Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2000, Qupperneq 1
15
Miövikudagur 2. ágúst 2000
Leikmenn Brondby æfðu á Laugardals-
velli í gær þar sem leikur þeirra gegn KR
fer fram í kvöld. DV-mynd E. Stefán
Tap fyrir Dönum
íslenska U-21 kvennalandsliðið í knattspymu
tapaði í gær öðrum leik sínum á opna
Norðurlandamótinu í Þýskalandi. Keppt var viö
Dani og unnu dönsku stúlkumar leikinn, 3-1, eftir
að hafa leitt 2-0 í háifleik. Rakel Logadóttir
skoraöi mark íslands í leiknum.
ísland spilar á fimmtudaginn um 5. sætið á
mótinu við Svía.
Sigur á Skotum
Njarðvíkingurinn Óskar
Hauksson tryggði 16 ára lands-
liði íslands sigur á Skotum á
Norðurlandamótinu í knatt-
spymu sem fer fram í Færeyj-
um þessa dagana.
ísland tapaði fyrsta leiknum
gegn Svíum en leikur þriðja leik
sinn á mótinu á fimmtudag við
Noreg. Skotar og Norðmenn
gerðu 1-1 jafntefli í 1. umferð.
Ólafur í bann
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,
hefur verið dæmdur í 1 leiks
baim af aganefnd KSÍ vegna fjög-
urra áminninga sem hann hefur
hlotið í sumar.
Þorsteinn Sveinsson, Breiða-
bliki, fékk tveggja leikja bann
fyrir brottvísun sína i leik ÍA og
Breiðabliks og Almir Mestovic,
Sindra, fékk 3ja leikja bann.
KR-Brondby
íkvöld
í kvöld mætast á Laugardals-
vellinum lið KR og Brondby í
seinni leik liðanna í annarri um-
ferð forkeppni Meistaradeildar
Evrópu. Fyrri leikurinn var háð-
ur í Kaupmannahöfn í síðustu
viku og báru heimamenn þar
sigur úr býtum með þremur
mörkum gegn einu marki KR-
inga. Það er því á brattann að
sækja fyrir íslands- og bikar-
meistarana en þeir þurfa að
skora minnst tvö mörk gegn
Dönunum.
7-8 útsendarar á
leiknum í kvöld
Það verða þó nokkrir útsend-
arar á leik KR og Brondby í
kvöld til að fylgjast með leik-
mönnum liðanna. Talið er að
leikmenn eins og Andri Sigþórs-
son, Þórhallur Hinriksson,
Bjami Þorsteinsson og Sigþór
Júliusson verði undir smásjánni
í kvöld.
Haukur Ingi
í hóp KR
Haukur Ingi Guðnason, sem
gekk til liðs við Groningen í
Hollandi fyrir skömmu, verður í
hópi KR-inga í leiknum í kvöld.
Haukur Ingi meiddist skömmu
eftir að hann kom til Hollands og
gekk þá samningurinn tíma-
bundið aftur. Hann er aftur orð-
inn góður og verður með í kvöld.
Áge Hareide, þjálf-
ari Brandby:
Ætlum
að sækja
„Nei, við munum ekki breyta
liðsuppstillingu okkar frá síð-
asta leik. Við verðum að vera já-
kvæðir ef við ætlum okkur að
vinna leikinn. Þetta er mikil-
vægur leikur fyrir okkur til að
æfa leikaðferð okkar.
Við munum ekki bíða aftar-
lega á vellinum eftir að íslensku
leikmennimir sæki að okkur.
Við munum heldur reyna að
vera i sóknarhlutverkinu í leikn-
um þvi það er besta leiðin til að
nálgast leikinn. Þeir þurfa hins
vegar að sækja og munum við
nýta okkur þaö til að skapa okk-
ur færi. Þeir munu væntanlega
ekki spila jafn þéttan varnarleik
og þeir gerðu í Kaupmannahöfn
og því skapast fleiri tækifæri
fyrir okkur í leiknum.
Það er mjög erfitt að spila
gegn jafn skipulögðum varnar-
leik og var í leik KR-inga fyrir
viku. Núna þurfa þeir hins vegar
að sækja og við munum reyna
að opna leikinn og stjóma hon-
um.“ -esá
Friörik Stefánssson, landsliösmaö-
ur íslands í körfu, sést hér í haröri
baráttu viö tvo Norðmenn í 26 stiga
sigri íslands á Noregi í gær.
DV-mynd Hilmar Þór