Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2000, Blaðsíða 15
15
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000
x>v___________________________________________________________________________Helgarblað
Pamela
og Marcus í
hjónaband
Bandarísk blöð eru uppfull af því
um þessar mundir að strandvarða-
drottningin Pamela Anderson og
Marcus Schenkenberg ætli að gifta
sig i sumar. Pamela er eins og kunn-
ugt er nýfarin frá eiginmanni sín-
um, hinum skapbráða og ófrýnilega
Tommy, og hefur blómstrað eftir að
sænska fyrirsætan Marcus tók hana
upp á arma sína. Pamelu langar í
lítið og huggulegt brúðkaup fyrir
nánustu vini og ættingja en Marcus
er enn tvístígandi og finnst heldur
snemmt að leiða hugann að hjóna-
bandi.
Talað er um að brúðkaupið verði
í Las Vegas í lok sumars.
Jarðvegsþjöppur
Gæði
ágóðu
verði!
BQMRG
MlÍMfí
Sími 568 1044
Allarstærðir,
bensín eða dísil.
Einnig „hopparar"
Forsetadóttirin hlustar ekkl á móö-
ur sína og er farin aö reykja.
Chelsea farin
að reykja
Þær fregnir berast að forseta-
dóttirin Chelsea Clinton sé farin að
reykja. Hún á víst að hafa sést á
kaffihúsi í Washington púandi
sígarettur nýlega og er móðir henn-
ar ekki hrifn af þessum fréttum.
Hillary hefur nefnúega lengi barist
á móti reykingum og stutt herferðir
á móti þeim síðustu árin. Áróður
hennar virðist samt greinilega ekki
hafa náð eyrum dóttur hennar.
Barbra er vlnsæl leik- og söngkona.
Barbra
Streisand þakk-
ar fyrir sig
Barbra Streisand hefur ákveðið
og draga sig úr sviðsljósinu efir 27
ára feril sem leikkona, leikstjóri og
söngkona. Hún heldur fema
lokatónleika í haust og þakkar þá
þar með fyrir sig. Barbra hefur unn-
ið til grammýverðlauna og 42 af
plötum hennar eru gullplötur. Hún
fékk einnig óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í kvikmyndinni „Funny
girl“ árið 1968, þannig að hennar
verður örugglega sárt saknað. Ekki
er ljóst hvað hún ætlar að taka sér
fyrir hendur þegar ferlinum lýkur.
800 7000
i
siminn.is Kynntu þér nanar ISDN í gjaldfrjálsu númeri
I
eða á netinu
ÍSDN
myndsími
ISDN
býður uppá notkun myndsíma.
Komdu og skoðaðu ISDN myndsímann hjá
Símanum Kringlunni, Ármúla 27 og Akureyri.
Fullkominn myndsími sem einnig er hægt að tengja við
sjónvarps- eða myndbandstæki. Síminn er jafnframt
fullkominn ISDN sími með allri sérþjónustu og er með
innbyggðan símsvara.