Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2000, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000
Fréttir
5
DV
Umsjón: H____________
Hörður líristjánsson
netfang: sandkorn@ff.ls
Farið að volgna
Flugleiðir
: hafa átt á bratt-
: ann að sækja að
: undanfornu og
ekki hafa hvim-
leiðar tafir í
; farþegaflutning-
um erlendis
: hjálpað þar
upp á sakirn-
ar. Þó í sum-
um tiffellum hafl leiguvél íslands-
flugs átt í hlut hafa farþegar kennt
Flugleiðingum um lélega þjónustu í
slíkum uppákomum. Sigurður
Helgason, forstjóri félagsins, er
því ekki sagður eiga öfundsverða
daga um þessar mundir. Segja gár-
ungar að brotthvarf Harðar Sigur-
gestssonar úr forstjórastóli Eim-
skips muni heldur ekki hjálpa upp
á sakirnar. Hörður mun nefnilega
áfram sitja í stjóm Flugleiða og
hafi því betri tíma til að kfkja á
málefni félagsins. Sagt er að setan i
stól Sigurðar sé því farin að hitna
talsvert...
Reyndist vel
Alþingi íslend-
inga hefur tekið
sumarbústað
Vigdísar Finn-
bogadóttur,
fyrrverandi for-
seta, á leigu.
Bústaðurinn
stendur á fógr-
um stað við
Þingvallavatn
og hefur trúlega þótt vel boðlegur
þar sem fyrrum forseti átti í hlut.
Halldór Blöndal segir í DV í gær
að það hafi lengi staðið til að taka
bústaðinn á leigu. Þegar hafi for-
seta lettneska þingsins verið boðið
að gista þar og bústaðurinn hafi
bara reynst vel. Athugull lesandi
DV furðaði sig á ummælum Dóra
um að bústaðurinn hafi bara
reynst vel. „Hélt hann að þetta
væri einhver fúahjallur...?“
Ódrepandi lestraráhugi
Heimdell-
ingar þykja
í sumra aug-
um sér-
kennilegur
söfnuður.
Þar safnist
á einn stað
ungir trúarmenn hinnar
einu sönnu sjálfstæðisstefnu.
Reyndar veit engin hver sú stefna
er, ekki frekar en hreintrúarstefna
ungra framsóknarmanna eða ungra
jafnaðarmanna. Það þótti því kveða
við nýjan tón nú í vikunni er
Heimdellingar fylktu liði á skatt-
stofuna. Ekki var það til að rífa
niður báknið hjá ríkisskattstjóra
heldur til að iðka lestur af mikilli
áfergju, líkt og kommar lásu rauða
kverið forðum. Gamall kennari
vildi þó benda Heimdellingum á að
Þjóðarbókhlaðan væri sennilega
heppilegri fyrir slíka lestrariðkun.
Þar mætti jú allavega finna
skemmtilegri bækur en skatt-
skrána, svo sem sögu Davíðs...
í kýrhausnum
í stuttfréttum
DV á þriðjudag
gat að lita fróð-
leik um ferðir
Guðna Ágústs-
sonar til Nor-
egs undir fyrir-
sögninni „Klór-
ar sér í kýr-
hausnum".
Guðni mun
hafa verið hjá frændum vorum að
skoða norskar kýr sem honum leist
skrambi vel á. Innflutningur á
þeim til íslands mun þó vera mjög
umdeildur enda mun Guðni ekki
enn hafa tekið ákvörðun um flutn-
ing á sæði eða fósturvísum til
landsins. Þetta varð hagyrðingi að
yrkisefni.
Þegar framsókn tapa fer
frómir hafa séö hann
í kýrhausnum aö klóra sér
og kœla sig aö neöan.
Forvarnir fyrir verslunarmannahelgi:
Betri lífsstíll án
eiturlyfja
- Netiö notað viö forvarnir
Eiturlyf og áfengismisnotkun ung-
linga er lifseigur fylgifiskur útihátíð-
anna sem haldnar eru um verslunar-
mannahelgina á hveiju ári og er ýmis-
legt gert til þess að spoma við þessari
vá sem herjar á æsku landsins. Götu-
smiðjan og Path hafa sameinast í for-
vamarátaki - auglýsingu sem prýðir
strætisvagnaskýli Reykjavikurborgar.
Textinn i auglýsingunni segir: „Ég
mínus dóp = LoL“. Síðasti hlutinn,
LoL, stendur fyrir Loads of Laughter
og er tölvumál, notað í tölvusamskipt-
um ungs fólks um allan heim.
„Við veljum okkur lífsstíl á hveijum
degi og þama erurrt við að setja fram
formúlu að lífsstíl sem gefur hamingju
og felur í sér fullt af hlátri og skemmti-
legheitum," sagði Marsibil Sæmunds-
dóttir, forstjóri Götusmiðjunnar, með-
ferðarheimilis fyrir ungt fólk. „Það
kemur að því að annaðhvort segir fólk
já eða nei. Við berum alltaf ábyrgð á
okkur sjálf og það erum cdltaf við sjálf
sem tökum þessar ákvarðanir," sagði
Marsibil.
„Tilgangurinn með þessari herferð
er að koma með nýjan anda inn í for-
vamir. Við vonumst til þess að ung-
lingamir grípi LoL á lofti og noti þetta
í SMS-skilaboðum í framtíðinni. Við
erum að höfða til gleðinnar," sagði
Hildur Sverrisdóttir hjá Path, Evrópu-
samtökum gegn eiturlyíjum.
Talað til foreldra
„Við höfum talað til foreldra í þau
ár sem við höfum starfað og þetta hef-
ur skilað þeim árangri að ferðum ung-
linga undir 16 ára aldri hefur fækkað
þar sem þeir fara einir á útihátíðir,"
sagði Snjólaug Stefánsdóttir, verkefnis-
stjóri samtakanna ísland án eiturlyfja
sem stofriuð vom árið 1997. í ár dreifðu
samtökin og fleiri aðilar auglýsingu á
Netinu og settu líka auglýsingar í íjöl-
miðla. Þessar auglýsingar hvetja for-
Z5
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Undir eftirliti
Frá Múlakvísl. Áin er vatnsmikil og
full af framburöi. Meö henni er fylgst
af vísindalegri nákvæmni eins
og sjá má.
Lítið hlaup í Múlakvísl:
Áin vatnsmikil
og hlutfall jarð-
hitavatns hátt
Múlakvísl hefur verið mjög vatns-
mikil upp á síðkastið. Að sögn
Jónasar Erlendssonar, sem sér um
aflestur leiðnimæla í ánni, hefur
leiðni jarðhitavatns heldur verið að
aukast í ánni undanfarið en rennsli
árinnar er samt mikið. Rennslið er
í raun meira en var í rigningunum
um næstsíðustu helgi og þetta mikla
rennsli ætti því að þýða minni
leiðni í ánni. Leiðni jarðhitavatns
mælist venjulega undir 100 en fer
upp í 220 til 230 þegar hlaup er að
koma. Á dögunum sást talan 159 á
mælunum en það er í efri kantin-
um. Greinilegt er því að mikið
hveravatn er í ánni og með því að
um lítið hlaup er að ræða í Múla-
kvísl. -NH
DV-MYND
Aö velja sér lífsstíl
Forvarnarstarf Götusmiöjunnar og Path fyrir verstunar-
mannahelgina felst í þessari augiýsingu þar sem ungu fólki
er bent á heilbrigöan lífsstíl. Marsibil Sæmundsdóttir, for-
stjóri Götusmiöjunnar, og Hildur Sverrisdóttir frá Path
standa hér viö eina þessara auglýsinga.
eldra til að
spoma við eft-
irlitslausum
ferðum á úti-
hátíðir og
vara jafnframt
við áfengis-
kaupum fýrir
unglinga.
Kannanir
meðal ung-
linga í Evrópu
hafa sýnt að
íslenskir ung-
lingar hafi
lent í alvar-
legri vanda
vegna áfengis-
drykkju en
jafnaldrar
þeirra víðast
hvar í Evrópu.
Nýjustu kann-
anir sýna hins
vegar að vera-
lega hefúr
dregið úr drykkju unglinga í efstu
bekkjum grunnskóla.
„Era þetta skýrar vísbendingar um
að forvamarstarf í landinu er að skila
árangri. Starf sveitarfélaga, félagasam-
taka og annarra aðila á þessu sviði er
greinilega á réttri leið,“ segir í fréttatil-
kynningu sem Island án eiturlyfja
sendi frá sér nýverið.
Ráðgjafar á útihátíðum
Þessar auglýsingar era forvarnir
fyrir verslunarmannahelgina en
einnig verða ráðgjafar á útihátíðunum
sjálfúm. Ráðgjafar kristilega líknarfé-
lagsins Byrgisins munu fara á allmörg
svæði og getur fólk sem lendir í vanda
vegna vímuefna leitað sér hjálpar hjá
þeim.
„Ráðgjafar Byrgisins ætla ekki að
reka áróður gegn því að fólk skemmti
sér heldur vera sýnilegir og fólki til
hjálpar og aðstoðar og lögreglunni og
öðra gæslufólki hátíðanna stuðning-
ur,“ segir í fréttatilkynningu frá Byrg-
inu. -SMK
Leikur í höndunum
á krökkunum í fríinu
Nýjasta æðið í heiminum er Pokémon., tölvuleikir sem eru gerðir fyrir
Game boy leikjatölvurnar. Aragrúi af sérkennilegum skrímslum berjast við öflugt
óvinalið og öðlast aukna hæfileika við hverja raun. Hægt er að skiptast á skrímslum
milli tölva þannig að til að verða góður í Pokémon er um að gera að vera I sambandi
við aðra sem spila leikinn.
Mikill fjöldi leikja á fínu verði
FRIHOFNIN
EIFSSTÖB KEFIAVÍKURFLUOVELLI