Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 Skoðun Spurning dagsins Hvaða landi myndirðu helst vilja búa í: (Fyrir utan ísland) Bergrós Hjálmarsdóttir nemi: Danmörku, því þaö er svo skemmtilegt í tívolíinu. Jón Sigurðsson kennari: Þýskalandi því þar er gott veöur og verölag fínt. Ægir Jóhannnsson verkfræðingur: Svíþjóö, því þaö er fallegt land og Svíar eru vinaleg þjóö. Gróa Másdóttir nemi og Már Ægisson: Ég myndi vilja búa í Danmörku því þar er fólk svo opiö og skemmtilegt. Hulda Friðbertsdóttlr hárgrelöslukona: Spáni því þar er svo hlýtt. Þuríður Geirsdóttlr hjúkrunarfræöingur: Danmörku því þar eru frændur okkar. Frá Þingvöllum Alls staöar nóg af rennandi vatni sem nota mætti í salerniskassa. Ferðalangar á Þingvöllum Sigríður Hrönn skrifar: Eftir ferðalag um ísland í sumar og gistingar á tjaldstæðum víða um land langar mig að viðra skoðun mína og eflaust margra annarra ferðalanga á hreinlætisaðstöðu á Þingvöllum. Aðstaðan þar er einfaldlega til skammar. - Og að þetta skuli vera þjóðgarður! Á tjaldstæöinu sem ég tjaldaði á, en það var við þjónustumiðstöðina, var hreinlætisaðstaðan (ef nefna mætti hana því nafni yfirleitt) hreinasti viðbjóður. Þarna stóð kamar og úti fyrir var einhvers kon- ar borð með vaski og rennandi vatni en engri sápu eða handþurrk- um. Kamar þessi var frekar ógeðs- legur þegar inn var komið, en þar hafði gleymst að sturta niður, og það greinilega lengi. Við vorum þama á miðvikudegi en þessi kamar er tæmdur vikulega að sögn. Hafði verið tæmdur á fostu- „Ég vona að aðstaðan á Þingvöllum verði bœtt hið fyrsta eða þá að sett verði upp skilti sem á stendur: Bannað að tjalda. “ degi og því ekki aftur fyrr en næsta föstudag. - Þvílíkur sóðaskapur. Ég hélt að kamar af þessu tagi væri hvergi notaöur í dag og aö alls staðar væri nóg af rennandi vatni sem nota mætti í salemiskassa. Eina aðstaðan sem þama er í boði að mínu mati er í þjónustumiðstöð- inni og lokar hún kl. 23.00 og opnar ekki aftur fyrr en kl. 09.00. Á öðram fjaldstööum á Þingvöllum er renn- andi vatn og ætluðum við að nota eitt þeirra, snemma dags, en þá var hreinlætinu svo ábótavant að við snerum frá. Svona aðstaða kallar á aö fólk geri þarfir sínar út um víð- an völl, og var fólk að ganga fram á slík skil er það var í kvöldgöngu. Að leyfa slíka „hreinlætisað- stöðu“ á tjaldstæði, nú árið 2000, kom manni á óvart. Og það á Þing- völlum. Þaö var sama hvar við tjölduðum um landið, alls staðar var betri að- staða og yfirleitt mjög hreinlegt, jafnvel til fyrirmyndar, og oft hægt að fara í sturtu á sama staö. Ég vil nefna nokkur dæmi um góða hreinlætisaðstöðu. Á Dalvík, á Siglufiröi, á Sauðárkróki og í Húna- veri, og þar var sturtuaðstaða. Mér skilst að fari maöur í Öskju sé að- staðan svipuð og á Þingvöllum. Steininn tók þó úr á Þingvöllum, þegar komið var og rukkaö fyrir eitthvað sem ég veit ekki hvað var og auk þess dýrast af þeim stöðum sem ég fór til. Ég vona að aöstaðan á Þingvöllum verði bætt hið fyrsta eða þá að sett verði upp skilti sem á stendur: Bannað að tjalda. Og í lokin: Við enduðum yfirferð okkar um landið í Vaðlavík, og þar var góð hreinlætisaðstaða. Furðuleg þjónusta Landssímans Hófi skrifar:_____________________________ Mér finnst varla stætt á öðru en að senda lesendadálki DV nokkrar línur vegna þess sem henti mig í samskiptum við Landssímann. Mál- ið hófst er ég ætlaði að setja upp ISDN-línu heima hjá mér. Ég byij- aði á því að leita mér upplýsinga á heimasíðu þeirra um málið. í stuttu máli fannst ekkert um þaö hvemig fólk á að setja upp svona búnað heima hjá sér. Því var ekkert annaö fyrir mig að gera en að hafa samband við þjónustuverið „Spumingin er kannski hvort þetta sé nokkuð ein- stakt tilfelli. Ég hneigist til að halda að svo sé ekki og það er enn alvarlegra mál. “ þeirra, í síma 8007000. Það er skemmst frá því að segja að í þeirri tilraun var ég sett á biö í 45 mínút- ur. Þegar síminn hringdi loksins inn var línan greinilega tekin en enginn svaraði mér. Ég heyröi ein- ungis raddir þjónustufulltrúa að tala saman í nokkrar sekúndur en þá slitnaði skyndilega „samtalið"! - Þetta kalla ég furðulega þjónustu og veit ekki hvað þetta á að þýða. Fyrirtæki, í hvaða grein sem það er, á að geta tryggt aö svona atvik gerist ekki. Ég hef áöur hringt þama inn og beðið mjög lengi. Spumingin er kannski hvort þetta sé nokkuð einstakt tilfelli. Ég hneig- ist til að halda að svo sé ekki ekki og það er enn alvarlegra mál. - Furðulegt að hafa ekki lesið um vandræði annarra í þessu eða svip- uðum tilvikum. Dagfari Grýlan aflífuð tvívegis íslenskir knattspymumenn gerðu það gott gegn Svíum í fyrradag; unnu þá í tveimur landsleikjum sama daginn og geri aðrir bet- ur. Fjöimiðlamenn sem lýstu leiknum spör- uöu ekki stóra orðin frekar en fyrri daginn og allt var þetta stórkostlegt og frábært, sama hvað landinn gerði. Ekki skal dregið úr því afreki íslenskra knattspymumanna að vinna tvo sigra gegn Svíum sama daginn. Slíkt gerist ekki á hverj- um degi að Svíagrýlan fræga sé aflífuð tví- vegis sama daginn. Reyndar er hálf öld liðin frá síðasta sigri okkar á Svíum. Þaö var þeg- ar Ríkharður Jónsson gerði garðinn frægan. Leikmenn íslenska liðsins eru fastir fyrir. Þeir láta allt tal um Svíagrýlur lönd og leið. Hetjumar voru aldar upp á íslenskum mat, skyri og slátri og öðru slíku sem reynist mönnum vel þegar á hólminn er komið. Oftar en ekki hristu okkar menn Svíana af sér eins og lýs. Er vonandi að Danir fái svipaða meðferð er þjóðim- ar mætast í haust. Eitt vakti mikla athygli. Aðsókn að leiknum var nyög léleg. Aðeins sáu um flmm þúsund manns sér fært aö mæta á leikinn og hlýtur það að vera forystumönnum knattspymunnar mikiö áhyggjuefni. Þessi dapra aðsókn er ekki síöur at- Mikilvœgt er að þeir sem stjóma útsendingum frá þessum greinum hafi þekkingu á því sem fjallað er um og slíkt hefur verið fyrir hendi. hyglisverð fyrir þær sakir að íslenska landsliöiö hefur veriö að ná góðum árangri síðustu misser- in. Einhverra hluta vegna hefur þessi góða frammistaða ekki skilað fleira fólki á völlinn. Mönnum finnst þaö aumt þegar álíka margir áhorfendur mæta á landsleik á Laugardals- velli gegn Svíum og á hveija torfærukeppn- ina af annarri. Sífellt er talað um mikinn áhuga íslendinga á knattspymu en þessi mikli áhugi skilar sér ekki á stórleiki á Laugardalsvelli. Nýjar íþróttagreinar era stöðugt að verða fyrirferðarmeiri i fjölmiölum. Formúlu 1, tor- færa og hnefaleika má flokka undir nýjar íþróttagreinar sem náð hafa gríðarlegum vin- sældum hérlendis. MikOvægt er að þeir sem stjóma útsendingum frá þessum greinum hafi þekkingu á því sem fjallað er um og slíkt hefur verið fyrir hendi. Hins vegar er langur vegur frá því að íslenskt mál sé talað í þessum lýsingum og má þar margt bæta. Sérstaklega má einn vinsælasti söngvari þjóöar- innar, Bubbi Morthens, taka sig á. Lýsingar hans á hnefaleikakeppni era oft afleitar hvað málfarið varðar. Orðaforðinn er ótrúlega snauður og með- ferðin á því litla sem til staðar er oft bamaleg og hreinlega vitlaus. Oftar en ekki era það þó aðstoö- armennimir sem ekki era talandi. Þvi er þó öfúgt farið í hnefaleikunum þar sem Ómar Ragnarsson er frábær að vanda og skarar fram úr. Dagfari Guölaugur Þór Þórðarson og Helgi Hjörvar Ekki beint hollir Reykvíkingum. Vilja ræða við landsbyggðina Kjðsandi i Reykjavik skrifar: Ég hlustaði á þáttinn í vikulokin að venju. Þar voru m.a. borgarfulltrú- amir, þeir Guðlaugur Þór Þórðarson og Helgi Hjörvar. Rætt var um flug- völlinn í Vatnsmýrinni. Báðir snar- snerast þeir í kringum málið. Endaði Guðlaugur meira að segja á því að segja að þar sem innanlandsflugið væri nú mest til ísafjarðar, Akureyr- ar, Egilsstaða, Hornafjaröar og Vest- mannaeyja þyrfti nauðsynlega að halda fund með íbúum þessara staða áður en nokkuð yrði aðhafst um að leggja niður Reykjavikurflugvöll! Það mun ekki vefjast fyrir okkur Reyk- víkingum að sniðganga svona full- trúa í næstu kosningum. Þeir eiga bara að bjóða sig fram í sinni sveit. Harmoníkan í Nærmyndina Jóhanna hringdi: Ég er ein þeirra sem elska harm- oníkutónlist og oft hefur hún hljómað í Ríkisútvarpinu, en samt ekki nógu oft. Ég hlusta til dæmis ávallt á þátt- inn Nærmynd og hef beðið umsjónar- mann hans um að flétta nú einhvem tíma harmoníkutónlist inn í þáttinn, a.m.k. við og við. Þó hefúr ekkert gerst enn. Ég skora nú á þáttarstjóra Nærmyndar að verða við þessari ein- földu en frómu ósk og koma harm- oníkunni í „nærmynd", þessu eyma- konfekti flestra fúllvalda íslendinga. Leiðrétting: Ekki Málara- meistarafélagið í kjallaragrein Atla Hraunfjörð, „Hvað er að hjá Málarafélaginu?" og birtist í DV í gær, skeðu þau mistök að birta mynd af stjóm Málara- meistarafélagsins, sem hélt hóf sitt í hittifyrra. Mynd þessi (sem hér er endurbirt) átti ekki að birtast og biður blaðið viðkomandi velvirðing- ar á mistökunum. Barnabætur Framsóknar Dýrfinna skrifar: Það ætlar að verða djúpt á loforði Framsóknarflokksins um óskertar bamabætur. Nú segja þeir í flokknum að þetta rætist á næsta ári - og aðeins að hluta! Hver trúir því? Þeir segja líka að sjálfstæðismenn séu til trafala í málinu. Þetta sérstaka mál hlýtur að hafa verið eitt af samningsatriðum í stjómarmyndunarviðræðunum, svo að hér er ekki um nein vafaatriði að ræða, finnst kjósendum Framsóknar. Þetta mál verður að skýra betur fyrir almenningi. Engin vettlingatök eða humm og ha og kannski. Einfaldlega efndir og það á þessu ári. IDV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.ls Eöa sent bréf til: Lesendasi&a DV, Þverholtl 11, 105 ReyKJavik Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.