Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2000, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000
DV
Helgarblað
Einkaviðtal DV við eiganda Williams-liðsins:
„Er með stöðugar áhyggjur
af að eitthvað fari úrskeiðis“
- segir Formúlukappinn Sir Frank Williams
Um síðustu helgi, sólbjart-
an sunnudag í hlíðum aust-
urrísku Alpanna, við smá-
bœinn Spielberg, fór fram
hin árlega keppni Formúlu 1
sirkussins á Al-ring-
kappakstursbrautinni. Þá
var blaðamanni DV veittur
sá heiður að hitta og eiga
stutt spjall við einn af valda-
meiri einstaklingum í For-
múlu 1 um þessar mundir,
Sir Frank Williams. Hann
er annar eigandi eins sigur-
sœlasta keppnisliðs í For-
múlu 1 sem á að baki 9
heimsmeistaratitla og 103
sigra síðan liöið tók fyrst
þátt i kappakstri Formúlu 1
árið 1973.
Frank er einstaklega þægileg-
ur náungi og býður af sér
góðan þokka og blítt viðmót.
Hann er fæddur 16. apríl 1942 og
fékk snemma mikinn áhuga á
kappakstri. Hann stofnaði keppn-
islið sitt árið 1973 og fyrsti sigur
liðsins vannst árið 1979. Velgengni
liðsins hefur verið mjög mikil í
gegnum tíðina en erfiðir tímar hafa
líka gengið yfir. Snemma á árinu
1986, þegar Frank var að koma frá
prófunum á Paul Richard-brautinni
í Frakklandi, missti hann stjóm á
bíl sínum með þeim afleiðingum að
bíllinn lenti utan í brúarstólpa og
endaði á hvolfi. í slysinu lamaðist
Frank upp að hálsi en var heppinn
að halda lífi. Eftir þetta hefur hann
verið bundinn við hjólastól.
Frank var þó harðákveðinn í að
láta þetta ekki stöðva sig heldur
styrkti þetta hann enn frekar og
hann kemur á hverja einustu
keppni. „Ég hlakka alltaf til keppn-
innar og þó að staðan í dag sé ekki
góð þá nýt ég þess enn að fylgjast
með kappakstri. Það eru góðir öku-
menn þarna úti og stigakeppnin er
mjög jöfn,“ sagði Frank síðastliðinn
sunnudag þegar blaðamaður spurði
hvort hann hlakkaði til keppninnar
sem var þá seinna um daginn. Þetta
Aftur á uppleiö
Williams-liöiö er nú á uppleiö aftur eftir slakt gengi síöustu ára og leiöir nú keppnina um þriöja sætiö á eftir Ferrari og McLaren. Þaö geröi nýlega
vélarsamning viö BMW sem hefur skilaö sér vel og eflaust er stutt aö bíöa þess aö viö sjáum Williams-liöiö í toppbaráttunni aftur.
Michael Schuntacher
Það er greinilegt að Sir Frank
Wifliams talar mikið um Michael
Schumacher enda hefur hann verið
Góður fundur
Frank Williams er einstaklega þægilegur í viömóti og tók hann vel á móti blm. DV sem heimsótti hann í glæsilegt hjólhýsi Williams-liösins um síöustu helgi.
mannstitil það árið.
Ekki mikið fyrir veisluhöld
Sigursælasta ár Williams-liðsins
var 1996 þegar Damon Hill og
Jacques Villeneuve óku fyrir liðið
og tóku í sameiningu 175 stig, 12
sigra og 12 ráspóla. Damon varð
heimsmeistari ökumanna og Willi-
ams-liðið heimsmeistari keppn-
isliða.
Hvernig tilfinning er þaö aó vera
eigandi og stjórnandi keppnisliðs
sem gengur allt í haginn? “Stöðugar
áhyggjur. Stöðugar áhyggjur af því
að eitthvað geti farið úrskeiðis, því
get ég lofað, en í lokin var það mjög
ánægjulegt," svarar Frank.
Þetta sama dr haföi Damon Hill
verið „rekinn" frá liðinu eftir svim-
andi háar launakröfur. Hvernig var
þaó þá fyrir yfirmann liðsins að
fagna með fráfarandi ökumanni?
„í það skiptið? Williams-liðið
eyðir ekki miklum tíma í veislu-
höld. Auðvitað var kvöldverður
með liðinu en að öðru leyti ekkert
sérstakt," segir Frank og bætir við:
„Þó er gaman að segja frá því aö
ánægjulegasta keppnistíðin, fyrir
mig persónulega, var árið eftir þeg-
ar Jacques Villeneuve og Michael
Schumacher, á seinni hluta tima-
bilsins, börðust maður á mann þeg-
ar staðan breyttist frá keppni til
keppni ýmist okkur í hag eða þeim
(Ferrari)," segir Williams þegar
hann rifjar upp árið 1997. „Þetta var
mjög áhugavert tímabil.“ Áriö end-
aði svo eftirminnilega er
Schumacher ók inn í hliðina á Vil-
leneuve og féll úr keppni og
Kanadamaðurinn tók síðasta heims-
meistaratitilinn sem komið hefur í
hús hjá Williams-keppnisliðinu."
lýsir því vel hversu ákveðinn og
áhugasamur Frank er um kappakst-
ur og að stjóma liði sínu.
Umdeilt atvik
Eitt erflðasta árið í tíð Williams-
liðsins var þegar Aryton Senna lést
í San Marino-kappakstrinum árið
1994. Reyndi það mikið á krafta
hans, sem og manna hans. Af ein-
beitni og hörku börðust þeir þó
áfram og þegar kom aö síðustu
keppni ársins var titillinn í liða-
keppninni í höfn og eitt stig skildi
þá Michael Schumacher og Damon
Hill í ökumannskeppninni. Þá gerð-
ist mjög umdeilt atvik sem réð úr-
slitum í heimsmeistarakeppni öku-
manna það árið. „Ég reyni að halda
mig utan við það deilumál en
kannski var Schumacher einum of
harður, kannski vissi hann ekki um
Damon. Damon var tveim sekúnd-
um á eftir Schumacher en hann
hafði farið harkalega utan í vegrið-
ið skömmu áður. Damon sá að hann
var í vandræðum, kom auga á
möguleika og reyndi framúrakstur.
Þetta gerðist allt mjög hratt.
Kannski vissi Schumacher hvað
hann var að gera, kannski ekki, en
það skiptir ekki máli.“ Við atvikið
skullu bílarnir saman með þeim af-
leiðingum að báðir voru úr leik en
Schumacher tók sinn fyrsta öku-