Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2000, Side 8
8
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2000
DV
Fréttir
Milljónir og mannslíf
Lausaganga búfjár:
í hættu
- óhöpp tengd búfénaði fara vaxandi
MYND SJÖVÁ-ALMENNAR
Bíleigandinn ber allan kostnaðfnn
Bíll fór út af veginum undir Hafnarfjalli síöastliöinn laugardag er ökumaöurinn
sveigöi frá kind sem hljóp út á veginn. Fólkiö slasaöist tiltölulega lítiö og
kindin slapp, en bíllinn er ónýtur. Lausaganga búpenings er bönnuö á svæö-
inu. Þar sem eigandinn var ekki meö bílinn í kaskótryggingu ber hann allan
kostnaöinn af tjóninu.
í fyrra tengdist 251 umferðaró-
happ lausagöngu búfjár og fer þessi
tala ískyggilega hratt vaxandi. Árið
1999 varð 25 prósenta fjölgun á þess-
um umferðaróhöppum frá árinu á
undan og það ár hafði óhöppum
vegna lausagöngu fjölgað um 20 pró-
sent síðan árið 1997.
„Á eftir ölvunarakstri og
hraðakstri koma lausagöngumálin
sem áhættuþáttur í umferðinni. Þau
eru í þessari röð, þetta er mjög
hættulegt," sagði Theodór Kr. Þórð-
arson, lögregluvarðstjóri í Borgar-
nesi, sem einnig er formaður um-
ferðaröryggisnefndar Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu og Akraness.
„Hægt er að draga úr fjölda um-
ferðaróhappa með markvissri
hraðagæslu og almennri löggæslu,
en árangursríkasta slysavörnin á
þessu svæði væri ef við gætum al-
veg útilokað að ekið væri á búpen-
ing,“ bætti Theodór við.
Lögleg lausaganga
Samkvæmt íslenskum lögum er
lausaganga bönnuð þar sem girt er
báðum megin vega sem flokkast
undir stofnvegi og tengivegi. Meira
er um þessi óhöpp á ákveðnum
svæðum landsins þar sem umferð-
arþungi er mikill. Borgames, Isa-
fjörður og Blönduós eru þess vafa-
sama heiðurs aðnjótandi að vera
með hæstar tölur yfir umferðaró-
höpp vegna lausagöngu sauðfjár á
síðasta ári.
Lögreglan í Borgarfiröi hefur
vakið athygli á lausagöngu búpen-
ings í gegnum árin. Fyrir nokkrum
árum setti hún endurskinsmerki á
200 hross sem gengu laus á vegum. í
kjölfarið var hugað betur að girð-
ingum með fram þjóðveginum og lít-
ið er um það nú að ekið sé á hross í
Borgarfirði. En samt sem áður voru
39 umferðaróhöpp í Borgarfirði þar
sem ekið var á kindur í fyrra.
„Okkur sem komum að þessum
slysum er ljóst hvað hún er hættu-
leg, þessi lausaganga," sagði Theo-
dór. „Ég tel það eina árangursrík-
ustu slysavömina að beita sér af
krafti gegn lausagöngunni á vegum.
Við stefnum að því að henni verði
Sigrún María Kristinsdóttir
blaöamaöur
sinnt með því móti að vegsvæðið
verði smalað, kindurnar teknar í rétt
og þar verði lesið úr mörkum hver á
þær. Við viljum koma þessu í þetta
far að það séu bara ákveðnir smalar
sem ganga í þetta.“ Hann bætti því
við að þetta myndi annaðhvort vera
verkefhi Vegagerðarirmar eða sveit-
arfélaganna. Vegagerðin í Borgar-
flrði hefur nú þegar sett sérstakan
mann í að fylgjast með lausagöngu
búpenings og ástandi girðinga.
Féð valsar fram og til baka
„Þegar féð er komið á bragðið fer
það oft heilmiklar krókaleiðir til
þess að komast á veginn aftur,“
sagði Theodór. „Þetta er ekki mjög
víða, en ástandið er slæmt frá Hval-
fjarðargöngum og að Borgarfjarðar-
brú, að hluta til vegna þess að ekki
er rekið á fjall, og svo vegna þess að
Theodór Kr. Þórðarson.
giröingar halda ekki alls staðar.“
Lausaganga búfjár í vegarkantinum
er bönnuð á þessu svæði. Aftur á
móti er hún leyfð á Holtavörðuheið-
inni, sem er afréttur og engar girð-
ingar eru þar. Fé er sleppt þar á vor-
in og svo er smalað aftur á haustin.
Vegagerðin ætlar að setja upp skilti
sem vara ökumenn við því að laust
búfé er á svæðinu.
„Þama finnst okkur að Vegagerð-
in eigi að láta girða,“ sagði Theodór.
„Þama valsar féð fram og til baka
og þetta er mjög hættulegur staður.“
Milljónatjón
Það eru ekki bara bíleigendur
sem þurfa að bera skaðann ef þeir
aka á búfénað. Fyrir rúmu ári
dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur
bónda i Rangárvallasýslu til þess að
greiða bílaeiganda 150.000 krónur
fyrir tjón á bíl sem ók á kind bónd-
ans. Kindin hljóp ásamt tveimur
lömbum út á þjóðveginn þar sem
girt var beggja vegna vegarins og
lausaganga búfjár með öllu bönnuð.
Ærin drapst við ákeyrsluna og bíll-
inn var það mikið skemmdur að
ekki þótti taka að gera við hann.
Þetta heyrir þó til undantekninga
og stærstu tjónþolar vegna ákeyrslu
á búfé eru bílaeigendurnir sjálfir.
Upphæðimar sem eytt er i tjón af
völdum lausagöngu búpenings á ári
hverju á íslandi eru gífurlegar. DV
leitaði upplýsinga hjá Sjóvá-Al-
mennum, einu af þremur stærstu
tryggingafélögum landsins. Sjóvá-
Almennar hafa greitt 11-12 milljón-
ir á ári síðustu þijú árin í eigna-
skemmdir vegna lausagöngu og lík-
legt er að ökumenn hafi þá greitt
annað eins. Einnig greiddi trygg-
ingafélagið 6-7 milljónir á ári í bú-
fjárbætur til bænda. Áætla má að
hlutdeild Sjóvár-Almennra sé ein-
ungis þriðjungur þeirra fjármuna
sem öO tryggingafélögin greiða í
eignatjón af völdum búpenings á
vegum landsins. Hafa ber í huga að
greiðslur tryggingafélaganna em
upphæðir sem almenningur greiðir
með iðgjöldum sínum.
Þar fyrir utan er kostnaðurinn
við slysin, sem erfitt er að setja töl-
ur á, sérstaklega ef þau kosta
mannslíf. -SMK