Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2000, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2000 Skoðun I>"V Fasteignasölur Fékk ég afrit af báöum afsölunum og oröalagiö kom atgjöriega flatt upp á mig. Óvönduð vinnubrögð Spurning dagsins Finnst þér að lögieiða beri fíkniefni hér á landi? Svanhvít Arnardóttir nemi: Nei, þaö er bara rugl. Lóa Siguröardóttir: Já, kannski marijúana, þaö er hættu- minna en sígarettur. Guðrún Kvaran: Nei, eiturlyf eru viöbjóöur. Eva Linda Eyþórsdóttir: Nei, ég held aö ástandiö myndi versna viö þaö. Gunnhildur Ólafsdóttir: Nei, þá veröa allir rugiaöir. Birgir Hannesson: Nei, þaö tel ég ekki rétt. Á síðustu árum varð skóli sem ég rek fórnarlamb óvandaðra vinnu- bragða fasteigna- sölu við orðalag um leigurétt skól- ans á afsali dag- settu 17. desember 1997 þar sem segir: skólastjóri skrifar: ..Kaupanda er .............. kunnugt um að leigusamningur um 2. og 3. hæð (Nuddskóli R.G.) gildir til 1/6 1998.“ Daginn eftir var selt til nýrra aðila þar sem sama orðalag var endurtek- ið nánast orðrétt (væntanlega í trausti þess að fasteignasalan hefði vandað til orðalagsins). Upphófst mikil deila við nýja eigendur um leigurétt starfseminnar. Fékk ég af- rit af báðum afsölunum og orðalag- ið kom algjörlega flatt upp á mig því þarna var sagt að skólinn ætti að Eyrún Ragnarsdóttir skrifar: Undanfarið hefur verið mikið fjall- að um það í fjölmiðlum að hækka bílprófsaldur úr 17 ára í 18 ára eða eldra og væri það eflaust gott til að sporna gegn tíðum slysum og um- ferðarlagabrotum ungmenna sem virðist vera að aukast illu heilli. Þessar vangaveltur leiða huga minn að öðru tengdu máli og það er sjálfræðisaldur ungmenna. Hvers vegna hefur svona lítið verið gert í því að samræma lögin? Unglingar eru nú sjálfráða 18 ára í stað 16 ára áður. Þau mega faktíst ekki vinna fullan vinnudag fyrr en 18 ára vegna vinnulöggiafar ESB sem við sem aðilar að EES verðum að taka tillit til. Svo er annað mál að þetta „Fékk ég afrit af báðum afsöl- unum og orðalagið kom al- gjörlega flatt upp á mig því þarna var sagt að skólinn ætti að rýma húsnæðið ákveð- inn dag án þess að fyrir lœgi uppsögn, riftun, lok á tima- bundnum leigusamningi, leiguskuld eða skriflegt sam- komulag skólans. “ rýma húsnæðið ákveðinn dag án þess að fyrir lægi uppsögn, riftun, lok á tímabundnum leigusamningi, leiguskuld eða skriflegt samkomu- lag skólans. Eigandinn fór i útburðarmál við skólann eftir 1. júní 1998 með þeim rökum að skólanum hefði verið skylt að rýma húsnæðið á framan- „Hvaða vit er í því að ung- menni megi bera ábyrgð á og keyra bil 17 ára, borgi fulla skatta frá 16 ára aldri, megi samt í rauninni ekki vinna fulla vinnu fyrr en 18 ára og sé ekki heldur sjálfráða fyrr en 18 ára...“ ákvæði hefur ekki haldið vel út af manneklu á vinnumarkaði yfír sumarmánuði og langri hefð okkar fyrir vinnu unglinga yfir sumar- mánuðina. Enn þá eru í gildi sömu skattalög- in og áður þ.e. 16 ára borga fulla skatta en samt eru 16-18 ára ung- greindum degi. Úrskurður héraðs- dóms var sá að þar sem þetta væri atvinnuhúsnæði ætti lokadagsetn- ingin á afsalinu að gilda. Skólinn taldi hins vegar algjörlega óásættan- legt að þriðju aðilar út i bæ ákvörð- uðu lokadagsetningu leigusamnings án þess að leigjandinn gæti nokkru um það ráðið. Leigjendasamtökin, sem undirritaður gekk í sér til verndar og stuðnings, tóku undir þetta og töldu að það yrði að kæra þetta því úrskurðurinn gæti hleypt öllum leigusamningum landsins í uppnám. Lögmaður skólans kærði þetta því til Hæstaréttar (f.h. skól- ans). Dómsorðið hnekkti því að framangreind dagsetning hefði gildi. Skólinn vann því fullan sigur. Leigjendasamtökin segja að óvönd- uð vinnubrögð fasteignasala af svip- uðu tagi séu landlæg og að á þeim verði að taka. Ég tek undir það í þessu tilfelli. lingar á fullri ábyrgð foreldra eins og um börn væri að ræða! Getur verið að skattyfirvöld séu að draga lappirnar í þessu máli vegna þess að þeir missi spón úr aski sínum? Það er spuming. Væri ekki skynsam- legra að bílpróf, skattalöggjöfin, hegningarlöggjöfin og sjálfræðisald- urinn fylgdust að þ.e. 18 ár. Hvaða vit er í því að ungmenni megi bera ábyrgð á og keyra bíl 17 ára, borgi fulla skatta frá 16 ára aldri, megi samt i rauninni ekki vinna fulla vinnu fyrr en 18 ára og sé ekki held- ur sjálfráða fyrr en 18 ára þ.e. telst bam til 18 ára aldurs, á fullri ábyrgð foreldra sinna. Við gætum með réttu kallað þennan hóp ung- menna týndu kynslóðina eins og málin standa í dag. Dagfari Guðmundur Týnda kynslóðin Þjóöin haldi opinbera rollutrúarhátíö Löngum hafa Islendingar haft gaman af að segja brandara um heilögu kýmar í Ind- landi. Þar ganga beljur um torg og sveitir án þess að við þeim megi stugga af trúarlegum ástæðum hindúa. Oft á tíðum hefur þetta lit- ið furðulega út í augum íslendinga, ekki síst þegar umtalsverður hluti indversku þjóðar- innar hefur verið að drepast úr hor og nær- ingarskorti. Minnir þaö nokkuð á söguna um lata Geir á lækjarbakka sem lá þar til hann dó. Vildi hann ekki vatnið smakka, var hann þyrstur þó. Geiri sálugi lést sem sagt úr leti og heimsku af þvi hann asnaðist ekki til að súpa á læknum sem rann við nefið á honum. Einhvem veginn læðist sá grunur að Dagfara að asnaskapur Indverja í þessum efnum sé ekki mjög frábrugðinn heimsku íslendinga. Ekki þarf að rekja sig ýkja langt til baka í íslandssögunni til að finna dæmi um það er fólk var að drepast úr eymd og matarleysi en mátti alls ekki til þess hugsa að slátra heimilishrossinu, truntu sem þó var varla til nokkurs brúks nýtileg nema sem saltkjöt i tunnu. Þessi vitleysisgangur í skjóli trúarofstækis virðist þó síður en svo útkiúnaður hér á landi. Að vísu er fólk farið að kroppa í hrossakjöt svona af og til, en blessaðar rollumar virðast „Blessuð sauðkindin hefur fœtt okkur og klætt í gegnum aldimar og haldið í okkur lífinu og gert að einstakri súperþjóð sem af öllum ber í heimi hér. “ hins vegar vera að taka við hlutverki hestanna. Það er alveg harðbannað að segja eitt einasta styggðaryrði um sauðkindina. Hún er lofuð i há- stert og þá ekki síst þegar fyrirmenn þjóðarinnar þurfa að lita rósamálið sterkum sauðalitum á tyllidögum. „Blessuð sauðkindin hefur fætt okkur og klætt í gegnum aldimar og haldið í okkur lífinu og gert að einstakri súperþjóð sem af öllum ber í heimi hér.“ (Var þetta ekki gott hjá mér? Það var bara eins og for- setinn hefði mælt þessi orð af munni.) Sem sagt, rollan er heilög. Það er hrein sví- virða að ætlast til þess að lausaganga þessara sætu lopahnoðra verði bönnuð, eins og títt er í miklum fiárræktarlöndum. Það kemur mál- inu heldur hreint alls ekkert við þó fiöldi ís- lendinga örkumlist á ári hverju og verði fyrir gríðarlegu eignatjóni af því að lenda i árekstri við vegarollur. Sauðkindin er rétt- hærri mannskepnunni á íslandi. Hún skal hafa forgang á þjóðvegum landsins. Hún á lika aUan rétt, ásamt blessuðum hrossunum, á að breyta afréttum í örfoka eyðimerkur og hún á sömuleið- is aUa samúð löggjafarvaldsins. RoUutrú íslend- inga skal blífa um aUa framtíð og við skulum bara læra að sætta okkur við og iöka af enn meiri krafti en áður þessi trúarbrögð. Það er líka meira en timi tU kominn að þjóðin komi út úr kristnitökuskápnum, skundi á ÞingvöU og haldi meö stæl opinbera roUutrúarhátíð. V>&$$asL Burt með flug- völlinn Þórður hringdi: Ég vil koma á framfæri kvörtun- um yfir ReykjavíkurflugveUi sem stendur hér í miðri íbúðarbyggð. Hann er slysagUdra auk þess sem af honum stafar mikil hljóðmengun. Fjárhagslega er þetta ósniðugt og það ætti að byggja á þessu svæði. íbúðaverð er að hækka og það vant- ar byggingasvæði i Reykjavík. Til dæmis vantar sárlega húsnæði fyrir háskólanema. Vitrænast væri að flytja innanlandsflug tU Keflavíkur- flugvaUar og koma á laggirnar lest á miUi Keflavíkur og Reykjavíkur. Sundlaugarnar frábærar Margrét skrifar: Ég er nýlega flutt heim frá útlönd- um og hef saknað íslenskra sund- lauga. Því vU ég nota tækifærið til að benda á að bæði sundlaugar og sundmenning á íslandi er aUt önnur og mun betri en í flestum öðrum löndum. Þeim sem gera mikið af því að kvarta og kveina í lesendadálk- um dagblaðanna vil ég benda á að gott sund í faUegu umhverfi dregur tvímælalaust úr streitu. Gott framtak Steinunn hringdi: Það var gott framtak hjá kaup- mönnum við Laugaveginn að hleypa umferð á hann aftur, eftir að borgaryfirvöld höfðu ætlað að gera neðri hluta hans að göngugötu. Það er beinlínis hjákátlegt að stöðva umferð um götu sem á aUt sitt und- ir verslun og viðskiptum, meðan rigningin er svo mikU að ekki er hundi út sigandi. En þetta gerðu borgaryfirvöld. Kaupmenn höfðu svo vit fyrir þeim með því að grípa tU eigin ráða. Ég er ekki að segja að varsla og rekstur borgarinnar hafi verið tU neinnar fyrirmyndar þegar ihaldið réð þar ríkjum. En stundum koma þeir dagar sem maður spyr sig hvort R-listinn sé á fyrsta degi við stjómun. Svo klaufalegar eru marg- ar ákvarðanir hans og athafnir. Um vanda þyrlu- sveitarinnar Hafliði Helgason skrifar: Að undanfomu hefur veriö fiaU- að töluvert um bUamál hjá þyrlu- sveit Landhelgisgæslunnar. Það á að leysa þetta mál á einfaldan hátt. Það þarf að fá fleiri menn í áhafnir og þeir eiga að vera á vöktum, tU- búnir tU að fara í loftið þegar kaUið kemur og eiga aUs ekki að þurfa að bíða eftir leigubU. Einnig þarf að fá nýja þyrlu af sömu stærð og Líf, en hún er nú bUuð. Þessir menn eiga heiður skUinn fyrir sín erfiðu störf. PVi Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn T síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 ReyKJavik. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.