Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2000, Qupperneq 4
4
ÞRIDJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
Fréttir DV
Verslunarmannahelgin:
Straumurinn liggur til Eyja
Veöurstofan spáir rigningu fyrir norðan
Verslunarmannahelgin
Veðurstofan spáir rigningu fyrir norðan á föstudaginn svo búast má við að ferðamenn haldi suður og austur um versl-
unarmannahelgina. Af nógu er að taka, þar sem fimmtán staðir bjóða upp á skipuiagða útihátíðardagskrá þessa
mestu ferðahelgi landans.
Samkvæmt upplýsingum Veður-
stofu íslands mun veður fara kóln-
andi um allt land á föstudaginn með
norðan- og norðaustanátt og fer að
rigna norðan til. Á laugardag á að
vera léttskýjað um mestallt land og
hæg breytileg átt. Nóg er í boði fyr-
ir ferðamenn en um 20 staðir bjóða
upp á skipulagða hátíðardagskrá
um helgina. DV hafði samband við
forráðamenn fimm stærstu hátíð-
anna sem haldnar veröa um versl-
unarmannahelgina.
Þjóðhátíð
Ferðamannastraumurinn þessa
mestu ferðahelgi ársins fer oft mik-
ið eftir veðri og virðist sem flestir
ætli á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
„Við búumst við góðri þjóðhátíð,
en við getum i rauninni ekkert sagt
til um hversu margir koma,“ sagði
Sigurður Gísli Þórarinsson úr þjóð-
hátíðarnefnd. Hann bætti því viö að
búist væri við fleira fólki en í fyrra
þegar 6000 til 8000 manns mættu og
sagði að fullbókað væri í allar ferð-
ir til Eyja um helgina. Þjóðhátíðin
er fjölskylduhátíð þar sem Laddi,
Steinn Ármann, Helga Braga og
Brúðubílfinn munu sjá fólki á öllum
aldri fyrir skemmtun. Hljómsveit-
irnar Sálin, Sóldögg, Á móti sól,
Áttavillt og fleiri munu leika fyrir
dansi. Einnig kemur enskur fjöl-
listamaður og söngvarakeppni verð-
ur haldin fyrir yngstu gestina.
Akureyri
Forráðamenn Fjölskylduhátiðar-
innar á Akureyri 2000 vilja stemma
stigu við ölvuðum unglingum en
um 4000 unglingar skildu mjög illa
við svæðið í fyrra. Þar af leiðandi
eru tjaldstæðin lokuð bömum yngri
en 18 ára nema þau séu í fylgd með
fullorðnum. Hátíðin fer fram með
svipuðum hætti og í fyrra en búist
er við 5000 til 8000 manns, sem er
heldur færra en í fyrra þegar fjöldi
hátiðargesta var á milli 12.000 til
15.000. Hljómsveitirnar Greifamir,
Skitamórall, írafár og Land og syn-
ir munu leika fyrir dansi í Sjallan-
um og í KA-heimilinu og halda tón-
leika í miðbænum. Unglingadans-
leikur verður í KA-heimilinu fyrir
fólk fætt 1984 og fyrr. Einnig verður
útimarkaður á Akureyri, grillveisla,
Ávaxtakarfan og leiktæki fyrir
bömin.
Galtalækur
Bindindishátíðin í Galtalæk verð-
ur haldin í 40. sinn nú í ár. í tilefni
þess bjóða forráðamenn hátíðarinn-
ar fólki 30 prósenta afslátt á mið-
um sem keyptir eru í forsölu en
fólk verður að hafa hraðan á, því
forsölunni lýkur í dag, 1. ágúst.
Svæðið sjálft getur borið 10.000
manns en Guðni Björnsson, kynn-
ingarfulltrúi hátíðarinnar, átti von
á að 5000 til 7000 mótsgestir legöu
leið sína í Galtalæk. Þetta árið
munu Ómar Ragnarsson, Spaug-
stofan, Latibær og fleiri sjá fólki á
öllum aldri fyrir skemmtun og
hestaleiga verður á svæðinu. Auk
þessa verður haldinn unglinga-
dansleikur þar sem hljómsveitin
200.000 naglbítar leikur fyrir dansi.
Neistaflug
Þar sem veðurspáin lofar góðu
um helgina á Austurlandi eiga for-
ráðamenn fjölskylduhátíðarinnar
Neistaflugs í Neskaupstað von á
allt að 4000 manns. Þar er ýmislegt
í boði fyrir bæði böm og fullorðna,
svo sem golfmót, Gunni og Felix,
Sigga Beinteins, listflug, dorgveiði-
keppni, flugeldasýning og fleira.
Ókeypis er á flest skemmtiatriðin
önnur en tónleika sem haldnir eru á
kvöldin þar sem Todmobile, Selma,
Buttercup og fleiri munu leika fyrir
dansi.
Unglingalandsmót
Forráðamenn fjórða unglinga-
landsmóts UMFÍ eiga einnig von á
allt að 4000 manns á íþróttamót ung-
linga sem haldið verður á Tálkna-
firði, Patreksfirði og í Bolungarvík.
„Þar sem mótið er um verslunar-
mannahelgi, sem hefur ekki verið
áður, þá erum við að reikna með
meiri þátttöku en fyrr. Við höfum
fengiö ótrúlega góð viðbrögð frá
fólki, kannski vegna þess að þarna
er verið að bjóöa upp á fjölskyldu-
skemmtun þar sem aðgangur er
ókeypis," sagði Sigurður Öm Hall-
grímsson hjá UMFÍ. Þama verður
boðið upp á nóg af íþróttum, þar á
meðal bogfimi, golf, seglbretti og
hafnabolta. Einnig kemur landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu og skoðar til-
vonandi landsliðsmenn. Vala Flosa-
dóttir mætir og keppir í stangar-
stökki við erlenda stangar-
stökkvara, leiktæki fyrir böm og
dansleikir verða haldnir.
-SMK
Óttl hjá fólki
Jaröskjálftaspárjarðvísindamanna
vöktu óhug íbúa á
jarðskjálftasvæðum Suðurlands.
Jarðskjálftaspár:
Vöktu óhug
og ótta
- óvissa um fasteignaverð
„Ég heyrði í gærkvöld og morgun að
þessar fregnir vöktu svolítinn óhug og
ótta hjá fólki,“ sagði Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson, sveitarstjóri á Hellu,
um jaröskjálftaspár jarðvísindamanna.
Á vefsíðu jarðeðlissviðs Veðurstofunn-
ar segja þeir að möguleiki sé á stór-
skjálftum á Suðurlandi, allt að 7 að
styrkleika. Páll Halldórsson sagði við
DV í gær að verulegar likur væm á
jarðskjálftum á næstu árum, svipuðum
þeim sem urðu í sumar.
„Þetta er ekkert annað en það sem
er vitað og hefur verið vitað,“ sagði
Guðmundur Ingi. „Þetta er okkar
raunveruleiki.
Hann sagði að umrædd grein væri
sett fram á fræðilegan hátt af þeim
jarðvísindamönnum sem best vit
hefðu á þessum málum. Þeir væm að
skýra frá því sem þekkt væri í sögunni
og best væri vitað um málið. Guð-
mundur Ingi kvaðst ekki geta sagt til
um hvort betra hefði verið að halda
umræddum upplýsingum frá almenn-
ingi eða birta þær. Hvort tveggja gæti
átt við. Upplýsingamar væm fyrir-
liggjandi hvort eð væri, ef fólk leitaði
eftir þeim.
Aðspurður hvort einhveijir íbúa á
Hellu eða nágrenni væm famir að
hyggja að brottflutningi vegna þessa
kvaðst Guðmundur Ingi hafa heyrt hið
gagnstæða; að fólk væri enn fastákveð-
ið í að vera kyrrt. Hvort þessi spá
breytti einhverju væri ekki hægt að
segja til um að svo stöddu, það yrði
tíminn að leiða í ljós.
„Hvað varðar þróun á fasteigna-
verði vegna þessa þá á hún eftir að
skýrast á næstu 5-6 mánuðum. Fram
að skjálfta hafði fasteignaverð verið
heldur hækkandi hér en ég held að það
hljóti að vera óvissutími á öllu svæð-
inu núna.“ -JSS
Léttskýjaö víðast hvar
Suðvestanátt, 8 til 13 m/s. norðvestan til en
annars hægari. Skýjaö og sums staöar dálítil
súld á Vesturlandi og Vestfjöröum en víðast
léttskýjaö annars staöar í dag. Hlýjast austan
til. SV 13 til 18 m/s. og rigning norövestan til
I nótt.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.31 22.32
Sólarupprás á morgun 03.12 04.01
Síödegisflóö 19.29 00.02
Árdegisflóö á morgun 07.56 12.29
Skýiingar á ve&urtáknum
10°4— Hm
" “'r"
J^V1NDSTYRKUR UN.„n„ HEIÐSKÍRT
I nietrum á sokúndu rKUS I
Íí> iD ÖO
IÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
í? © W ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
© ~\r TT=
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Færð
Hálendisvegir flestir færir
Helstu þjóövegir landsins eru
greiöfærir. Víöa er unniö aö vegagerö
og eru vegfarendur beönir aö sýna
sérstaka tillitssemi og haga akstri eftir
merkingum. Hálendisvegir eru flestir
færir jeppum og stærri bílum. Þó er
enn ófært í Hrafntinnusker. Talið er
fært fyrir alla bíla um Uxahryggi,
Kaldadal, Kjalveg og í
Landmannalaugar um Sigöldu.
mm
Dálítil væta fyrir noröan
Á morgun veröur suövestanátt, 8 til 13 m/s og dálítil rigning noröan til en
hægari og skýjaö aö mestu um landið sunnanvert. Hiti veröur 10 til 20
stig, hlýjast á Noröausturlandi.
Fimmtud
m
Vindun
8—13 m/s,
Hiti 10° til
Jiir W
Sunnan- og suövestanátt 8
tll 13 m/s og rignlng. Hltl
10 tll 17 stlg, hlýjast
noröaustan tll.
Föstudagur
Vindur: C
8—13 m/% \
Hiti 7° til 14°
Noröan- og norövestanátt
8 tll 13 m/s. Skúrlr
noröan tll en víöast
léttskýjaö um landlö
sunnan- og vestanvert.
Mlldast sunnanlands.
Laugarda
Vindun
4—8 irv's
Hiti 10° til 15°
Fremur hæg breytlleg átt,
yfirleitt léttskýjaö og hltl
10 tll 15 stlg.
m
AKUREYRI léttskýjaö 8
BERGSSTAÐIR léttskýjaö 8
BOLUNGARVÍK alskýjaö 9
EGILSSTAÐIR 5
KIRKJUBÆJARKL. þokumóöa 12
KEFLAVÍK skýjaö 10
RAUFARHÖFN þoka 8
REYKJAVÍK alskýjaö 10
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 10
BERGEN skýjaö 12
HELSINKI skúrir 15
KAUPMANNAHÖFN rigning 13
ÓSLÓ skýjaö 15
STOKKHÓLMUR 17
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 11
ALGARVE heiöskírt 26
AMSTERDAM þokumóöa 17
BARCELONA léttskýjaö 23
BERLÍN léttskýjaö 14
CHICAGO þokumóöa 20
DUBUN léttskýjað 13
HAUFAX heiöskírt 16
FRANKFURT skýjaö 14
HAMBORG rigning 15
JAN MAYEN súld 6
LONDON mistur 16
LÚXEMBORG hálfskýjaö 17
MALLORCA heiöskírt 19
MONTREAL alskýjaö 20
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 9
NEW YORK þokumóöa 19
ORLANDO hálfskýjaö 25
PARÍS 18
VÍN skýjaö 14
WASHINGTON skýjaö 22
WINNIPEG léttskýjaö 14
■3335MŒS5BI!!