Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Page 26
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 I>V \ W53t I lukkupotti áskrifenda eru vinningar verðmætí 700.000 hr. Ert þú áskrifandi? I aðalvinning er fullkomið heimabíó frá Bræðrunum Ormsson, Lágmúia 8-9. Loewe Xelos 32" Videoscreen 100Hz Dolby Digital sjónvarp útvarp, geislaspiiari og DVD, 5x30RMS W hátalarar. Þetta eru græjurnar sem hafa hlotið verðlaun hjá virtum tæknitímaritum um heim allan og alla langar DREGID 31.ÁGÚST Vikulega í allt sumar Vikulega er heppinn áskrifandi dreginn út og hlýtur hann vöruúttekt að verðmæti 30.000 krónur, frá versluninni Sparsport, Nóatúni 17. láskrift 3 - borgar sig 550 5000 SPAR SPORT TOPPMERKI A I AGMARKSVERÐI BRÆÐURNIR ▼ ORMSSON Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is Helgarblað Hannes Þorsteinsson hefur hannað flesta golfvelli landsins: Með holur á heilanum Golfíþróttin hefur átt sí- auknum vinsældum að fagna hér á landi og telst nú vera sú íþrótt á eftir knattspymunni sem hvað flestir landsmenn stunda. Golfvellir hafa sprottið upp úti um allt land og golfsett er hægt að kaupa á næstu bensínstöð. DV hafði uppi á manninum sem hannað hefur á fjórða tug af þeim um 60 golfvöllum sem finn- ast á landinu, Hannesi Þor- steinssyni. Golfvöllur er ekki bara vel slegið tún með fullt af holum þó svo þeim sem ekki stunda íþróttina geti virst það í fyrstu. Á bak við hvem golfvöll liggur mikil hugmyndavinna og braut- ir era lagðar og mótaðar eftir ákveðn- um forsendum. Þetta getur Hannes Þorsteinsson, formaður golfklúbbsins Leynis á Akranesi, staðfest enda er hann eini íslendingurinn sem getur með réttu titlað sig golfvallarhönnuð en hann hefur hannað meirihluta allra íslenskra golfvalla. Hannes, sem er fæddur og uppalinn á Akranesi, smitaðist af golfáhuganum í gegnum fóður sinn, Þorstein Þor- valdsson sem var einn af stofnendum Leynis. Á sínum yngri árum var Hann- es mjög öflugur í golfinu og var m.a. fyrsti klúbbmeistari golfklúbbsins en hann hefur reyndar imnið þann titil alls átta sinnum. Hann var einnig í unglingalandsliðinu á sínum tíma, var í mörg ár starfsmaður golfvallarins á Akranesi og er í dag formaður golf- klúbbsins. Hvemig það kom til að Hannes gerðist golfvallarhönnuður má rekja til ársins 1968 þegar Hannes var 16 ára gamall en þá hannaði hann sinn fyrsta golfvöll. „Ákveðið var að halda samkeppni í golfklúbbnum á Akranesi um hug- mynd að níu holu golfvelli. Ég skilaði inn hugmynd sem varð svo fyrir val- inu og eftir henni var golfvöllurinn stækkaður úr sex holum í níu,“segir Hannes sem á enn þessa fyrstu teikn- ingu sína, gerða með vaxlitum á mask- ínupappír. Eftir þetta barst orðspor hans út og hlutimir undu einfaldlega upp á sig og golfvellimir urðu fljótlega fleiri. Líffræði og landafræði Þar sem ekki var til neitt nám í golf- vallarhönnun á þessum tíma lá leiö Hannesar í líffræði og landafræði i Há- skóla Islands en að hans sögn þá hefur það nám reynst honum vel í starfmu sem golfvallarhönnuður. „Þessi menntun hefur komið sér einstaklega vel þar sem maður verður t.d. að kunna skil á grastegundunum og geta lesið loftmyndir,“ segir Hannes og bætir við að það sem skiptir þó mestu máli sé að maður verði að hafa alhliða innsýn í golfið ætli maður að hanna golfvefti. Fyrir fimm ámm fann Hannes loks- ins nám við sitt hæfi en þá var hann reyndar búinn að skipuleggja fjöldann allan af golfvöllum. Honum fannst hann hins vegar þurfa að vita hvar hann stæði miðað við þekkta golfvall- arhönnuði erlendis svo hann skráði sig í námið. „Þetta er 2 ára nám sem samtök breskra golfvallaarkitekta stendur á bak við og er það eina viðurkennda námið á þessu sviði í Evrópu,“ segir Hannes sem er eini Skandinavíubúinn sem lokið hefur náminu og er hann nú meðlimur fyrrgreindra samtaka. „Kröfur almennings eru alltaf að verða meiri til islenskra golfvalla. Fólk ferðast meira og vill gjarnan spila hér við sömu aðstæður og það getur spilaö við erlendis." Aðhyllist náttúruvernd á golf- völlum Meðal þeirra valla sem Hannes hef- ur hannað er Korpúlfstaðavöllur, Odd- fellowvöllurinn og hraunvöllurinn í Hafnarflrði. Það eru ýmsir straiunar og stefnur í hönnun golfvalla eins og ööra og aðhyllist Hannes íhaldssem- ina. „Mitt prinsipp er að raska landslagi og lífríki sem minnst. Ég er ekki hrif- inn af þessum amerísku „fancý“ golf- völlum með hekturum af tilbúnum tjömum og sandflákum, gosbrannum og álíka þar sem öllu golfvallarlandinu er umsnúið eingöngu fyrir augað,“ seg- ir Hannes og bendir á að það sé vel hægt að halda upprunalegum sérkennum og lífríki golfvallarsvæðisins. Gott dæmi um það má sjá á fyrrnefndum golfvöllum. „Svæði utan brauta eiga að vera sem mest villt náttúra," segir Hannes. Þá benti hann á að golf og fuglalíf fari t.d alveg prýðisvel saman. „Sjáið bara golfvöllinn á Seltjamar- nesi. Menn sem þekkt hafa svæðið frá upphafi golfvallar þar eru sammála um að fuglalífið þar aukist eftir að golfvöll- urinn kom, þar sem fuglamir njóta verndar kylfmga og starfsmanna, t.d. fyrir vargftigli og öðrum afræningjum sem fælast mannaferðir," segir Hann- es. Vill völl í Viðey Hannes hefur að sjálfsögðu lika sin- ar skoðanir á hinni margumtöluðu hugmynd um golfvöll í Viðey. „Ég er ábyrgur fyrir 11 ára gamalli tillögu að 18 holu golfvelli í eynni og ég hefði aldrei lagt þessa tillögu fram ef ég teldi hana á einhvem hátt ógna líf- ríki Viðeyjar. Margir telja eyna van- Ekta golfvallargras „ Venjulegt gras þolir ekki að vera slegiö niöur í 3-4 milíimetra, þaö deyr bara. Því höfum viö veriö aö rækta upp sérstakt golfvallargras sem í eru erföafræöilegir dvergar og þola þessa meöferö, “ segir Hannes og er stoltur af Garöavellinum, golfvelli Akraness, þar sem hann segir aö sé besta golfvallargras landsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.