Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Blaðsíða 23
27
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
JO'V Tilvera
Ingmar Berg-
mann 82 ára
Einn mesti kvik-
myndaleikstjóri sög-
unnar, Ingmar Berg-
mann, verður 82 ára
gamall í dag. Þessi
sænski snillingur
setti punktinn yfir i-ið
með snilldarverkinu Fanny og Alex-
ander árið 1983. Hann hefur þó ekki
setið auðum höndum, heldur leikstýrt
á sviði og skrifaði kvikmyndahandrit
að kvikmynd sem Liv Ullmann leik-
stýrði og var sýnd á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í vor. Mörg klassísk
snilldarverk liggja eftir Bergmann.
Gildir I
Vatnsberinn (20. ian.-l8. febr.t
, Tilfinningamál verða í
' brennidepli og ef til
vill gamlar deilur
tengdar þeim. Fjöl-
skyldan þarf að standa saman.
Happatölur þínar eru 14, 16 og 27.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars):
Þú þarft að vera afar
Iskipulagður í dag til
að missa ekki tökin á
verkefnum þínum. Það
borgar sig að slaka ekki of mikið
á þessa dagana.
Hrúturlnn (21. mars-19. apríll:
. Þó að þú heyrir eitt-
íhvað slúðrað um per-
sónu sem þú þekkir er
ekki þar með sagt að
þú eigir að taka mark á því. Róm-
antíkin liggur í loftinu.
Nautið (?0. apríl-20. maíl:
Það verður mikið inn að
vera í dag en ef þú legg-
ur hart að þér mun allt
ganga að óskum. Kvöldið
■ skemmtilegt og ekki er ólík-
legt að gamall vinur hti í heimsókn.
Tvíburarnir (?1. maí-?i. iéni):
Þú ert vinnusamur í
’ dag og kemur frá þér
verkefiium sem þú hef-
ur trassað. Þú verður í
framtíðinni að reyna að vera skipu-
lagðari og vinna meira jafnt og þétt.
Krabblnn (22. iúní-22. iúi»:
Þú verðm- að gæta
I tungu þinnar í sam-
' skiptum vi ð fólk, sér-
mwb staklega þá sem þú tel-
ur að seu viðkvæmir fyrir gagn-
rýni.
Uónlð (23. iúlí- 22. áeúst):
Þér gengur vel að fá
1 fólk til að hlusta á þig
og skoðanir þínar.
Gættu þess að vera
ekki hrokafullur þó að þú búir yfir
vitneskju sem aðrir gera ekki.
Meyjan (23. agúst-2.2,..sept,)i
a. Dagurinn ætti að
verða fremur rólegur
^^^^«.og einstaklega þægileg-
^ r ur.Þú átt skemmtileg
samtöl við fólk sem þú umgengst
alla jaftia mikið.
Vogin_[23^?<;pt-23. oKt,);
Þú finnur fyrir nei-
kvæðu andrúmslofti og
fólk er ekki tilbúið að
bjóða fram aðstoð
sína. Þú getur helst treyst á þína
nánustu.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
Dagurinn verður held-
ur viðburðalitill og þú
■ættir að einbeita þér
að vinnunni fyrri
Juta dagsins. Hittu vini eða ætt-'
ingja 1 dag.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.):
gf^„Þú verður að vera þol-
Pinmóður en þó ákveð-
inn við fólkið sem þú
bíður eftir. Þú lendir í
sérstakri aðstöðu í vinnunni.
Stelngeltln (22. des.-19. ian.i:
Vertu þolinmóður við
þá sem þú umgengst
og leyfðu öðrum að
njóta sín. Kvöldið
verður liflegt og eitthvað kemur
þér skemmtilega á óvart.
vogln (23. se
ý
Bílasalinn ungi
Dagbjartur Áreiíusson fyrir framan bílasölu sína ásamt þremur Mercedes Benz eðalvögnum.
Tvítugur stúdent gerist bílasali í Borgarnesi:
Námið verður að
bíða betri tíma
DV, BORGARNESI: ____________
Borgnesingar, nærsveitungar og
fólk á ferðalagi ætti ekki að verða í
vandræðum með að skipta um bíl
því þriðja bílasalan var opnuð í
Borgarnesi fyrir skömmu. Nýja
bílasalan, sem ber nafhið Bíla- og
búvélasalan, er við Ólafsvíkurveg
og er það fyrirtækið Bílasalan
Geysli sem rekur bílasöluna. Fram-
kvæmdastjóri bílasölunnar er Dag-
bjartur Árelíusson, rúmlega tvítug-
ur Borgnesingur sem nýlega lauk
námi við Verslunarskóla íslands:
„Ástæðan fyrir því að við stofn-
uðum bílasöluna er sú að pabbi hef-
ur verið mikiö að höndla með bíla.
Hann átti flutningafyrirtæki og
seldi það og vantaði eitthvað að
gera svo við ákváðum að fara út í
þetta ævintýri," segir Dagbjartur,
sem horfir bjartsýnn fram á veginn
og segir að þetta sé skemmtilegt og
spennandi starf.
Dagbjartur var í Verslunarskól-
anum í fjögur ár: „Áður en ég ákvað
að taka við bílasölunni fór ég á
námskeið fyrir bílasala og það má
segja að með þessu starfi sé draum-
ur minn að rætast. í námi mínu í
Verslunarskólanum var ég mikið að
læra um rekstur fyrirtækja og langt
er síðan það varð ofarlega í huga
mér að stofna bílasölu. Það var því
ekki eftir neinu að bíða þegar tæki-
færið bauðst."
Dagbjartur segir bílasöluna selja
bíla, vörubíla og tæki: Okkur hefur
verið tekið mjög vel enda ætlum við
að selja hér bíla á raunverði. Dag-
bjartur sagði að lokum að bílasalan
ætti hug sinn allan og fekara fram-
haldsnám yrði að bíða betri tíma.
-DVÓ
Liam Neeson
í mótor-
hjólaslysi
Kvikmyndaleikarinn Liam
Neeson fótbrotnaði þegar hann
keyrði á rádýr á Harley Davidson
hjólinu slnu. Rádýrið hljóp
skyndilega út á veginn í veg fyrir
hjólið, að sögn lögreglunnar.
Slysiö varð nálægt heimili
Neesons í New York.
Neeson kastaðist af hjólinu sem
lenti síðan á tré. Leikarinn var
með hjálm og slapp því við höfuð-
meiðsl. Hann slasaðist hins vegar
illa á fæti.
Að sögn blaðafulltrúa leikarans
er vonast til að hann komist fljótt
á fætur á ný. Neeson lék 1 fyrra I
Stjömustríðsmyndinni The
Phantom Menace.
Chelsea í kvikmynd
Drew Barrimore
Hillary Clinton, forsetafrú Banda-
ríkjanna, er áhyggjufull. í þetta sinn
eru það ekki vegna kvensemi eigin-
mannsins heldur vegna dótturinnar
Chelsea. Forsetadóttirin hefur nefni-
lega þegið boð um að leika í kvik-
myndinni Donnie Darko.
Framleiðandi myndarinnar er
Drew Barrimore og það er fortíð kvik-
myndaleikkonunnar sem veldur for-
setafrúnni áhyggjum. „Ég fæ martrað-
ir út af þessu. En Chelsea er vel gefin
kona og ég treysti henni," á Hillary að
hafa sagt við blaðið Globe.
Drew Barrimore sló í gegn 7 ára
gömul. Hún hefur verið viðriðin ýmis
kynlífshneyksli og fikniefnamisnotk-
un. Hillary óttast að leikkonan hafi
slæm áhrif á Chelsea. Hlutverk for-
setadótturinnar verður lítið en krefj-
andi. Drew Barrimore hringdi sjálf í
Chelsea og bauð henni hlutverkið.
Chelsea Cllnton
Hillary er hrædd um aö Barrimore
hafi slæm áhrif á dótturina.
Prinsinn og poppararnir
Karl Bretaprins heilsar hér David Beckham og Victoriu Kryddpíu í Hyde
Park í London. Victoria kom þar fram á tónleikum á sunnudaginn sem
haldnir voru til stuönings góögeröarsjóöi prinsins.
Karólína og Ernst
Prinsinn þykir hinn mesti ribbaldi.
50 milljónir í
sektir vegna
líkamsmeiðinga
Ernst August von Hannover,
eiginmanni Karólínu
Mónakóprinsessu, hefur verið
gert að greiða um 50 milljónir
íslenskra króna 1 sektir fyrir að
hafa beitt þýskan
diskótekseiganda i Kenýa ofbeldi í
janúar síðastliðnum, að því er
erlend dagblöð greina frá.
Diskótekseigandinn, Josef
Bruhnlehner, lét leika tónlist of
hátt að mati prinsins. Ljósaspil
frá diskótekinu truflaði einnig
prinsinn og fjölskyldu hans þegar
þau voru i sumarfríi skammt frá
diskótekinu. Þegar Bruhnlehner
varð ekki við beiðni Emsts
Augusts um að lækka í tækjunum
varð sá síðamefndi æfur og gekk
berserksgang. Prinsinn slapp við
refsingu í Kenýa vegna
diplómatískrar friðhelgi.
Dennis sækir
um lögskilnað
Leikarinn Dennis Quaid, sem
fyrir tveimur vikum tilkynnti að
hann hefði skilið að borði og sæng ,
við Meg Ryan, hefur sótt um
lögskilnað. Dennis og Meg munu
hafa orðið ásátt um skilnað fyrir
átta vikum. Hann tilkynnti þó
ekki um skilnað þeirra fyrr en
slúðurblöð greindu frá sambandi
Meg Ryan og hjartaknúsarans
Russels Crowes. Dennis hefur sótt
um sameiginlegt forræði yfir syni
þeirra hjóna, Jack, sem er 8 ára.
Landsins mesta úrval af
unaðsvörum ástarlífsins.
Við gerum kynlífið ekki bara
unaðslegra heldur líka
skemmtilegra.
Opiö
,án,te.1CM8 /k
laug.10-16 [0J JWTTÍCO
Fákafoni 9 • S. 553 1300