeim virðist ekki
hafa verið kennt að nota stefnuljós
eða ekki hafa haft andlega burði tU
að læra það. Margir aka eins og þeir
séu að dansa fjöragan vals en aðrir
eins og þeir séu á svigbraut en ekki
akreinamerktum vegi. Hér verður
ekki rætt um notkun bUasíma þó ég
sé ekki viss um að bUstjóri, sem er
að rífast í síma við konu sína á 90
km hraða, sé hótinu meinlausari í
umferðinni en sá sem hefur fengið
sér einn tvöfaldan.
En eru þá einhver ráö tU að
minnka slysatíðni á þjóðvegum
landsins? En umferðarslys eru nú
skæðasta drepsótt með þjóöinni, því
hún drepur og limlestir jafnt unga
sem aldna. Fésektir hafa litil áhrif á
menn sem aka rándýram bUum.
Bætt umferðarmannvirki stuðla
oftar en ekki að auknum ökuhraða og
umferðaeftirlit, sem vissu-
lega mætti vera meira,
virðist koma fyrir lítið
(a.m.k. hef ég ekki, öU árin
sem ég hef ekið miUi Álfta-
ness og Reykjavíkur, séð
lögregluna stöðva bU fyrir
að nota ekki stefhuljós).
Sérmerktir fyrir
umferðarbullur
Einn er sá hópur manna
sem veldur nú hvað mest-
um áhyggjum meðal sið-
menntaðra þjóða en það eru sk. fót-
boltabuUur en þær ferðast land úr
landi þar sem verið er að keppa í fót-
bolta, að því er virðist eingöngu tU
aö fremja skemmdarverk, limlesta
og jafnvel drepa fólk í algjöru tU-
gangsleysi ef svo viU verkast.
Ég hef látið mér detta í hug, hvort
við ættum ekki að leggja niður orð
eins og ökuníðingur og ökufantur og
taka í stað þeirra upp orðið umferð- w
arbuUa. Þeir sem brjóta umferðaregl-
ur eru, að því leyti, likir þeirri
manntegund þvi þeir meiöa og jafn-
vel deyða saklaust fólk í algeru tU-
gangsleysi.
Mér skUst að menn ávinni sér
refsipunkta fyrir umferðarlagabrot.
Hvemig væri að í stað þess að borga
sekt eða missa ökuleyfi tímabundið
væra bUar þessara ökumanna sér-
merktir í bak og fyrir með borðum,
sem á væri letrað VARÚÐ! UM-
FERÐARBULLA. - Það færi svo eftir
eðli brotsins hve lengi þeir væra
skyldaðir tU að auðkenna ökutæki
sín á þennan hátt.
Ámi Bjömsson
„Bætt umferðarmannvirki stuðlar oftar en ekki að auknum ökuhraða og umferðar- >
eftirlit, sem vissulega mœtti vera meira, virðist koma fyrir lítið. “
I